Vísir - 14.10.1959, Side 4

Vísir - 14.10.1959, Side 4
VISIB Miðvikudaginn 14. október 195f Heiðraður fyrir vaskleik - en strauk samt. Það er afrek að strjúka úr Utiendssiga- hersveit Frakka. Útlendingaliersveitin franska liykir eittlivert hið harðsnún- asta lið sem vopn ber. í hana safnast ævintýramenn frá ýms- um þjóðum og þjálfun öll ein- kennist af ótrúlegri hörku og jafnvel hinu mesta mannúðár- leysi. Um fortíð manna mun ekki fengist, þyki þeir vel til her- mennsku fallnir. Stundum flækjast í hana ungir menn og góðir, af einskærri ævintýra- þrá, og reyna að flýja, en það reynir enginn oftar en einu sinni. Flótti hefur sem sé næst- xim ávallt misheppnast, en nú í sumar tókst það ungum íra. Hefur hann sagt sögu sína blaðamanni og dettur manni í liug við lestur hennar það, sem Grímur kvað: Kalinn á hjarta þaðan slapp eg. Frásögnin fer hér á eftir nokkuð stytt. JBastilledagur. Það var á Bastille-daginn 14. júlí s.l. í París — þjóðhátíðar- degi Frakka, þegar allir eru kátir og fólkið dansar á götun- um, að hersýningum loknum, fram á rauða morgun. En einn var ókátur, frinn Bill Carroll, 1 sem átti eftir nokkrar klukku- stundir að skila sér í járn- brautarlest og fara til Mar- seille með félögum sínum og þaðan til Alsír, þar sem Út- lendingahersveitin, sem hann var í, er oftar en nokkur her- sveit önnur send gegn upp- l eistarmönnum. Hann átti eft- fr að vera enn eitt ár af samn- ingstíma sínum í herdeildinni. Eitt ár — en hann var fyrir löngu búinn að taka ákvörðun 'iim að flýja, og nú virtist eina iækifærið. Allt var óljóst í huga hans hvernig hann gæti iramkvæmt ætlun sína, nema -eitt: Hann varð með einhveyu móti að losna við einkennis- búning sinn og fá önnur föt. A Montmartre. Hann ákvað loks að litast xim í veitingakránum á Mont- rnartre og vita hvort hann rækist ekki á einhvern Banda- ríkjamann, er Hklegur væri til sð hjálpa honum. Bill átti 5000 franka — það var aleigan. Fyrir hana yrði hann að kaupa föt. — Honum fannst áform sitt snjallt. Alls staðar var boð- íð upp á drykk — það varð hann að gera líka. Og allir lof- sungu hina vösku hermenn Út- lendingahersveitarinnar. Iíver stundin leið af annarri. Hann er loks kominn í Pigalle-hverf- ið alræmda — og sér þar loks Ameríkana, sem honum líst á til að gera sér greiðann mikla. Hann var sennilega listamaður — eða vildi vera — einn af þessum skeggjuðu unglingum, sem úir og grúir af í vissum hverfum í París — en gæti Bill treyst honum? — Það voru 5000 franka verðlaun fooðin hverjum þeim, sem lét yfirvöldunum í té upplýsingar um liðhlaupa. Hann varð að hætta á það — fá manninum 5000 frankana sína — í von um, að hann sviki sig ekki. Ame- ríkaninn tók þessu vel, lofaði að ná í föt — og bað hann að hitta sig á tilteknu götuhorni eftir hálftíma. Ameríkaninn kom brátt aftur með pinkil undir hendinni. Bill skipti um föt í undirgöngum. Hvorugur sagði til nafns síns. Og svo labbaði Ameríkaninn burt með einkennisbúninginn og fleygði í skipaskurð. Laus úr viðjunum. Bill rétti úr sér. Honum fannst hann vera laus úr viðj- um fjögurra ára þrældóms. Gæti hann nú komist úr landi yrði hann frjáls maður á ný. Þannig hófst sagan, sem Bill sagði fréttamanninum. Þeir sátu í þægilegum stólum á heimili Bills í Belfast. Hann handlék smámyndir frá Alsír og sýndi fréttamanninum og hélt áfram frásögninni og brátt