Vísir - 14.10.1959, Page 10

Vísir - 14.10.1959, Page 10
10 VtSIB Miðvikudaginn 14. október 1959 r~ — ■ ÍÍB: Hermina ts, JAJ.V B lack: SL L m M ’' • ■' lilFIII ★ il| . B U/li U « m II ir 111 j 17 >■ Þau komu alveg mátulega í hádegisverðinn, og Caria varð xólegri en hún hafði verið lengi, er hún hitti Mary, sem alltaf rvar jafn örugg og í sama jafnvæginu. Mary virtist aldrei þreytast undir hinni miklu ábyrgð er hvíldi á henni — hún var alltaf eins. — Mér sýnist á þér að þú munir hafa gott af hreinu lofti, væna mín, sagði hún við hina yngri vinstúlku'sína."-^ Eg get •ekki skilið hvernig nokkur getur haldið fullum sönsum, að lifa í þessu iðukasti, sem þú ert í. Roger Barrington klappaði dóttur sinni á kinnina. — Svo þér sýnist þá líka að hún sé þreytuleg, Mary? sagði hann. — Eg held að þú ættir að fá langa hvíld, Caria. — Mér finnst lúalegt að vera alltaf að tala um hve eg sé ■guggin og þreytuleg, pabbi. Mér finnst það nærri því smekkleysi. Jafnvel þó dóttir þín sé farin að eldast, að vera sífelt að minna hana á það. Meðan þau voru að borða spurði Mary í mesta sakleysi: — Heyrðu, Caria — þekkir þú Frayne majór? — Já. Rödd Cariu var róleg og hiklaus, en það reyndi á hana að svara. — Allir þekkja hann. — Basil Frayne? Barrington hnyklaði brúnirnar. — Eg þoli ekki þann kóna. En hann er einhverskonar vinur þinn, Caria. Eg frétti að hann hefði slasast í bílnum sínum. — Hann liggur hérna. Carlton læknir kom með hann hingað, og konan hans hefur útvegað honum einkaherbergi hérna í sjúkrahúsinu. Hann heimtar tvær duglegustu hjúkrunarkonurnar okkar en eg sagði honum að við gætum ekki misst þær til einka- hjúkrunar. — Það hefur hjúkrunarkonunum ekki líkað, sagði Barrington hlæjandi. Mary hló. — Það er eg hrædd um, já. En hann fer nú heim í næstu viku og konan hans er að gera ýmiskonar ráðstafanir vegna þess. Roger hleypti brúnum. — Hún Sonia fagra? Caria leit á föður sinn. — Þú sagðir þetta svo neyðarlega, pabbi. Líkar þér illa við hana Soniu? — Þú veist ofurvel að eg þoli hana ekki — og manninn hennar •ekki heldur, svaraði hann og beit á jaxlinn. — En hún er nú ákaflega skrautleg, finnst ykkur ekki, sagði Mary. — Hm! Það eru persknesku kettirnir líka, en eg hef aldrei getað fellt mig við þetta dýrakyn, sagði hann þurr. — Og eg -vildi nauður láta það kvendi læsa klónum í mig. Cariu þótti vænt um að þau fóru að tala um annað. Hún hafði aldrei gert sér ljóst hve mikla andúð faðir hennar hafði á Frayne- hjónunum — og hún hafði beyg af sjötta skilningarvitinu hans. Hafði hann nokkurntíma haft grun um það, sem hún reyndi sem bezt að leyna fyrir honum? Roger hélt áfram leiðinni eftir matinn og lofaði að líta inn í bakaleiðinni. Caria var ein meðan Mary var á stofuganginum síðdegis. Caria fór út í garðinn. Veðrið var yndislegt, vor í loftinu, út- •sprungnar páskaliljur bæði í beðunum og á víð og dreif í gras- inu undir trjánum, sem voru orðin græn af nýju laufi. Þessi hluti garðsins var aðeins ætlaður starfsfólkinu. Caria varp öndinni og settist á einn bekkinn. Hjúkrun var eina starfið, sem hana hafði langað til að stunda, og hún var farin að finna, að líf h'ennar var engum til gagns. Henni varð litið á hina nýju álmu sj úkrahússins og datt í hug hvort Basil