Vísir


Vísir - 05.03.1959, Qupperneq 4

Vísir - 05.03.1959, Qupperneq 4
VfSIK Fimmtudaginn 5. marz 1959 i irísiR. DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Víslr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti S- RÍtstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: (11660 (fimm línur) Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðian h.f. Tilraun sem reyndist dýr. Stórsigur Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningun- um 1958, hefði átt að vera Hermanni Jónassyni og rík- isstjórn hans nægileg sönn-' un þess, að þjóðin væri and- víg þeirri stjórnarstefnu sem fylgt hafði verið undan- farið IV2 ár. Hvernig átti þjóðin að sýna andúð sína á nýkommúnismanum, hinni , svokölluðu „vinstri stefnu“? Auðvitað með því að fylkja sér um þann stjórnmála- flokk, sem varaði hana við afleiðingum þeirrar sam- bræðslu, sem Hermann Jón- asson hafði barist fyrir um langt skeið. Það hefði sjálf- , sagt verið er-fitt fyrir Her- mann að snúa við í ársbyrj- un 1958. Hann hafði þá enn einhverja von um að fyrir- ætlun sín myndi heppnast, - enda þótt hann hefði þá þeg- ar átt að vita að þetta fyrir- tæki hans var dauðadæmt. í>að er vafalaust rétt, sem Jón- as Guðmundsson, fyrrv. al- þingism. hélt nýlega fram í ágætri tímaritsgrein: að „Hermann Jónasson hefur alla tíð síðan (1934) dreymt ! um að skapa úr Framsókn, Alþýðuflokknum og þeim hluta kommúnistaflokksins, sem ekki fylgir Moskvulínu skilyrðislaust, eina öfluga vinstri fylkingu, sem gæti farið með völd og ráð hér á landi, og jafnvel um ára- tugaskeið, líkt og gerzt hefir í Noregi og Svíþjóð.“ Eins og menn muna tókst Her- manni að bræða þessi öfl saman til stjórnarsamvinnu sumarið 1956, og þótti ýms- um vel af sér vikið. Mikil- vægt atriði í þeim undir- búningi var samþykktin frá 28. marz, um brottför varn- arliðsins, sem kommúnistar gripu fegins hendi og vildu fylgja fast eftir, en Fram- sókn og Alþýðuflokkurinn ætluðu sér frá upphafi að svíkja! Kommúnistum hefur réttilega verið núið því um nasir, að þeir hafi farið sér hægt í kröfunni um fram- kvæmd samþykktarinnar um brottför varnarliðsins, meðan þeir voru í ríkis- stjórn. En þess ber að gæta, að með aðstöðu sinni í rík- isstjórninni gátu kommún- istar, komið ár sinni svo vel fyrir borð á ýmsum öðrum sviðum, að það hefði verið barnaskapur af þeim, að láta ágreininginn um varn- arliðið valda samvinnuslit- um — enda datt þeim það . (_ eldrei í hug. _ . Draumur Hermanns Jónasson- ar um að kljúfa kommún- istaflokkinn rættist ekki.- Það var mikið pólitískt áfall fyrir Hermann og eins og nú horfir í íslenzkum stjórn- málum, verður að telja fremur ólíklegt að hann komi þar nokkuð að ráði við sögu framar. Hann ætlaði vafalaust að gera kommún- ista sér undirgefna, eða hinn „samstarfshæfa“ hluta þeirra, er hann kallaði svo. Og óneitanlega horfði þann- ig um tíma, að Moskvu- deild flokksins væri að verða áhrifalítil, en það var aðeins stutta stund. Hlutverk kommúnista í ríkis- stjórninni var frá uppháfi ákveðið af þeirra erlendu yfirboðurum, en ekki af Hei’manni Jónassyni, þótt hann héldi það. Verkefni þeirra var eins og endranær þetta: „Að sundra þjóðinni sem mest og skapa sem mesta árekstra milli íslend- inga og annarra vestrænna þjóða“ og „binda ísland sem föstustum fjái’hagsfjötrum við- Rússland og leppríki þess.