Vísir - 24.10.1958, Blaðsíða 12
Ekkert kl»8 er <dýram ( áskrift «■ Vfslr.
Látið kana tara jrRur fréttir (f uuul
leitrarefni heini — án fyrirhafnar af
y8ar kálfo.
Síml 1-16-60.
• Mouið. að þeci, iem gerast áskrifendor
I Vísis ektir 10. hvers tnánaðar, fá blaSil
oaeypis til manaðamóta
Sími 1-16-60.
Föstudaginn 24. október 1958
Landhelgismálið hjá Sþ:
sbiidiiigar kröfðust þess fyrstfr
a, að Sþ settu alþjóðare
Bretar framleiða yfir mill-
á árinu.
L’r ýtvargisræ^ii Ouðmundar I.
Gsiðnnsndssonar b gær.
' Guðmundur í. Guðmundsson
utanríkisráðherra flutti útvarps
ræðu í gærkveldi og minntist
Sameinuðu þjóðanna, rakti til-
tírög að stofnun þeirra og ræddi
viðfangsefn'i þeirra og árang-
íirinn af starfi þeirra á ýmsum
sviðum. í niðurlagi ræðu sinn-
ar ræddi hann tillöguna um
nýja ráðstefnu um réttarregl-
ur á höfunum og afstöðu ís-
lendinga til þeirra mála.
„Fyrir þingi Sameinuðu þjóð-
anna nú liggur tillaga frá for-
Stjóra þeirra um að kalla saman
uýja ráðstefnu til að mynda al-
mennar alþjóðlegar reglur um
víðáttu landhelgi og fiskveiði-
lögsögu.
íslenzka sendinefndin á Alls-
herjarþinginu hefur andmælt
hugmyndinni um nýja ráð-
stefnu. Heldur nefndin því
fram, að þing Sameinuðu þjóð-
anna verði sjálft að finna al-
þjóðlega lausn á málinu, er
tryggi sanngjörn réttind'i strand
ríkja og taki fullt tillit til sér-
stöðu þeirra ríkja, er byggja af-
komu sína að langmestu levti
á fiskveiðum við stréndurnar,
eins og á fslandi.
Genfarráðstefnan og tillag-
an um nýja ráðstefnu hefur
verið rædd í hinum almennu
stjórnmálaumræðum á AJls-
herjarþinginu. Gerði ég þar
grein fyrir afstöðu íslnds. Mál-
inu hefur nú verið visað til
sjöttu nefndar, sem tekur það
fyrir í byrjun næsta mánaðar
j og er talið, að það verði afgreitt
þaðan fyrir lok nóvember. Af
umræðum í Allsherjarþinginu
og af viðræðpm við svo til allar
sendinefndir á þinginu er ljóst,
hver afgreiðslan verður. Hug-
myndin um að Allsherjarþíng-
ið finni efnislega lausn á mál-
inu fær ekki undirtektir, næst-
um allar þjóðir vilja nýja ráð-
stefnu og treysta henni betur
en þinginu. ívímælalaust er
því, að það eitt gerist, að ný
ráðstefna verður ákveðin. —
Spurning'in er, hvenær hún
verður. Líkur benda til að ráð-
stefnunni verði flýtt og þá ekki
hvað sízt vegna þess ástands,
Frh. á 11. síðu.
Heuss vííir
blaðamenn.
fCaS'ar þá
Dagur Sameinuðu þjóðanna.
Þenna dag fyrir 13 árum gekk stofn-
skrá þeirra í gildi.
í dag er dagur Sameinuðu
þjóðanna og er hans niinnzt í
öllum löndum þeirra, Einkunn-
arorð þessa afmælisdags þeirra
eru: Að lifa saman í friði sem
góðir nágrannar.
Það var fyrir réttum þrettán
árum, sem stofnskrá Sameinuðu
þjóðanna gekk i gildi. Þessi dag-
ur, 24. október, telst stofndagur
Sameinuðu þjóðanna, en þá
hafði tilskilinn fjöldi samnings-
ríkja fullgilt stofnskrána. Stofn-
ríkin voru 51 með 1700 millj.
Sbúa en eru nú 81, en þvi miður
eru fáein sjálfstæð riki enn ut-
an þeirra. Upptaka Islands í
samtökin gekk í gildi 19. nóvem-
ber 1946.
Hausímót Taflfél-
ags Reykjavíkur.
Fyrsta umferð á haustmóti
Taflfél. Rej’kjavíkur fór fram
í gærkveldi og fór þann veg
sem liér segir:
Ásgeir Ingimundarson vann
Hauk Sveinsson, Jón Pálsson
vann Sigurð Gunnarsson, Reim-
ar Sigurðsson vann Brága Þor-
bergsson og Eiríkur Marelsson
gerði jafntefli við Kristján
Theódórsson. Aðrar skákir fóru
I bið.
