Vísir


Vísir - 10.01.1959, Qupperneq 5

Vísir - 10.01.1959, Qupperneq 5
Laugardaginn 10. janúar 1959 VÍSIR Góðtemplarareglan á íslandi 75 ára. Fyrsta stúkan, Isafold nr. 1, var stofnuð á Akureyri. Hinn 10. janúar 1884 nam Góð- templarareglan land hér á Is- ! landi með þvi að Norðmaðurinn . i Ole Lied stofnaði stúkuna Isa- fold nr. 1 á Akureyri, sem enn 1 | starfar. Stofnendur voru 12. — j G.T.-reglan er fyrsti alþjóðafé- lagsskapurinn sem festi rætur á landi hér, annar en kristin kirkja. — Hér skulu nefnd nokk- ur atriði úr sögu þessa merka fé- lagsskapar. Uppriuii. Vagga G.T.-reg-lunnar stóð i bænum íþöku i New York riki Bandaríkjanna. En rætur félags- skaparins má rekja miklu lengra aftur í aldir. Á miðöldum voru stofnuð ýms félög með sérstöku sniði, lögum, inntöku og fundasiðum. Þau voru nefnd riddarafélög (t. d. Jóhannesarriddarar, Musteris- riddarar o. fl.). Rætur þeirra eru raktar aftur í gráa forn- eskju, allt til hinna fornu laun- helga Egyptalands. Á siðustu öldum hafa verið stofnuð ýms félög með margvíslegum til- gangi, er sniðið hafa lög sin og reglur eftir riddarafélögum mið- alda, t. d. Oddfellowar. Fyrstu stúkurnar. Árið 1850 stofnuðu prentarar í fyrrnefndum bæ, Iþöku, félag með sér og nefndist það Jeríkó- riddarar. Það var fyrst skemmti- féiag og bindindisfélág. En brátt varð alvaran yfirsterkari. Fé- lagsmenn lofuðu að vinna á móti tilbúningi og sölu áfengis, hjálpa hver öðrum og verja heiður fé- laga sinna1. Hliðstæð félög voru stofnuð í nágrenninu, þeim steypt saman í eina heild, sem var nefnd Óháð Regla Góðtempl- ara. Samband þeirra var stofnað 1852 og nefnt Stórstúka. Stefnu- skráin var þessi: 1. Alger afneitun allra áfeng- isvökva til drykkjar og alger út- rýming áfengra drykkja úr land- inu. 2. Algert jafnrétti allra reglu- félaga, án tillits til kynþátta, ti-úarbragða, þjóðmálaskoðana, stéttar eða stöðu. 3. Einkunnarorðin skyldu vera: trú, von og kærleikur. 4. Þeir sögðu; Akur vor er heimurinn, kærleikur vor er rúm góður, mannúðin knýr oss áfram. Samkomulag varð um ákveðna fundarsiði og reglur —• suma leynilega — sem héldust litt breyttir nær 100 ár hjá góðtempl urum um allan heim og gilda flestir enn í dag. Þessvegna m. a or Góðtemplarareglan eina bindindisfélagið, sem enn heldur velli víðsvegar um heiminn og er alls staðar öruggasti máls- vari albindindis, en skæðasti and- stT'ðingur áfengisnautnar í h""ða mynd, sem hún birtist. Þ ð v'ta áfengisdýrkendur og því steína þeir geirum sinum me'ra gogn Góðtemplarareglunni en no’-l"'um öðrum bindindisfé- lajsskr.p. Útbrelðsla. H.-'lfan aitnan áratug var G.T.- reglan að breiðast út um Norður- Ameriku við vaxandi álit og gengi. Árið 1868 barst hún til Énglands og þaðan til annarra landa í Evrópu og öllum öðrum heimsálfum. Þegar hún hafði starfað tæpan aldarfjórðung töld ust vera um 750 þús. menn undir merkjum hennar. Til Norðurlanda barst G.T.- reglan 1877 og þá til Noregs, en síðan til allra hinna Norður- landanna, siðast til Finnlands og Islands 1884. Áhrif G.T.-reglunnar. Félagafjöldi skiptir ekki mestu örðugt hlutverk á landi hér, að vinna gegn nautn áfengra drykkja og helzt að gera þá út- læga úr landinu. Hún var því litin hornauga fyrst í stað og mætti ýmsum misskilningi og tortryggni, m. a. vegna þeirrar leyndar, sem hvíldi yfir siðum þeirra á fundum. En smám sam- an vann Reglan sigur á þessum örðugleikum og fólk lærði að skilja bræðralagshugsjón hennar og hinn góða tilgang. Félögum fjölgaði hægt en örugglega fyrstu árin. Á 10 ára afmælinu telur Reglan 1600 félaga, en 5000 Brynjólfur Tobiasson á einum stað í riti um Góðtemplararegl- una: „Lögin 1888, 1899, 1907 og 1909 sýna vilja löggjafans, allt frá af- námi staupasölu og annarrar á- fengisneyzlu i búðum til aðflutn- ingsbanns á áfengi. Þau lög voru sett á grundvelli þjóðaratkvæða- greiðslunnar 1908. Almennings- álitið