Vísir - 06.07.1959, Qupperneq 12
Bkkert kU8 er édýrara i áskrift en Víslr.
Kiátil ktu f*n yCur fréttir *g uma8
Iwtrarcfxi kciia — án fyrirHafnar af
y8ar hálfu.
Sími 1-18-««.
'ylsis.
Munið, að þeir, »em gerast áxkrifendv
Vítia eftir 10. hven mánaðar, fá klaðil
ákeypii til mánaðamóta.
Siml 1-16-6*.
Mánudaginn 6. júlí 1959
Ben Gurion biðst lausnar.
Talið, að stjóríiarmyndun
geti reynst erfið.
Ríksforseti ísraels hefur tekið
ftil greina lausnarbeíðni Ben
Curions forsœtisráðherra, og
hefur þegar byrjað viðrœður
við formenn flokkanna um
■myndun nýrrar ríkisstjórnar.
. Mjög líklegt er talið, að for-
setinn feli Ben Gurion myndun
xiýrrar stjórnar, að framan-
nefndum viðræðum loknum.
Nokkur vafi þykir leika á, að
ný stjórn, er Ben Gurion mynd-
aði, myndi fá fleiri hluta á
þingi.
Ben Gurion tjáði forsetanum,
er hann lagði fram lausnar-
beiðni fyrir sig og stjórn sína,
að hvorki hann né aðrir ráð-
herrar úr flokki hans, Verka-
Jýðsflokknum, gætu unað því að
vera áfram í stjórn með þeim
4 ráðherrum. sem snúizt hefðu
gegn stjórninni í vognasölumái-
inu og- greitt atkvæði gegn
henni, en þessir ráðherrar og
aðrir ráðherrra hefðu vitað um
vopnasöluna til Vestur-Þýzka-
lands, en þau viðskipti væru
efnahag landsins mikils virði.
Þessir fjórir ráðherrar, sem eru
úr tveim róttækum smáflokk-
um, sinntu ekki kröfu Ben Gu-
rions um að biðjast lausnar.
Líkur benda til, að þingkosn-
ingar fari fram í ísrael á hausti
komanda.
Margir eru þeirrar skoðunar,
að stjórnarmyndun kunni að
ganga erfiðlega, og jafnvel þótt
hún tækist fljótlega, þá mundi
eina leiðin, ef ný stjóm fengi
ekki traust þingsins, að rjúfa
þing og efna til nýrra kosninga.
Genfarrá&stefnunni um bann
við kjarnorkutiiraunum
hefur ekki verið veitt sú athygli
sem skyldi.
í fregn frá Washington segir,
að Genfarráðstefnuiini um
kjarnorkuvopn hafi ekki verið
veitt athygli sem skyldi með-
fram vegna þess, að athyglin
hafi beinst svo nijög að ráð-
stefnu utanríkisráðherra Fjór-
veldanna, en allverulega hefur
í rauninni þokazt í átt til sam-
komulags.
í fyrsta lagi sé vert að minna
á, að viðræður um að hætta
tilraunum um kjarnorkuvopn
iafa nú staðið í nærri ár. Það
Voru tæknisérfræðingar Banda-
fíkjamanna, Breta og Rússa,
sem í ágúst í fyrra komust að
þeirri niðurstöðu, að hægt væri
að koma á eftirliti með því að
hafa 170 stöðvar, sem störfuðu
saman, að því tilskildu, að þær
væru búnar fullkomnustu tækj
um, sem nú er völ á.
Þessi niðurstaða tæknisér-
fræðinganna var grunnurinn,
sem hægt var að byggja á sam-
komulagsumleitanir stjórnmála
mannanna, sem hafa átt sér
£tað síðan í október. Það er
' satt að vísu, að hingað til hafa
aðallega verið almennar um-
ræður um samninga um frest-
un á tilraunum með kjarnorku
vopn, en seinustu vikurnar
hafa sérfræðingarnir haft til
meðferðar nýjar og Htt kunnar
mikilvægar uppgötvanir, en
það hefur sem sé komið í ijós,
að aðalvandinn varðar kjarn-
orkutilraunir í jörðu og í meira
en 50 km. hæð. Og það, sem er
nýtt í málinu er, að Rússar hafa
fallizt á, að ræða að minnsta
kosti annað þessara vandamála
tæknilega, þ. e. kjarnorku-
sprengingar í mikilii hæð, og
fara þær viðræður fram sam-
tímis hinum stjórnmálalegu
samkomulagsumleitunum. Þátt
taka Rússa í hinum nýju tækni-
legu viðræðum er tilslökun af
þeirra hálfu. Þessi tilslökun
kann að vera aðeins skref —
en hún er skref í rétta átt, og
ástæða er tii, að allir séu þakk-
látir fyrir, að samkomulagsum-
leitanir um þessi mál hafa ekki
farið út um þúfur.
Veiðiþjófar samþykkja
að verjast handtöku.
Bretar gera samþykkt í Landhelgismálinu.
Skipstjórar frá Grimsby og
Hull munu fá fyrirmæli frá út-
gerðarfyrirtækjum sínum, að
verjast handtöku og neita að
gefast upp á Íslandsmiðum,
nema gefin séu ákveðin fyrir-
heit.
Þessi ákvörðun var tekin hjá
félagi skipstjóra í Grimsby á
fundi, 6em haldinn var þar fyr-
ir nokkru. Verði skipstjóri tek-
inn af islenzkum varðskipum,
er honura ráðlagt að hverfa til
Grimsby „hverjar aðrar fyrir-
skipanir, sem hann kann að fá,
og hvaðan sem er“, nema því
aðeins að honum verði gefið um
það fyrirheit að hann verði að-
eins ákærður um að hafa verið
að veiðum innan 4 míina lín-
unnar.
