Skólablaðið - 15.11.1907, Síða 2

Skólablaðið - 15.11.1907, Síða 2
82 SKÓLABLAÐIÐ því, en ekki á móti, að börnin fái grundvallaratriðin í þessari fræðslu, sem annari í barnaskólunum, enda þótt sum þeirra gangi á æðri skóla síðar. Ungmennin munu eigi fá svo mikið af þarflegri þekkingu, að þau verði ó- móttækileg fyrir aðra meiri. Þegar þess er ennfremur gætt, að barnssálin er bljúgasti jarðvegurinn fyrir öll lífsfræ, sem bera eiga ávöxt í lífinu, — þá ætti það að vera Ijóst, að í barnaskólunum — að ógleymd- um heimilunum — ætti þeim fyrst að vera sáð. Mjer dylst það ekki. að su mót- bára komi fram, að námstími í barna- skólum sje stuttur og námsgreinar svo margar, að ógerningur sje að fjölga þeim. Jafnvel sje svo takmark- aður tíminn, að sleppa veiði öllu nema því allra nauðsynlegasta; velja að eins þær námsgreinar sem gefa mestan arð á stystum tíma, en fella hinar burt. Eg játa, að þessi ástæða er á nokkr- um rökum bygð, og er það ætlun mín, að margir mundu skoða hana sem rothögg á þessa nýju fræðslu, ef ekki væri hægt að víkja henni und- an því. Allir munu telja það kost á hverri fræðslugrein, að hún innibindi í sjer eða komi við sem flest, því með því má fella burt sjerstaka námsgrein, en taka hana aftur upp sem þátt úr ann- ari skyldri henni. A þenna hátt teng- ist hvert fræðikerfið við annað, og öll fræðslan verður samantengd heild. Þannig er einnig bindindisfræðsl- unni farið, hana má kenna án þess að fjölga námsgreinum og án þess að missa tilfinnanlega tíma frá öðru. Hvort sem kend er siðfræði eða heilsu- fræði, getur fræðsla um áfengi og bindindi verið einn þátturinn, og það er mín skoðun, að þann veg beri að velja; (fer hún saman við tiltögu stór- stúkurinar, sem birt er hjer að fram- an). Og hvaða kennari mun kenna svo mannfræði, að hann kenni eigi grundvallar-atriði heilsufræðinnar? Eg get búist við, að sumir hefðu litla trú á þessari kenslugrein, sem bæði væri innlimuð í aðra og væri ekki meiri fyrirferðar. Til þess liggja þau svör: Fyrir það fyrsta að fullkomin trygging fyrir á- vaxtarríkri kenslu er ekki fengin, þó að einhver námsgrein sje kend sjer- stök, heidur þvert á móti á að tengja það saman, er saman getur átt. Ein- angrun námsgreinanna er eitt af því, sem ofmikið hefir viðgengist í barna- skólum ; oft kent i mörgum »númer- um«, sem hcjði mátt hafa í einu; kenslan sunduriausir fróðleiksmolar, er alt samhengi vantaði og ofvaxið lítt þroskuðum börnum að tína sam- an; árangur því ekki eins mikill, og hann hefði getað verið og tíma- eyðsla óþörf. í öðru iagi fer árangur hverrar kenslu ekki eftir því, hve mikið er kent heldur, hvernig kent er, — og í þriðja lagi meðan ekki eru betri námsbækur til notkunar í fræðslu um áfengi í barnaskólum, og kenslutím- inn er eins takmarkaður og hann er víða, meðan hefi eg besta trú á fyr- irkomulagi því, sem eg held fram. Og gagn gæti orðið að því; á því er enginn efi. Vitanlega er alt undir kennaranum komið, en varla er ofætlun, að hver kennan leysi þá fræðslu, — eigi síð- ur en aðra, — viðunanlega af hendi, og sje sjálfur fyrirmynd í þessu efni; á það ber að leggja áherslu. Ef svo æðri skólarnir taka við af barnaskólunum í bindindisfræðslunni, þá er það fullkomin sannfæring mín, að fækka muni sárin á íslenska þjóð- líkamanum, og að því ættu allir að starfa; nóg er af meinsemdunum samt. Ólajur Ólafsson kennari. FYRSTI KAFLI. Röðunar- og gönguæfingar. A. Röðunarœfingar. 