Vestri


Vestri - 31.03.1906, Blaðsíða 2

Vestri - 31.03.1906, Blaðsíða 2
go V~E S T R I . 23. tbL epls sæiðist 15 manns og 2 dráp- ust. Ástandið er rnjög svo al- varlegt. Binu fræga franska skáldi, Alfred de Musset hefir veiið reistur fagur minnisvarði í París. England. Á stefnuskrá ensku stjórnarinnai er að veita Búum sjálís&tjórn og spá andstæðingar stjórnarinnar, að það muni verða til þess, að Eng- lendingar missi Transvaal. í ráði er stór aukning við enska ílotann. Frá 1. apríl munu verða í smíðum 50 smærri og stærri herskip. Norvegur. Nýlega hjelt hinn norski efna- fræðingur Eyðe fyrirlestur um nýja aðferð til að framleiða saltpjetur af súrefni og köfnuuarefni loptsins og mun þessi aðferð fá afarmikla þýðingu í framieiðslu saltpjeturs. Rafurmagnsneisti er notaður tii þess að súrefni og köfnunarefni gangi í samband hvort við annað; við það myndast lopttegundir, sem vatn er látið sjúga að sjer og þá kemur fram saltpjeturssýra, sem síðan má breyta í saltpjetur. Að- ferð þessi er miklu betri, en sú, sem' áður hefir verið notuð. Hefir verið sett á stofn verksmiðja i Norvegi til að nota hana ogverður Norvegur að iíkindum með tím- anum það land, sem framleiðii mest allan saltpjetur, þar sem líka Norðmenn munu kunna að hag- nýta fossana sína. Ameríka. Eldfjailið Mont Pelóe á Martinque hefir gosið og særðust 5 menn af steinum, sem slöngvuðust út. Jarð- skjálptar miklir vora því samfara. Úr bænum og grenndinni. Yígsla fcíood-TeDiplarhússins nýja hjer í bænum fór fram 30. þ. m. — Húsið var vígt af br. Indriða Einarssyni, sem kom hingað vestur með „Ceres" í því skyni. Vígslu atnöfnin byrjaði kl. 8x/a. Eptir að vígslu siðum var lokið tóku við ræðuhöid og söngur á milli. Voru þar flutt hin venjulegu minni (ísl. o. s. frv.) og auk þess fjöidi annara minna og ræður, og stóð það yftr til kl. 2. Þótti hátíð þessi hin tilkomumesta og skemmti- legasta þótt undirbúningur væri lítili. Nokkrir fjelagar úr stúkum hjer í nágrenninu voru þar staddir. en þeir myndu hafa verið miklu fleiri viðstaddir ef hægt hefði verið að dagsetja vígsluna svo, að þeir hefðu vitað um hana í tæka tíð. Þetta nýja hús Good-Templara er bæði myndarlegt og fallegt og hið skemmtilegasta samkomuhús til hvers sem vera skal. Salurinn er 16X20 al. að stærð með senu 10 al. langri og jafnbreiðri salnum og tveirn hliðarherbergjum þar við. Undir senunni og þeim herbergjum er kjallari til veitinga og er þar veitingastofa löXlOal. að stærð, og eldhús. Við húsið eru tvö stór andyri. sem liggja saman, og þriðja lierbergið tii hlilar við þau. Er sá hluti hússins tvíiyptur og uppi eru 3 herbergi og eldhús. Húsið er því einkar hagkvæmt til ailskonar mannfunda, sjónleikja o. s. frv. og er bænurn mesti sómi að eiga slíkt samkomuhús. Þar að auki er það stærsta og bezta fundarhús sem Good-Templar regl- an á hjer á landi. Skíðaskriðið. Það er iofsvert að ýmsir menn hjer