Leitað mun hafa verið álits
lögfróðra manna um þessa á-
kvörðun, og virðast þeir hafa
gefið þær upplýsingar að með
þessu framferði mimdu skip-
stjórar á engan hátt gerast brot
legir við siglingalögin.
Skipstjórar frá Hull hafa
einnig gert svipaða ákvörðun.
Þetta eru úrslitin — glæsilcgur sigur Reykjavikur.
Kristleifur sigrar glæsilega í 5000 m. hlaupinu.
(Ljósm. Þorv. Óskarsson).
Vígslumótinu lauk í
gærkvöldi.
Landsliðið vann B-lið Reykjavíkur glæsilega.
Vígslumóti Laugardalsvallar-
■ins lauk í gærkvöldi, og hafði
þá síðari hluti þess staðið í þrjá
daga. Landsliðið var B-Iið
Reykjavikur glæsilega með
234:95.
í körfuknattleik unnu Rvík-
urmeistarar ÍR úrvalsliðið með
20:18. Handknattleikur kvenna
fór þannig, að landsliðið vann
úrvalsliðið með 9:3, og í hand-
knattleik karla unnu Hafnfirð-
ingar Reykvíkinga með 9:5.
Á laugardag urðu sigurveg-
arar í bæjarkeppni Reykjavík-
ur og Málmeyjar:
200 m. hlaup: Björn Malm-
roos M., á 22.1.
5000 m. hlaup: Kristleifur
Guðbjörnsson á 14:58,4.
400 m. grindahlaup: Guðjón
Guðmundsson á 54,9.
Þrístökk: Ingvar Þorvalds-
son á 13,67. Sten Eiksson stökk
sem gestur 14,87.
Stangarstökk: Vaibjörn Þor-
láksson 4,20.
IJrslit á Hawai.
Úrslit í þjóðaratkvæðinu á
Hawaii, sem áður hefur verið
getið um hér í blaðinu, eru nú
kunn.
Með því, að Hawaii yrði 50.
ríki Bandaríkja Norður-Amer-
ílai, greiddu 136.368 atkvæði,
en aðeins 7.736 voru á móti.
Steg&jukast: Þórður B. Sig-
urðsson 52,00.
Spjótkast: Björgvin Hólm
56,68.
4x400 m. boðhlaup: Reykja-
vík með 3:24,4 gegn 3:26,4.
Nánar verður sagt frá úrslit-
um mótsins í blaðinu á morg-
un.
Ítalíustjóm krefst fundar í
Nato-ráðinu áður en
Genfarráðstefnan tekur til
starfa á nýjan leik í næsta
mánuði.
Handbók
veltunnar.
Á laugardag var dregið í
happdrætti veltunnar af full-
trúa borgarfógeta. Upp kom nr.
4338
Vinningsins, sem er útvarps-
grammófónn af vönduðustu
gerð, má vitja í skrifstofu fjár-
öflunamefndar, Morgunblaðs-
húsinu.
8 þús. I. aukning
á fiskafla.
Frá áramótum til loka maí-
mánaðar var fiskafli íslendinga
239 þúsund smálestir. Er þetta
talsvert meiri afli en á samd
tímabili í fyrra, en þá var afl-
inn 231 þúsund lestir.
Fiskafli bátanna að síld með-
talinni er 178,2 þúsund lestir,
en togaranna 66 þúsund lestir.
Aukning hefur bæði orðið á
bátafiski og togarafiski, en afla-
aukningin hefur þó aðallega
verið hjá bátunum.
Þær fisktegundir, sem aflazt
hefur mest af, eru: Þorskur
148,8 þús. lestir, ýsa 79,8 þús.
1., steinbýtur 66,2 þús. 1., keila
22 þús. 1. cg karfi 22 þús. lestir.
Bíll veltur
í Vaðlaheiði.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
Bíll valt í Vaðlaheiði s.I. laug
ardagskvöld og skemmdist stór-
lega en farþegar sluppu við
meiðsl.
Bíllinn var á ferð niður heið-
ina, en í beygju rétt fyrir ofan.
Veigastaði missti bílstjórinn
vald á bílnum, náði ekki beygj-
unni svo að bíllinn fór út af
veginum og hvolfdi.
í bílnum voru 5 farþegar og
þótt undarlegt megi virðast, eft
ir útliti bílsins að dæma, sluppu
þeir við meiðsli.
Þetta var nýr bill af Moskviz
gerð og er hann stórskemmdur.
Grípshólm í dag
— Caronia
á m i *)fih n tlatj.
Sænska skemmtiferðaskipið
Gripsholm kom hingað í morg-
um frá New York.
Farþegar á skipinu eru um
400 og annast Ferðaskrifstofa
ríkisins um móttöku þeirra.
Fara þeir til Þingvalla og hring
inn, eins og venja er orðin að
fara með skemmtiferðamenn,
er stóru skipin koma, sem hafa
skamma viðdvöl, en Gripsholm
fer í kvöld til Norðurlanda.
Farþegar munu og skoða sig
um hér í bænum.
1 Skemmtiferðaskipið Caronia
er væntanleg hingað á mið-
vikudag n. k.
„lngo“ fagnað
í Gaufaborg.
Ingemar Johanson, sem vann
heimsmeistaratitilinn í hnefa-
leik af Floyd Patterson, var
mjög fagnað við heimkomuna
til Gautaborgar í gær.
í miðhluta borgarinnar safn-
aðist saman mikill mannfjöldi
til þess að fagna honum, en
þangað vár hann fluttur frá
flugstöðinni í þyrilvængju.