Alþýðublaðið - 18.03.1965, Page 16

Alþýðublaðið - 18.03.1965, Page 16
 MÁLVERKASÝNING 22 MENNTASKÓLANEMA Reykjavík, 17, marz - OÓ. Á MORGUN, fimmtudag, verð ur opnuð fyrir almenning í Menntaskólarium listsýning á verkum menntaskólanema. Sýn- ingin er til húsa í kjallara hins nýja húss Menntaskólans við Amtmannsstíg. Sýningin hefur verið opin fyrir menntaskóla- nema í nokkra daga en nú gefst almenningi kostur á að skoða hana. Aðgangur er ókeyp is og verður liún opin frám yf ir næstu helgi. Alls eru 22 nem endur, sem þama sýna myndir sínar. Flestir þeirra hafa tekið þátt í teikninámskeiði sem Listafélag Menntaskólanema hefur gengist fyrir tvö siðustu skólaár. Benedikt Gunnarsson listmálari hefur leiðbeint á nám skeiðunum og sá hann um uppsetningu þessarar sýningar. Mikið og blómlegt félagslíf er nú i Menntaskólanum. Nokk- ur undanfarin ár hefur verið þar starfandi féiagsskapur sem nefnist Listafélagið. Er því skipt í fjórar deildir, sem hver hefur sína stjórn, en þær eru myndlistardeild, tónlistardeild, bókmenntadeild og leiklistar deild. Forseti félagsins er Frið rik Páll Jónsson. Hver þessara deilda sér um listfræðslu og kynningar, hver á sínu sviði. Þessa dagana er starfsemi Listafélagsins með fjörugasta móti. Sem fyrr segir stendur yfir listsýning myndlistardeild- ar félagsins og í kvöld mun Benedikt Gunnarsson sýna lit- skuggamyndir af listaverkum og skýra þau. Á fimmtudags kvöld mun Ólafur Jónsson flytja erindi um Þorstein frá Hamri og nemendur lesa úr verkum hans. Á mánudagskvöld verða nemendatónleikar á veg- um tónlistardeildar. 'WmVWWWWWWWVmWVVWWWVWVWWWVWMWWWMWMWHVVWWWWW Veiði- og vinnslu nýjungar styrktar Reykjavík, 17. marz - EG I GCKK'f G. Þorsteinsson mælti í dag fyrir þingsályktunartillögn fdnni um tækniaðstoð við nýjungar 4 vinnslu og veiði sjávarafla. Mikl- ar umræður urðu um tillöguna og atær allir, sem kvöddu sér hljóðs utn hana töldu, að með henni væri •njög merku máli hreyft. Upplýsinga óskað um ákeyrslu Reykjavik, 17. marz - ÓTJ ®KIÐ var á kyrrstæða Volks- 'wagenbifreið föstudaginn 12 marz, |>ar sem hún stóð á bifreiðastæð- 4nu við Kirkjustræti og Tliorvald- 'fiensstræti. Þetta mun hafa skeð vnilli kl. hálf ellefu og ellefu uin lcvöldið. Þeir sem kynnu að geta tjefið einhverjar upplýsingar í mál 4nu, eru vinsamlegast beðnir að *hafa samband við umferðardeild *rannsóknarlögreglunnar. Tillaga Eggerts er svo hljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á rikis- stjórnina að láta fara fram ýtar- lega rannsókn á því, með hvaða hætti verði bezt stuðlað að aukn- um nýjungum í veiði og vinnslu sjávarafurða. 1 Við rannsókn þessa verði lögð sérstök áherzla á þá athugun, með hvaða hætti bezt verði séð fyrir framlialdi á tilraunum innlendra aðila í smíði véla og tækja til veiði og vinnslu sjávarafurða". Eggert gat þess í upphafi máls síns, að rikisstjórnin hefði nýlega ákveðið að lækka mjög tolla á ýmsum fiskvinnsluvélum og væri það að sjálfsögðu veruleg hags- bót og stórt skref til að stuðla að betri nýtingu sjávaraflans. En 'þó væri enn óleystur vandi íslenzkra hugvitsmanna, sagði Eggert, sém oft háfa varið miklu fé og ærnúm tíma til að fullkomna ýmis tæki 'og vélar til vinnslu Sjávarafla eða ’til lét.tis í vinnubrögðum. Hann gat þess að ýmsir aðilar hefðu fengið nokkurn stuðning