í bænum hafa hafist handa til að efla hina góðu og gömlu list, skiðaferðirnar. Kaupm. Emil Strand útvegaði 20 pör skíða frá Norvegi og komu þau hingað í vetur; gekk þá þegar feikimikil skíðasótt um bæinn svo í heila viku var ekki urn annað talað en skíði og skíðaferðir. Hver krakkinn sem kominn var ýfii 5 ára aidur varð óður og upp- vægur að fá sér skíði úr stöfum úr oiíufötum og gömlum skyrsáum. Sagt er að sumir feður hafi jafnvel orðið að taka staflna úr einu kjöt- tunnunni sem þeir áttu til í eigu sinni, til þess að barnið þeirra gæti fyigst með tímanum. Ekki hefir þó orðið jafnmikið úr íramkvæmdunum sem undirbún- ingnum, sumir hafa farið eina fei'ð og aðrir ekki komist lengra en að sstja upp skiðaskóna. Kvennþjóðin heflr þó orðið einna framkvæmda- sömust. Fáar minniháttar konur munu þó enn vera komnar á skíði, en nokkrar „maddömur", „frúr“ c g „frökenar" hafa „gert stóra lukku“ í bænum. Allt er hjer í framförum. X. Mótoraf jölgumin gengur nú hröðum skrefum í bæn- um, í hverjum krók standa menn bograndi við aftur enda á gömlum bátum, til að undiibúa þá undir nýja skrúfu. Aðrir vinna af kappi að því að smíða nýja báta og fjöldi báta og mótorvjela hefir verið pantaður frá útlöndum og kemur með hverri ferð. Hvert sem litið er ljómar fram- tíðarlán og hagsæld sjávarútvegsins eins og upprennandi dagur. Framfarirnar lifi! X. Bafíshroðí kom hjer inn í Djúpið 30. þ. m. svo langt að hann sást hjeðan úr bænum og lítur því út fyrir að hann sje ekki fjarri. En ekki mun það þó ha.fa verið nema dálítið hrafl. „\Testa“ kom hingað 28. þ. m.ogfóraptur sama dagínn. Með henni voru hátt á annað hundrað farþega, þar á meðal margt af sjómönnum hingað að Djúpi. Þessa höfum vjer heyrt getið i um nafnkenndasta með skipinu: Alþm. Jón Jónsson frá Múla, Sighvatur Bjarnason bankastjóri, sem báðir biðu hjer eptii „Ceres", alþm. Guðjón Guðlaugsson á Kleif- um, á leið suður til að endurskoða landsreikningana, 3 búnaðarnem- endur af Hólaksóla á leið til Dan- merkui- til fiekaia búnaðarnáms, Jón Jónsson verzlunaragent (hingi að), Björn Guðmundss. kláðalæknir. J. P. Clausen o. fl. Með skipinu fóru: Chr. Fr. Niel- sen með frú sinni, frú Anna Bene- diktsson o. fl. „Ceres“ kom hingað 29. þ. m. og fór aptur í nótt. Með henni voru ýmsir farþegar. Þar á meðal Indriði Einarsson skrifstofufulltrúi, Sigurð- ur læknir Magnússon á Patreksfirði, Björn Olsen kaupm. Patreksfirði, Jón N. Sigurðsson kaupm. Bíldadal Jón Hildiberg skipstj. St.hólmi o. fl. Með skipinu fóru Óiafur Metúsal- emsson verzlunai-stj., Björn Metú- salemson verzl.m. Jóh. Þorsteinss. sýsluskrif., Á. Sveinss. kaupm. o. fl. „Kong Trygye“ kom hingað 26 þ. m. ogfóraptur aðfaranótt þess 28. Með honurn voru ýmsir farþegar, þar á meðal Ármann Bjarnason, bókhaldari á Bíldudal. Með skipinu tóku sjer far hjeðan: frú Haildóra Sorensert, frá Bolung- arvík; skólapiltarnir Konráð Kon- ráðsson og Stefán Thorsteinsson; Jón Ól. Jónsson málari o. fl. Bæjarstjói’narfuiiður, haldinn 24. þ. m. 1. Kosnir- 2 inonn í landsdóm og hlutu kosningu: D. Soh. Thorsteinsson lœknir 5 atkv. H. S. Bjarnarson kon- súll 5 atkv. 2 Kosin 3ja manna nefnd til að semja reglur fyrir lóðasjóð ísafjarðarkaupst. og hlutu kosningu: Magnús Olafsson, Magnús Toriason og Jón Laxdal. 