Alþýðublaðið - 18.03.1965, Blaðsíða 11
Stofnfundur Glímusam-
bands fslands 11. apríl
ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ 19. og 20. sept
ember 1964 samþykkti eftirfarandi
tillögu frá framkvasmdastjórn:
„íþróttaþing 1964 telur, að sú
þróun sé eðlileg, að sérsamband
verði myndað fyrir íslenzka glímu.
Fyrir því felur þingið fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ að vinna að und
irbúningi að stofnun sérsambands
í glímu á þessu hausti".
Hinn 8. okt. 1964 skrifaði fram-
kvæmdastjórniri öllum héraðssam
böndum bréf, þar sem tilkynnt var
um samþykkt íþróttaþings varð-
andi stofnun Glímusambands, og
þess óskað að þau héraðssambönd,
sem vildu gerast stofnendur að
slíku sér. ambandi, tilkynntu það
skrifstofu ÍSÍ.
Hinn 4. nóv. 1964 skipaði fram-
kvæmdastjórn nefnd til þess að
vinna að stofnmi Giímusambands.
í nefndinni eru:
Gunnlaugur J. Briem, form.,
Hörður Gunnarsson og Kjartan
Bergmann.
Síðan hafa 6 héraðssambönd til-
kynnt aðild sina að væntanlegu
Glímusambandi, og vitað er um
fleiri héraðssambönd, sem hafa
samþykkt að vera með, þótt form-
.
■
wWímmá
, v'-
•'• • ;
Guðmundur Gíslason keppir í tvelm greinum í kvöld.
✓ /
+ ••
SUNDMOTIR KL. 20,301KVOLD
Búizt við skemmtilegri
keppni, og jafnvel metum
Sundmót ÍR er í kvöld í Sundhöll-
inni og hefst kl. 20.30. Þátttakend
Ur eru allir beztu sundmenn og
konur landsins og ekki er að efa,
að keppnin verður bæði skemmti
leg og spennandi í flestum grein-
nm.
Keppt er bæði í 400 m. skrið-
eundi og 400 m. bringusundi karla.
Davíð Valgarðsson, Keflavík mun
glíma við met Guðmundar Gísla-
sonar á þeirri vegalengd, en met
Guðmundar er 4:38.5 mín. Aðal
keppnin f 400 m. bringusundi verð
ur sennilega milli Hafnfirðing-
anna Árna Þ. Kristjánssonar og
Gests Jónssonar, sem sigraði þann
fyrrnefnda á 200 m. nýlega. Fleiri
koma til greina í þessu sundi.
Guðmundur Gislason, ÍR tekur
þátt í 100 m. flugsundi og 200 m.
baksundi ásamt Davíð Valgarðs-
syni og Trausta Júlíussyni, Ár-
manni. Mjög skemmtileg keppni
verður vafaláust í þeim greinum.
Loks tekur Hrafnhildur Guðmunds
dóttir, ÍR, þátt í þrem kvenna
greinum, ásamt Matthildi Guð-
mundsdóttur, Ármanni o. fl. efni
legum stúlkum.
Síðasta grein mótsins verður
4x50 m. bringusund karla, en þar
munu sennilega Ármann og ÍR
berjast af hörku um sigurláunin.
leg tilkynning þar um hafi eigi
borizt skrifstofu ÍSÍ.
Undirbúningsnefndin hefur á
fundum sínum gengið frá frum-
varpi að lögum fyrir Glímusam-
band íslands, og samþykkt að gera
þá tillögu til framkvæmdastjórn-
ar ÍSÍ að boðað verði til stofn-
þings Glímusambands íslands.
Með hliðsjón af því, svo og
vegna þess að fyrir liggur ósk 6
héraðssambanda um stofnun
Glímusambands og þar með upp-
fyllt grundvallaratriði um stofnun
sérsambands, samanber 25. gr.
laga ÍSÍ.
Þá hefur framkvæmdastjórn ÍSÍ
samþykkt á fundi sínum 10. marz
sl. að boða stofnþing Glímusam-
bands íslands, sunnud. 11. apríl
1965, kl. 10 f. h. í fundarsal ÍSÍ
íþróttamiðstöðinni, Laugardal.
