Skólablaðið - 15.02.1911, Side 3
SKOLABLAÐIÐ
35
ræður úrslitum mála, og sker formáður úr, ef jöfn eru. Eigi er
fundur lögmætur, ef færri eru á fundi en 3. Enginn nefndar-
maður á atkvæði um mál, er til hans tekur sérstaklega.
Rita skal fundarályktun hverja í gjörðabók, er sýslumaður
löggildir eða bæjarfógeti. *
III. kaíli.
Um skyldu fræðslunefnda.
6. gr.
Fræðslunefndir hafa á hendi stjórn og umsjón fræðslumála
hver í sínu héraði, það er lög þessi taka til. Þær hafa vand-
!egt eftirlit með prófum, sjá um að hlýtt sé fyrirmælum stjórnar-
valda um hollustuhætti í skólum og aðra reglu þar. Barnafræðslu-
nefndum er sérstaklega skylt að kynna sér, hver í sínu hjeraði,
hversu liáttað er um fræðslu barna þar á hverju heimili, og að
bæta um, ef lög þessi eru vanhaldin, með því að útvega kenn-
ara á heimilið eða kóma börnurium fyrir annarsstaðar til lög-
mæltrar tilsagnar, á kostnað þeirra, er að þeim starida og má
svara kostnaðinum í bili úr sveitarsjóði eða bæjar, og ta, ? hann
síðan lögtaki.
VI. kafli.
Um barnaskóla.
7. gr.
Nú veita barnaskólar þeir, sem upp eru komnir, til muna
frekari fræðslu en til er skilin alt að 12 ára aldri, og það jafn-
vel alt að því, er ætlast er til að átján ára ungmenni hafi orð-
ið aðnjótandi, og skulu þá slikir skólar nefnast ungmennaskólar
og njóta fjárstyrks úr landsjóði alt að l/8 móts við a/8 úr sýslu-
sjóði eða bæjarsjóði, með þeim skilyrðum:
1. að kenslunni sé hagað eftir reglugjörð, sem stjórnarráðið
hefur samþykt,
2. að fullnægt sé reglum, er stjórnarráðið setur skólum um
hollustuhætti og kröfum þess um kensluáhöld,
3. að kennari sé ráðinri til skólans eftir tillögum ungmenna-
fræðslunefndar og að hann hafi leyst af hendi kennarapróf?
nema hann hafi verið árlangt eða lengur kerinári við fastan
barnaskóla, er notið hafi styrks úr landssjóði.