skýrðist myndin, sem hann var að draga upp. Sagan hófst í rauninni 1955 — en ræturnar lágu dýpra. Bill hafði frá barnæsku verið hald- inn ríkri útþrá. Hann var þrjú ár í brezka hernum í Þýzka- landi — kom heim og fór að vinna í vélsmiðju, en undi ekki heima vegna eirðarleysis og út- þrár. Hann hafði lesið um Út- |lendingahersveitina og séð kvikmyndir af hemii — og hann fór að hugsa um ævintýralegt líf þeirra, sem í henni voru. [Mánuði síðar — Mánuði síðar steig hann af skipsfjöl í Dunkirk og spurðist Ifyrir urn hvar hann gæti geng- (ið í Útlendingahersveitina. Honum var sagt að fara til Lille. Þar var honum fengið skjal, sem hann skildi ekki, og undirritaði. ,,Það var á frönsku, en hana skildi eg ekki — hefði getað verið minn eigin dauða- dómur, sem- eg undirritaði.“ Og svo lá leiðin til Marseille, þar sem hann var spurður 'spjörunum úr. en honum vgrð 'að ósk sinni. Hann var tekinn, hann var ungur og hraustur. Ekki tómir glæpamenn — J ,,Það er ekki rétt, að í her- sveitinni séu flestir harðsvíraðir 'glæpamenn — sjálfsagt hafa margir eitthvað á samvizkunni, 1—- en menn sekir um alvai’lega ^glæpi mundu afhentir lögregl- *unni.“ Einn af fimm, J „Það er enginn . sjálfboðaliðum — 'einn af hverjum skortur á en aðeins fimm um- ^sækjendum er tekinn.“ Svo strangar kröfur eru gerðar, um líkamshæð, vöxt, heilsufar o. fl. — Næst voru hann og aðrir ^sjálfboðaliðar fiuttir á skips- Éfjöl — „reknir niður í lest sem gripir, og þá þegaiy' sagði Bill, „munu sumir hafa farið að hugleiða nánara út í hvað þeir voru komnir. Okkur fannst, að við værum fangar á leið til fanganýlendu. Vegabréf og fyrri skilríki önnur höfðu verið frá okkur tekin.“ Hreyknir — En hreyknir voru þeir samt, þegar þeir nokkrum dögum seinna voru komnir í einkenn- isbúning hersveitarinnar í Sidi Bel Abbes. Hárskurð höfðu þeir fengið svo sem sagt var fyrir um í herreglum. Og kaup fengu þeir hálfsmánaðarlega — 1000 franka. — Og nú var fyrir höndum misserisþjálfun, og að henni lokinni var hann settur í Demi-hersveitina, sem eitt sinn var mjög fræg, en hana stofn- aði De Gaulle á Englandi á tíma síðari heimsstyrjaldar. Hersveitin hafði orðið fyrir miklu manntjóni í viðureign uppreistarmanna — og nú voru teknir í hana allir þeir, sem komu úr fangabúðum her- stöðva, eftir að hafa afplánað ýms agabrot. Börðust seni villimenn — Þetta var sundurleitur hóp- ur, menn af ýmsu þjóðerni, Þjóðverjar, Pólverjar, Ung- verjar, Spánverjar — en að eins strjálingur af Frökkum — en „allir börðust þeir sem villi- menn“, sagði Bill. „Þarna var sem hver maður legði metnað sinn í, að sýna meiri dug en annarra þjóða menn“. Og ekki hefur Bill legið á liði sínu, því að eftir tvö ár var hann sæmdur heiðursmerki fyrir vasklega frammistöðu. Það var við Tounod, sem hann vann til þess. Var sendur í bif- reið til stuðnings herflokki, sem átti að uppræta 120 manna flokk uppreistarmanna, sem höfðu komið sér fyrir, vopnaðir vélbyssum í skjóli kletta. Her- menn Útlendingahersveitarinn- ar höfðu beðið mikið manntjón. Margir höfðu fallið, en aðrir lágu særðir á vígvellinum. Þótt þar væri ekkert skjól að finna, fór Bill sex sinnum skríðandi á maganum til þess að bjarga særðum mönnum, ásamt bíl- stjóra sínum, sem fékk kúlu í höfuðið og beið þegar bana. Auk þess var Bill nú hækkaður, settur í æðri flokk sjálfboða- liða, og sendur í skóla fyrir undirforingja. „Það var með ráði gert á æðri stöðum,“ sagði hann. „En ef þeir hefðu ekki gert það hefði eg verið út minn tíma.