3 Lagt fram nefndarálit í uppfroeðslu- málum barna. Yar það samþ. sem til- lögur bœjarstjórnarinnar í þessu máli. 4. Kosnir 2 menn í kjörstjörn til að sjá um kosningu endurskoðanda bœjar- reikninganna, kosnir: S. A. Kristjánsson og Arni Sveinsson. 5. Eríndi frá Birni Pálssyni bókaverði hólcasafnsins um hœkkun á launum sínum upp í 100 kr. á ári. Tillaga um hœkkun þessa var felld. 6. Beiðni Halldórs M. Ólafssonar á Góustöðum um aðseturleyfi í bœn- um felid. 7. Lagt fram nofndarálit í Sétara- máli bœjarins. Tillaga um að afnema sótara stöðuna felld. Tillaga nefndar- um að samþykkja nýja gjaldaskrá er hún lagoi fram., samþ. 8. Frumvurp til heilbrigði ssara- þykktar fyrir kaupstaðinn samþ. Úr ýmsum áttum. Skipsti-«ncl. Úrír botnvörpungar hafa nýlega strandað á suðurlandi, einn enskur á Breiðainerkur sandi, annarþýzkur á Svínafeilsfjörum á Skeiðarársandi og sá þriðji enskur á Stokkseyri. Menn björguðust af þeim öllum. Skipverjai af skipi því. er strandaði á Skeiðarársandi, komust í hæli það, sem kaupm. Thomsen hefir látið reisa og dvöldu þar tvo daga,. þar til þeirra varð vart. Telja þeir víst, að þeir hefðu aJlir farist, ef hælíð hefði ekki verið, því veður var vont og þeir illa til reika, og lágu úti nóttin eptir að þeir biðu skipbrotið. Briini. 1. þ. m. brann' íbúðar og vei'zl- unarhús Metúsalems Jóhannessonar kaupm. á Oddeyri til kaldra kola. Húsið og vörur eiganda var vátryggt fyrir 25 þús. kr. en ýmsir leigendur er i húsinu bjuggu höfðu eigur sínar óvátryggðar og verða því fyrir tals verðu tjóni. Heiðursmerki. Hannes Hafstein ráðherra, síra Matthías Jochumsson og Steingrími ur Thorsteinson, rektor eru orðnir Dannebrogsmenn. Þeir voru allir áður R. af Dbr. Gipt eru í Kaupmannahöfn nýlega P. M. Bjarnason kaupmaður hjeðan úr bænum og fröken Sophie Jensen. Bmhættispróf í iogfræði heiir Bjami Jónsson frá Unnarholti te .ið nýlega með 2. einkunn. Reikningur yfir tekjur og gjold „styrktarsjóðs ekkna og harna tsfrðinga þeirra er í sjó drukkna", árið 1905. Tekjur: 1. Eptirstöðvar við áralok 1904. Kr. 10900,92 2. Vextir árið 1904 a. lagðir við í söfnunarsjóð „ 108,29 b. sendir vextir til úthlutunar 1905 „ 324,87 Álls Kr. 11334/08 Kr. 300,00 » 13,40 Gi öld: 1. Styrkur greiddur 9 ekkjum, fskj. 1 2. Auglýsingar m. m. — 2 3. Eptirstöðvar: a. í söfnunarsjóði (þar með kr. 1*8 áður i sparisjóði). b. í peningum. Kr. 11009,21 „ 11,47 Alls Kr. 11334,08 ísafirði, 10. nóv. 1905. í umboði nefndarinnar ^orYaldur Jónsson.

x

Vestri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.