Alþýðublaðið - 26.05.1965, Blaðsíða 6
LU
IN
ÓÐBAÐ ÚT AF
ERFÐAMÁLUM
FJÖLSKYLDUFUNDUR í bæn |
um Jorzac í vestanverðu Frakk- j
landi, sem kallaður hafði verið
saman til að ganga frá allstóru
erfðamáli, snerist upp í slátrun
fyrr í þessum mánuði, er einn
erfingjanna, Albert Begon, 54
ára gamall, tók sig til og skaut
bróður sinn, systur sína og mág'
konu og mág frammi fyrir fimm
lögfræðingum- Hann taldif að
verið væri að hafa af sér í erfða
málunum. Er morðinginn hafði
síðan lokað sig inni í svefnher-
bergi sínu í sex stundir, skaut
hann sig að lokum sjálfan og dó
MEÐAL kvikmyndamanna í
London er talið sennilegast, að
^ophia Loren verði stjarnan í
kvikmynd þeirrif sem gera á eft
ir leikriti Arthurs Mrllers „Eft
ir syndafallið“, sem sumir telja
byggt á lífi Marilyn Monroe.
★
Næsta mynd Vittorio de Sica
verður „Casbia alle Volpe“ eða
Refaveiðin með Pe'er Sellers í
aðalhlutverkinu. Þetta verður
gamanmynd um njósnir- Mynda
taka hefst í Róm um miðjan maí.
★
Fyrrverandi eiginmaður Jayne
Mansfield, Mickey Hargitay, leik
pr aðalhlutverkið í ítalskri
• ,vill*a-ve turs mynd“, sem á að
heita ,,Un Straniero a Sacra
inento“ eða Ókunnur maður í
Sacramento — sem byggð er á
skáldsögu John Murphys „Will
Kill You“.
Sagan gcrist á timum gullæð-
isins í Kaliforníu-
★
Hin nýja mynd Carlo Poritis,
„Operation Crossbow" m,eð
Sophiu Lorenf George Peppard,
Trevor Howard og John Mills í
áðalhlidverkum, verður frum-
sýnd á viðhafnar-ýningu í
London 19. maí til ágóða fyrir
velferðarsjóð herskyldra. Þessi
brezka mynd fjallar um baráttu
Breta við VI og V2 flugskeyti
3. ríkisins í síðari
heimsstyrjöldinni.
ÞINGMAÐUR á þingi Ara-
bíska sambandslýðveldisins hef
ur sNingið upp á þeirri lausn
húsna j ðvim á.la rm a í Egypta-
landi, að skylda skuli karia og
konur, sem búa í fátækrahverf
. um og eiga þegar mörg börn, til
að láta vana sig.
6 26. maí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
| á leiðinni til sjúkrahússins.
Sjónarvottur, lögfræðignurinn
Marot, sem hafði kallað saman
fundinn, hefur gefið lýsingu á
því, sem gerðist í bakherbergi
einnar verzlunarinnar, sem var
hluti af arfinum. Fundurinn
hafði staðið aðeins nokkrar mín
útur, er Begon gekk út og kom
bráðlega aftur með skammbyssu
og riffil. Hann hafði engin um-
svif við það, heldur tæmdi
skammbyssuna í venzlalið sitt
þarna í herberginu og tók síðan
að skjóta af rifflinum.
Hinir lögfræðingarnir urðu
skelfjngu lostnir og flúðu í
snatri, en Marot slóst við morð-
ingjann í næstum 15 mínútur, áð
ur en hann flúði- Áður en hinn
brjálaði maður fór af staðnum
veitti hann æ*tingjum sínum
nábjargir- Loks lokaði hann sig
svo kyrfilega inni í svefnher
Fomafnið er
a.m.k. Harold
ÞEGAR HAROLD Wilson, for
sætisráðherra Breta, kom nýlega
til að vera viðstaddur íþrótta-
keppnj brezkra háskóla í Liver
pool, kvað við í há*alaranum um
leið og hann steig úr bílnum:
,,Og nú bjóðum við velkominn
forsætisráðherrann, hr. Harold
Macmillan.“
Mó*tökunefndin sótroðnaði að
sjálfsögðu, en fékk þó fljótlega
eðlilegan litarhátt, en Wilson hló
og sagði: „O, jæja, ég er vanur
því að vera uppnefndur."
— Hræðilegur dagur á
skrifstofunni! Rafmagnsheil
inn bilaði, og við urðum
allir að hugsa sjálfir-
bergi sínu, að lögregla í skot-
heldum vestum gat ekki einu
sinni lagt til atlögu. Um nóttina
bað hann um, að lögfræðingur
sinn yrði sóttur. Þá stakk hann
peningaseðlum undir hurðina til
greiðslu á störfum lögfræðings-
ins fyrir sig og skaut sig síðan-
ÖKUSKÍRIEINI
LÍKA í BELGÍU
NÚ ÞURFA Belgíumenn að
fara að taka próf til að fá öku
skírteini. 25. ma, komu til fram
kvæmda þar lög, sem kveða á
um þung próf á aksturshæfni
manna, sem vilja fá ökuskírt-
teini- Til þessa hefur nægt yfir
lýsing viðkomandi manna um, að
hann kunni að aka bíl. Það held
ur lika áfram, þ.e.a-s. allirf sem
eru 21 árs og eldrj og eiga bíla
geta gengið inn á viðkomandi
skrifstofu, lýst yfir, að þeir
kunni að keyra, og fengið skír
teinið. Sama er að segja um þá,
sem af einhverjum sökum eru
sviptir ökuleyfi: þeir þurfa líka
að ganga undir strangt próf til að
fá það aftur.