kom þar fram. — Árin 1906—1910 nam drykkjuskapur- inn á íslandi 1.9 lítrum af vinum og sterkum drykkjum að meðal- tali á hvern mann í landinu á ári hverju, en hafði numið 3.0 lítrum að meðaltali á ári á hverja mann eskju árin 1891—1895. — Lærðu mennirnir voru í þennan tíma foringjar bindindishreyfingar- innar viðast hvar hér á landi, gagnstætt þvi sem var að jafnaði erlendis." IIús Friðbjarnar Steinssonar inni ■' „Fjörunni“ á Akureyri I þessu húsi var Góðtemplara- reglan stofnuð, (uppi í kvist- herberginuV máli í ævi hvers félagskapar, heldur áhrif hans á umhverfið. Svo var og um G.T.-regluna. Hún hafði mikil áhrif á hugsun- arhátt almennings og alla af- stöðu til áfengisnautnar. Hún gjörbreytti skoðunum manna á eðli og áhrifum áfengis, ölvun var talin ósiðsamleg, en afneitun áfengra drykkja viðurkennd hin beztu meðmæli með þeim er vinna skyldu vandasömustu störfin. Árangur af auknu bind- indisstarfi varð aukin og bætt bindindislöggjöf meðal þjóð- anna, sem hafði m. a. í för með sér ýmsar takmarkanir á sölu og veitingum áfengis, sem ávallt dregur úr ofnautn áfengis. Jafn- framt var unnið að þvi að fræða almenning um skaðsemi áfengis og stofnuð var fljótlega unglinga reglan. er starfaði meðal barna og unglinga. Þannig hófst starfsemi G.T.- reglunnar og þannig hefur hún starfað til þessa dags. Stúkan ísafold nr 1 á Akureyri. Svo sem fyrr segir voru stofn- endur stúkunnar 12. Forystu- menn, auk stofnandans, voru þeir Friðbjörn Stefánsson bóli- sali og Ásgeir Sigurðsson, verzl- unarmaður, síðar ræðismaður i Reýkjavík. Þeir voru aðalstjórn- endur og sáu um útbreiðslustarf- ið fyrstu tvö árin, eða þar til Stórstúka Islands var stofnuð 1886. Ásgeir var umboðsmaður hátempiars hér á landi fyrstu 2 árin. St. Isafold gekkst fyrir stofnun nær 20 undirstúkna, þar á meðal St. Verðandi nr. 9 í Reykjavík, 3/7. ’85, sem er fyrsta stúkan er stofnuð var i höfuð- staðnum. Vöxtur G.T.-reglunnar á fslandi. Góðtempiarareglan tók að sér eftir 20 ár. Engin tök eru á að greina nákvæmlega frá vexti og viðgangi Reglunnar þessi 75 ár í stuttri blaðagrein. Þar hefur oltið á ýmsu, eins og gerist í þessum heimi, sigrar og ósigrar skiptast á. Sum árin fjölgar fé- lögum en önnur fækkar. Fámenn ust varð Reglan um 1918, tæp 3 þús., en fjölmennust 1928, tæp UV2 þús. Síðustu 15 árin hefur félagatalan verið nær 10 þús. I ársbyrjun 1958 voru 50 undir- stúkur og ungmennastúkur með 4098 félögum og 63 barnastúkur með 6215 félögum, samtals 9952. Litið til baka. Sé litið yfir farinn veg og at- huguð áhrif Reglunnar hér á landi, virðist hún hafa komið hingað á réttum tíma. Hún kenndi þjóðinni að vinna að fé- lagsmálum. Flest félög, sem síð- ar voru stofnuð sóttu fyrirmynd til Reglunnar um lagasmíð o. fl., þó ekkert þeirra haíi enn svo fulikomin og nákvæm fundar- sköp sem hún. Alkunnugt er, að ýms áhrifa- mikil félög og samtök eiga rót sína að rekja til Templara, að \ miklu eða öilu leyti. Má þar nefna Leikfélag Reykjavíkur, glímufélagið Ármann, Sjúkra- samlag Reykjavíkur, Alþýðu- bókasafnið o. fl.. — Þá voru og stúkurnar hinn bezti skóli í al- mennri félagsstarfsemi og eru enn, m. a. ræðumennsku o. fl. Það er ekki lítið starf á bak við vikulega fundi allt árið og ára- tugum saman, eins og átt hefur sér stað í mörgum stúkum. — Margá eldri templara hef ég heyrt segja, að Góðtemplararegl- an hafi verið sinn eini skóli og minnast þess með þakklæti. Um áhrif Reglunnar á löggjöf iandsins og áfengisneysiu segir hinn nýlátni bindindisfrömuður Samþykktin um aðflutnings- bannið var stærsti sigur vor templara, en afnám þeirra 1935 mesti ósigur. Ekki skal frekar fjölyrt um það hér, en vel mættu andstæðingar vorir minnast þess — ekki sízt nú þegar drykkju- skapur virðist færast í aukana — að þau tvö ár sem bannlögin voru í fullu gildi, eru einu árin, sem hegningarhúsið við Skóla- vörðustíg var svo að