Vísir - 27.11.1959, Side 11
Föstudaginn 27. nóvember 1959
«l«Iá
119
Máiverkasýning Bjama
Guðraundssonar.
.
Bjarni Guðmundsson frá
Höfn í Hornafirði, hinn mikli
sjálfmenntaði listamaður, hef-
ur nú undanfarið haft mál-
verkasýningu í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins. Hefur hann sýnt
þar 58 vatnslitamyndir og 20
olíumálverk. — Hafa flestar
myndirnar selzt og má því
segja, að aðdáun sýningargesta
hafi verið nokkuð sérstök. Og
fullyrða má, að sum af mál-
verkunum er seldust strax
fyrstu sýningardaginn, myndu
fleiri, er síðar komu, hafa vilj-
að kaupa ef kostur hefði verið.
Það er eiginlega hjákátlegt,
hve hljótt hefur verið um þessa
sýningu í blöðunum. Eitt ein-
asta blað, ,,Vísir“ skrifaði um
sýninguna, því G. K. mætti þar
fyrir blaðsins hönd. Annars
hafði Bjarni boðið öllum blöð-
unum að senda blaðamenn á
sýninguna, til dóms og álits um
verk sín. En eins og áður segir,1
var Vísir eina blaðið, sem boð-j
inu tók. En hann átti á sýning-
unni gesti sem trauðla gleyma
því, sem þeir sáu þar.
En hvers - vegna þegja list-
dómarar vorir? Er. það máske
vegna þess, að þar er ekkert
atstrakt á borð borið? Þar eru
eingöngu hreini'æktuð lands-
lags-listaverk. En dómarar lista
verka hefðu þó ekki átt að telja
sér misboðið að sjá þessa lista-
verkasýningu og dæma um
liana.
Bjarni Guðmundsson hefur
adrei út fyrir landsteinana far-
ið, en haldið sig í heimahögum.
En enginn má auðvitað neita
því, að holt er að hlusta á menn
ingarstrauma annara þjóða, og
horfa á iðuföll þeirra í þeirra
glæsileik, en gleyma þó aldrei
drottins dýrð íslenzkrar tignar
og meta hana hærra en allt
annað.
Þegar um Bjarna Guðmunds
son listmálara er rætt, flýgur
mér stundum í hug það, sem
hinn góðkunni húsbóndi hans
um mörg ár, Þórhallur Daníels-
son, sagði við mig hér um árið,
þegar Bjarni hafði málverka-
sýningu í Sambandshúsinu:
„Bjarni hefur alltaf verið list-
málari af guðs náð.“ Er þetta
ekki merkilegur dómur? En tví-
mælalaust réttur.
llirnrpÍllfflÉlfir'iidllllPi'IIIIIIIIIWWHlj
Öll listaverk, sem Bjarni hef-
ur haft á þessari sýningu, eru
hrein snilldarverk. Eg treysti
mér ekki til að taka nein sér-
staklega fram -— það er af svo
miklu að taka. En ég vildi
mælast til þess, að næst þegar
Menntamálaráð úthlutar af
náð sinni listamannalaunum,
þá láti það Bjarna Guðmunds-
son ekki fara varhluta af ein-
hverju lítilræði. Það gæti tekið
einhvern annan til samanburð-
ar eða samjafnaðar. Hann á
listamannalaun skilið. Og lista-
maður, sem sýnir 78 listamál-
verk í einu — eftir 2.—3. ára
vinnu, er ekki neitt smámenni
á þessu sviði. Eg held að lista-
menn fslands, allir í einum
hópi, ættu að samfagna þess-
um 74 ára starfsbróður.
Ætli að margar sveitir eða
sýslúr á landinu, eigi svona
hreinræktaða, sjálflærða lista-
menn, eins og Austur-Skafta-
fellssýsla, Bjarna Guðmunds-
son?
Listdómarar syngja fyrir sig
öðrum til dýrðar af sínu viti.
Eg syng líka með mínu nefi.