mundi liggja þar, eða gluggarnir hans vita þangað sem hún sat. Hún vildi fyrir alla muni forðast að sjá hann. Svo tók hugurinn aðra rás. Hvað skyldi Ross hafa fyrir stafni núna um helgina? Var hann alltaf sívinnandi? Hún stóð upp, gekk yfir grasflötina og upp á stíginn heim að sjálfu sjúkrahúsinu. Þegar hún kom að bugðunni á veginum kom bíll á hægri ferð. Hún leit á hann og fékk hjarslátt þegar hún þekkti manninn við stýrið. Ross sá hana í sömu svifum, stöðvaði bílinn og kom út og heilsaöi henni. — Nú er eg hissa, sagði hann. — Þetta var sannarlega óvænt. — Eg segi sama.... Hún rétti honum höndina. — Eg hélt að læknar tækju sér fri á laugardögum — en það er liklega komið undir því hver læknirinn er. Þessa stundina sameina eg starfið og friið, svaraði hann. — Eg hef hugsaö mér að fá tebolla hjá Mary. Caria brosti. — Eg er í heimsókn hjá henni núna urn helgina. — Hoppið þér inn! sagði hann og opnaði bílinn. Hún fór inn í bílinn og hann settist við stýrið og ók þennan stutta spöl, sem var upp að sjúkrahúsinu. Hann hafði jafnað sig eftir þessa.óvæntu samfundi. Þó hún væri vinstúlka Mary hafði hún liklega einhverja aðra ástæðu til að koma hingað. En það var ekki sem heppilegast að hún skyldi korna í dag. Hann ætti kannske að gefa henni bendingu. Nei, þaö skyldi hann aldrei gera. Hann hafði í rauninni trúað því, sem hún hafði sagt honum, en nú var hún komin hingað, og það benti ekki á að henni væri alveg sama um hvernig Frayne majór reiddi af. — Eg hef ekki séð Mary langalengi, sagði hún við hann. — Nei, hún hefur lítinn tíma aflögu til að sjá fólk. Eg verð að aka í kring, að aðaldyrunum — svo að eg hef líklega farið með yður á afvegu. Hún leit snöggt á hann. Það var erfitt að átta sig á þessum manni. Fyrir fáeinum sekúndum hafði hann heilsað henni, eins og það gleddi hann að sjá hana, og nú var hann svo kulda- legur og þurr á manninn sem hugsast gat. Hvað gekk að honum? — Það kemur í sama stað niður, sagði hún og reyndi að hlæja. ' Þegar bíllinn nam staðar sáu þau að annar bíll kom á eftir þeim og nam staðar þegar Ross var að hjálpa Cariu út. Og nú stóð hún augliti til auglits við Soniu Frayne! J — Halló, Ross! Eg var orðin hrædd um að eg kæmi of seint. Maður má ekki láta mikla menn bíða.... Sonia var glæsileg að j vanda. Hún var með hanzka á hendinni sem hún rétti fram. Þegar hún sá hver Caria var hleypti hún brúnum. — Hvað er nú þetta? sagði hún. — Eg hafði ekki hugmynd um að þið þekkt- j' ust. Hvað eruð þér að gera héma, Caria? Eða er það kannske of mikil frekja af mér að spyrja? Og Caria, sem stóð á milli þeirra, vissi allt í einu hvað þau héldu bæði, og skildi nú hver ástæðan til að Ross hafði breyst svona skyndilega. Þau héldu að hún væri komin til að heim- sækja Basil. Hún fann að hún hitnaði í kinnunum er Sonia leit á hana. Það var Ross sem hljóp undir bagga með henni. Hann sagði rólega: — Ungfrú Barrington er í heimsókn hjá ungfrú Summers núna um helgina. — Hjá Summers hjúkrunarkonu? Sonia hleypti enn brúnum. — Góða Caria, eruð þér farin að heimsækja sjúkrahús um helgar? — Við Mary erum gamlar vinstúlkur úr hjúkrunarkvennaskól- anum, svaraði Caria stutt. — Venjulega er maður í góðu næði og friði hjá henni um helgar, en eg virðist