6. gr. (Frh.) tjölgun 9. Tvískifting. Skipuri: Skift í — tvent! Hægri »hliðarmaður« lítur snögt til vinstri og segir: Einn! Næsti maður gerir eins og segir: Tveir! Sá næsti segir aftur: Einn ! og hinn : Tveir! og svo koll af kolli, þar til röðin er búin. 10. Tviröðun. Skipun: Tvíröðun fram ! Hægri »hliðarmaður« stendur kyr. All- ir hinir gera »hægrihring« og mynda tvær raðir, þannig að allir, seni sagt hafa: Einn ! ganga hæfilega þjett saman í beina röð og þeir, er sagt hafa: Tveir! skipa sjer að baki þeirra, eins og áður er nefnt. Sje þá eitt skref milli raða. 11. Einröðun á ný. Skipun : Einröðun fram ! Hægri hliðarmaður stendur kyr. Hinir allir gera »vinstri« hring og ganga á sinn upphafl. stað aftur í einni röð og rjetta því næst röðina ir.eð því að líta til hægri (eins og í »röð iiægri«). Aths. Til þess að flýta fyrir má skifta liði í tvo jafna flokka skipunarlaust og láta þá fylkja sjer strax í tvær raðir, er skipað er: / tveim röðum — fyiking! Aðeins ber að gæta, að raðir sjeu rjettar og hæfilegt millibil. 12. Raðir fluttar ár stað. Skipun : Opnið raðirnar — þram !* *)' Skipuniti: Fram! og þram! er notuð til skiftis - eftir atviljum í stað erlenda orðsins marsch. Fremri röð stendur kyr. Aftari röð gengur rösklega 4 skref aftur á bak (byrjar með vinstra fæti) og stígur svo vinstra fæti að þeim hægri og raðar sjer — til hægri. Eigi að skipa röðum í sama horf og áður, er Skipun : Lokið röðunum — fram ! Aftari röð gengur 4 stutt skref áfram og stígur vinstri fæti að hægri. (— Gá verður að því að koma aftur á sinn rjetta stað í röðinni. —) 13. Raðir »opnaðar« til hliðar (er hver stendur að baki annars í hvorri röð). Skipun: Til hliðar — þram! Hver röð byrjar með »ytra« fæti og stígur eitt skref til hliðar (og lagfærir röð- ina áfram). Svo má skipa: Skipun : Saman — þram! Raðirnar byrja með »innra« fæti og stíga saman aftur. 14. Myndun fjögurra raða. Tvífylkingu er tvískift («skift í tvent«), og raðir þvínæst opnaðar. Skipun : Annarhver út — þram ! Allir þeir í báðum röðum, er sagt hafa: »Tveir« ganga tvö skref afturábak og stíga fótum saman. Skipun: Annarhver inn — fram! Þeir sem »úti« eru, ganga á sinn stað aftur í tveim stuttum skrefum og lagfæra röðina (til hægri). 7. gr. Raðir fluttar ákveðinn skrefajjo/aa (dæmi). 15. Úr »hliðar-röðun.r. a. Eitt (tvö, þrjú) skref — fram ! Eitt (tvö, þrjú) skref afturábak — þram! b. Eitt skref til vinstri (h.) — þram !] c. í-hring, eitt (tvö, þrjú) skref — fram ! (eða : afturábak — þram! d. í-hring, opnið raðirnar, — þram! e. Rhring, opnið raðirnar, annarhver út — þram! f. Vinstri (h.) — hring, eitt (tvö, þrjú) skref — fram! (eða: afturábak — þram!) g. Vinstri (h.) — hring, ti) hliðar, annarhver út — þram! 16. Úr »framröðun.« h. Eitt (tvö, þrjú) skref — fram! (eða a. b. þr.!) i. í-hring, eitt skref til vinstri (h.) — þram! j. Vinstri (h.) - hring, eitt (tvö, þrjú) skref — fram ! (eða: a. b. þram !) k. Vinstri (h.) — hring, opnið rað- irnar — þram! l. Vinstri (h.) — hring, opnið raðirn- ar, annarhver út — þram! 17. Úr »framröðun« með opnar raðir og annanhvern úti. m. Vinstri (h.) — hring, annarhver inn, lokið röðunum —- þram! — Aths. Allar ganghreyfingar byrja með vinstra fæti. -- í æfingum þessum eru »aðvörunarorðin« mörg, — en skipunar- orðið aðeins eitt. Verður að tala hin

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.