Vísir - 06.07.1959, Side 1
12
sður
q
I
V.
12
síður
Kf. ái.
Mánudaginn 6. júlí 1959
141. tbl.
Tvo banaslys, annai
hér, hitt i Eyjafirði.
Tveir menn bráðkvaddir við
störf sán um helgina.
Pakistanbúar
drukkna.
Miklar úrkomur á Ind-
landsskaga hafa valdið flóð-
um bæði í Pakistan og Ind-
landi.
í Karachi, höfuðborg Pak-
istan, sópaði burt húsxxm í
úthverfum og 9 menn
drukknuðu, en margir urðu
heimilislausir. í Assam í
norðausturhluta Indlands
eru 200.000 sagðir heimilis-
lausir af völdum flóða, og
víðar í báðum ríkjunum hef-
ur mikið tjón orðið.
★í skozkri námu hafa 58 námu
menn neitað að koma upp á
yfirborð jarðar, nema fall-
ist verði á kröfu þeirra, að
starfrækja námuna áfram.
Tvítug kona, frú Varma, var fyrir nokkru flutt Ioftleiðis frá
Indlandi til Englands, en konan, sem var barnshafandi, hafði
fengið Iömunarveiki. Indverskir læknar töldu, að hún mundi
ckki geta fætt. Hún var flutt í járnlunga og lögð inn á sjúkra-
hús í London, og var í járnlunganu, er hún ól barnið. Fæð-
ingin gekk vel og er myndin af því, er móðurinni var sýnt barnið
í fyrsta sinn.
Á þriðja hundrað skip
liggja inni á Siglufirði.
Síldaraflinn 32,678 mál.
Frá fréttaritara Vísis. —
Siglufirði í morgxm.
Á Iaugardag, um hádegisbil,
hvessti af austri og síðan hefur
verið látlaus austan stormur.
Skipin hafa öll leitað í landvar.
Hér á Siglufirði liggja nú hátt
á þriðja hundrað skip. Liggja
þau í margföldxun röðxun við
allar bryggjur og þau sem ekki
Sláttur almennt hafinn.
Heysköparhorfur góðar « spretta góð og
ntunar litlu á landshlutum.
Sláttur má nú heita almennt
Tiafinn um land allt, þótt stöku
bœndur séu ekki enn farnir að
slá. Grasvöxtur er góður um
land allt og eins og stendur
horfir vel með heyskapinn.
Vísir spurðist fyrir um hey-
skaparhorfxu: í morgun hjá bún-
aðarmálastjóra. Hanh kvað slátt
hafa byrjað sumstaðar fyrir
mánaðamót, en nú mætti hann
heita almennt hafinn, þótt e.t.v.
væru stöku menn í ýmsum sveit-
um, sem ekki væru byrjaðir.
Sláttur , byrjaði óvanalega
cnemma að þessu sinni, enda
er grasvöxtur góður um land
allt. Yfirleitt ekki mikill mun-
ur eftir landshlutum, að þessu
sinni, en spretta verið hægari
í útkjálkasveitum, og væri svo
jafnan.
Búnaðai'málastjóri kvaðst
ekki hafa haft fregnir af því,
að nokkursstaðar hefði borið á
kali vor.
Suma bændur kvað hann
langt komna að slá, en þurrk-
ur misjafn, yfirleitt fremur
daufur.
í stuttu máli, sagði búnaðar-
málastjóri, á þessu sumri mun
hvergi skorta gras, og eins og
sakir standa horfir vel um hey-
skapinn.
komast að bryggju liggja við
festar úti á firði.
Skipin liggja víðar en hér.
Þau hafa leitað vars við Gríms-
ey og á ýmsum höfnum norðan-
lands. Nokkur þeirra komu
með slatta, en um verulega
veiði er ekki að ræða. Síldar-
verksmiðjurnar voru búnar að
taka á móti 32.678 málum á
miðnætti s.l. laugardagskvöld.
Lítið sem ekkert hefur verið
saltað. Síldin er enn rýr og
þeir, sem hafa saltað smáslatta,
hafa gert það á eigin ábyrgð.
Eins og búast má við er
mannmargt á götunum þessa
dagana, ölvun er ekki áberandi
því áfengisverzluninni er lok-
að þegar landlegur eru.
Fyrir helgina landaði Snæ-
fell 900 málum og tunnum á
Dalvík, Húsavík og í Hrísey.
Síldin var látin í frystingu. Tal-
ið er, að Faxaborgin sé afla-
hæsta skipið með um 2500 mál.
Nýtt flugmet.
