Vestri - 20.05.1912, Side 1
XI* ápg,
Símfregnir.
t
Hans Hátign
Friðrik VIII.
jcooungur Danmerkur og íslands
andaðist aðfaranótt miðvikudags-
ins J5- þ- tn., úr hjartaslagi.
jConungur var staddur i Ham-
borg. á heimleið frá Frakklandi,
og var alfrískur daginn áður,
gekk út uui kvöldið (14.) um kl.
i° og varðþá skyndilega sjúkur;
r jjo® *®^regluþjónn honum þá til
Jijálpdr °g flutti hann á sjúkrahús,
og var konungur þá látinn.
Líkið kom til Kaupmannahafn-
ar á föstudaginn 17. þ. m.
Jarðarförin 4 að fara fram
föstudaginn 24. þ. m.
Friðrik konungur VIII. var
fseddur 3, j,'lnj ^843 og var þvi
tæpra 6q ára að aldri. Tók við
ríkisstjórn 29. jan. igoó, eða fyrir
rúmum 6 árum. Til íslands kem
jiann eins og kunnugt er sumarið
1907, ®g var hann jafnan siðan
mjög ástsæll af íslendingum.
Kristján X.
tók við konungstign 15. þ. m
Hann er fæddur 26. seftember
1870, og er því tæpra 42 ára
gamall.
Landskjálttarnlr. Um 30 bæir
alls er sagt að hafi orðið fyrir
miklu tjóni af landskjálftunum.
Á 7 ® bæjum hefir síðan verið
búið í tjöldam, enda hafa smáir
landskjálttakippir gert vart við
sig síðan við og vjð.
Tj0rn ú Vatnsnesl hefir verið
veitt síra Sigurði Jóhannessyni
aðstoðarpresti.
Ágætur afli við Faxaflóa. í
Sandgerði og grend sagður
mokafli.
f ingmálafund hélt Guðlaugur
Guðmundsson bæjarfógeti á Ak-
ureyri á uppstigningardag.
Samþykt var með öllum greidd-
um atkvæðum, nema 12, aðlýsa
ánægju sinni yfir samkemulags-
horfum þeim sem nú væru, og
skorað á Alþingi að halda málinu
VESTRI
Ritstjóri: Kr. K Jónsson,
ÍSAFJÖRÐUR, 20. MAÍ 1912.
19. tbl.
áfram á þeim grundvelli, en
samþykkja þó ekki nein fulln
aðarúrsiit fyrri en málið hefði
verið borið undir þjóðina.
Fiskveiðasýningin
í Kaupiuannahofn.
Hin alþjóðlega fiskveiðasýning
fyrir Norðurlönd, sem haldin
verður í Kaupmannahöfn frá 5.
júlí til 27. ágúst í sumar, — er
framhald margra sýninga og var
1. sýningin, er tilefnið gaf, haldin
í Kaupmannahöfn 1903.
Með þeirri sýningu fóru mót*
orar fyrst að ryðja sér til rúms
í fiskibáturr, og nú eru þeir
orðnir útbreiddir um allan hnött-
inn.
Sýningin í suœar verður, eins
og nafnið bendir til (Fiskeri og
Motor Udstilling), í tveim deildum
nefnilega fiskveiðadeild, með
hinum margbreyttu áhöldum til
veiðiskapar í sjó og vötnum,
niðursuðuvörum, verslun, iðnaði,
vísindum o. s. frv., og motora
deild moð hinum ýmsu motorum
og áhöldum til þeirra og í sam-
bandi við þá.
Hluttökufresturinn er nýlega
liðinn, og það hefir sýnt sig að
hluttakan verður sérlega góð,
ekki einungis frá Danmörku,
heldur einnig frá nágrannalönd-
unum. Að því er mótorana
snertir er aðsóknin svo mikil, að
■lótorhöllin verður að byggjast
helmingi stærri en upphaflega
var ætlast til.
Við sýningu þessa verður meiri
samkepni milli danskra, norskra
og sænskra fiskveiðarekenda og
mótorverksmiðja en dæmi eru til
áður — en það er dómnefndanna
að dsema hverjir þar bera sigur-
orð af hólmi. En auðvitað hefir
slík samkepni mjög mikla þýð
ingu, bæði fyrir efnahag og
framþróun þessara atvinnugreina.
