Vísir - 30.04.1959, Page 5
Fimmtudaginn 30. apríl 1959
Vf SIR
,,Hvar var Jjessi ljómandi fallega mynd máluð?“ spurði frétta-
maður og benti á myndina, sem liér birtist. „Það var fyrir
nokkru, að eg bjó við Skúlagötuna og Gunnlaugur Blöndal
kom í heimsókn og málaði þessa mynd af mér, þar sem eg sat
við gluggann og horfði á Esjuna. Myndin er falleg vinur, þetta
er hin tæra list, enda segi eg ætíð að Gunnlaugur sé Jónas
Hallgrímsson meðal íslenzkra málara.“
99
Rétf er það, ungi maður,
maður verður að setja
markið hátt.“
Skrudiviðlal við Eggert Stefaiisson,
sem siglir suðui* í lönd a laugardag.
Fréttamaður Vísis leit sem
snöggvast inn til Eggerts Stef-
ánssonar söngvara og rithöf-
undar til að eiga við liann
skyndiviðtal, en liann var bá í
óðaönn að ferðbúa sig til hins
landsins síns, Italíu. ..
Hann hefur dvalizt hér síðan
snemma í vetur ásamt konu
sinni, og þau hafa búið ofarlega
við Háteigsveg, hæst í húsinu,
og það er eins konar himnaríki
að elskulegheitum, fínheitum og
útsýni, og þarna hefur Eggert
horft vetrarlangt á borgina sína
vaxa með ótrúlegum hraða, og
nú síðustu dagana „séð grösin
gróa og ull vaxa á sauðum.“
Það er að koma út ný bók eft-
ir Eggert, og margir eru þeir,
sem bíða með óþreyju eftir nýju
ritverki, því að hann skrifar
eins og listamaður einn getur
gert. Og nýja bókin heitir
„Bergmál Ítalíu“.
— Já, ég kalla bókina þessu
nafni, en allar fyrri bækur mín-
ar eru bergmál íslands, segir
Eggert.
— Þær fengu lofsamlega
dóma.
— Ég get ekki annað en verið
ánægður með það sem skrifað
var um þær. Lárus Sigurbjörns-
son og fleiri létu ósköp elsku-
leg orð falla um þær, og þá
ekki sízt minn gamli vinur Frið-
• rik Á. Brekkan. Við Friðrik
vorum saman á Hvanneyri árið
1910. Friðrik var þar í fjósinu,
og ég var að flytja möl og sand
neðan úr fjöru í hús, sem pabbi
var að byggja þar efra. Ég fékk
25 aura fyrir tímann, og tekj-
urnar urðu 100 krónur, og með
þær lagði ég af stað um haustið
í mína fyrstu siglingu — til að
leggja undir mig heiminn! Ég
kom til Hull, þar hitti ég Snæ-
bíörn bróður, og hann gaf mér
föt, svo að ég' gæti þó verið fínn
til fara með mín stóru áform.
Þaðan sigldi ég til Kaupmanna-
hafnar, og þegar ég steig upp á
hafnarbakkann, stóð þar fyrir-
mannlegur rnaður, sem allir litu
upp til. Og hann sneri sér að
mér og spurði, hvað ég ætlaðist
fyrir. Ég svaraði því til, að ég
ætlaði að verða frægur'listamað
ur. Og þá mælti þessi fíni og
glæsilegi maður: „Det er ret,
unge mand, man skal sætte má-
let höjt.“ Þessu get ég aldrei
gleymt. Ég er nú orðinn svo eld-
gamall, að þú getur séð það á
því, að mér finnst að á þessum
gömlu góðu dögum hafi allt
verið öðruvísi. Þá vildu allir að-
stoða alla, sem höfðu góð áform.
Og það er vonandi, að sú blómst
urtíð komi aftur.
— Hvenær byrjaðir þú að
skrifa?
