Vísir - 24.10.1958, Side 1

Vísir - 24.10.1958, Side 1
12 síður 12 síðui »8. árg. Föstudaginn 24. október 1958 236. tbl. Þetta er sko5un stjórnmáSafréttaritara Sunay Times í Lcndon. Stjórnmálafréttáritari Sunday Times í London, Nicholas Carroll birti hinn 19. þ.m. grein, sem hann nefnir ,,British Hope in Iceland Dispute" (Von'r Breta um lausn ðeilunnar við ísland). Segir hann þar að Bretland |(þ.e. brezka stjómin) sé nú þeirrar skoðunar, að bezta ráðið til lausnar þessari hættulegu deilu, er ógni einingu Natoríkj- Bnna, sé að halda nýja ráðstefnu lim réttarreglur á hafinu á veg- um Sameinuðu þjóðanna. Bretar beiti áhrifum sínum á Allsherj- arþinginu til þess, að slík ráð- Btefna verði haldin snemma á íiæsta ári. Brezka stjórnin sé eömu skoðunar og Bandaríkja- Stjórn um það, að hvenær sem er geti komið til árekstra milli ,,verndarskipa“ brezka flotans og ísienzkra „fallbyssubáta". Carroll getur málflutnings Lúðvíks Jósepssonar (viðtalið í Þjóðviljanum), sem einingu Nato stafi hætta af. Almennings- álitið á Islandi sé þannig nú, að árekstrar í íslenzkri landhelgi gætu orðið til þess, að stefna Lúðviks hlyti yfirgnæfandi fylgi, svo að hægfara (moderate) ráð- herrar stjórnarinnar, gætu ekki streizt þar i móti. Einnig ræðir Carroll sem eina leið úr vandan- «m, að Bretland og Island leggi málið fyrir Haagdómstólinn, „frysti“ þannig deiluna,ogkveðji hin vopnuðu skip burt (af hinu umdeilda svæði), en þar til úr- skurður félli gæti Haagdómstóll- inn lagt til, að samkomulag yrði til bráðabirgða um 6 eða 8 mílna fisk veiðilandhelgi. Klykki Carroll út með þessari athyglisverðu klausu: „f fiestum Natolöndum er það þó skoðun forustu- manna (officials), að um það er ljúki verði að failast á alls- lierjar (universal) 12 milna fiskveiðalandhelgl. En Bret- land mun vissulega áfram í engu kvika frá óbreyttri af- stöðu, að því er snertir (venju leg) landlielgismörk (terri- torial limits), sem er alg-er- lega sérstakt mál. --• — Stys í Hörgsbíí). f gær varð slys í Hörgshlíö hér í bæ. Vildi það til með þeim hætti að vinnupallur brotnaði og tveir menn, sem á honum voru við vinnu, duttu niður. Annar þeirra Hafsteinn Sigurjónsson, Kirkjuteigi 7, meiddist á fæti — hlaut opið brot — að því er lögreglan tjáði Vísi, og var fluttur í slysavarðstofuna. Slys í Brautarholti. Um miðjan dag í fyrradag datt maður í stiga í Brautar- holti, Edvard Lövdahl að nafni. Hann meiddist eitthvað, skrám- aðist m. a. á höfði og kvartaði undan eymslum í síðu. Hann var fluttur í slysavarðstofuna til athugunar. Loftmynd af Reykjalundi. SÍltS 20 áru. Hefur varið 25 milij. kr. til Reykjalundar. Þar hafa dvaSfð á 6. hundrað vistmsnn og sala framleiðsluvara nemur um 45 millj kr. Múrarar hafa átt annríkt í Vatikaninu síðustu daga, því að hver kardínáli fær sinri kjör- klefa, þegar til páfakjörs kem- ur. Hér er múrari að útbúa slíkan klefa úr múrsteinum. DflHes taiinn hafa unnfð stjórnmála- sigur á Formósu. Sjang lýsti yfir í fyrsta sinn, aö ekki skuli útkljá deiluna með vopnavaldi. Mjög skiptar skoðanir eru imi það í biöðum í morgun hver ár- angur hafi orðið af Formósuför Dullesar utanríklsráðh. Banda- ríirjanna. Sum telja, að hann sé enginn, allt sé í rauninni óbreytt, en í Manchester Guardian segir, að Nýlega stofnuðu nokkrir drengir hér í bæ taflfélag, sem þeir kalla „Svartur á leik“. Til þess að byrja með verða þeir að láta sér nægja að hafa æfingar í geymslu, við frumstæðustu skilyrði. (Ljósm. Stefán Nikulásson). Duller hafi unnið mikinn stjórn- málalegan sigur. Rökstyður blaðið þá skoðun sína svo, að í hinni sameiginlegu yfirlýsingu, sem birt var í gær, að loknum viðræðufundunum, hafi Sjang Kai-shek ásamt Dullesi afneitað beitingu vopnavalds til lausnar deilunni, og sé það í fyrsta sldpti sem Sjang lýsi yfir slíku. Duiles í brezku sjónvarpi. 