Vísir - 05.03.1959, Síða 7
Fimmtudaginn 5. marz 1959
VÍSIR
%
•‘ÍX ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ ☆
BUSAN INGLiS:
4
Penny rankaði við sér er hún heyrði þurra röddina í lafði
Kathleen.
„Þessi unga stúlka þarna,“ sagði hún, „er Mercedes Herrera.
Faðir hennar á allmargar olíulindir hér í landinu. Dóttirinn..,
Hún steinþagnaði. Því að það var nærri því eins og Mercedes
hefði heyrt nafnið sitt gegnum allan kliðinn i matsalnum. Hún
sneri sér að borði lafði Kathleen. Og á næsta augnabliki stóð hún
hjá þeim við borðið, en benti samferðafólkinu, að það skyldi
halda áfram.
„Lafði Kathleen, eg frétti að þér væruð komin aftur.“ Ein-
kennilegum svip brá sem snöggvast fyrir á andlit konunnar, en
hún heilsaði stúlkunni með virktum. Penny þekkti hana.þó orðið
svo vel, að hún heyrði að einhver fáleiki var í röddinni. — Mer-
cedes Herrera brosti til hennar — auðvitað gerði hún það — og
meira að segja alúðlega. Sagðist vona að hún kynni við sig í
E1 Paradiso þegar frá liði. En samt fann Penny, að þessi svörtu
augu höfðu horft gegnum hana með lítilsvirðingu. Henni létti
þegar stúlkan fór frá þeim, til samferðafólks síns.
„Þessi unga stúlka," sagði lafði Kathleen, „er nærri því eins og
fágað listaverk. Er það ekki?“
„Hún er töfrandi að sjá.“
„En það hefur verið dekrað við hana,“ sagði lafði Kathleen
þurrlega. „Ljómandi stúlka, svo lengi sem hún kemur sínu fram.
En fái hún ekkl að ráða....“ Hún yppti öxlum. „Eg held að hún
sé að hugsa um að giftast Andrew. Og stundum,“ bætti hún við,
„liggur við að mér þætti mátulegt á hann að hún gerði það.“
„Ó.“ Penny leit þvert yfir gólfið. Mercedes Herrera hafði sest
hjá sínu fólki og lét dæluna ganga. Hún hafði auðsjáanlega
sagt eitthvað, sem sessunaut' hennar þótti fyndið, en augun í
Fenny urðu dökk og hún fann að hún roðnaði.
Mercedes Herrera hafði vafalaust sagt eitthvað um hana. Eldri
konan við borðið góndi á hana og fór ekki í felur með það. Og
Karlmennirnir litu líka á Penny, þó ekki væri nema snöggt.
Jæja, svo að hún ætlaði að giftast Andrew Brand, hugsaði
Penny með sér, og alls ekki beiskjulaust. Hann var hryssings-
legur og þáu mundu eiga vel saman.
„En....“ sagði lafði Kathleen sannfærandi, ,,þér komist ekki
af með einn samkvæmiskjól, góða min! Sá blái er að vísu falleg-
ur, en....“
Penny hristi höfuðið. Litli blái kjóllinn var gersemi. Væri hún
í honum þyrfti hún ekki að skammast sín þegar hún kæmi í
borðsalinn á Hotel Madrid. Lafði Kathleen las þráami úr augun-
um á henni og andvarpaði.
„Jæja,“ sagði hún og gerði út um kaupin við brosandi af-
greiðslumeyjar á spönsku. Ungu stúlkurnar brosiu neigðu sig,
og Penny hélt áfram inn í aðra deild.
Það var erfitt að standast allt, en Pemiy stóSsfc það, þrátt fyrir
að lafði Kathleen var alltaf að reyna að taia um íyrir henni og
fá hana til að kaupa meira.
„Það segi eg satt,“ sagði lafði Kathleen nærri því ergileg, að
eg hafði ekki hugmynd um hve mikill þrákálfur þér eruð.“
Til þess að bæta sér upp sparsemi Penny keypti hún allmikið
handa sjálfri sér. Hún sagðist þurfa að endurnýja fötin sín,
vegna þess að hún hefði gefið kunningjum í Englandi mörg
föt af sér.
„Kannske þér viljið segja mér hve mikið þér hafið borgað
fyrir mig?“ sagði Penny meðan þær gengu upp brekkuna að gisti-
húsinu.
