Alþýðublaðið - 18.03.1965, Qupperneq 6
)
ÞETTA gerðist meðal hinna allr-a olíuríkustu í Texas. Tveir nágrann-
ar ganga út af bar og í áttina til stórrar bílaverksmiðju, sem auglýsir
öll nýjustu módelin. Annar verður yfir sig hrifinn af skínandi sport-
bíl og spyr:
— Hvað kostar hann?
— 75.000 doilara, segir sölumaðurinn.
Sá hrifni tekui fram tékkheftið, en vinur hans grípur í handlegg-
inn á honum og segir:
— Nei, Bob, þú borgaðir alla .sjússana. Nú borga ég.
“ ★ ~
FRANSKA skáldkonan Francoise Sagan virð
ist þróast meira og meira í áttina til heim-
speki og mannfælni. Það verður stöðugt
erfiðara að ná tali af henni — og takist ein-
hverjum það samt sem áður, þá hefur sá
hinn sami það sjaldnast á tilfinningunni, að
hann sé velkominn.
Nú telur hin þenkjandi Francoise, að
hún hafi tryggt sér einveru með því að
kaupa sér lystisnekkju, þar sem hún hyggst
eyða verulegum Muta ársins. Heimilisfang sitt gefur hún einfaldlega
sem „Miðjarðarhafið".
- ★ ~
í MIÐDEGISVERÐARBOÐI í Bonn nýlega var Ludwig Erhard, kanzl-
ari lengi á tali við franska sendiherrann og sagði honum m. a. frá
því, að hann hefði verið fallbyssuskytta í
fyrri heimsstyrjöldinni og særzt svo illa í
orrustunni við Ypres, að hann hefði þurft
að leggjast sjö sinnum undir skurðarhnífinn
og endað með því að vera með vinstri hand
legginn styttri en hinn hægri og vinstri fót-
inn talsvert magnminni en hinn.
— Það hefur verið yður til mikils traf-
ala, sagði sendiherrann.
— Þvert á.móti, svaraði Erhard bros-
andi. Þetta neyddi mig til að hætta störfum sem umferðarsölumaður
og fara að lesa hagfræði, sem varð til þess, að ég varð ráðherra og
siðan kanzlari.
— ★ —
ÞAÐ skal sagt Picasso til verðugs hróss, að hann kann, sjálfur vel
að meta söguna, sem um þessar mundir er sögð af honum í einum
af kabarettunum í París:
Það var framið innbrot í villu hans í
Vallouris. Málarinn sá þjófnum rétt aðeins
bregða fyrir, þar sem hann hljóp á brott
með málverk, en hann náði honum ekki og
sneri sér því til lögreglunnar. Þar var hann
beðinn um að teikna mynd af þjófnum eftir
minni — og það gerði Picasso. Margir lög-
regluþjónar voru settir í málið og skoðuðu
myndina nákvæmlega, áður en þeir hófu
leitina. Allir komu þeir aftur með einhvern, sem þeir töldu hinn
seka: þvottavél, g-.tar, straujárn, apa, hitamæli og ölflösku.
BALDWIN: 1 stig (,,verstur“).
Hann átti fáa klæðnaði og lét
sjaldan pressa þá.
Hvernig eru
forsætisráð-
herrar klæddir?
INNAN fataiðnaðarins í Bret-
landi er til nefnd, sem vaka á
yfir tízkunni í karlmannafatnaði.
Nefnd þessi hefur löngum krafizt
þess af forsætisráðherrum Breta,
að þeir klæddust eftir tízkunni,
svo að þeir væru eins konar gang
andi auglýsing fyrir karlmanna-
fataiðnaðinn.
Fyrir skemmstu sagði Louis
Stanbury, formaður nefndar þess
arar, að Harold Wilson, forsætis-
ráðherra, væri verst-klæddi for-
sætisráðherra Breta síðan Stan-
ley Baldwin leið. Taldi Stanbury,
að klæðnaður Wilsons væri skað-
legur fvrir útflutning Breta á
karlmannafötum. Hann gaf for-
sætlsráðherranum og nokkrum
fyrirrennurum hans í starfi eink-
unnir á tíu stiga skalanum fyrir
klæðaburð:
☆
NÚ er mögulegt að komast að
raun um hve þungt eitt hótel sé.
Hótel Moskva er t.d. 45.000 tonn
að þyngd. Þetta mun vera gert
með aðstoð sérstakra tækja sem
mæla eitthvað, er kallast myme
soner í geimgeislum segir APN
frá Moskva.
EDEN: 10 stig, það hæsta mögu-
lega. „Hinn glæsilegi maður“,
alltaf óaðfinnanlega klæddur.
CHURCHILL: 8 stig. Klæðnaður
hans var sérstæður fyrir hann,
ekki alltaf samkvæmt tízkunni,
en réttur.
