Vestri - 08.12.1906, Side 2
2Í
V K 3TRI,
6 tbl.
Og kotnið í Ijós, að sjúkling-ar,
sem dvalið hafa í heilsuhælum,
breiða manna bezt út rétta þekk-
ingu á vörnum gegn útbreiðslu
veikinnar, til stórgagns fyrir land
og lýð.
í öðrum löndum hafa verið
stofnuð allsherjarfjelög til þess
að sporna við berklaveikinni, og
allstaðar hefir slíkur íjelagsskapur
borið þann ávöxt, að veikin hefir
stórum þverrað. Á Englandi
hefir manndauðiaf völdum berkla-
veikinnar þverrað um helming á
30 árum.
Vér erum nú einráðnir í því,
að hefja baráttu hér á landi gegn
berklaveikinni og skorum á alla
íslendinga til fylgis, skorum ú
alla menn, unga og gamlu, jafnt
karla sem konur, að ganga í
HeiJsuhælisfjelagið.
Berklaveikin er komin í öll
hjeruð landsins. Hættan vofir
yfir öllum heimilum landsins.
Þess vegna teljum vér víst, að
hver maður. hvert heimili á land
inu muni vilja vinna að því, að
útrýma þessu þjóðarmeini. Og
þess vegna höfum vér sett ár
gjald fjelagsins svo lágt, að allir,
sem einhver efni hafa, geti unnið
með. Félagsgjaldið er 2 kr. á
ári, og vér vonum, að hver og
einu skrifi sig fyrir svo mörgum
fjelagsgjöldum, sem efni og
ástæður leyfa. í stað vanalegs
fjelagsgjalds, eins eða fleiri, geta
menn greitt æfigjald; það er
minnst 200 kr.
Það er tilgangur Heilsuhælis-
félagsins, að hefta för berkla-
veikinnar mann frá manni og
veita þeim hjálp, er veikina taka,
einkum með því: — 1) að gera
sem flestum kunnugt eðli berkla-
sóttkveikjunnar og háttsemi
berklaveikinnar, hvernig hún
berst og hver ráð eru til að
varna því: — 2) að koma upp
heilsunæli, er veiti berklaveiku
fólki holla vist og læknishjálp
með vægum kjörum, eða endur-
gjaldslaust, ef þess verður auðið
og fátækir eiga í hlut.
Heilsuhæli handa 40—50 sjúkl-
ingum mundi koma allri þjóðinni
að stórum notum, en kosta um
120 þúsund krónur, og ársútgjöld
nema milli 30 og 40 þúsund kr.
Ef hver sjúklingur borgaði með
sér rúma 1 krónu á dag og flest
um mun hærri borgun um megn,
þá yrði tekjuhallinn 16—18 þús.
kr. á ári.
Nú vonum vér, að Heilsuhæl-
isfjelagið eignist að minnsta kosti
einn félaga á hvérju heimili á
landinu, en þá verða árstekjur
þess um eða yfir 20 þúsund kr
og þá getur það rekið heilsuhæli
yfir 50 sjúklinga án nokkurs
styrks úr landssjóði. Þá eru og
einnig líkur til þess, að komandi
þing mundi veita lán úr landssjóði
eða landssjóðsábyrgð fyrir láni
til þess að koma hælinu upp
þegar á næsta ári; enda göngum
vér að því vísu, að þingið muni
styðja þessa þjóðarstarfsemi með
ríflegri hlutdeild í byggingar-
kostnaði heilsuhælisins.
Loks væntum vér þess, að
heilsuhælisfjelaginu áskotnist
gjafir frá öðrum tjelögum, frá
ýmsum stotnunum og einstökum
mönnum.
Reykjavík 24. nóv 1906.
Yfirstjórn heilsuhælisfjelagsins.
KI. Jónsson Björn Jónsson
landritari ritstjóri
foryn fjél, ritari fjél.
Sigliv. Bjarnason
bankastj óri
fjehiröir fjel.