„Ekkert, sem þér eigið að endurgreiða,“ sagði lafði Kathleen
ákveðin. „Eg verð fjúkandi vond ef þér minnist á það einu orði
frekar. Eg hef haft ánægju af þessu, en ánægjan hefði þó orðið
meiri ef þér hefðuð ekki verið svona þrá, Jæja,“ sagði hún og
breytti umtalsefni — „nú skulum við hvíla okkur síðdegis, það er
góður siður hérna í Costa Rosa, — og í kvöld skulum við koma
í spilabankann og hitta nokkra kunningja rnína. Þar verða ef-
laust ýmsir ungir menn, sem þér getið dansað við, og þá getiö
þér vígt bláa kjólinn yðar.“
Þegar Penny hugsaði málið síðar, fann hún að lafði Kathleen
gat haft ástæðu til að reiðast yfir því að hún keypti ekki meira.
En hún hafði aldrei á æfinni átt eins margt og fallegt og núna.
Penny hafði hlýtt og farið inn í herbergið sitt eftir hádegis-
verðinn, en hana langaði ekkert til að leggjast fyrir, og allar
öskjurnar og pinklarnir voru komnir frá verzlununum. Henni
sýndist þeir væri fleiri en þeir áttu að vera — en þessa sokka
átti lafði Kathleen vafalaust — hún sperrti upp augun. Þetta
hlaut að vera misskilningur! Tveir af kvöldkjólunum, sem'hún
hafði mátaö um leið og þann bláa, voru komnir þarna líka, og
ekki gat lafði Kathleen ætlað sér þá.
Hún lagði þá varlega til hliðar, svo að hægt væri að búa um þá
aftur og endursenda þá. Svo hengdi hún upp það, sem hún
hafði keypt, og var hrifin. Næst datt henni í hug að fara í bað,
því að hún var ekkert syfjuð, og fara svo í einn nýja kjólinn áður
en hún drykki te.
tefldi Friðrik við 33, vann 30,
gerði 2 jafntefli og tapaði 1,
fyrir Birni Pálssyni frá Salt-.
vík við Húsavík, 15 ára göml««
um pilti. Á Húsavík hefur,
Friðrik dvalið nær viku, hvílti
sig að mestu frá skák og stund^
að skíðaíþróttir.
í sambandi við framanskráð',
er rétt að vekja athygli al-i
mennings á Friðrikssjóði og a5
brýna nauðsyn ber til að safna;
í hann og efla eftir föngum.
Sinfónían -
Framh. af 1. síðu.
marz og þó flutt Sálmaforleikur-
inn „Vakna, Sions verðir kalla'*
eftir Bach, i útsetningu Eugenes
Ormandys, siðan Konsert i d-
moll fyrir fiðlu og hljómsveit
opus 47 eftir Sibelius, og leikur
Þorvaldur Steingrimsson einleik
á fiðluna,, en svo lýkur þessum
tónleikum með því að enn verð-
ur leikin sinfónía Effingers, eða
„íslandssinfónian", eins og hún
var kölluð á blaðamannafund-
inum í gær.
Tónleikarnir verða allir i Þjóð
leikhúsinu, og verða miðar einn-
ig seldir þar frá hádegi í dag.
Vegna þrengsla verður ítar-
legri frásögn af hljómsveitar-
stjóranum og tónskáldinu Eff-
inger að bíða næsta blaðs.
Friðrik o
Framh. af 8. síðu.
Jóhannssonar eða Guðmundar
Pálmasonar.
Annars bíða þrjú stórmót
Friðriks á næstunni. Það er
fyrst mótið í Moskvu, sem
Friðriki hefir verið boðin þátt-
taka í dagana 6.—21. apríl n. k.
Leggur Friðrik í þessa för um
páskana. f mótinu taka þátt
auk Friðriks sex Rússar, en
auk þess hefur einum Dana,
einum Búlgara, einum Tékka,
einum Austur-Þjóðverja verið
boðin þátttaka í mótinu og frá
einu landi enn til viðbótar.
Þann 19. maí hefst skákmót
í Sviss sem Friðrik tekur þátt
í. Stendur það til 6. júní. Me5-
al þátttakenda í því verða Tal,
Keres, Gligoric, Fisher, Lar-
sen, Donner, Duckstein frá
Austurríki, Pachmann, Unzick-
er og loks sex Svisslendingar.
