Vísir - 26.09.1959, Blaðsíða 1

Vísir - 26.09.1959, Blaðsíða 1
41. ár. Laugardaginn 26. september 1959 211. tbl. Bífstjcrar SVR hfjóta viðurkenn- ingu fyrir meéferð stefnufjósa. Si<*fn rf /jfísftts niktstt sst &íbs eai&sta bát * BiBitf&rðaB'isaáÍBtiBa okkat'. Reykjavíkurdeild Bindindis- jélags ökumanna fer viðurkenn- ingarorðum um str(eti§vagna- bílstjóra í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði og telur þá vera öðrum til fyrirmyndar um notk- un stefnuljósa, sem sé eitt veigamesta atriði i umferð. Hefur formaður deildarinnar, Viggó Oddsson.látið þessa skoð- Framsóknar- menn Vísi Eftirfarandi barst gsev. Utanríkisráðuneytið hefur ákve'ðið að leysa þá Tómas Árnason deildarstjóra og Hannes Guðmundsson full- trúa frá störfum í varnar- málanefnd frá deginum í dag að telja. I stað þeirra hefur ráðu- neytið skipað þá Lúðvík Giz- urarson, héraðsdómslög- mann, og Tómas A. Tómas- hon, fulltrúa í utanríkisráðu. neytinu. Lúðvík Gizurarson var jafnframt skipaður for- maður og framkvæmdastjóri nefndarinnar. Utanríkisráðuneytið, Bvík, 25. sept. 1959. un í ljós m. a. við forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur og beðið hann að. koma á framfæri við vagnstjórana þakklæti fyr- ir þátt þeirrá við notkun stéfnu- ljósa, sem öðrum ætti að vera til eftirbreytni. Eins og kunnugt er, er Bind- indisfélag ökumanna alþjóðleg- ur bílklúbbur og félag áhuga- manna í umferðarmálum, sem vinnur að endurbótum og ör- yggi í umferð. | Eitt af því, sem félagið telur til hvað mestra úrbóta í um- ferðarmálum okkar, er notkun stefnuljósa, sem nú hefur verið lögleidd. Telur félagið stefnu- ljósanotkun á akrei-num, hring- torgum, gatnamótum og þegar ekið er út í umferðina, vera grundvöll fyrir greiðari og slysaminni umferð og eigi að vera mælikvarði á umferðar- menningu landsmanna. í þessu efni séu strætisvagnabílstjór- arnir til fyrirmyndar og eigi að njóta sannmælis. Vagnstjórar SVR hafa komið ^að máli við Vísi og beðið blað- ið að færa stjórn Reykjavíkur- deildar Bindindisfélags öku- manna þakkir fyrir þessa viður- kenningu og um leið kváðust | þeir meta mikils þetta starf til jbættrar umferðar og aukins ; öryggis. Myndin er af eldfjallasvæðin u Auvergne I Frakklandi, sem er eldbrunnið mjög, enda ekki nema 7 þúsund ár að bar gaus síðast. Frægasta eldfiallið þar er Puy de Döme, sem er 1465 metrar yfir sjó og ber bað hæst á myndinni. , ,-4á.ii; Unnt í ymsnm tilfellum að segja eldgos ISrir. Dr. Sigurður Þórarinsson segir frá fundi e!d- fjallafræðinga í París dagana 15.—20. sept. sl. Myndin hér að ofan var tekin vestur á Snæfellsnesi um s.l. lielgi, en þá var rok þar og foráttubrim. Menn beri saniam liæðina á bjarginn, sem maðurinn stendur á, manninn og brimstrókinr sem kastast á lofti. (Ljósm. S.N.) Sigurður Þórarinsson er riý- kominn heim úr 10 daga ferð til Frakklands en þar sat hann fund eldfjallafræðinga í París 15.—20. september. Vísir náði tali af Sigurði í gær og innti hann fregna um þessa ferð. Sá fundur er ég sótti, sagði Sigurður, var haldinn í Sor- bonneháskólanum og sátu hann um 50 fulltrúar frá ýmsum löndum, sem hafa virk eldfjöll og frá öllum, þeim, sem hafa eldfjallarannsóknastöðvar, en þau eru: Bandaríkin, sem hafa slíka stöð á Hawaii, ítalia, sem hefur stöðvar á Vesúvíusi og Etnu, Ástralía, sem hefur stöð á Rabaul á Nýju Guineu, Belg- ía, sem hefur stöð á eldfjalla- s\ræðinu austast í Kongó og Sovétrússland, sem hefur stöð á Kamtsjatka. En þau tvö verk efni, sem fjalla skyldi um á þessum fundi voru: Hið fyrra: Hvað hægt væri að gera til að segja fyrir eldgos og hvaða ráð- staíanir bæri að gera til að . forða tjóni á mönnum og mann- \ virkjum. Hið síðara: Nýting | jarðhitans. Fundurinn stóð í fjóra sólar- hringa og að heita má frá kl. 9 að morgni til miönættis því á hverju kvöldi voru sýndar kvik myndir af eldgosum frá 9— 11,30. Nýjustu kvikmyndirnar eru eumar hverjar stórkostleg- ar, ehskuna ®e*n Befe«r hafa tekið í eldgíg eldfjallsins Niragongo í Kongó, og kvik- mynd, sem tekin var af neðan- sjáVargosi við Azorevjar í fyrra. Sú mynd, sem var tekin af kvenmanni, er viðbrigða fögur á köflum. Þau eldgos sem eru einna hættulegust, eru þau, sem mynda svokölluð funaský (nuée ardente) samskonar og gjöreyddi borgina St. Pierre í Vesturindíum á nokkrum sekúndum árið 1902 er eldfjallið Mt. Pelée gaus. Funaský þetta drap um 30 þúsund manns. Slík ský eru al- gengari miklu í sambandi við eldgos en áður var haldið. Eitt slíkt drap 3000 manns á Nýju Guineu 1954 er eldfjallið Lam- ington gaus. Varð það til þess að eldfjallarannsóknastöð var sett upp í Rabaul. Forstöðu- Frh. á bls. 5. Einhverntíma styttir upp! Stutt huggunarsamtal vii veóurstofuna. rignt óvenju- „Er meiningin að drekkja manni alveg??“ „O — það hefur nú oft sézt annað eins og þetta!“ „Það er ekkert.“ „Þið eruð bara ekkert smeykir. Hvað hefur annars rignt mikið í nótt og í morg- un?“ „Blessaður, það er ekkert stórmerkilegt. Það er mest 19 millimetrar á síðustu 15 klukkustundunum. Annars hefur verið svo til stanzlaus rigning alls staðar á Suður- landi og víða á Norðiu-landi undanfarinn sólarhring. En ég hef ekki fengið síðustu tölur, þær koma seinna í dag. (Þetta var á 3. tíman- um). Mig muridi ekkert undra þótt þær væru dálítið óvenjulegar, þvi satt að segja hefur harin mikið.“ „Og er meiningin að halda þessu svona áfram?“ „Ja ... ég vil sem minnst um það segja. Spái bara fyr- ir einn sólarhring í einu.“ „Esi ekki ósennilegt að þessu haldi áfram?“ „Aíls ekki ólíklegt.“ . „Og hvaða tiktúrur eru þetta. Af hverju ...? „Það er alveg óútreiknan- legt. Það eru áraskipti að þessu. Svona úrkomutímabil koma alítaf annað slagið, svor. i kannske 10. hvert ár.“ „Gefurðu ekkert sagt mér skemmtilegt um veðrið?“ „EldkJ nema það að eitt er alveg vist. — Þessu lýkur einfkYemtfma ...“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.