Alþýðublaðið - 30.04.1965, Síða 9
'WM/
y':,
>1>»»Ö> >oioo''MliÍiÉ?
að framkvæmdirnar í götunni
gátu þroskað listásmekk þeirra
og skyn, heldur bölsóttuðust
þeir yfir allri þessari drullu.
En þannig blasir fegurðin við
hvert sem litið er Loks staðnæm
ist bíllinn við Elliðavog; árnar
niða hljóðlega; enn er ekki kom
inn vorvöxtur í þær. Efnamenn
hafa ekki enn rennt maðk í hyl-
Það er vor í lofti og gaman að
vera til, að minnsta kosti er svo
að sjá, að tveir hestamenn, sem
ríða hjá, njóti líMns eins vel og
þeim og Bakkusi er auðið.
|1;íS
Steypubílar koma og fara. Þeir
keyra ailajafna hægt, enda má
segja að þeim liggi ekkert á. Það
er alltaf verið að steypa upp
hús og sjálfsagt munu menn
halda áfram að byggja, meðan
eitthvað er til í buddunni.
Smekklega er gengið um land-
ið hér við voginn. Hæðirnar eru
sundurgrafnar, svo að úr fjar-
lægð virðast þær vera holundir
i svip landsins; en þegar skvomp
unum þeim, sem grafnar eru af
mannavöldum sleppir, sér á ryðg
aðar járntunnur niður við fjöru;
járnarusi alls konar, sem hingað
til hefur ekki átt því láni að |g
fagna að hafa verið selt úr landi- B
Og fyrir »fan sundurgrafið =
landið stígur reykur til lofts; (§
svartur og mikill reykur og veit jj
ég þess dæmi að amerískir túr- |j
istar hafa spurt túlka^ hvort g
Reykvíkingar væru í raun og B
veru svo hugað fólk, að þeir B
þyrðu að búa í námunda við B
virkt eldfjall.
En þarna austur af voginum er p
eins og menn muna, öskuhaugar iffl
borgarinnar; brátt verða þeir B
Frambald á 10. síðu.
Upp hjá Skötufossi sitja tveir
strákar ofan í skessukötlum og
teyga að sér svalt kvöldloftið,
horfa yfir ána og drekka í sig
fegurð umhverfisins. Tign olíu-
tankanna hinum megin við árn-
ar fer ekki fram hjá þeim;
kannski munu þeir yrkja um þá
fögur kvæði^ þegar bæði þeir og
tankarnir reskjast-
Reykjavík er borg fram
kvæmdanna; það getur engum
dulizt er lítur Elliðavoginn, sem
frá náttúrunnar hendi er einn
snotrasti bletturinn í nágrenni
borgarinnar. Hér er ys og þys.
ÍTALSKIR
kven-
götuskór
Opnum í dag tiýja irtáEítinga-
vöruverzlun
LITVER S.F.
Málingavörur, hreinlætisvörur, plastgóífflísar og m. fl.
Komið og reynið viðskiptin. — Fjót og góð afgreiðsla.
LITVER s.f., Grensásvegi 22.
Sími 30-2-80. — (Verzlunin er staðsett á horni
Miklubrautar og Grensásvegs).
Skrifstofan er flutt í
Austurstræti 17
4. hæð
Símanúmer óbreytt.
Síniar 24016 og 24018.
Ártti Siemsen
Umboðsverzlun — Austurstræíi 17.
Auglýsingasíminn er 14906
71
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. apríl 1965 $