— Ja, ætli maður segi ekki,
að það hafi byrjað árið 1917
með grein í Dagens Nyheter í
Stokkhólmi. Og þegar greinin
var komin út, sagði mesta tón-
skáld Svía, sem var orðinn vin-
ur minn, Peterson-Bérger, við
mig: „Eggert, du skal skriva.“
Annars heitir þetta fyrsta skrif
mitt „Island i sin sommar och
sin konst“ og hún kom í fyrstu
bók minni „íslands Fáta Morg-
ana“
— Jæja, Eggert, þú mátt víst
ekki vera að því að tala við
blaðamenn. Annars langar mig
til að spyrja þig að, hvað sé þér
efst í huga þessa stundina.
—■ Það skal ég segja þér, að
vitlausan allt umstangið í ótal
skrifstofum, þeytingur úr ein-
um stað , annan, maður þarf
að fara að eins og frá Her-
ódesi til Pílatusar, þótt
ekki sé annað um að ræða en að
skreppa á milli vinveittra landa.
Jæja, hvað um það. Annars um
hitt sem þú varst að spyrja, þá
er manni efst í hug þetta, sem
við er að stríða fyrir Islendinga
þessa stundina, en ég er reynd-
ar búinn að segja svo margt um
það. Það er spurningin, hvað á
maður að segja, þegar kemur út
til hinna stóru landa og spurn-
ingar blaðamanna þar dynja á
manni. Reyndar vita Bretar,
hvað ég hef sagt um þá bæði
við blöðin hér og á síðum stór-
blaðanna í Ítalíu. Mér er svo
sem ekki illa við Breta/ ég á
þeim persónulega gott upp að
inna. Ég var einn af fyrstu út-
lendingum, sem þeir buðu að
syngja í útvarp, og þeir buðu
mér þátttöku í ágætum lista-
mannafélögum. En mér þykir
það leiðinlegt, að það skuli vera
ráðamenn hjá þessari ágætu
menningarþjóð, sem nú kemur
eins og þurs og gerir sig að við-
undri fyrir öllum heiminum. En
þeir um það. Það eru alvarlegir
hlutir að gerast, og það verðum
við að gera okkur ljóst. Það sem
gildir fyrir okkur, er að standa
saman. Og ég vil segja við hina
ungu íslendinga, sem eiga fram-
tíðina og ber að sigra alla óvini
íslands, það sem hinn fíni mað-
ur sagði við mig forðum á hafn-
arbakkanum í Kaupmannahöfn:
.„Rétt er það, ungi maður, mað-
ur á að setja markið hátt.“
LítiEI afli hjá
togurum.
Afli íslenzku togaranna hér
við land hefur ekki verið mik-
ill að undanförnu entta þótt
þetta sé sá tími ársins, sem
vænta mátti mikils afla. Togar-
arnir hafa því leitað af íslands-
miðum upp á síðkastið.
Síðan 21. apríl hafa þessi skip
landað í Reykjavík og eru þau
talin í þeirri röð sem þau hafa
landað: Neptúnus 227 lestir,
Karlsefni 228, Hallveig Fróða-
dóttir 242, Þorsteinn Ingólfs-
son 87 lestir af saltfiski og 7 af
nýjum, Marz 130, Askur 305,
Austfirð.ingur 32 lestir. Hann
var að koma hingað suður og
fékk aflann á leiðinni. í dag er
verið að landa úr Hvalfelli 270
lestum af fiski, Jóni forseta 240
og Fylki 280. Skúli Magnússon
var væntanlegur fyrir hádegi í
dag.
Ef j-ður er annt um bifreiðina, þá
látið smyrja hana reglulega.
Smurstöðvar vorar eru búnar full-
komnustu tækjum til smurningar á
bifreiðum og þér getið treyst því, að
þar fáið þér vandaða smurningu á
öllum mikilvægustu hlutum bif-
reiðarinnar.
Munið:
Þér hafið aukna ánægju af bifreið-
inni, ef bér haldið henni vel við.
Látið því smyrja hana að stað-
aldri á SHELL-stöðvunum við
Reykjanes- og Suðurlandsbraut.
/f "T "V
SHELL-
Olínlíélagið SkeljMiigiii’ ii.f.
Ankara höfuðsetur
Bagdadbandaiags.
Ankara verður framtíðar-
höfuðsetur Bagdadbandalags-
ins.
