Sovétvinurinn - 01.03.1933, Síða 1
OVETVINURINN
ÚTGEFANDI: SOVÉTVINAFÉLAG ÍSLANDS
l. tbl.
Marz
1933
Sovétvinafélagið og isl alþýða
„Allt má heimskum segja“, hljóðar
gamalt spakmæli. Óþrjótandi dæmi
mætti færa því til sönnunar. Á 17. öld
gat hver prestbjálfi talið söfnuði sín-
um trú um, að eldgos og sultur kæmi
af siðspillingu fólksins og syndum
þess við guð. Og ekki hefir fslending-
um farið fram síðan, því að þá létu þeir
ekki ritstjóra dagblaðanna hérna spúa
í sig fjarstæðustu skýringum á atburð-
um, sem gerast rétt fyrir nefinu á
þeim, hvað þá um erlenda atburöi. —
Um Sovétríkin hafa a. m. k. Morgun-
bíaðið og Vísir látið sér sæma hvers-
konar illkvitni, og þó víst aldrei neina,
er heimska fjölda lesenda hafi ekki
gleypt við græðgislega. En óafsakan-
Íegast og sárgrætilegast er það um
verkamennina, hve mikill hluti þeirra
er sljór og sinnulaus um ríki verka-
lýðsins á Rússlandi. Alþýðan hefir um
allan aldur látið innprenta sér, að hún
gæti ekkert af sjálfsdáðum, og hefir
mænt til yfirboðara sinna með bænar-
augum eftir hverri hagsbót. Henni er
orðið inngróið vantraust á sjálfa sig.
Og þó að komið sé á daginn og henni
ætti að vera heyrum kunnugt, að rúss-
neski verkalýðurinn hefir stofnað sér
ríki sjálfur með þeim árangri, að þar
er alt í vexti og uppgangi, samtímis
því sem allt atvinnulíf og öll menning
kulnar út annars staðar, þó að kom-
ið sé á daginn, að engu ríki í veröld-
inni sé betur stjómað en þar sem verka-
mennirnir sjálfir ráða, þá vill hún
hvorki trúa, að ríkinu sé vel stjórnað
né verkamennimir ráði, og heldur sig
ár eftir ár í trú og tryggð við frásagn-
ir Morgunblaðsins. Á hverju getur öll
sú heimska þrifist, sem kemur raönn-
um þannig til að fjandskapast gegn
sjálfum sér?
„Heimskt er heimaalið barn“, segir
annar málsháttur. Ef íslenzk alþýða
væri ekki jafn einangruð og utan við
heiminn, ef hún hefði fylgzt með at-
burðarásinni erlendis á' undanförnum
áratugum, ef hún vissi um alla þá bar-
áttu og allar þær fórnir, sem verka-
lýðurinn varð að ieggja fram til að
ná fyrsta áfanganum á sigurleið sinni,
myndi hún hafa tekið fregtainni um
stofnun Sovétríkjanna með meiri fögn-
uði, meiri skilningi og samúð en hún
hefir gert. Mikill hluti hinnar íslenzku
alþýðu hefir enn ekki gert sér grein
fyrir, að öld verkalýðsins er loksins
risin, að nú ér komið að hans hlutverki
í sögu mannkynsins. Meðvitundin um
það hlutverk og ábyrgð þess gefur rúss-
nesku alþýðunni margfaldan mátt í
viðreisnarstarfinu. Skilningurinn á
þessu hlutverki kveikir sjáifstraust og
starfslöngun í hugum verkamanna um
allan heim. Þrátt fyrir yfirstandandi
eymd er verkalýðurinn kominn í sókn,
Eftir Halldór Kiljan Laxness.
Þégar þið komið til Sovétríkjanna,
þá ætla eg að taka ykkur vara fyrir
nokkrum smáatriðum, sem annars
gætu leitt ykkur til að draga falskar
ályktanir í höfuðatriðum, en sú hefir
orðið raun á um ýmsa.
Gluggat jöldin.
Ykkur mun furða á því, þegar þið
komið til Moskva, en þó sérstaklega,
þegar þið komið í hinar nýju og fagur-
lega skipulögðu stóriðnaðarborgir, sem
reistar háfa verið i fyrstu fimm ára
áætluninni, að það eru mjög óvíða
gluggatjöld fyrir gluggum í húsum
fólks, heldur oft aðeins pappír í þeirra
stað, eða einhverjar dulur. Nú er ekk-
erfc líklegra, en þið segið sem svo; 0-
yfirstéttin býst alls staðar til varnar
og beitir þrælatökum af hræðslu og
örvinglun. Þróun verklýðshreyfingar-
innar er svo langt komin, að hún verð-
ur með engum brögðum hindruð til
lengdar. Auðvaldið gæti eins tekið sér
fyrir hendur að veita fljótunum upp á
móti brekkunni. Fullnaðarsigur verka-
lýðsins um allan heim færist óðum nær.
Baráttan milli yfirstéttar og verkalýðs,
milli saddra og svangra, verður með
hverjum deginum ákveðnari og- harð-
vítugri. Utan við hana getur enginn
staðið lengur, vilji hann lifa og starfa,
en ekki vera dauð, hangandi drusla.
Til þess að skilja þessa hluti, verða
menn reyndar að víkka sjóndeildar-
hring sinn út yfir Morgunblaðið og
Vísi, en þó eru það hlutir, sem liggja
í augum uppi fyrir hvern, sem kynnir
sér atburðarás sögunnar og lögmál
þau, er hún lýtur. Heimskreppan og
önnur gjaldþrot kapitalismans á síð-
ustu árum hafa opnað augun á mörg-
sköp er þetta fátæklegt hér í alsælunni
(eins og Morgunblaðið segir, að
kommúnÍBtar lýsi Rússlandi), hvers
vegna hefir fólkið ekki gluggatjöld?
Þannig munuð þið sjá fagrar, spá-
nýjar stórborgir eina eftir aðra, höll
eftir höll, sem verkamennirnir hafa
reist sér, en óvíða gluggatjöld. Var þá
byltingin ekki unnin fyrir gýg, úr því
fólk hefir ekki ráð á að hafa glugga-
tjöld? munuð þið spyrja.
En ef þið heflðuð komið til Rúss-
iands fyrir byltinguna, þá hefðuð þið
spwrt annari spurningu. Fyrir bylt-ing-
una hýrðist mikill hluti rússneska
verkalýðsins, að minnsta kosti fimm
hundruð sinnum fleiri menn, en allir
íslendingar, (og það í hinum evróp-
Til Sovétfaranna hvepjir sem það verða.
uANQouÓKASAFN