Alþýðublaðið - 26.10.1965, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 26.10.1965, Qupperneq 6
GLUGGINN Bráðíega kemur út í Bretlatidi sjálfsævisaga frönsku söngkonunn ar Edith Piaf, sem lézt fyrir tveim ur áruin. Hér birtist smákafli úr sögunn:, sem heitir Gæfuhjólið. Það gerðist einn kuldalegan okt óberdag árið 1935, þegar ég var 19 ára. Ég var vön að syngja á götunum og með mér var vinkona mín, sem rétti út hendurnar og tók við skildingum, sem þeir, sem framhjá gengu, gáfu okkur. Ég var föl og illa til fara. Ég var sokka laus og kápan mín var rifin á oln bogunum og síð niður á ökla. Ég var að syngja söng eftir Jean Le onir. Þegar ég hafði lokið söngn um kom maður nokkur í áttina til mín. Hann hafði hlustað á mig með athygli og var fremur þung ur á brúnina. Maðurinn kom að mér og sagði: — Ex-t þú alveg frá þér, þú ert að eyðileggja í þér röddina. Og eins og flest börn í París þá hafði ég munninn fyrir neðan nefið og svaraði: — Ég verð að borða. — En góða'mín, með rödd eins og þú hefur, átt þú að syngja í söngleikahúsi. — Ég get ímyndað mér, að ég hafi ekki verið mjög ásjáleg þama, í rifn um fö ;um og skóm, sem voi'u tveimu - númerum of stói'ir, en samt svaraði ég: — Ég hef eng an samning, og ég bætti við í hálf gerðri striðni: — Hafið þér kannski samning að bjóða mér? — Hann virtist hafa gaman að þessari spurningu og svaraði: — Á ég að taka þig á orðinu? — Já, gefið mér tækifæri til að syngja til reynslu. — Allt í lagi Nafn mitt er Luois Leplée og ég stjóma næturklúbbnum Gerny. Komdu þangað á mánudaginn kl. fjögur. Þú átt að syngja söngv ana þína og svo er hægt að at huga málið nánar. Og þannig atvikaðist það að næsta mánudag fór ég í nætur klúbbinn til að syngja til reynslu. Ég söng allt, sem ég kunni, en þar kenndi ýmsra grasa. Leplée stöðvaði mig, þegar ég ætlaði að byrja að syngja óperuaríur. Þetta er ágætt góða mín, ég er viss um að þú nærð langt. Þú átt að koma hér fyrsta skipti fram næsta föstu dag og þú færð 40 franka á dag í kaup. — Ég var að fara út úr dyrunum, þegar hann kallaði í mig — Hvað heitirðu annars? — Edith Gassion — Það er allt of langt fyrir söngkonu. Hann horfði hugsandi á mig góða stund, þá sagði hann: — Þú ert raunar lít Alþýðublaðið óskar að ráða blaðburðarbörn í eftirtalin hverfi Laugarneshverfi Miðbæ Laugaveg, neðri Hverfisgötu, efri Kleppsholt Miklubraut. Hverfisgötu, neðri Seltjarnarnes I. Laufásvegur Lindargata Laugavegur efri Vogar ill spörfugl Parísarborgar, og við skulum kalla þig Piaf (slang-orð fyrir spörfugl) La Mome Piaf. Já, þá er það ákveðið. Föstudagskvöldið rann upp. Og í næturklúbbnum var það helzta kvöld vikunnar. Leplée var mjög ákafur í að sýna nýjasta fundinn ‘sinn, en söngur minn var þó að eins eitt atriði af mörgum í skemmtiskránni. Og auðvitað kom ég fram á eftir hinurn frægu. Leplée kynnti mig sjálfur. — Dag nokkum, sagði hann, var ég á gangi níður á Troyon götu. Á gangstéttinni stóð ung stúlka og var að syngja. Ung stúlka, sem var fölleit og virtist hrygg. Rödd hennar snart mig á undarlegan hátt, ég varð hrærður. Og nú vil ég að þið fáið að heyra 1 þessu Parísarbarni. Hún á engan kvöld kjól og hún kann aðeins að hneigja sig, af þvjí að ég kenndi henni það í gær. ÍHún kemur fram á svið ið nákvæmlega eins og hún var, þegar ég rpætti henni á götunni, án farða, sokkalaus og í fátæklega piisinu sínu.. . . Hér er La Mome Piaf. — Nú var komið að mér að koma fram. Tekið var á móti mér með kuldalegri þögn, sem ég skildi ekki fyrr en seinna. Það var ekki óvinsamleg þögn, heldur voru þetta eðlileg viðbrögð efnaðra gesta, sem héldu að gestgjafinn þeiri'a hefði misst vitið. Og ekki aðeins það, en þetta fólk, sem hafði komið til að skemmta sér og gleyma áhyggj um, var ekkert