Næst verður teflt á mánu-
tíagskvöld í Breiðfirðingabúð.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna er nú Svíinn Dag
Hammarskjöld og hefur hann í
tilefni dagsins birt ávarp til
æskulýðsins í heiminum, og
rrunnir á, að börnin sem fæddust
á fæðingarári Sameinuðu þjóð-
anna, eru nú orðin 13 ára, og
þeirra — og einnig þeirra, sem
yngri eru og eldri, og alizt hafa
upp með Sameinuðu þjóðunum,
bíða mikil verkefni, að vinna að
betri skilningi þjóða milli á tíma
nýrra viðhorfa á kjarnorku- og
geimöld þeirri, sem fiamundan
er. Sigrar vísinda og tækni séu
að skapa þennan nýja heim og
þeir sigrar lofi miklu um betra
líf fyrir allar þjóðir, en þessir
sigrar hafi einnig leitt fram á
sjónarsviðið hættur, sem geti
leitt hörmungar yfir ailt mann-
kyn. Því sé aukin, knýjandi
nauðsyn að finna leiðir til frið-
samlegrar sambúðar.
Einnig minnist framkvæmda-
stjórinn þess, að á þessu ári sé
tíunda afmæli samþykktar Mann*
réttindaskrár Sameinuðu þjóð-
anna. I henni sé að finna leiðar-
vísi til allra þeirra sem vinna að
gagnkvæmum skilningi þjóða
milli.
„Því að aðéins með þvi, að
læra að viðurkenna réttindi ann-
ara er hægt að treysta til íram-
búðar grundvðll slíks skilnings,"
eru lokaorð ávarpsins.
Ileúss forseti Vestur-Þýzka-
lands er nú kominn heim' að af-
staðinni hinni opinberu Ueim-.
sókn sinni tii Lundúna og haía
þau skipzt á kveðjuskeytum
hann og Elisabet drottning.
Vestur-þýzkum blaðamönnum
hefur orðið tíðrætt um kulda-
lega framkomu almennings á
Bretlandi gagnvart Heuss, en í
viðtali sem útvarpað var i Bonn
setur Heuss ofan í við blaða-
mennina fyrir gagnrýni þeirra.
í viðtalinu, sem var talað inn
á segulband, segir hann, að
blaðamenn sem séu undrandi yf-
ir framkomu manna, séu fábján-
ar, sem geri sér ekki grein fyrir,
því að hjá mörgum þeirra, sem
hörmungar styrjalda hefðu bitn-
að á, eimi lengi eftir af því, en
endurvakið traust kæmi ekki
fram í háværum húrrahrópum
heldur hógværum, viðeigandi
samkomulagsumleitunum og við
ræðum.
Brezk blöð fara enn i morgun
hinum vinsamlegustu virðingar-
orðum um Heuss, t. d. kallar
Times hann aðlaðandi persónu-
leika, gáfaðan og heiðarlegan
stjórnmálamann.
Barnaverndardag-
urinn er á ntorgun.
Á morgun er fyrsti vetrar-
dagur, og þá er líka barnavernd
ardagur. Þá verður merkjasala
víða um Iand til ágóða fyrir
barnaverndarstarfið, og að
vanda verður þá einnig selt árs-
ritið „Sólhvörf“, ársrit fyrir
börn.
Barnaverndarfélögin eru orð-
in 10 á landinu. Starf þeirra er
fyrst og fremst í þágu afbrigði-
legra barna, en annars starfa
þau að því á hverjum stað, sem
þau telja mest aðkallandi.
Forustumenn Barnaverndar-
félags Reykjavíkur höfðu fund
með fréttamönnum, og verður
frásögn af þeim fundi í blaðinu
á morgun.
Árckstur og ölvun.
í gær varð árekstur tveggja
bifreiða á mótum Njarðargötu
og Hringbrautar og við athug-
un kom í Ijós að annar bifre'iða-
arstjórinn var undir áhrifum á-
fengis.
— • —
-j^ Bandaríkin hafa veitt Súdan
efnahagsaðstoð, sem nemur
19.5 millj. d. og er þetta í
fyrsta sinn, sem Súdan fær
cfnahagsaðstoð frá Banda-
ríkjastjórn.
Er þa5 nýií met — svo og í
Á Bretlandi munu veroa smið- veginn augljóst, að 1958 verður
aðir yfir milljón bílar á þessu einnig metár, að því or varðár
ári eða Iangtum fleiri en á útflutning á brezkum bílum. 1 sl.
nokkru ári öðru til þessa. Frá j mánuði voru fluttir út 38 320
þessu var skýrt nú í vikunni,; bílar, verðmæti £ 15.076.000, en
þsgar Alþjóðabílasýningln í j frá áramótum 374.499 bílar að
London (London’s international verðmæti 30 millj. stpd. Bezti,
motor show) var opnuð.