1 sjónvarpsviðtali við Dulles, sem gengið var frá áður en hann fór í Formósuförina, segir hann, að ef Rússar og Kínverjar hættu afskiptum af málefnum annarra þjóða og hættu að reyna að bröngva kommúnisma upp á bjóðirnar, myndi friðsamleg sambúð komast á milli allra bjóða. Enn er skotið — Þjóðemissinnastjórnin á For- l mósu tilkynnti í morgun, að kínverskir kommúnistar hefðu hafið skothrið af nýju úr strand- virkjafallbyssum sínum, eftir 23. klst. hlé. Samband íslenzkra berkla- sjúklinga er 20 ára í dag. Stofn- un þess er miðuð við daginn, sem lög sambandsins voru und- irrituð á fyrsta þingi þess að Vífilsstöðum 24. október 1938, Á þessum tuttugu ára starfs- ferli hafa forráðamenn og braut ryðjendur SÍBS unnið ótrúlegt þrekvirki og reist sér varan- legri minnisvarða, heldur en sennilega nokkur önnur félaga- samtök á jafnskömmum tíma. Aðalverkefni sambandsins var bygging og rekstur Reykja lundar, en þar hafa alls á 6. hundrað vistmenn dvalið lengri eða skemmri tíma. Þeir hafa innt af höndum eina milljón og tvö hundruð þúsund dagsverk og andvirði seldra framleiðslu- vara hennar nálega 45 milljón- um króna. Laun, sem vistmönn- um hafa verið greidd á þessum árum nema sem næst 15 millj. I kr. | Rekstrarhagnaður hefur ver- ið flest árin þrátt fyrir að nið- urgreiðsla löglegrar fyrninga af eignunum hafi numið 800 þúsund krónurn á síðasta ári. Frá því 1949 hefur Samband berklasjúklinga rekið iðnskóla með fullum réttindum. Frá þeim skóla hafa 150 nemendur ýmist lokið 3. eða 4. bekkjar iðnskólaprófi. Hefur Reykja- lundur borið allan kostnað af skólanum. Auk allra bygginga, sem SÍBS hefur komið upp, og þeirra athafna, sem að framan eru greind, er starfssvið Reykja lundar ýkja margþætt. Þess má til dæmis geta að það hefur fastráðinn starfsmann til þess að annast félagslega aðstoð fyr- ir skjólstæðing sína, þar á með- al útvegun atvinnu, húsnæðis og lánsfjár, hvers konar erind- rekstur gagnvart fyrirtækjum og einstaklingum og ráðlegg- ingar og fræðslu í ýmsum per- sónulegum og félagslegum vandamálum. Öll starfsemi SÍBS er miðuð við það að koma fótum undir Framh. á 7. síðu. Riíssar og Ashwanstíflan. Bjóöa Egyptum 400 m. rúblur til að framkvæma einn fimmtánda áætlaðs kostnaðar. Rússar hafa boðið Egyptum lán til kaupa á vélúm vegna Ashwanstíflunnar — svo og heitið tæknilegri aðstoð. Krúsév tilkynnti í ræðu. sem haldin var í Kreml í gær til heiðurs Arem, varaforseta Ar- abiska sambandslýðVeldisins, að Rússar ætluðu að lána Egyptum 400 millj. rúblna til Áshwanstíflunnar. Fyrir þeíta fé kaupa Egyptar vélar og sitthvað annað í Sov- étríkjunum, sem til fram- kvæmdanna þarf. Skammt mun þetta hrökkva, því að hér er aðeins um að ræða 1/15 hluta þess, sem áætlað er að þurfi til framkvæmdanna. Þess er þó að geta, að Nasser boðaði, er hann tók Súezskurðinn, að tekjunum af honum yrði varið til fram- kvæmdanna, en augljóst er, að meira þarf. Bretar og Banda- ríkjamenn voru búnir að heita stuðningi, en drógu í hlé síðar tilboð sín vegna beygs um afr- leiðingar stefnu Nassers. ssllr gildir 12 m. • Iivarvetisa.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.