ánægt með að vera minnt á tilveru fátæklinga eins og ég var, sem þekktu vel orðin „hungur“ og fátækt. Föl og fá- tækleg var ég, þar sem ég stóð á sviðinu og stakk ankannalega í stúf við glæsilegt umhverfið. Og ég vissi vel af því sjálf, að skyndi lega varð ég sem lömuð af sviðs ótta, ég hafði ekki fundið fyrir honum fyrr, mér fannst ég þurfa að renna af hólmi. En að eðlis fari er ég þannig gerð, að ég gefst ekki upp auðveldlega og ég var kyrr. Ég hallaði mér upp að súlu og hélt höndunum fyrir aftan bak Ég hallaði höfðinu aftur og byrj aði að syngja. Áhorfendur hlust uðu á mig. Smám saman varð rödd mín sterkari, þar sem ég öðlað’St öryggi og ég hætti á að líta yfir salinn. Þar sá ég alvar leg andlit, enginn brosti. Ég varð enn öruggari og hélt áfram að syngja, svo var það um leið og ég söng síðustu setninguna í söngn um að ég rétti upp hendurnar. En ég varð um leið gagntekin af skelfmgu, því að þá mundi ég, að ég mátti ekki hreyfa hendurnar neitt. Ég var með stórt sjal yfir öxlunum og höndunum, vegna þess að ég hafði ekki haft tíma til að klára að prjóna aðra erm ina á peysuna mína. Nú datt sjal ið á gólfið og ei'malaus peysan blastí við áhorfendum. Ég roðnaði af skömm, nú rnyndu allir sjá að aðra ermina vantaði á peysuna mína. Tárin komu í augun á mér draumurinn myndi enda með skelf ingu, e*nhver myndi örugglega bvria að hlæja og ég myndi verða að y'firgefa svið'ð undir háðshlátr um og fyrirlitningu. En enginn hló. það var löng þögn, ég veit ekki hversu löng. en mér virtist bún vera heil eilifð, þá urmhófst lófaklanp. Kannski Leplée hafi bvriað, ég veit það ekki, en all ir tóku undir og aldrei hafa fagn aðarhróo látið mér einS dásamlega í evrum. Ég hafði óttast hið versta og þessi velgengni fór fram úr biörtustu draumum minum. Mér fannst, ég geta grátið af gleðí. Rvo. begar ég var að kvnna næsta RÖnsinn minn. hevrði ég einhvern segia: — Hún svngur af Hfi oa ■sál. telngn. Þetta var Manriee Shevalier, og siðan þá hef ég fehg ið marga gullhamra, en enginn þeii'ra hefur veitt mér slíka ánægju Ég fæddist 19. desember 1915 klukkan fimm að morgni í París í húsinu nr. 72 við Bellevillegötu eða réttara sagt fyi'ir utan húsið Pabbi hafði farið að sækja sjúkra bíl, og mamma gekk út á tröppurn ar til að gá að honum, þar sem hún vissi að barnið var alveg að fæðast. Svo þegar sjúkrabíllinn loksins kom var ég þegar komin í heiminn. Það var engin ljós móðir viðstödd, en tveir lögreglu þjónar, sem voru næi'Staddir, hjálp uðu til. Þetta var fremur óvenjuleg byi’jun á lífsfei'li. Ég var skírð tveimur nöfnum, Giovanna, sem mér hefur aldrei geðjast að og Edith, en það var eftir ensku hjúkrunarkonunni Edith Cavell, sem nýlega hafði dáið hetjudauða í Belgíu, þegar Þjóðvei'jar skutu hana tif bana. Faðir minn var fimleikamaður og vann í lning leikahúsum og á markaðstoi’gum. Hann var flöktandi að eðlisfari og vildi helzt vinna úti undir ber um himni og vildi ekki vinna reglubundna vinnu. Móðir mín yf irgaf hann stuttu eftir að ég fædd ist og hann varð þá að skilja mig eftir hjá ömmunum, sem bjuggu uppi í sveit og þær skiptust um að líta eftir méi'. Svo þegar ég var sjö ára fór ég að fylgja hon- um eftir á ferSalögum hans. Þegar hann hafði leikið listir sínar í hringnum sagði hann og benti á mig: —Nú kemur þessi litla telpa með samskotabaukinn til ykkar, og þegar þið liaf'ð sýnt rausn ykkar, ætlar Inin að sýna ykkur þakklæti sitt með því að stökkva heljarstökk. Svo gekk ég með samskotabaukinn, en ég gerði aldrei heljarstökkið. Einu sinni mótmælti einn áhorfenda og heimt aði að ég stykki heliai'stökk, en pabbi var ekki lengi að snúa sig út úr því og sagði, að ég væri ný Framhald á 15. síðu £ 26. okt. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.