Verzlunarráðuneytið tilkynnti,
að i september hefðu verið full-
smiðaðar 102.247 bílar og frá
áramótum til loka þessa mánað-
ar 782.996, eða 176.389 fleiri en á
sama tíma árið áður. Með þvi að
fullsmíða 20.000 bíla á viku ætti
framleiðslan að vera komin yfir
milljón á árinu fyrir lok desem-
bermánaðar. Bílasýningin, sem
Butler innanrikisráðherra opn-
markaðurinn fyrir brezka bíla
er í þessum löndum: Bandaríkj-
unum, Kanada, Suður-Aíríku og.
Ástralíu.
Sama daginn og brezk blöð
skýrðu frá því, sem að ofan seg-
ir nú í vikunni, birtu þau skeyti
frá Detroit, þar sem segir, að
Fordfélagið hafi orðið fyrir
nettótapi, sem nemur £ 55.785.
000 á tímabilinu frá áramótum
áði, mun að sjálfsögðu verða til. til septemberloka, miðað við
hagnað á sama tíma í fyrra, er
nam £ 81.964.285. Orsakirnar —
minnkandi sala og hærri fram-
leiðslukosnaður.
áð auka sölu á bilum.
Einnig .met í útflutningi.
Það virðist einnig nokkurn
Boris Pasternak sæmdur bók-
menntaverðiaunum Nobels.
Birting seinustu bókar hans ekki
leyfð í Ráðstjórnarríkjunum.
Árið 1955 hafði rússneski
skáldsagnahöfundurinn Boris
Pasternak lokið við samningu
merkilegrar og mikillar skáld-
sögu — Sivago læknir — sem
hann liafði unnið að í hcilan
áratug. Hún hefur ekki fengist
gefin út á rússnesku, en hefur
komið m. a. á ítölsku óg ensku,
og vakið heimsathygli. Þessi
saga á án efa sinn þátt í að Bor-
is Pasternak hefur nú verið
sæmdur bókmenntaverðlaun-
um Nobels.
Bókin hafði verið tekin til
útgáfu í Moskvu, en eintak af
handritinu sent ítalska bóka-
útgefandanum Feltrinelli. —
Nokkru síðar var hann beðinn
að skila handritinu, en neitaði
því, ijafnvel þótt forseti rithöf-
undasambands Sovétríkjanna,
Súrkoff, væri sendur eftir því.
Feltrinelli gaf svo bókina út,
þrátt fyrir tilmæli um að gera
það'ekki og hótanir. Síðar kom
hún út í New York. Sagan ger-
ist á tímanum 1903—1929.
Þótt nafn Pasternaks sé nú á
allra vörum úti um heim var
hann löngu orðinn frægur mað-
ur, a. m. k. í hópi bók-
menntaunnenda, fyrir ljóð sín
og önnur verk. Hann hefur og
unnið mikið að þýðingum og er
afburða þýðandi. Einna mesta
stund hefur hann lagt á, að þýða
verk Shakespeares.
Boris Pasternak er fæddur
1890 í Moskvu, af listafólki kom
inn í báðar ættir. Stundaði laga
nám og hljóðfæraslátt í frí-
stundum, en sneri baki við
hvorutveggja og fór að lesa
heimspeki, fyrst í Moskvu, síð-
ar í Marburg, og dvaldist í
Þýzkalandi þar til fyrri heims-
styrjöldin bi’auzt út í ágúst
1914. Fyrsta ljóðabók hans kom
út 1912 (Tvíburarnir í skýjun-
um). Hann komst í röð fremstu
ljóðskálda Rússa, en gat sér og
mikið orð fyrir smásögur og
sjálfsævisögu.
Skáldsagan Sivago læknir
mun koma út á íslenzku hjá
Almenna bókafélaginu á næsta
ári.
Jaröhræring-
ar loka námu.
96 anfiiMi er«
inn iluli tir.
Stórkostlegt og’ óvanalegt
námuslys hefur orðið í kola-
námu i Nova Scotia (Nýja
Skotlandi), Kanada. 96 menn
eni enn innilnktir djúpt í
jörðu, að afstöðnum land-
skjálfta.
Mennirnir, sem inniluktir
cru, voru að störfum 3000
ensk fet í jörðu niðri. Þegar
landskjálftinn kom lyftist
gólfið yfir höfðum þeirra og
lokaðist þá fyrir útgöngu og
Ioftrás, en gas hefur safnast
saman á nokkrum stöðum
neðanjarðar þar yfir, sem
námumennirnii’ eru.
Alls voru 165 nienn í nám-
unni. Búið er að ná upp 69, og
var einn látinn en 16 meiddir.