OOOOOOOOOOOOðOÓC
VIÐBÚNAÐUR íl
LICHTENSTEIN
Þingið í Lichtenstein, smá
ríkinu í Alpafjöllum milli
Austurríkis og Sviss hefur
samþykkt aukinn varnarvið
búnað- Fjölgað verður í her
afla furstaríkisins um J18,2
%.
Þetta þýðir að hermönn
um ríkisins fjölgar úr 18 í
22. Hermönnum verður fal
ið að fást við vðndamál, er
stafa af hinum mikla
gangi í efnahagsmálum
landsins- Fjöldi erlendra fyr
irtækja hefur opnað skrif
stofur í Lichtens*éin til að
losna við háa skatta.
Þingmönnum var sagt
að landið þyrfti ekki að ótt
act inn”ás frá Austurríki
eða Svi's og að hinn aukni
viðbúnaður stafaði ekki af
ófa um slíkt.
OOOOOOÓOÓOOOOOOÓ
★ Sjúkdómstilfelli
Lækni.únn skildi bílinn sinn eftir hjá bílaviðgerðarmann-
inum, áður en viðtalstíminn hófst á lækningastofunni. Síðar
um daginn kom hann til baka og spurði, hvað hefði verið að
bílnum. Viðgerðarmaðurinn sagðist ekki vera búinn að finna
það.
— Hvað, eftir allan þennan tíma? Á þessum tíma er ég
búinn að greina a. m. k. 50 sjúkdómstilfelli.
Viðgerðarmaðurinn brosti og sagði:
— Reynið þá hér líka. Spyrjið hann að því, livar 'hann
finni til.
★ Bollaleggingar
Franska leikritaskáldið Marcet Achard, sem hefur hlotið mikl
ar vinsætdir fyrir verk um tvo betlara eða „clochards" í París,
segir eftirfarandi sögu um tvo clochards, sem hittust fyrir
utan kauphöllina í París:
— Hvað ertu að gera hérna?
— Ég er að spekúlera.
— Spekúlera? . . . í hverju svo
sem?
— Það er augljóst. í andlitum
kauphallar-spekúlantanna. Ef ég sé
einhvern, sem kemur út glaðlegur á
svip, þá er ég óðara kominn með
höndina. Ef einhver kemur hins veg-
ar út súr á svip, þá læt ég hann fara fram hjá mér. Þetta er,
skal ég segja þér spekúlasjón, sem borgar sig.
★ í franska hernum
Það var í hinum stolta, franska her. Liðsforingi var að
spyrja nýliða út úr til að gera sér ljóst í livers konar þjónustu
þeir hæfðu bezt.
— Hvað heitið þér, spurði hann einn þeirra.
— Dufouillard, herra lautinant.
— Gott, Dufouillard — og hvað vilduð þér nú helzt gera?
— Veri í herforingjaráðinu, herra lautinant.
— í herforingjaráðinu! Eruð þér vitlaus, maður?
—. Hvað, herra lautinant, er það skilyrði?
★ Að lesa undir stúdentspróf
68 ára gömul húsmóðir í Nýju Delhi á Indlandi, Indirabai
Deshinukh, hlýtur að vera einhver þráasta mannpersóna á
byggðu bóli Á 44 árum hefur hún 31 sinni gengið á námskeið
með það fyrir augum að taka próf, sem er svipað stúdentsprófi
hér. En :• hvert einasta skipti hefur hún fengið NÚLL í öllum
fögum.
Hún er samt alltaf bjartsýn: — Hvorki aldur minn né
óheppni hafa svipt mig kjarknum. Ég held áfram — og fyrr eða
síðar NÆ ég prófi.
★ Langt í vinnuna
Sumir kvarta yfir því að eiga langt í vinnuna! Sá, sem á
þó metið, ei vafalaust Bill Leyden, sem býr í Los Angeles og
starfar í New York.
Hann er kynnir og aðalmaður í sjónvarpsþætti, fer að
heiman á þriðjudagskvöldum, er kominn til New York á mið-
vikudagsmorgun og um hádegi á föstudag er hann búinn að
ljúka ftmm þáttum — og getur haldið heim á leið.
Þetta kerfi kostar hann um 600.000 krónur í ferðalög á
ári, en hann segist glaður borga það, því að konan sín og
börnin hafi það svo indælt í Los Angeles.
★ Aðgangur ókeypis
Leikkonan Martine Carol vill ekki falla í gleymsku. Hún
hefur innréttað sérstakt Martine Carol-safn, þ. e. a. s. liún er
búin að gera hústð sitt i Regents
Park í London að safni, sem hún kall-
ar „temple du souvenir". Þar er m. a.
að finna auglýsingaspjöld, ljósmynd-
ir og búninga úr þeim 40 kvikmynd-
um, sem hún hefur leikið í — og á
heiðursstað eru strápilsin og blóma-
kransarnir frá ,,Tahiti-períóðunni“.
Þess má geta, mönnum til leiðbein-
ingar, að aðgangur að safninu er
ókeypis.