Þessar línur eru því miður
nokkuð seint á ferðinni, en
betra seint en aldrei.“ — S. A.
BBIDGEÞÁTTVH V*
♦ ♦
$ VISES *
Olympíu-sveitin vann.
Sveitakeppni Bridgefélags
Reykjavílcur í meistaraflokki
lauk sl. þriðjudag með sigri
sveitar Einars Þorfinnssonar. í
sveitinni eru auk hans Gunnar
Guðmundsson, Kristinn Berg-
þórsson, Lárus Karlsson, Stefán
Stefánsson og Örn Guðmunds-
son. Sveitin vann alla sína
keppinauta og hlaut 10 stig,
sem er stórglæsilegur árangur.
Röð og stig hinna sveitanna1
var eftirfarandi:
Róberts Sigmundssonar 6. st.
Sigurhjartar Péturssonar 4 st.
Halls Símonarsonar 4 st.
Stefáns Guðjohnsen 3 st.
Rafns Sigurðssonar 3 st.
Hlutfall EBL-stiga ákvarðaði
röð jöfnu sveitanna. Hin lélega
frammistaða íslandsmeistar-
anna vakti nokkra athygli og er
eg þó á því, að þeir hafi hafn-
að einu sæti ofar en spila-
menska þeirra gaf tilefni til.
Hér er spil úr leik þeirra
Rafns og Róberts:
Ásmundur
A K-6-4-2
V 10-9-7-5-3
♦ 6-5-4
* 3
Sníðum buxur
á barn og fuliorðna.
Guðm. ísfjörð, klæðskeri !
Verzl. Pandóra.
Sími 1-52-50.
VlSjld per fljófa
afgrefðsiu?
i
Zophonías A G-5 N. Jóhann. A Á-10-8
V Á-G-4 V. A. V K-D-8-6-2
♦ A-K-D-3 S. ♦ 10-7
* 9-7-6-2 * Á-K-G
Hjalti
A D-9-7-3
V ekkert
♦ G-9-8-2
* D-10-8-5-4
Bræðrafélag
Neskirkfu.
BoSað hefur verið til stofn-
fundar að Bræðrafélagi Nes-
kirkju á sunnudaginn kemur.
Verður fundurinn haldinn í
Neskirkju og hefst kl. 20,30.
Jafnframt verður haldið
kirkjukvöld í sambandi við
stofnfimdin. Þar mun sóknar-
presturinn sr. Jón Thorarensen,
flytja erindi, kirkjukórinn
syngja o; 'rganisti kirkjunnar
leika á iuð hljómfagra pípu-
orgel kirkjunnar.
Þess er i'ð vænta að safnað-
ai’menn "iölsæki kirkju sína
þetta V' "'d og skal það hér
framtekið að þó stofnun
bræðraú' t«s fari frani í sam-
bandi kirkjukvöldið, þá er
öllu '’ðarfólki heimill að-
gangm og hjartanlega vel-
komið.
Spekf Dalvíkurbúa
Þeim Iesendum Vísis til fró-
unar og hugarléttis, sem enn
halda því fram að menningu
íslendinga fari sífelt hnignandi,
skal bent á að enn eru þeir
staðir á voru landi, sem verðir
eru þess að þeirra sé getið að
nokkru fyrir visku sakir þeirra,
er þar búa.
Þannig var ó það minnst í
Vísi í gær, í sambandi við hval-
skurðinn á Dalvík að 40—50
lestir af spiki hafi verið fluttar
til Akureyrar, og síðan var bætt
við: „Enn er þó talsvert magn
at speki eftir á Dalvík. Um
50% af lýsi fæst úr því.“
Er gott til þess að vita að
staðfesting hefur fengist á
visku Dalvíkurbúa, en vita-
míninnihald hennar er alveg
ný saga.
HafnarugSingur •
Framhald af 7. síðu.
stjórn félagsins vilji taka það:
fram að hún álíti að í vali,
brunavarða beri að fara í öllu
eftir Brunamálasamþykkt fyrir,
Reykjavík, „sérstaklega þó
hvað aldurstakmarki bruna-
varða viðkemur."