segja mann laust. (Einn íangi annað ár- ið, ef ég man rétt). — En minn- ast má og þess að lokum, að fyr- ir áhrif og baráttu Reglunnar er almenningsálitið á móti drykkju- skap, að bindindissemi þykir hinn mesti kostur á þeirn manni er ábyrgðarstörf vinna, að minna er drukkið hér miðað við áfengismagn á hvern einstakling, en í flestum öðrum löndum, að um 10% landsmanna eru nú tal- in vera í Góðtemplareglunni og öðrum félögum, sem hafa bind- indi um áfengi að inntökuskil- yrði. Víst er, að ástandið í áfengis- málum hérlendis væri annað og verra ef Góðtemplarareglan hefði ekki starfað hér svo lengi og starfar enn. Störfin í dag. ,,Þið templarar gerið ekkert, nema að dansa og skemmta ykk- ! ur“, er stundum sagt. ‘ Til fróðleiks þeim er þannig J tala og til viðbótar því, sem að framan er sagt, skal hér birtur útdráttur úr frásögu Þingtempl- ars, Indriða Indriðasonar, rith. í 75 ára afmælisriti Reglunnar, sem pr að koma út. Það eru upp- lýsingar um helztu sérgreinir Reglunnar og ýmsar deildir henn ar. „Sjómanna- og gestaheimili hefur ver'ð starfrækt á Siglu- firði r.ú Um 19 ára skeið af stúk- unni Framsókn nr. 187, með styrk frá Reglunni og fleiri að- ilum. Þá hefur Reglan veitt styrk til undirbúnings starfrækslu sjó- mannastofu i Vestmannaeyjum} Keflavík og Hafnarfirði. Á Akureyri starfrækja templ- arar æskulýðsheimili með tóm- stundaiðju í húseign sinni Vai-ð- borg ásamt bókasafni. Þar er einnig gistihúshald og kvik- myndasýningar. Barnaheimilið að Skálatúni 1 Mosfellssveit er rekið undir yf- irumsjón Umdæmisstúkunnar nr. 1 og á vegum hennar. Hjálparstöð Þingstúku Reykja: víkur hefur verið rekin um ára- bil. Hún hefur opna skrifstofu 2 klst. á dag, fimm daga vikunn- ar, þar sem fólki er veitt marg- háttuð aðstoð og leiðbeiningar. Landnám templara að Jaðri, sem er undir stjórn Þingstúku Reykjavíkur, hefur starfrækt sumarnámskeið barna og ung- linga að Jaðri, og nú um nokkur ár haft þar barnaheimili á sumr- in og notið til þess styrk frá Stórstúkunni og fleiri aðilum. Stórstúkan hefur á hendi út- gáfu barnablaðsins Æskan, sem gefið er út, í 8500 eintökum. Þá hefur hún einnig á hendi allum- fangsmikla útgáfu barna- og unglingabóka, er þótt hafa til fyrirmyndar og náð vinsældum. Bókasafn Reglunnar er bind- indisbókasafn er telur um 1800 bindi bóka og rita um áfengis- mál. Það er opið til útlána fyrir templara. Söngfélagið I.O.G.T. er starf- andi í Reykjavik og hefur verið um allangt árabil. Tómstundaheimili ungtempl- ara er starfrækt í höfuðstaðnum og einnig í Hafnarfirði. Skemmtifélög góðtemplara I Reykjavik eru tvö, S. K. T. og S. G. T. Þau standa fyrir áfeng- islausu skemmtanahaldi fyrir unga og gamla í Góðtemplara- húsinu. ^ Til viðbótar þessu stutta yf- irliti er rétt að geta þess að á síðastliðnu ári hafa verið stofnaðar 3 stúkur til viðbótar þeim sem áður eru taldar, og eru það ungmennastúkur, tvær í Reykjavík og ein í Hafnar- firoi. Ungmennastúkurnar, sem nú eru átta samtals, stofnuðu með sér á s.l. vóri, 24. apríl, sambandið íslenzkir ungtempl- arar. Sambandið hóf þegar starf í sumar með námskeiði að Jaðri og útilífi og ferðalögum. í vetur hefur verið fram haldið í fjölbreyttara sniði, tóm- stundastarfi því er áður var hafið af ungtemplurum í höf- uðstaðnum. Sambandið var þátt- takandi í sýningunni „Með eigin höndum“, sem Æskulýðsráð Reykjavíkur hélt á næsriiðnu hausti. Vel er af stað farið með stofnun I. U. T. og væntir Regl- an að þessi nýju samtök æsku- lýðsins verði drjúgur þáttur í vaxandi sókn og auknu fylgi við málstað Reglunnar. Að lokum bið eg lesendur þessa greinarkorns að minnast m. a. þessara atriða úr grund- vallárákvæðum Alþjóðareglu Góðtemplara: „Markmið Alþjóðareglu Góðtemplara er að skapa feg- j uri-a, frjálsara og fullkomnara I Framh. á 8. síðu. $rP4(//v/MG 'OPÖT?F 3(fcrt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.