Sovétvinurinn - 01.03.1933, Síða 4
saman fé á ýmsan annan hátt, svo sem
með útgáfu blaða, með skemmtunum,
merkjasölu og öðru.
Undirbúningi fararinnar þarf að
mestu að vera lokið fyrstu dagana í
apríl. Sendinefndin leggur af stað um
og eftir miðjan apríl, eða svo tíman-
lega, að nefndarmenn geti verið komn-
ir til Moskva og verið viðstaddir há-
tíðahöldin þar 1. maí.
Þar dveljast þeir um tíma og ferð-
ast síðan víðsvegar um landið, þangað
sem þeir helzt kjósa.
Eftir þriggja vikna til mánaðardvöl
í Rússlandi, halda þeir heimleiðis.
Hvernig fer val nefndarinnar fram?
1 Reykjavík gengst Sovjetvinafélag-
ið fyrir opinberum fundum með al-
þýðufólki. Jafnframt kallar félagið
saman fundi með verkafólki á öllum
stærri vinnustöðum.
Á þessum fundum eru svo kosnar
Sovétvina-nefndir. Verkefni þeirra er
að kynna félögum sínum málið, gang-
ast fyrir söfnun til fararinnar, útbýta
söfnunarlistum, skipuleggja sölu á
blöðum og ritum félagsins o. s. frv.
Utan Reykjavíkur boða trúnaðarmenn
félagsins samskonar fundi.
Að lokinni söfnun og nauðsynlegum
undírbúningi, kalla svo Sovétvina-
nefndirnar aftur saman fundi, þarsem
uppástungur eru gerðar um nefndar-
mennina og bornar undir atkvæði. —
Þessum uppástungum er loks komið
til stjórnar Sovétvinafélagsins, sem síð-
an með tilliti til þeirra ákveður endan-
lega val mannanna.
Jafnframt er mönnum þeim, sem á-
huga hafa á því að komast í sendi-
nefndina, frjálst að senda stjórn Sovét-
vínafélagsins skriflegar umsóknir. —
Umsóknir þessar sendír félagið svo til
Sovétvinanefndanna vikulega til leið-
beiningar.
Fyrirvarí til að vinna að undirbún-
ingi nefndarinnar er mjög stuttur. Það
ríður því á því, að allir Sovétvinir taki
virkan þátt í þessu starfi og gefi sig
fram á skrifstofu félagsins í Mjólkur-
félagshúsinu (herb. 15), sem er opin
alla daga kl. 3—4 og kl. 8—9 e. h. á
mánudögum og fimmtudögum.
H. B.
Hvad er ad sjá?
Það, sem hér ræðir um, er ekki það,
hvað er að sjá frá norðri til suðurs og
austri til vesturs í Sovét-Rússlandi, því
að þið, sem aðeins eigið nokkra daga
dvöl fyrir hendi í Rússlandi, komizt
aldrei yfir þetta óendanlega flæmi,
með öllum sínum fjölbreytileik í lands-
háttum, menningu, tungu, trúarbrögð-
um og jafn'vel stjómarfari. En hvað
er að sjá fyrir ísl. verkamann, fáliðaða
sendisveit úr minnsta og vesælasta
auðvaldsríki veraldarinnar?
Þið farið að heiman með hugmynd-
ina um föðurland gróðursetta djúpt í
vitund ykkar. Hið fyrsta, sem er að sjá
á Rússlandi fyrir ísl. verkamann, er
það, hvemig rússneskur verkalýður
hefir vaxið upp úr og þurrkað af sér
hugmyndina um föðurland. Hann seg-
ir: frjómögn, sem liggja ónotuð í
skauti jarðarinnar, eru frjómögn, sem
enginn á; kol, sem liggja ósnert í iðr-
um jarðar, eru kol, sem enginn á; skóg-
ur, sem enginn heggur sér til lífsviður-
væris, er einskis eign, og heiðin, sem
glápir upp á guð með glannalegum
lyngbreiðum yfir alla hóla, hún er
eínskis manns eign. En verkalýður
Rússlands uppgötvaði það fyrir 15 ár-
um, að landamerkjastaurar burgeis-
Eftir Sigurd Einarsson.
anna, sem táknuðu, að þetta ætti A og
þetta ætti B, voru ekkert annað en
prik, sem voru óðum að fúna af sólu
og regni. Og allsleysingjaherinn, sem
bölmóðugir auðkýfingar um allan heim
hæða enn þann dag í dag fyrir það,
að hann sé óþjóðlegur, hann atti her-
sveitum dráttarvélanna á heiðamar og
hann beitti jarðgröfunni niður í nám-
umar og hann lét vélamar viða skóg-
inn til þese að helga sér gæði lands-
ins. Þetta er að nema og eignast föð-
urland. Og þið fimm, sera
eigið þess kost að sjá það,
þið eigið, þegir þið kom-
ið aftur, að benda bræðr-
um ykkar hér út á hafið,
inn yfir Suðurlandslág-
lendið, Borgarfjörð og
Húnaþing, og segja þeim,
hvemig þeir eiga að leysa
'verðmæti þess úr áþjáin
Kveldúlfs. og Hambros,
Alliance og SÍS til af-
nota fyrir vkkur sjálfa.
Hvað er að sjá?
Tröllauknar moksturs-
vélar til skurðagerðar og
framræslu, risavaxnar
vélar til garðagerðar og
fyrirhleðslu, málmjötna,
sem steypa brýr í einni
svipan, skriðdreka, sem
fara yfir landið hægt
og bítandi, en skilja eftir
sig hlaðinn og steyptan,
eggsléttan veg, þar sem
áður var óbotnandi fen. Að vísu gæt-
uð þið farið til Bandaríkjanna og séð
slíkt hið sama, en látið ykkor skilj-
ast, þegar þið komið til Rússlands, að
þessar framkvæmdir eru ekki gerðar
til þess að hækka í verði kramaravörur
gráðugra burgeisa, heldur til þess að
gera þetta nýnumda föðurland verka-
lýðsins að nægtabúri og til þess að
fullnægja þörfum hans sjálfs skjótt og
vel.
Hvað er að sjá7
Land, sem lá „í myrkri og skugga
dauðans“, áþjáninnar og fáfræðinnar,
en sem er að verða rafmagnað land
með blik af Ijósum yfir hverju þorpi,
með afltaugar á milli hinna „dreifðu
byggða“, sem með rafmagninu bera
FRÁ DNJEPROSTROI. Þar sem áður var einstaka
hús rísa nú upp á fáum áruin voldug iðjuver
og fjölménnar borgir.