Vísir - 05.09.1959, Blaðsíða 1
19. ár.
Laugardaginn 5. september 1959
194. tbl.
Meira um slys og árekstra
en í fyrra.
Nær hálft þriðja þúsund bíla urðu fyrir
skakkaföllum af völdum ógætllegs aksturs
á 8 fyrstu mánuðum ársins.
. Báðar stúlkurnar, sem lentu í
bifreiðaslysinu í fyrrinótt
verða að liggja óákveðinn tíma
í sjúkrahúsi, að því er rann-
sóknarlögreglan tjáði Vísi í
gær.
Þær eru báðar allmikið meidd
ar á höfði og var sú þeirra, sem
var meira meidd flutt strax í
sjúkrahús eftir að athugun
hafði verið gerð á meiðslum
þeirra í slysavarðstofunni. Hin
stúlkan var enn í slysavarð-
stofunni í gær og bíður eftir
spitalaplássi. Lá hún mest í
móki og talaði óráð.
Piltarnir sem slösuðust úr Ak
ureyrarbílnum voru Keflvík-
ingar, sem báðir leika í liði
Keflvíkinga, sem leikur í fyrstu
deild. Þeir eru Haukur Jak-
obsson, aðfluttur frá Akureyri
og Tryggvi Pálsson, sem meidd-
ist illa, fékk djúpa stungu af
i^ieri í bakið og tognaði á fæti,
og missti næstum anhað eyrað.
í sambandi við þessar slysfar-
ir í fyrrinótt innti Vísir starfs-
raenn umferðardeildar rannsókn
arlögreglunnar eftir því í gær
hvort umferðarslysa gætti
venju fremur um þessar mund-
ir, m. a. vegna óhagstæðs tíðar-
£ars, rigninga og dimmviðris.
Telja lögreglumenn það nær
algilda reglu að mest sé um
umferðarslys í náttmyrkri og
vondum veðrum. Er það enda
Bílarnir ?. myndinni lentu
í árekstrinum mikla við
Undraland f fyrrinótt (sjá
Visi í gær). Eins og menn
sjá, fóru bifreiðarr.ar mjög
illa, og hætt er við að þær
verði aldrei eins góðar og
áður. bótt unnt sé að gera
við bær. (Ljósm. B. B.)
skiljanlegt bæði vegna þess
hve erfitt er að sjá frá sér og
enn fremur vegna móðu sem
vill safnazt á rúður bifreiðanna
innanverðar. Og í rigningartíð-
inni að undanförnu hefur verið
venju fremur mikið um umferð
ai'slys í umdæmi Reykjavíkur-
bæjar.
Þá skýrði lögreglan Vísi enn
fremur frá því að mun meira
væri um slysfarir það sem af
væri þessu ári heldur en á sama
tíma í fyrra. Sama gegnir uny
árekstra farartækja, því þeir^
hafa orðið hátt á 2. hundraðinu
fleiri átta fyrstu mánuði þessa|
árs heldur en á sama tíma í
fyrra. í morgun höfðu verið^
bókaðir 1214 árekstrar frá síð-f
ustu áramótum í stað 1030 á
sama tíma í fyrra. Þetta þýðir|
með öðrum orðum að nær hálft
þriðja þúsuna bílar hafi orðið
fyrir meiri eða minni skakka-'
föllum af völdum ógætilegs
aksturs á átta mánuðum.
F'urtdur utauríkisráðherruuna :
ENGIN ÁKVEÐIN AFSTAÐA TIL
LANDHELGISMÁLS ISLANDS.
ðndverjar taka saman skýrsiu
Það var tilkynnt í Dehli í
gær, að opinberir aðilar í Ind-
landi væru að taka saman
skýrslu um atburðina við norð-
urlandamærin.
Eins og sagt hefir verið frá,
þá sendi Indland nýlega kvört-
un til Kína yfir framferði
hinna kínversku kommúnista.
Nú hefir borizt svar, og skýrðd
Nehru frá því á þingi í gær. í
svarinu mun ekki hafa verið
annað að finna, en ásakanir á
hendur Indverjum, og er helzt
að ætla af plagginu, að Ind-
verjar sé að ráðast inn í Tíbet.
Laos biður SÞ hjálpar.
20—30 þús. uppreisnarmenn eru nú i
Sam Neva hérabi.
Öryggisráðið ekki kallað saman.
'Sendinefnd Laos hjá SÞ hef-j
ur borið fram hjálparbeiðni
\ egna hins alvarlega ástands er
nú ríkir í landinu. Er beðið um
hjálparlið frá SÞ hið fyrsta.
Tekið var fram í tilkynningu
um þetta, að ekki væri verið
að fara fram á það að öryggis-
ráðið yrði kallað saman, en þess
frekar farið á leit, að aðalritari
:SÞ sæi um framkvæmdir.
Tjf Tokyo: — 12 manns létu líf-
- ið í skriðuföllum, sem or-
sökuðust af miklum rign-
ingiun. Atburðurinn gerðist
nærri Honsbu á vestur-
ströndinni um sl. helgi.