Þarna safnast alt saman og menn
læra að þekkja hver annars aðferð
og framleiðslu og bera það saman.
Það er augljóst að fiskiafurðir
Norðurlanda hafa mikla þýðingu
á hoimsmarkaðinum, og stafar
það af legu landanna, góðri að
stöðu, dugandis iðnaði og að þar
búa gáfaðar og dugandi fiski-
þjóðir.
Fiski- og mótorsýningar und-
anfarandi ára eiga mikinn þátt í
því að þessu er þannig varið.
N ý k o m i ö
með e/s Vesta
til hvítasunnunnar og ferraingarinnar
Álnaog vefnaðarvörur
allskonar.
Silkibönd.
Flauelsbönd.
N ærfatnaöir.
Milliskyrtur.
Hálslín.
Slaufur.
Sokkar.
Fermingarsjöl.
Vasakliitar úr hörogsiíki.
Hanskar.
Silki í svúntur.
Slyfsi.
Millipils, llúnel og moirée.
Svuntur.
Barnakragar.
Bainahúiur o. m. £1.
Fermingargjafir. Fermingarkort.
Tilbúinn fatnaíui í miklu nrvali,
saumaður hér.
HWP Vandabar vörnr. Gott ve ð.
Versl G. Árnadóttur
Hafnarstræti 3.
Til dæmis að netna: Hvemik-
ið útsýni veita ekki slíkar sýn-
ingar algengum fiskimönnum,
sem annars hafa alið mestaa sinn
aldur á sjónum í bát sínum, í
erfiðri baráttu tyrir tilverunni.
Hér kemst hann í kynni við
möguleika og eygir ýms markmið,
sem hann áður hefir dreymt um.
— Hann getur farið að trúa á
framfarir, sem forfeður hans
myndu hafa álitið ómögulegar,
og sýningin með fiskveiðaum-
ræðum, fyrirlestrum og leiðbein-
ingum, gefur honum kost á að
kynnast ýmsu sem hann aldrei
gleymir.
Það er ekki nema eðlilegt, að
þessi næsta sýning taki fram
hinum eldri sýningum í ýmsu
sem hefir mikla þýðingu, því nú
á dögum þeysa framfarirnar áfram
á harðastökki. Það sýnir líka
hin mikla aðsókn að sýningunni.
Nú geta menn í fyrsta sinn kom-
ist í kynni við hinn þráðlausa
símrita og talsíma og hvernig
hann má nota í fiskiskipum. En
hve mikla mögulegleika felur
ekki slík uppfundning í sér? —
Hugsið ykkur að fiskimenn geti
framvegis, meðan þeir eru út á
reginhafi með afla sinn, samið
með loftskeytum við kaupmenn
í landi um verð á afla sínurn eða
vitað hver býður mest í hann.
Eða ef þeir í náttmyrkri og
ofviðri er í háska staddir, að
geta þá kallað á hjáip þó í fjar-
lægð sé. Þetta er sjómannanna
djarfasti drau nur, aldanna undur,
sem nú er að koma fram.
Hér er ekki rúm til að nefna
hina helstu hluti sem á sýningu
þessari verða sýndir, en t. d. að
taka verða þar allskonar björg-
unaráhöld, stórt úrval frá hinu
norðurjóska björgunartélagi. Þar
verður og björgunarbátur með
motor, frá Gautaborg, spónný
uppfundning.
I sambandi við sýninguna
verður haldinn hinn 4. fiskveiða-
fundur Norðurlanda, og danskt
fiskisölu- og sjóveiðafélag heldur
þar fundi 16.—17. júlí.
Það er útlit fyrir að fiskveiða-
sýning þessi verði eftirtektar-
verðasti atburður ársins 1912,
fyrir Norðurlönd. Og það hefir
ekkert verið tilsp; rað tilþessað
gera hana svo fulikomna og
þýðingarmikla sem kostur er á.
Ettir undirtektunum að dæma má
vænta þess að hún nái hinu
þýðiugarmikla markmiði sínu:
P'ramförum í fiskveiðum og motor-
iðnaði Norðurlanda.
(Ofanrituð grein hefir verið
send Vestra til bírtingar frá sýn-
ingarnertndinni).