Ásg.Sigurðsson EiríkurBriem
kaupmaður. prestaskólakennari.
G-. Bjiirnsson
landlæknir.
Buðm. Ouðinundsson
fátækrafulltrúi.
Guðm. ílagnússon
1 æknaskólakennari.
Hjörtur Iljartarson
trjesmiður.
M. Lund Matth. Þórðarson
lyfsali. rittjóri.
Ólaí'ur Ólafssen
fríkirkjuprestur.
Frjettir frá útlöndum.
Frakkland. Sarrien forsætis-
ráðherra hefir sagt af sjer, en
Clemencau tekið að sjer að
mynda nýtt ráðaneyti og gekk
það greiðlega. Þegar hann lýsti
yfir stefnuskrá ráðaneytisins var
heldur þröng á þingi og vænta
menn hins bezta af þessu nýja
ráðaneyti, því Clemencau er
frjálslyndur mjög og dugnaðar-
forkur. Meðal annara nýunga
hefir hann þegar skipað sjer
stakan ráðherra fyrir mál verk-
manna og mælist það mjög vel
fyrir.
jRússland. Þar er sama óöldin
og áður. Stolypin ráðaneytið
berst nú fyrir, að fá kosningar
til >dumunnar< stjórninni sem
mest í vil og neytir til þess
flestra meðala.
Nokkrir Búar hafa nú gert
uppreisn, en að sögn er það að
eins ræningjaflokkur. Booth
hinn frægi hershöfðingi Búa frá
Búaófriðinum hefir boðið Eng-
lendingum fulltingi sitt, til að
bæla uppreistina niður.
Um
tillögur kirkjumálanefndarinnar
eptir síra Böóvar Bjarnason.
(Framh.)
Á frumvarpi þessu eru nokkrir
annmarkar og vil jeg sjerstaklega
nefna tvo þeirra.
I 4. gr. frumvarpsins er það
tekið fram, að kirkjuþingið skuli
hafa samþykktaratkvæði um öll
innri kirkjuleg mál. Þessi innri
kirkjulegu mál eru svo talin upp
í 5. gr. og eru þau þessi: »Hin
kirkjulega kenning (játningarritin
og játningarskuldbinding), hin
kirkjulega guðsþjónusta, veiting
sakramentanna, kirkjulegar at-
hafnir (ferming kirkjuleg hjóna-
vígsla, kirkjuleg útför) og holgi-
siðir, sálmabækur og kirkjusöngur
sálusorgara samband prests og
safnaðar, uppfræðing ungmenna
í kristindómi, barnalærdómskver,
r.otkun kirkna, mentun presta og
prestvígsla, innsetning presta og
prófasta, prestaheit, leikmanna-
starfsemi í söfnuðunum og kirkju-
leg líknarstarfsemi.t
Það liggur í augum uppi. að
til þess að málum þessum sje
betur borgið í höndum kirkju-
þings, en í höndum löggjafar-
þingsins, útheimtist töluverð sjer-
þekking kirkjuþingsmannanna í
þessum efnum. En þegar gætt
er að skilyrðinu fyrir sæti á
kirkjuþinginu, kemur það í ljós
að engin trygging er fyrir því,
að hinir kjörnu fulltrúar prófasts-
dæmanna hafi nokkra slíka sjer-
þekkingu til að bera. Þessi
ráðstöfun virðist mjög varhuga-
verð frá kirkjunnar sjónarmiði.
Þetta atriði kippir fótunum undan
frumvarpinu sjálfu, og gerir það
með öllu þýðingarlaust. Hví
skyldi eiga að ráða þjóðinni til
þess að leggja út stórf je og stofna
handa kirkjunni nýtt þing, sem
engin ástæða er til að ætla að
betur geti skilið mál kirkjunnar
eða ráðið þeim til heillavænlegri
lykta, en löggjafarvaldið gerir?