ekki ætla að verða svo heppin í þetta sinn.... Úr því að Sonia var ónotaleg, var réttast að hún væri það líka, hugsaði hún með sér. . gpaiið yður Maup á ioiUi maigra. verzTaxia! WRUtíftl W,! vl- ■ 6Í$) - Austursti'aeti' A KVÖLDVðKUNNI s". i - m mmm E. R. Burroughs THE F’EESEeyÉE segaepep TAEZAN MEt LAKE THEOÚGH AMUSEP IWP MOCKING EYES. FINALLV V%iiF0KE*y0U GENTLE- MEN SEEM UNCOMFOE.TABLE—" - TARZAN - 3111 Endurnýjarinn virti Tarz- an og félaga hans fyrir sér : háðslegur á svip og kenndi ^ kátínu í andliti hans. Að lokum mælti hann: „Herrar mínir, svo virðist sem yður líði ekki vel. Verðir, leysið böndin af þeim. Það er ekki kurteisi að leika gesti svona harðlega. Og svo munu vinir minir sjá um að þeir fresti "ANt? BESIPES/ HE GKINNEC? "X'M SUEE MY PETS WILL PETEK ANY OF THEIE PLANS FOS. t?EF’AI2TUEE! * öllum ráðagerðum að fara héðan brott.“ Hann hló við er hann hafði þetta mælt. Zsa Zsa Gabor er alltaf gló- andi og alltaf að reyna eitthvað nýtt. Nú er hún orðin ráðgjafi í hjúskaparmálum hjá stóru sjónvarpsfélagi og sýnir sig þá minnst einu sinni í viku með svör upp á spurningar, sem hafa komið. Síðast var það kona, sem hafði spurt hana: „Hvað á eg að gera? Manninum mínum geðjast ekki að því ilmvatni, sem eg nota. Á eg að skipta um ilmvatn?“ ,,Nei,“ var svarið. „Skiptið um mann.“ ★ Já, ekki er hægt að neita því, Gary Cooper er kominn á gler- augnaaldurinn. Og nú notar hann gleraugun ekki aðeins til lestur heldur og á götu og í kaffihúsum. Þá var það blaðamaður, sem spurði hann einu sinni: „Þorið þér að vera með gleraugu á götunni? Eruð þér ekki hrædd- ur um að þér missið einhverja af aðdáendum yðar?“ „Hm,“ svaraði Gary. „Það er hugsanlegt — en nú hitti eg aftur heilan hóp af fólki, sem eg hefi ekki séð árum saman.“ ★ Karen og Jutta voru á gangi í Breiðgötu og tóku þá eftir því, að sjóliði elti þær lengi. Það var Jutta, sem skipti sér af þessu. Hún sneri sér við, leit ákveð- in á piltinn og sagði: „Heyrið þér mig! Annaðhvort hættið þér nú við að elta okkur á röndum r—. eða þér farið og sækið yður einhvern félaga!“ ★ Á fótalæknaþingi, sem hald- ið er árlega í Washington, var það upplýst að 80 hundraðs- hlutar af öllum Ameríkönum, sem hafa náð fullorðins aldri, þjást af veikleika í fótum. Þetta er þróun, sem hefir vaxið hraðfara. Börn fæðast með hrausta og eðlilega fætur, en þeim hrakar fljótt af því að þeir eru ekki notaðir nægilega. Dr. John Sharp, sem er pró- fessor við Temple háskólann í Fíladelfíu, kom með athyglis- verða fullyrðingu. Hann sagði, að þetta væri lifnaðarháttum Ameríkana að kenna. Við erum ekki lengur fólk sem starfar. Okkur þykir svo indælt að sitja þægilega og hugsa um hlutina. Og það byrj- ar með því, að börnin ganga ekki í skólann lengur. Þau eru flutt í fjöldavögnum. Frú Úlafía... Framh. af 3. síðu. Jónasson, ráðuneytisstjóri, sem verið hefur gjaldkeri nefndar- innar undanfarin ár. Varamenn eru Sigurður Kristinsson og VaL gerður Einarsdóttir. Öll störf sóknarnefndar eru unnin end- urgjaldslaust. Safnaðarfundir fara frarn í dómkirkjunni, en fundi sína heldur sóknarnefnd- in annars á skrifstofu Rauða Kross íslands, Thorvaldsens- | stræti 6, eins oft og þörf gerist. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.