frá Fiskimálasjóði og síldarútvegs- nefnd, en takmarkað fé væri þó til þessara nota og of fáar hug- myndir íslenzkra hugvitsmanna kæmust í gagnið og ylli því fyrst og fremst fjárskortur. Taldi hann síðan upp ýmislegt, sem íslenzkir hugvitsmenn hafa unnið að, eða eru að vinna að, og Framh. á 13. síðu. 45. árg. — Fimmtudagur 18. marz 1965 — 64. tbl. Samtök niðursuðu- verksmiðja stoínuö Reykjavík, 17. marz EIGENDUR og forráðamenn 11 helztu niðursuðuverksmiðja á land inu hafa bundizt samtökum og stofnað með sér Félag íslenzkra Niðursuðuverksmiðja. Fór fundur- inn fram að Hótel Borg miðviku- daginn 17. þ. m. og voru þar sam- þykkt lög félagsins og gengið frá stjórnarkjöri. Hingað til hafa niðursuðuverk- smiðjur ekki liaft nein samtök sín í milli og er tilgangurinn með fé- lagsstofuuninni sá að safna öllum íslenzkum framleiðendum niður- suðuvöru í einn félagsskap, sem verða á opinber málsvari niður- suðuiðnaðar á íslandi og vinna að hagsmunum hans með því m. a. að aðstoða við hráefniskaup, umbúða- öflun, samninga um vinnulaun o. fl. Félaginu er jafnframt ætlað að útvega allar nauðsynlegar upp- lýsingar viðvíkjandi nýjungum í framleiðsluháttum, vinna að mark- aðsrannsóknum þar sem því verð- ur við komið, auka þekkingu á niðursuðu og koma á gæðamati á framleiðslu í þessari iðngrein. Ennfrémur að standa fyrlr tilraun um með nýjar framleiðsluvörur, nýjar umbúðir og nýjar vinnsluað- ferðir. Félag íslenzkra Niðursuðu- verksmiðja mun leita samstarfs við öll þau samtök innlend og er- lend, sem hafa sams konar hags- muna að gæta — og allir þeir ein« Framhald á 13. síðu. Barizt í Laos Vientiane, 17. marz (NTB-Reuter) PATHET Lao-hermenn kommún- ista réðust í dag á sveit hlutleysis- sinna í Suður Laos, að því er skýrt var frá í Vientiane í dag. Árásin var gerð við Souvannahæð, en það er eini staðurinn í Suður-Laos þar sem lilutleysissinnar hafa her- menn. Hinir eru í Norður-Laos undir stjórn Kong Le hershöfð- íngja. i LEIKUR í KVÖLD Si nf óníuhljómleikar verða í Háskólabíói í kvöld kl. 21. Stjórnandi verður Igor Buketoff og einleikari Jörg Demus. Á efnisskránni er Klass iska sinfónían, eftir kofieff^ Píanókonsert nr. 28 í Es-dúr eftir Mózart og Sínfónía í D-dúr eft ir Arriga. Austurríslki pianóleik arinn Jörg Demus er fæddur árið 1928. 14 að aldri lék hann fyrst á opinberum tónleikum. Síðan 1948 hefur hann Framhald á 13. síðu. Garðeigendur í hrakningum Reykjavik, 17. marz - GO ÁHUGAMAÐUR um kartöflurækt kom að máli við blaðið og rakti raunir sínar. Hann hafði um ára bil haft garðholu inn við Suður- landsbraut og lagt þar í nokkurn kostnað og oft meiri en afrakstrin- um nam. Fyrir þrem árum varð hann svo að leggja garðinn niður vegna kröfu frá borgaryfirvöldun- um. Þarna átti sem sé að fara að byggja. Færði liann nú garð sinn upp að Rauðavatni, braut mel til ræktunar og lagði enn í nokkurn kostnað. Nú er þess enn krafist af borginni, að hann fjarlægi sitt liafurtask þaðan og þess jafúframt rátið getið, að hann geti fengið garðland einhvcrs staðar uppi í fjölium, sem hann kann ekki að nefna, . Nú Segir maðurinn að þetta sé allt saman gott og blessað í sjálfu sér. Borgina þurfi að byggja og þá verði kartöfluholur að víkja, e« hitt finnst honum undarlegt og Framh. á 13. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.