“ (Dagr. nr. 68, bls. 24). Hver maður hlýtur að sjá að þetta hefur tekist, og jafn- vel betur en húsbændurna fyrir austan hefði nokkru sinni dreymt um. Þó er loka- áfanginn enn eftir, eins og Jónas segir í áðrunefndri grein, þ. e. að hrekja ísland úr Atlantshafsbandalaginu og vinna að því eftir megni, að við „vanefnum og svíkj- um þær skuldbindingar, sem við höfum tekist á hendur sem vestræn lýðræðisþjóð, koma hér á mannvígum og fangelsunum að austræn- um sið og innlima ísland í leppríkjakerfi Sovétríkj- anna“. Svona langt vildu Framsókn- arflokkui’inn og Alþýðu- flokkurinn ekki ganga, og þess vegna slitnaði upp úr stjói’narsamvinnunni, enda var þá hinum gætnari mönnum í báðum þeim flokkum löngu farið að of- bjóða veldi kommúnista innan ríkisstjórnarinnar. En nú er þessu lokið, segja menn, og það kemur ekki aftur. Vonandi í’eynast þeir sannspáir. En hinum ís- lenzku kommúnistum og aðstoðarmönnum þeirra varð mikið ágengt þetta hálft þriðja ár sem þeir voru í ríkisstjórn að þessu sinni. Húsbændur þeirra fyrir austan hljóta að vera Norræna listlðnaðarsýningin í París hlaut góða dóma. Og ekki sífA íslen/.ku verkiu. Norræna listiðnaðarsýningin, sem stóð yfir í Louvre-höllinni í París í nærri þrjá mánuði og lauk um næstsíðustu mánaða- mót, fékk mjög góða dóma gesta yfirleitt og gagnrýnenda, og átti stjórn „íslenzkrar list- iðnar“, sem annaðist hina ís- lenzku deild sýningarinnar, fund með blaðamönnum ný- verið og sagði þeim undan og ofan af um sýninguna og við- tökunum og sýndu blaðadóma. íslenzkir sýnendur voru: Silfursmíði: Árni B. Björns- son, skrautgripaverzlun: Gyllt stokkabelti, víravirki. Teiknað af Guðmund heitnum Guðna- syni, smíðað af Leifi Kaldal. Skai’tgripaverzlun Jóns Sig- mundssonar: Armbönd, skeið o. fl. eftir Jóhannes Jóhannes- son. Einnig ai’mband eftir Hall- dór Kristinsson. Frú Sigríður Björnsdóttir: Hi’ingar, teiknaðir og smíðað- ir af Diter Rot. Frú Ásdís Thoroddsen: Háls- men, eigið smíði. Smellt: Skargi’ipaverzlun Jóns Sigmundssonar: Hálsmen eftir Jóhannes Jóhannesson. Stólar: „Sindri“ h.f.: Ai’m- stóll úr svörtu, möttu stáli, með áklæði frá „Álafossi". „Nývirki“ h.f.: Borðstofu- stóll úr perobaviði, áklæði of- ið af frú Guðrúnu Jónasdóttur. Báðir þessir stólar eru teikn- aðir af Sveini Kjarval hús- gagnaarkitekti. Vefnaður: Frú Guðrún Jón- asdóttir og „íslenzkur heimil- isiðnaður“: Langsjöl og værð- arvoðir. Júlana Sveinsdóttir listmál- ari: Ofin og hnýtt gólfteppi og veggklæði. I Hér á eftir fara útdi’ættir úr dómum þriggja Parísai’blaða um sýninguna: Pariser Kurier: .... Þó að fimm þjóðir standi að þessari sýningu orkar hún á okkur sem órofa heild. Það vekur undr un að komast að því, hve lífs- viðhorf og lifnaðarhættir íbúa þessara landa eru skyldir. Öll Herðasjal úr fíngerðum þel- þræði. — Sjalið prjón.aði frú Jóhanna Jóhannesdóítir Svína- vatni, Húnavatnssýslu. um er þeim sameiginleg hin mikla rækt, sem lögð er á hí- Sveinsdóttir og f-i’ú býlamenninguna. Þetta er stað- Asgerður Búadóttir: Mynd- reynd; sem ag sjálfsögðu má að einhverju leyti rekja til vefnaður. Prjónles: „íslenzkur heimil- isiðnaður“: Frú Þórdís Egils- dóttir, ísafii’ði og frú Jóhanna Jóhannsdóttir, Svínavatni, Húnavatnssýslu: Langsjöl og þríhyrnur. Þá voru þar servíettubogar eftir Kjartan á Kjaransson húsgagnaarkitekt: Skornir í Palisandervið. Auk þessa voru þarna nokkr ir stílhreinir, fagrir munir úr Þjóðminjasafninu, valdir af Erik Herlöw arkítekt sýningar- innar. Loks má telja vandað hvítt gólfteppi ofið úr íslenzkri ull hjá Teppagerðdnni Axminster Rvk., 3X3 mtr. að flatarmáli.. veðurfars og legu landanna, en er á hinn bóginn árangur markviss, félagslegs starfs .... Allt, sem er óþarft, ljótt, til- gerðarlegt, er hér útlægt gert. Styrkleiki þessa nýja lífsstíls, sem spi’ottinn er upp „lengst í norðri“ byggir á látleysi og fegurð tjáningar og forms .... Hér er sýnt, hvei’nig hagnýta má listina á öllum sviðum hins daglega lífs. Árangurinn vekur furðú. Menn. spyrja sjálfa sig: Hvers vegna er þetta ekki svona hjá okkur? .... Sér- staka athygli og aðdáun vekja stólarnir, allt frá skemli til ný- tízku