“ Tilgangurinn var, að búa svo um hnútana, að hann slyppi ekki úr hersveitinni að fimm ára tímanum liðnum. Bill var nú uggandi um sinn hag, en það lifnaði yfir honúm, er hann á- samt 39 öðrum úr skólanum var valinn til Parísarfarar, til þess að taka þátt í hergöngu á Bastille-deginum. Þá ákvað hann að gera flóttatilraunina — |„og margir aðrir hugleiddu slík áform.1 — Útlendingaher- sveitin hafði aðeins einu sinni áður tekið þátt í hergöngu á Bastille-deginum, en svo marg- ir gerðu tilraun til að flýja, að í stað þess að velja menn úr ýmsum herflokkum, voru nú valdir menn úr undirforingja- skólanum. Ef til vill hafa yfir- boðararnir síður grunað menn, sem höfðu veið sæmdir heiðurs- merkjum, og áttu undirfoingja- laun í vændum. En Bill fannst, að nú eða aldrei fengi hantS tækifæri til að flýja. | Á valdatíma De Gaulles. Síðan De Gaulle komst til valda hefur Útlendingaher- sveitinni í Alsír verið teflt fram oftar en nokkurn tíma fyrr. Bill hafði tvívegis særst. Margir félagar hans voru falln- ir eða örkumlamenn — og bar- dagar urðu æ tíðari. „En það var harðneskjan og aginn í und irforingjaskólanum, sem gerði mér vistina að lokum alveg ó- þolandi. Eg varð að gera tilraun til að flýja — hverjar sem af- leiðingarnar yrðu.“ □ í síðari grein er sagt frekara frá hegningaraðferðum í Út- endingahersveitinni og' flótta Bills yfir Frakkland og Belgíu til Ermarsunds. „Gerið svo vel og bíðið til hlíðar,“ sagði belgiski tollvörðurinn kulda- lega, og Bill hugði, að hann mundi aldrei komast yfir sund- ið og heim. Tanganyika frjáls 1960. Þegnar iandsins sagSír einhuga um framtíðina. Fregn frá Dar es Salaam í Tanganyika hermir, að 9 millj- ónir íbúa Tanganyika geri sér vonir um, að fá sjálfstæði á næsta ári. Höfuðleiðtogi þjóðernissinna- sambandsins, er Julius Nyerere, og nýtur hann ekki aðeins stuðn ings sinna blökku meðbræðra, heldur og annarra þegna lands- ins af Evrópu- og Asíustofni. í Tanganyika er í rauninni engin stjórnarandstaða. Sjálfur segir Nyerera: „Hver gæti verið and- stæðingur fulls frelsis?“ Bretar fara með umboðs- stjórn í Tanganyika. Nyerei’a er höfuðleiðtogi minnihlutans í Löggjafarráðinu, — meirihlut- mn er skipaður fulltrúum til- nefndum af brezku umboðs- stjórninni, en þrátt fyrir það væri engin stjórnarstefna fram- kvæmanleg í andstöðu við hinn þjóðkjörna minnihluta, við nú- verandi aðstæður. Við forystu Nyerera hefur raunverulega verið mynduð stjórn, sem býr sig undir að taka við að ári. Og fimm af „ráðherrunum“ í hinni óopinberu stjórn, eru ráðherrar í hinni opinberu stjórn lands- ins. Þrír eru af S-Afríkustofni, einn af Evrópu — og einn af Asíustofni. Nyerera valdi þessa menn að beiðni landstjórans, Sir Richards Turnbull. Og þeg- ar Tanganyika fær sjálfstæði að ári mun Nyerera verða for- sætisráðherra. Meðal mála, sem Nyerera og félagar hans hafa á prjónunum, eru miklar umbætur á sviði heilbrigðis- og fræðslumála. Æejt aí auflhjAa í VUi Þessi mynd sýnir allglöggt hvernig umhorfs er í Handa, einum hinna fjölmörgu bæja, sera fellibylurinn fór yfir nýlega. Á myndinni sés t fólk, sem er að leita, hvort ekki kunni eittlivað að leynast óskemmt í rústunum. t

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.