Brézk flugvél hefur flogið
milli Bretlands og Nýfimdna-
lands á 5 Vz klst.
Meðalhraði var 725 km. á
klst. ■—- Þetta var Vanguard-
flúgvéL frá Vickers Armstrong
og flugið met fyrir flugvél af
þessári gerð.
Tvö banaslys urðu hér á
landi í lok síðustxi viku, bæði
af völdum umferðar, annað
hér í Reykjavík, en hitt noi-ð-
ur í Eyjafirði.
Slysið í Reykjavík varð á
laugardaginn um klukkan hálf
sex síðdegis. Þá vai'ð sex ára
gamall drengur, Grímur Ólafs-
son til heimilis að Lönguhlíð
19 fyrir bifreið í Lönguhlíð-
inni rétt norðan vúð Miklu-
brautina og beið bana.
Atvik þessa slyss voru þau
að bifreið, sem kom austur
Miklubrautina var ekið inn á
Lönguhlíðina. En á beygjunni
missti bifreiðarstjórinn með
einhverjum hætti stjórn á bif-
reiðinni, þannig að hún fór út
af akbrautinni vinstra megin,
lenti þar á umferðarsteinum
eða nánar tiltekið á steyptum
undirstöðum að umferðar-
merkjum og við þann ái'ekstur
kastaðist bifreiðin upp og lenti
ofan á dreng, sem sat fyrir
innan steinana.
Fengin var þegar í stað
sjúkrabifreið sem flutti dreng-
inn í sjúkrahús. Var hann enn
með lífsmarki þegar þangað
kom, en komst aldrei til með-
vitundar og dó skömmu síðar.
Banaslysið í Eyjafirði varð á
8. tímanum á föstudagskvöldið
í námunda við bæinn Ásláks-
staðir í Arnai'neshreppi. Voru
tveir menn þar á ferð í gam-
alli herbifreið af Carry All-
gerð. Hjá Ásláksstöðum ætluðu
þeir að snúa við, og ók bif-
reiðarstjórinn bílnum aftur á
bak upp í háan hól sem stend-
ur við veginn, og horfði um
leið út um dyrnar vinstra meg-
in. En að því er talið verður
mun farþegi hans, Kristján
Magnússon frá Möðrxxvöllum í
Hörgárdal, hafa hrokkið út úr
bifreiðinni hægra megin og
lent síðan undir hægra fram-
hjóli hennar.
Kristján heitinn var með
einhverju lífsmarki fyrst, en
var látinn áður en læknir kom'
á staðinn. Hann var 47 eða 48
ára að aldri, ókvæntur en bjó
með öldruðum foreldrum sínum
á nokkrum hluta Möðruvalla-
jarðar.
Þá urðu tvær manneskjur,
Frh. á 11. s.
Bretinn er
aö stikna.
Hitabylgga
gengur jiir.
Mikil hitabylgja fer nú yf-
ir Bretland.
Var fyrsti mikli hitadag-
urinn í gær og flykktist fólk
svo hundruðum skipti til
baðstaðanna á ströndum
landsins, en mestur var
straumur bifreiðanna frá
London til baðstaðanna á
suður-, sxijðaustxir- og suð-
vestxu'ströndinni, og varð úr
umferðaröngþveiti marg-
sinnis, sem erfitt reyndist að
leysa úr.
f gær var heitara á Súður-
Englandi en á Miðjarðarhafs
strönd Frakklands og á
Spánarströndum. — Svalara
verður í dag. Hitinn komst
upp í rúmlega 32° C. í gær.
Akranestrillur hafa
fengið 1000 I. í vor.
Mikil síld við suðvesturland.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akranesi í morgxm.
Tveir bátar héðan stxmda rek
netaveiði, Farsæll, sem búinn
er að fara tvær sjóferðir, og
Sveinn Guðmxmdsson, sem er í
fyrstu sjóferð með reknet.
V.b. Sveinn Guðmundsson
var með hringnót, en búið er
að taka hana upp og mun bát-
urinn verða gerður út á reknet
i stað þess að fara norður. Ás*
bjöm er enn með hrihjgnót. Fyr-
ir helgi var mikil veiði í reknet
og fengu bátarnir þá upp í 300
tunnur í lögn, en nú hefur tek-
ið fyrir veiði og mun ástæðan
vera mikill straumur, því þeir
lóða á mikilli síld við Reykja-
nes, í Faxaflóa og við Jökul.
Við Jökul heldur síldin sig á
20 föðmum og hafa þeir ekki
náð henni þótt þeir hafi sökkt
netxmum í svartár lóðningar.
Mikið er af síld við Vest-
Framh. á 7. síðu.