BFÖ-blaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 3
HÆFNISAKSTRAR - lokakeppni i luton, englandi
AÐDRAGANDI
GENERAL MOTORS
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá
neinum BFÖ-félaga, sem litið hefur í
BFÖ blaðið, að s.l. sumar stóð félagið
fyrir lo hæfnisaksturskeppnum víða
um land.
Alls urðu keppendur loo talsins.
Engin aldurstakmörk voru í keppnunum,
aðeins að ökumenn hefðu gildandi öku-
leyfi og bifreiðar þeirra væru í skoð-
unarhæfu ástandi.
Þeir, sem voru á aldrinum 18-25 ára
höfðu þó einir rétt á þátttöku í loka-
keppni, þar sem 1. og 2. sætið tryggðu
einnar viku ferð til Englands til
þátttöku í norrænni hæfnisaksturskeppni
svipað þeim, er hér fóru fram.
Til að skera úr um, hverjir færu til
Englands var haldin lokakeppni í
Reykjavík 21. október, en þangað var
stefnt þeim tveimur keppendum á hverjum
hinna lo staða um landið, sem best
höfðu staðið sig og voru á aldrinum
18-25 ára.
Alls mættu 15 vaskir sveinar til leiks.
Félagið hafði fengið lánaöa skólalóð
Álftamýrarskólans og véladeild SÍS
lánaði félaginu bifreið af tegundinni
Vauxhall Chevette, framleidda af
General Motors - GM - í Englandi, sem
m.a. stóðu að áðurnefndri keppni,
eins og síðar kemur fram.
Þannig kepptu allir á sama bílnum, sem
óneytanlega er réttlátast í slíkum
keppnum.
Eknar voru 3 umferðir og að þeim loknum
kom í ljós, að Einar Guðmundsson úr
Reykjavík var sigurvegari og Guðmund-
ur Salómonsson frá Húsavík var í 2.
sæti.
Þeir Einar og Guð-
mundur héldu síðan
þann 12. nóveraber
til London til
hinnar norrænu
keppni. Uppihald
þeirra var í boði
Bindindisfélaga
ökumanna í Noregi
og Svíþjóð, en
Ábyrgð hf. greiddi
fargjöldin.
í London var boðið upp á mjög fjöl-
breytta dagskrá auk keppninnar sjálf-
ar.
Vauxhall verksmiðjurnar voru skoðaðar
en þar vinna undir sama þaki um 6.000
manns við framleiðslu á hinum ýmsu
tegundum Vauxhall bifreiða, stórra og
smárra.
Sést þar best hversu gífulegrar skipu-
lagninar og eftirlits er þörf í fram-
leiðslu sem þessari, þar sem þúsundir
ólíkra hluta eru í einu á færibandinu
og eins gott að skipulagið standist,
svo ekki fari allt úrskeiðis.
Einnig var skoðað tilraunasvæði
Vauxhall verksmiðjanna, þar sem nýjar
tegundir bíla eru prófaðar og reynslu-
keyrðar.
Kom m.a. fram, að einnar mílu ákstur
á þessxom reynslubrautum jáfngildir
lo mílna akstri á vegum úti.
Þarna mátti sjá bíla af öllum stærðum
allt frá minnstu fólksbílum upp í
stærstu vörubíla, aka á brautum, sem
sérstaklega eru lagðar til að reyna
þolrifin í bílunum.
Keppnin, sem þeir félagar fóru til
þátttöku í var einmitt haldin á
æfinga og tilraunasvæði Vauxhall, sem
er í Luton, um 1 1/2 klst. akstur
frá London.
General Motors, framleiðendur
Vauxhall bíla stóðu að hluta til að
keppni þessari sem farið hefur fram
undanfarin ár að tilstuðlan Bindindis
félaga ökumanna í Svíþjóð og Noregi
og var þetta í fyrsta skipti, sem
BFÖ sendi fulltrúa.
KEPPNIN SJALF
Keppnin var í grundvallaraðriðum hin
sama og hér heima í sumar, þ.e.
ekið var í gegnum þrautir á sléttu
plani á sem skemmstum tíma og án
þess að gera villur í þrautunum.
Þrautirnar voru þó í ýmsum atriðum
ólíkar því, sem hér var heima og
öllu erfiðari.
Hver keppandi ók tvær umferðir og
notaðir voru Vauxhall Chevette bílar.