Hammarskjöld hefur dvalið
í S.-Ameríku undanfarið, en
hans mun hafa verið von til
New York í dag.
í tilkynningu sem gefin var
út í Laos í gær, segir, að um
20—30 þús. hermenn uppreisn-
armanna hafist nú við í skóg-
unum í Sam Nueva héraði, og
muni þeir vera að búa sig undir
að leggja til atlögu, en þeir hafg.
þegar tekið á sitt vald um 80
bæi og minni borgir í því héraði
einu undanfarna daga.
Flutningur fólks úr héraðinu
standa nú yfir, og fara þeir
fram með flugvélum.
Gook látinn.
Sú fregn hefur borizt hingað
til lands að Arthur Gook trú-
boði, sem dvaldi áratugum sam
n á íslandi, sé látinn.
Arthur Gook var Breti, en
kom ungur til íslands, settist- að
á Akureyri sem trúboði og gaf
út fjölda ritlinga trúmálálegs
eðlis. Hann gaf einnig út blaðið
Norðurljósið um margra ára
skeið og lét sig trúmál miklu
skipta.
Arthur Gook fluttist fyrir fá-
um árum, og þá háaldraður mað
ur, héðan af landi burt til ætt-
jarðar sinnar og lauk þar ævi
sinni í s.L júnímánuði. Hann
var nýbúinn að þýða Passíu-
sálrat Hallgríms Péturssonar á
enska tungu áður en hann Joet.
Samstaða í ýmsum
málum á þingi Súmeinuðu
þjóðánna.
Haustfundur utanríkisráð- semi Sameinuðu þjóðanna.
herra Norðurlandanna var hald Að gefnu tilefni frá utanrík-
inn í Reykjavík dagana . og 4. isráðherra íslands ræddu ráð-
september 1959 samkvæmt boði herrarnir ástandið á hafinu við
ríkisstjórnar Islands.
Fundinn sátu utanríkisráð-
herra Danmerkur Jens Otto
Krag, utanríkisráðherra Finn-
!
lands, Ralf Törngren, utanríkis I
jstrendur íslands. Utanríkisráð-
herra Danmei'kur, Finnlands,
Noregs og Svíþjóðar voru sam-
I mála um að lýst þeirri von sinni
að takast megi á alþjóðasjó-
ráðherra íslands Guðmundur f. j rétterráðstefn« yorið 1960
Guðmundsson, utnríkisráðherra a mna ausn a ei uma í þ\ í,
„ tt i j T . sem upp hefur komið. I þeirri
Noregs, Halvard Lange og utan i
ríkisráðherra
Undén.
Svíþjóðar Östen
von bentu þeir á, að æskilegfc
Framh. á 7. síðu.
Aðaltilgangur fundarins var
að ræða mikilvægustu málin, er
verða á dagskrá næsta allsherj-
arþings Sameinuðu þjóðanna.
Fundurinn var þáttur í hinni
nánu samvinnu Norðurland-
anna á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna og vottur þess hversu
þýðingarmikið Norðurlöndin
telja markmið og starfsemi
Sameinuðu þjóðanna. I
Látin var í Ljós von um að
ákveðinn árangur verði af ^
hinum eindregna ásetningi um
að bæta sambúð þjóða heims,
sem lýst hefur sér að undan-
förnu. Ráðherrarnir treystu því,
að slík þróun mundi hafa góð
áhrif, einnig á meðferð mála á
allsherjai'þingi Sameinuðu þjóð-J
anna í haust, enda óska norður-
löndin að stuðla að því. Ráð-
herrarnir lögðu áherzlu á al-
heimsgrundvelli, sem stofnun
Sameinuðu þjóðanna felur í sér,
séu nýttir til þess ýtrasta.
Ráðherrarnir ítrekuðu ásetn-
ing Norðurlandanna um að
halda áfram framíögum til
tækniaðstoðar, efnahagslegrar
og mannúðlegrar hjálparstarf-
Rigndi mikið.
Ágústmánuður var vot-
viðrasamara lagi hér í höf-
uðstaðnum, og á 18 úrkomu-
dögum rigndi 110 mm., og
er það um 40 mm yfir með-
allagi mánaðarins, sem ann-
ars er 71 mm. — Hiti var
mjög í meðallagi, reyndist
10,4 stig, en er í meðalágúst-
mánuði 10,6 stig. Sólskin var
hér 145 stundir, en er ann-
ars að meðaitali 154 stundir.
Aldrei varð mjög heitt,
mestur varð hitinn 22. ágúst,
16 stig, en nokkra aðra daga
náði hann um 15 stigum. —
Kaldast varð hér að nætur-
lagi 3.3 stig.
Það má því segja að um
frekar hversdagslegan ágúst-
mánuð hafi verið að ræða,
ef litið er burt frá úrkom-
unni, sem var eins og áður
segir, í mesta lagi.
i