Af þessum þátttakendum taldi
Friðrik þá Keres og Gligoric
mundu verða hættulegastir og
sigurstranglegastir.
Þriðja mótið verður svo
Kandidatamótið sem hefst 7.
september í haust og stendur
óslitið til októberloka.
g Larsen...
Friðrik kvaðst búast við að
hann kæmi heim til íslands að
loknu mótinu í Moskvu í n. k.
apríl nema ef vera kynni að
hann dveldi í Danmörku þar til
mótið hæfist í Sviss.
í sumar kveðst Friðrik ætla
að reyna að styrkja sig líkam-
lega með löngum gönguferðum
og fjallgöngum, en stúdera
skákir þess á milli og búa sig
undir kandidatamótið með
þeim hætti.
Um nýafstaðið skákmót í
Hollandi kvað Fi-iðrik þar lítt
þekktan hollenzkan skákmann,
Barendrágt prófessor, hafa
komið mest á óvart, enda hafi
Hollendingar sjálfir ekki vænst
mikils af honum. Tapaði hann
aðeins 2 skákum, fyrir Friðrik
og Donner en vann m. a. Lar-
sen. Hann er maður um fert-
ugt. Annars telja Hollendingar
dr. Euwe enn bezta skákmann
sinn og Donner næstan honum.
Friðrik hefur nú dvalið 11
daga norðanlands og teflt á
þeim tíma, 5 sinnum fjöltefli,
þar af 3var á Akureyri, 1 sinni
í Laugaskóla og 1 sinni á Húsa-
vík. Á síðastnefnda staðnum
r r
„A 11. stundu" frum-
sýnt í Njarðvíkum
í kvöld.
Leikflokkur Njarðvíkur hefir
frumsýningu í kvöld á enska
sjónleiknum „Á 11. stundu“.
Leikstjóri er Helgi Skúlason.
Það var Ungmennafélag og
Kvenfélag Njarðvíkur sem
stofnuðu leikflokkinn fyrir
tæpum þrem árum, og byrjuðu
æfingar veturinn 1956—7 und-
ir leiðsögn Helga Skúlasonar.
Veturinn eftir sýndi flokkur-
inn svo sjónleikinn „Misheppn-
aða hveitibrauðsdaga“ á alls
17 sýningum á Suðvesturlandi.
Leikstjóri var þá einnig Helgi
Skúlason.
Hinn nýi sjónleikur, „Á 11.
stundu1, er enskur gamanleik-
ur, sem var þýddur sérstaklega
fyrir Leikflokk Njarðvíkur, og
hefir ekki verið sýndur hér á
landi áður. í leiknum koma
kvikmynd sem gerð er með að-
alhlutverkin fara þau Eggert
Ólafsson, Jóna Margeirsdóttir
og Sævar Helgason.
Frumsýningin verður í
kvöld í samkomuhúsi Njarð-
víkur.
Landhelgfsmálin...
Frh. af 2. síðu.
£. R. Burroughs
mm
2839
Apamaðurinn féllst á að
hjálpa honum og næstu daga
voru þeir að veiðum í kjarr-
inu. Laver komst að því að
það er ekki hema eðlilegt að
r.-iða • gripinn ótta þegar
hætta steðjar að og að það
er hægt að láera að sigrast á
hræðslunni. Nú kemur
'prófið-bráðum; sagði Tarzan
kvöld rt. Við erum á
slóð Hlébai ðans.
ströng. Þar má hvergi verða
slaki á einhug allra í land-
helgismálinu.
Það virðist líka koma æ bet-
ur í ljós, að það hafi verið ó-
liapp mikið þegar Alþingi og
ríkisstjórn vísuðu landhelgis-
málinu til Sameinuðu þjóð-
anna. í þeirri miklu deiglu og
hliðardeiglum hefir málið nú
velkst meira en fjögur ár ár-
angurslaust, og ékki virðist
gott að gizka á hve langur tími
muni baétast við. Sennilega
ekki minna en 2—3 ár enn.
Máske meira. Því landhelgh-
mál íslendinga virðist mörgu-n
kærkomið til að velja sér á
víxl vini af vegöndum.
Arn.