Á stofnþinginu verður m. a. lagt
fram frumvarp að lögum fyrir
Glímusambandið og kosin stjóm
þess.
Hvert héraðssamband eða glímu
ráð hefur rétt til að senda tvo full-
+rúa.
Keppni er lokið í I. deild Dan-
merkurmeistaramótsins í hand-
knattleik. Arhus KFUM varð meist
ari, hlaut 33 stig, HG var í öðru
sæti með 27 stig, en Ajax fyrra
árs meistarar voru þriðju með 26
stig. Stjernen og USG féilu niður
í II. deild.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir —
sigrar hún í 3 greinum?
íslandsmótið í körfuknttleik stendur nú sem hæst. Myndin er
frá leik KFR og KR í I. deild. Sigurður Helgason, KFR (2,07m. á
hæð) er með boltann. Hann gerði KR-ingum lífið erfitt um s. 1. helgi,
þó vann KR mcð yfirburðum 85—49. Annað kvöld heldur mótið
áfram og þá leika ÍR — KFR og Ármann — KR í I. deild, en á und-
an leika KFR og ÍR (b) í 3. flokki karla.
Þing norrænna íþrótta-
leiðtoga í Reykiavík
★ Ráðstefna íþróttasamband-
anna á Norðurlöndum verður
haldin í Reykjavík 18. 19. og
20. júní í sumar.
UM LANGAN tíma hafa fulltrúar
frá íþróttasamböndunum á Norður
löndum komið saman til ráð-
stefnu, annað hvert ár, og þá til
skiptis í höfuðborgum landanna.
Síðast var slík ráðstefna hald
in í Osló, 8. og 9. sept. 1961, og
var þar m.a. samþykkt að næsta
ráðstefna yrði haldin í Reykjavik
og þá árið .1963.
En þeir atburðir gerðust á ráð
stefnunni í Osló, að vegna ágrein
ings um áhuga- og atvinnu-
menn tilkynntu Danir, að þeir
myndu eigi taka þátt í slíkum
ráðstefnum framar, og síðar til-
kynnti Danska íþróttasambandið
formlega úrsögn sína úr sam-
starfsnefndinni (Fælles Komitén).
Því var, að ráðstefna Ríkisíþrótta
sambanda Norðurlanda, án Danska
íþróttasambandsins, var bæði ó-
æskileg og tilgangslítil. Þess
vegna ræddi forseti ÍSÍ í utan-
ferðum sínum, þessi mál við for-
ustumenn íþróttasambandanna á
Norðurlöndum, þar sem hann
Iagði áherzlu á þátttöku Dana.
Síðan skrifaði íþróttasambandið
hinum íþróttasamböndunum, í Nor
egi, Danmörku, Svíþjóð og Finn
landi, og gerði það að tillögu
sinni, að ráðstefnunni yrði frest
að til 1965, og þá með sérstöku
tilliti til þess, að Danska íþrótta-
sambandið yrði með.
Öll íþróttasamböndin, og þar
með hið danska hafa samþykkt til
lögu íþróttasambands íslands, og
er nú ákveðið, að næsta ráðstefna
Ríkisíþróttasambanda Norðun-
landa, verði haldin í Reykjavík,
18. 19. og 20. júni 1965.
Knattspyrna
innanhúss
Innanhússmót Víkings í knatt
spyrnu hófst í fyrrakvöld að Há-
logalandi. Mótið er haldið til
minningar um Axel Andrésson,
hinn vinsæla knattspyrnufrömuð
Víkings um árabil. Leikið er eft-
ir svokölluðu Monradkerfi.
1. umferð:
Fram — FH 6:5
KR — Víkingur(a) 5:3
Þróttur — Haukar 15:4
Valur — Keflavík 7:7
Breiðablik — Víkingur(b) 4:4
2. umferð:
KR — Fram 7:7
Valur — Víkingur(a) 14:2
Keflavík — Haukar 11:1
FH — Breiðablik 5:4 1
Þróttur — Víkingur(b) 8:5.
AtÞÍÐUBLAÐIÐ - 18. marz 1965