WILSON: 3 stig. Föt hans eru
of víð, og það sést oft í axla-
böndin hans („Maður ætti aldrei
að sjá axlabönd forsætisráðherr-
ans“), og hann stingur bindinu
undir buxnastrenginn.
OLYMPIUMYND - UM RETTINDI
ALLRA TIL RÚMS í SÓLINNI
Féll á öku
prófi í
12. sinn
Á S.L. 18 árum hefur Arthur
nokkur Ries í London eytt
350.000 krónum í ökukennslu,
leigubíla, benzín og tryggingar í
æðisgenginni tilraun tií að stand
ast ökupróf. En árangurslaust.
Nýlega fór hann í prófíð í tólfta
sinn — og í þetta skipti var hann
með dávald í baksætinu. En hann
féll líka í það skiptið.
Arthur þessi Ries er einhver
þrautþjálfaðasti ökuprófstakandi
í allri Lundúnaborg — og þólt
víðar væri leitað. Hann hefur
ekið yfir 75.000 kílómetra, bæði
í Stóra-Bretlandi og á meginland
inu, en hinu veigamikla lokaprófi
héfur honuni með engu móti tek-
izt að ljúka.
— Nú er það svart, sagði hann
að loknu prófinu um daginn. —
Ég hafði vonazt til, að dáleiðsla
kynni að hjálpa mér, því að með
hennar hjálp læknaðist ég af
drykkjuskaparfýsn minni . . .
Sólin drepur
SÓLSKIN drepur einn Ástralíu-
mann á dag, sagði dr. W. H.
Ward, sérfræðingur í krabba-
meini, á krabbameinsráðstefnu í
Sidney fyrir skemmstu. Af húð-
krabbatilfellum í landinu stafa
95% af of miklum sólböðum. Á
hverju ári látast um 350 manns
úr húðkrabba í Ástralíu. Finna
má merki um óheppileg áhrif
sólskins á húðina hjá næstum
öllum körlum og konum yfir
fimmtugt þar í landi.
„Strip-teese"
flóttamenn
aðstoó v/ð
TALSMAÐUR austur-þýzkra
landamæravarða sakaði fyrir
skemmstu vestur-þýzkar stúlkur
um að stunda svokallað „strip-
tease“ eða klæðafall við landa-
mærin til þess að hjálpa austur-
þýzkum flóttamönnum við að
komast yfir landamærin. Á með-
an austur-þýzku landamæraverð-
irnir fylgist af áhuga með
minnkandi klæðum kvennanna
noti flóttamennirnir tækifærið
og laumist yfir, án þess að nokk-
ur gefi þeim gaum.
í JAPAN er nú verið að leggja
síðustu hönd á fína litmynd frá
Olympíuleikunum í Tókió 1964
og er búizt við, að myndin verði
tilbúin til dreifingar í aprílmán-
uði Gera framleiðendur ráð fyrir
geysilegri aðsókn í Japan og þykj
ast einnig vissir um, að myndin
muni ganga vel erlendis. Jafnvel
áður en búið var að klippa mynd
ina og gefa henni endanlegt
form, voru níu lönd búin að
semja um sýningarrétt — Grikk-
land, Noregur, Sviþjóð, Dan-
mörk, Vestur-Þýzkaland, Spánn,
Nýja-Sjáland, Libya og Bermuda.
Og samningar standa yfir við
ýmis lönd.
Fyrirtækið Tobo, sem hefur
einkarétt á sölu á myndinni, hef-
ur til ýmsar útgáfur af mynd-
inni, miðaðar við mismunandi
lönd í mismunandi heimshlutum.
Nafnið er ósköp einfaldlega
„Olympiuleikarnir í Tókíó", en
það var þó valið úr 70.000 til-
lögum. — Framleiðslukostnaður
myndarinnar er talinn um 44
milljónir króna
Kvikmyndin á að gefa mynd af
spennunni, keppnisviljanum, von
um og vonbrigðum, sem er allt
snar þáttur í Olympíuleikum.
Myndatökumennirnir voru 164
talsins og alls staðar nálægir, oft
með aðdráttarlinsur. — Hlutar
myndarinnar eru sýndir lafhægt.
Japanska útgáfan af mvndinni
tekur þrjá tíma í sýningu, en sú
Frámhald á 10 síðu
Fritz Homan, majór, skýrir frá
þessu klæðafalla-bragði í viðtali
við blaðið Berliner-Zeitung í
Austur-Berlín. Með viðtaiinu
fylgdi mynd af landamæravörð-
um í snæviböktu umhverfi, en
enga var stúlkuna að sjá. Majór-
inn taldi þetta bragð — og aðrar
tilraunir til að aðstoða flótta-
menn — opinberar ögranir og
leik að eldi.
€ 18. marz 1965 - ALÞÝÐUBLAÐl'