hægindastóls. Á einstæð- an hátt sameina þeir form, feg- I urð og þægindi .... Ai’ts, París: .... Hér er á ánægðir með frammistöðuna ferðinni mikilsvei’ð sýning á eins og áður var sagt, þótt | nútíma listiðnaði, sem norrænu þeir séu kunnir að því, að löndin fimm, Danmörk, Finn- gera strangar kröfur til er- indi’eka sinna. Og langan tíma mun þurfa til að bæta allt það tjón, sem þessi ó- gæfustjórn vann þjóð sinni. Og þetta ævintýri Her- manns Jónassonar hefur vonandi sannfært aðra flokksforingja um þá stað- reynd, að flokkar, sem bera hag sinnar eigin þjóðar fyrst 0g fremst fyrir brjósti, geta ekki unnið með kom- múnistum. land, íslan, Noregur og Sví- þjóð standa að. Yfir verkunum, sem þarna eru sýnd, hvílir einingar- og glæsiblær. Form- in hrein og sterk, vinnan full- komin, litirnir fínlegir og skærir, stíllinn í senn djarfur og skynsamlegur .... Norðrið veitir okkur hér góða lexíu í smekkvísi og minnir okkur á þann sannleika, sem okkur hættir við að gleyma um of, að listin er ekki takmörkuð við svonefndar „fagrar listir“ ein- ar, en á uppsprettu sína í hlut- um þeim, sem við notum í dag- legu lífi okkar .... Revue de Paris, Paris: .... ísland, sem hefir ekki áður sýnt með hinum Norðurlönd- unum, hefir nú bætzt í hópinn. í úrvali því, sem þaðan kom, eru áberandi hin sterku bönd, er tengja nútíma listiðnað þess við eldri hefðir. Gullsmíðin og vefnaðurinn skipta þar mestu máli .... Þetta var 4. listiðnaðarsýn- ingin á erlendum vettvangi, sem félagið „íslenzk listiðn“' tekur þátt í. Þess má minnast, að á einni sýningunni, í Mún- chen 1956, hlaut einn þátttak- andinn, Ásgerður Búadóttir, gullverðlaun frá ríkisstjórninni í Bayern fyrir myndofið vegg- klæði. Stjórn „íslenzkrar listiðnað- ar“ skipa Lúðvíg Guðmunds- son skólastjóri formaður, Björn Th. Björnsson listfræðingur ritari og Ragnar Jónsson hæsta- réttarlögmaður gjaldkeri. Þess skal getið, að öllum er heimilt að gerast meðlimir fé- lagsins, en höfuðtilgangur þess er að stuðla að því, að hér á landi megi þróast listiðnaður, er standist ströngustu kröfur | um hstmæti og vandvii’kni. Og þátttaka félagsins, fyrir ís- lands hönd, í hinum erlendu sýningum, hefir sannað, að slíkt má takast. Fimmtugur i dag: Jén Bjarnason fréitastjóri. í dag er Jón Bjarnason frétta- stjóri hjá Þjóðviljanum fimmt- UglU’. Við, sem kynnzt höfum Jóni i félagslífi og öðrum störfum á undanförnum árum, metum Jón og þökkum honum samstarfið. Okkur þykir vænt um hann. Þessar fáu linur, sem honum eru helgaðar í tilefni afmælisins, eiga enganveginn að rekja ævi- feril þessa siunga og starfsglaðaí manns, heldur ætlaðar til að þakka honum gömul og góð kynni, sem góðum félaga og drengskaparmanni. Jón mun fæddur i Dölum vest- ur og alinn þar upp — vafalaust af góðu bergi bi’otinn — hanm ber það með sér. Um nær tvo áratugi hefur Jórt starfað að blaðamennsku og nýt- ur þar bæði hylli og virðingu fé- laga sinna. Hann hefur góðam stíl og blæbrigðaríkan. Greinar hans og viðtöl bera svipmerki hæfileikamanns og eru æfinlega læsileg og skemmtileg. ' Jón hefur starfað lengur en nokkur annar blaðamaður í stjórn stéttarfélags blaðamanna,. ýmist sem ritari eða formaður og sýnir það gjörla hvilíkt traust blaðamenn bera til hans. Það sem þó er mest um vert er það, að Jón er góður drengur og félagi og við félagar hans E blaðamannastétt óskum honum til hamingju með daginn. — Þ. J. Útflutningur frá Banda- ríkjunum til landanna aust- an tjalds jókst á s.l. ári og- nam frá jan.— s ept. 92 millj. dollara, cn ínnflutn- ingur frá þeim nam 48.S millj., en fyrrnefndur út- flutningur nemur tæplega 8/10 af einum hundraðs- hluta af viðskiptum Banda- ríkjanna við önnur lönd.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.