Sjerþekking kirkjuþingsmann-
anna á hinum innri málum kirkj-
unnar, er frumskilyrðið fyrir því,
að starf þingsins geti borið til
ætlaðan ávöxt. Að gera slíka
sjerþekkingu að skilyrði fyrirsæti
á kirkjuþinginu er að vísu ervið-
leikum bundið. Betri tryggingu
mætti þó fá fyrir þessu atriði t.
d. með því að haga kosningum
til kirkjuþingsins eins og kosn-
ingum til alþingis. Má þá ganga
að því vísu ?ð vart mundu aðrir
bjóða sig fram til þingsetu, en
þeir, sem aflað hefðu sjer tölu-
verðrar þekkingar í málunum og
hefðu vakandi áhuga á kirkjuleg-
um málum; enda væri sú aðferð
í alla staði frjálslegri og heppi-
legri, en sú, er frumvarpið ákveður.
Það getur eigi frjálslegt heitið,
að leyfa eigi prófastsdæmunum
í heild sinni að velja kirkjuþings-
mennina. (Framh.)
Nefndin
sem ætlað er að endurskoða og
semja sambandslögin rnillilslands
og Danmerkur, á eptir því sem
stungið hefir verið upp á í Dan-
mörku, að vera skipuð 11 Dönum
og 7 íslendingum.
Gefið gaum
áskoruninni um heilsuhælið, hjer
framar í blaðinu.-’v Það er nauð-
synjamál sem allir ættu að láta
til sín taka og styrkja eptir efnum.
Vonandi verður málið rætt á
almennum tundi í bænum áður
en langt um líður.
Ur Dýraflrði
er oss ritað:
>Engar frjettir, nema að barna-
veiki er að stinga sjer niður á
stöku stöðum, en hefir þó lítið
breiðst út enn. — Botnvörpungar
eru hjer margir inni á firðinum
þegar hvasst er úti fyrir og til
þeirra hafa þegar ráðist 4 af hin-
um fáu sjómönnum hjer í Þing-
eyrarhreppi.<
Sóttkvíun.
Tvö hús hjer í benum hafa
verið sóttkvíuð sökum barna-
veiki; veikin er þó ekki nema
í öðru þeirra, hitt hafði haft
samgöngur við það. Suðureyr-
arhreppur er líka sóttkvíaður,
því þaðan barst veikin hingað.
>Laura<
kom hingað 2. þ. m., með henni
kom: frú Þórdís Jensdóttir, Jón
Sn. Árnason kaupm., Sigbjörn
Ármannsson verzlunarm., Magnús
Magnússon verzlunarstj., Elís
Magússon verzlunarm., Jón Helga-
son kaupm., Þorkell Klemenzts
vjelfræðingur o. fl. Með skipinu
fór Björn Pálsson ljósmyndari til
Reykjavíkur.
Málfuudur
um bæjarmálefni var haldinn á
laugardaginn 1. þ. m. fáir mætti
og var Kára kennt um að hann
hefði rifið niður auglýsingarnar.
Borgarafundur verður haldinu í
Bæjarþinghúinu 15. þ. m. kl. M/g
og er vonandi að borgararnir fjöl-
menni á fundinn.
>Borgaraklúhburinn<
hjelt skemmtun sunnudagskvöld-
2. þ. m. var þar söngur ræðu-
höld, upplestur, sjónleikur og
spiDð á eptir.
Skarlatssótt
er að breiðast út á Akureyri og
befir einnig orðið vart á Vopna-
firði. Ilin sýktu hús hafa verið
sóttkviuð.
Verzlunarhús
Chr. Fr. Nielsen & Co’s. í Kaup-
mannahöfn er nú vegna vakandi
víðskipta búið að flytja sig frá
Peder Skramsgade 26 til Niéls
Juélsgade 7, þar setn það hefir
fengið stórar og rúmgóðar
skritstofur.
VÖRUUPPBOÐ í GOOD-TEMPLARHÚSINU FÖSTUDAGINN 14. Þ. M. LESIÐ G0TUAUGLÝSINGARNAR1