Skólablaðið - 15.02.1911, Blaðsíða 4
36
SKÓLABLAÐIÐ
V. kafli.
Um próf.
8. gr.
Próf s.kal halda á ári hverju um kunnáttu barna í barna-
fræðsluhéraði hverju. í barnaskólaprófum prófar kennari (kenn-
arar) skólans, en ella sá maður, er barnafræðslunefnd ræður til
þess fyrir kaup, er greiðist úr bæjarsjóði eða hreppssjóði. Við
próf skulu jafnan vera 2 prófdómendur og ra þeir að starfslaun-
um alt að 4 kr. í dagpeninga. Veita skal hverju barni, er próf
stenst, skírteini um það, undirritað af prófdómendum.
Nú kemur piófskylt barn ekki til prófs án giidra forfalla og
sætir þá sá maður sektum, er barnið hefur til framfærslu.
9. gr.
Próf skal halda á vorum í ungmennaskólum öllum í lög-
mæltum ungmennafræðigreinum samkv. 2. gr., og prófar kennari
skólans eða kennarar að viðstöddum 2 prófdómendum. Skipar
bæjarstjórn eða sýslunefnd annan úr ungmennafræðslunefnd hér-
aðsins, en stjórnarráðið hinn. Þeir fá 5 kr. í kaup á dag, annar
úr bæjarsjóði eða sýslusjóði, en hinn úr landssjóði.
Stjórnarráðið setur reglur um tilhögun prófsins og kveður
á um prófskýrslur, er því skal senda, og um prófskírteini, er
veita skal þeim er prófið standast. Skýrslur þessar og skírteini
undirskrifa skólastjóri (yfirkennari) og báðir prófdómendur.
Rétt er hverju ungmenni á 12—18 ára aldursskeiði, að
ganga undir próf þetta, því er eigi hefur undir það gengið áður
og staðist það.
VI. kafli.
Önnur fyrirmæli.
10. gr.
Barnafræðslunefnd hver hefir í þóknun fyrir starfa sinn ár
hvert í kaupsföðum 5 aura fyrir hvern heimilisfastan íbúa barna-
fræðsluhéraðsins, en í sveitum 10 aura. Þóknunin greiðist úr
bæjarsjóði eða sveitar.
Ungmennafræðslunefnd hver hefur í ársþóknun fyrir störf
sín 150 kr., og greiðist þóknunin úr sjóðum bæja þeirra eða
sýslna, er í hlut eiga.