Báðir þessir starfshópar virð-
ast þannig vera sammála í því,
að fylgja beri eftir ákvæð-,
um Brunamálareglugerðárinn- j
ar, sem og sjálfsagt er, en
beiðni Félags Slökkviliðs-
manna um að tekið sé tillit til
starfsaldurs og reynslu, virðist
þrátt íjrrir það ekki ósann-
B<xn, I
Jóhami og Zóphonías spila
Canapé-kerfið og þeir melduðu
eftirfarandi:
A: 1L — V: 2T — A: 2H —
V: 4H — A: 4G — V: 5H —
A: 5G —V: 6T — A: 6H
Hjalti spilaði út spaða,
tók kóng norðurs með ás. Nú
kom lághjarta drepið með ás
tromplegan kom í ljós. Lauf
úr borði drepið með ás og spil-
að tígli til baka. Enn kom lauf
úr borði, norður gaf af sér tíg-
ul, Jóhann drap með kóng.
Hann pilaði síðan tígli, drap
með kóng og spilaði tígulás.
Norður gaf af sér spaða, Jó-
hann henti laufgosanum og
trompaði út fjarkanum. Norður
lét níuna, sagnhafi drottningu
og spilaði spaðaáttu sem suður
tók með drottningu. Nú er sama
Ungverjaland til umræðu.
Dagskrárnefnd Sameinuðu
þjóðanna kemur saman til fund
ar n.k. mánudag til þess að taka
fyrir hvort taka skuli Ungverja
land á dagskrá Allherjarþings-
ins.
Til stóð, að dagskrárnefnd
tæki ákvörðun sína í fyrradag,
en fulltrúum Rússa tókst að af-
stýra því. — Það hafa á und-
angengnum vikum verið birtar
ýmsar fregnir, sem benda til
að ofsóknum sé haldið áfram
í Ungverjalandi, og að aftökur
eigi sér enn stað — haldið sé
áfram skipulagðri hefndarstarf-
semi gegn þeim, sem eftir eru
af þeim, sem tóku virkan þátt
í frelsisbyltingunni, og gegn
ættingjum þeirra, sem tóku í
henni, bæði geg!n ættingjum
þeirra, sem ekki eru lengur í
lifenda tölu, og hinna.
Því hefur meðal annars ver-
ið haldið fram, að unglingar,
sekir fundnir um þátttöku í
byltingunni, hafi í sumar og
haust verið teknir af l£fi —
aðeins aldurs þeirra vegna bafi
aftökunum rerið frastað.
hverju suður spilar, því Jóhann
á restina.
í lokaða salnum piluðu Júlí-
us og Þórir þrjú grönd og unnu
sex, eftir laufútspil.
Sveitakeppni B. R. í 1. flokki
lauk einnig sl. þriðjudag og
sigraði sveit Elínar Jónsdóttur.
í sveitinni eru auk hennar Ása
| Jóhannsdóttir, Ásgerður Ein-
'arsdóttir, Kristín Jónsdóttir,
ÍLaufey Arndals og Rósa Þor-
Klapparstíg 40. Sími 19443.
seinsdóttir.
AÖGLÝSENDUR atbngíð
þar sem VÍSIR kemur út árdcgis á laugardögum, þurfa
auglýsingar sem birtast eiga í laugardagsblaðinu að
berast fyrir
kl. 7 s.d. á Fðstudteura
SLITB0LTAR
í eftirtaldar bifreiðir frá 1941—1956: Chevrolet — Chrýslér
— De Soto — Dodge — Plymouth — Pontiac — Oldsmobile.
SMYRILL, húsi Sameinaða, sími 1-22-60.
STÚLKA ÓSKAST
til afgreiðslustarfa í kjötbúð.
Uppl. í síma 12667.
a
Sklpstjéra og métorista
vantar á 30 tonna bát, sem rær úr Faxaílóa með línu. j
Tilboð sendist Vísi merkt: „Skipstjóri" fyrir þriðjudagsí j