Staðgenglar ráðherranna í
ráðherranefnd Bagdadbanda-
lagsins komu saman á fund í
gær og tóku ákvörðun þá, sem
að ofan greinir. Ekki verður
gerð nein breyting á nafni
bandalagsins, eins og' sakir
standa, þótt Irak sé gengið úr
því.
G. R. efnir 20 sinnum til
keppni í sumar.
Síöesta sumarið á vellinum við Eskihlíð.
Kappleikanefnd Golfklúbbs
Reykjavíkur hefur ákveðið eft-
irfarandi kappleiki í sumar:
2. maí Bogey-keppni
' 9. — Höggkeppni
16. — Hvítasunnukeppni
(úrslit 23. maí).
23. — Firmakeppni
(úrslit 6. júní).
9. júní Duncan-keppnin
16. — Fjórleikur (2 boltar)
20. — Jónsmessukeppni
23. — Valkeppni
30. — Eclectic-keppni
7. júlí Afmælisb’ikar G. S.
14. — Fjórboltaleikur
21. — Flaggkeppni
25. — Afmælisb. kvenna
28. — Berserkur og
Gunnlaugsb.
1. ágúst Höggkeppni
8. — Olíubikarinn
(úrslit 15. ágúst).
22. — Meistarakeppni karla
og kvenna (úrslit 29.
ágúst).
5. sept. Öldunga- og Nýliða-
keppni ('úrslit 12.
sept).
19. — Greensome
25. — Bændaglíman
Einnig er fyrirhugað að halda
36 holu keppni í b.yrjun júlí.
Eins og kunnugt er mun
þetta vera síðasta sumarið, sem
keppt verður á golfvellinum
við Eskihlíð og hafa kylfingar
mikinn hug á að gera þetta
sumar sem eftirminnilegast. —
Mikið verkefni bíður G. R. á
nýja vellinum við Grafarvog,
því að rækta þarf brautir,
byggja skála og áhaldaskúr og
fleira.
NÝ þriggja lierbergja íbú®
til leigu á góðum stað I Vog-
unum. Þeir, sem gætu útveg-
að tveggja herbergja íbúð
við miðbæinn sætu fyrir. —
Fyrirframgreiðsla. Uppl. á
laugardag kl. 3—7 og sunnu-
dag kl. 11—2 í síma 33382.
(1193
HERBERGI til leigu fyrir
reglusaman mann. Öldugötu
27, vesturdyr, efri hæð. —
IBUÐ óskast, 1—2 her-
bergi og eldhús. Tvennt í
heimili. Uppl. í síma 17916
til kl. 6. — (1194
STOFA til leigu fyrir
reglusaman kvenmann. —
Uppl. eftir kl. 7 á Ásvalla-
götu 3.
VIL SKIPTA á 3ja her-
bergja íbúð 1 steinhúsi á
hitaveitusvæði í Austur-
bænum fyrir 4ra herbergja
íbúð, helzt innan Hring-
brautar. — Tilboð, merkt:
„íbúðaskipti — 361“ leggist
inn á afgr. Vísis fyrir 6.
maí. (1201
ÓSKA eftir 2ja til 3ja
herbergja íbúð strax eða 14.
maí, helzt á hitaveitusvæð-
inu. 2 fullo’rðið í heimili. —
Sími 14990. (1188
SÓLRÍKT forstofuher-
bergi til leigu fyrir ein-
hleypan karlmann. Uppl. í
síma 15767. (1191
VANTAR eitt herbergi og
eldhús eða aðgang að eldhúsi
STRAX. Sími 16318.
STÓRT og rúmgott her-
bergi til leigu fyrir reglu-
saman kvenmann. Uppl. í
síma i5262. (H99
TIL LEIGU 2 herbergi og
aðgangur að eldhúsi í H1Í0--
unum frá 14. maí til 1. okt.
Uppl. í sínia 33106 milli 5
og 7 á morgun.
(1190
LJÓSMÆLIR fyrir
niyndavél fannst nýlega. —
Uppl. í síma 33388. (1204
wsmm
BIFREIÐ AKENN SL A. —
Aðstoð við Kalkofnsveg.
Sími 15812 — og Laugaveg
92, 10650. (53|R