Vísir - 22.12.1959, Qupperneq 9
J>riÖjudaginn 22. desember 1959
VfSIfl
1
* á * Jólamarkaðnum * í * ár
Ógleymanleg persóna.
Ernst Schnabel: Hetja til
hinztu stundar. — Jónas
Rafnar, læknir, þýddi. —
Kvöldvökuútgáfan, Akur-
eyri 1959. — Prentsmiðja
Björns Jónssonar.
Heimsstyjöldin síðari skilur
eftir á sviði sögunnar margar
ógleymanlegar persónur á sviði
stjórnmála og vígvalla og einn-
ig persónur, sem urðu þátttak-
endur í harmleik styrjaldarinn-
ar og urðu fórnir á altari
grimmdar og mannúðarleysis.
Anna Frank, gyðingastúlkan, er
sérstæðust allra þeirra mörgu
Gyðinga, sem urðu fyrir
grimmdaræði nazismans. Saga
hennar nálgast í mörgu að líkj-
ast hetjusögum frá fyrri tím-
um, hetju- eða helgisögum.
Hún er því nútímaleg helgi-
saga. Saga Önnu hefur farið
sigurför víða um heim og orð-
ið hugnæm bókelsku fólki og
einnig hefur hún orðið við-
fangsefni leikara á sviðum
þekktra leikhúsa þar á meðal
Þjóðleikhússins hér 1 Reykja-
vík.
Dagbók Önnu Frank kom út
fyrir nokkrum árum hér á landi
og varð metsölubók. En bók sú,
sem hér um ræðir, er ævisaga
Önnu rituð eftir heimildum,
sem Schnabel safnaði, bæði
eftir fólki, sem þekkti Önnu og
ýmsum gögnum sem dagbók-
in hefur ekki. Þess vegna er
mynd Önnu fyllri í þessari bók,
heldur en kemur fram í dag- j
bókinni. Eg held, að allir, sem
yndi hafa haft af dagbókinni og'
séð hafa leikritið hafi enn þá
meiri ánægju að lesa Hetju til
hinstu stundar. Því bókin er í
alla staði hin skemmtilegasta
og skilningur höfundarins á
persónuleika Önnu og grimm-
um örlögum mótar hann skýrt
og hiklaust.
Kristbjörg Kjeld leikkona,
sem fór með hlutverk Önnu
Frank á sviði Þjóðleikhússins
ritar formála fyrir bókinni.
Hún segir: „En eins og svo
margt annað athyglisvert og
átakanlegt, hverfur það ekki
úr huganum aftur, og þess
vegna halda menn áfram að
spyrja. Hvað tók við er lög-
reglan ruddist inn í bakhýsið
4. ágúst 1944 og hvernig var
barnið Anna Frank í raun og
veru, þegar hún, ásamt for-
eldrum og þjáningarsystkinum,
hóf dvölina í bakhýsinu? —
Þýzkur rithöfundur, Ernst
Schnbel, hefur tekizt á hend-
ur í þessari bók, sem nú kem-
ur út í íslenzkri þýðingu, að
svara þessum spurningum. —
Hann hefur safnað saman og
kynnt sér ummæli og skoðanir
þeirra, sem þekktu Önnu Frank
í uppvextinum og deildu síðar
með henni hinum hryllilegustu
kjörum í þýzkum fangabúðun-
um. . . . “
Jónas Rafnar læknir þýðir
bókina. Er þýðing hans með
sama snilldarbragnum og fyrri
bækur sem hann hefur þýtt.
Er bókin á sérstaklega hreinu
cg fögru máli. Eykur það mjög
gildi bókarinnar, hve þýðingin
er vel leyst af hendi. Bókin er
rnjög vel gefin út og er að-
standendum til mikils sóma að
öllu leyti.
Þess er rétt að geta að þessi
bók hefur vakið mikla athygli
utan lands og selzt í stórum
upplögum. Veit eg að íslenzk-
ur almenningur metur hana
ekki síður, enda er hún þess
virði í alla staði að vera lesin
og athuguð af gaumgæfni.
Jón Gíslason.
Veðurspá til áramóta —
en vitanlega án allrar ábyrgðar.
Veðrið skiptir svo miklu í
margbreyttum störfum íslend-
inga að fjölda starfandi fólks
er það keppikefli að vita sem
gleggst um það.
Þetta skal nú gert í stórum
dráttum að skygnast um hvers
má vænta um veðrið til næstu
áramóta.
í dag höfum við sunnudag-
inn 6. desember. Er þá iiðin
ein vika af jólaföstu. Ekki er
að efa að næsta vika verður
góðviðrasöm, eða fyrrihluta
Jón Krabbe —
Framh. af 4. síðu
af því skýrir viðhorfið til lið-
inna atburða, en fyrst og fremst
er það þýðingarmikið til þess
að skilja rás sögunnar og við-
horf sem ekki komu fram,
vegna ónógra gagna.
Árið 1915 voru tilkvaddir
þrír menn til samninga við
konung í Höfn. Voru það Einar
Arnórsson, Sveinn Björnsson
og Guðmundur Hannesson. —
Gekk þeim málaleitun öll vel
í Höfn og komu á samkomulagi.
Sneru þeir síðan heim til Is-
lands. Þeir sendu konungi
skeyti um undirtektir málanna
heima. Undir skeytið rituðu
þeir föðurnöfn sín í stafrófsröð.
Þetta varð til þess að hinn
hyggni og ella mjög varfærni
maður, Krieger konungsritari,
skildi niðurlag' símskeytisins
sem tillögu frá tveim hinum
síðarnefndu um skipun þess
fyrsta sem ráðherra, og á þess-
um grunvelli lagði Krieger
máiið fjvir koung, og skipaði
síðan Einar Arnórsson ráðherra.
Svona gat það farið á þeim ár-
um i Höfn. Reyndar varð Einar
Arnórsson hinn nýtásti ráð-
herra og var valið því heppi-
legt. En hitt 'er annað mál, að
hér var um mistök að ræða að
nokkru, enda gefur Krabbe það
ótvírætt. í skyn, að Sveinn
Björnsson var líklegastur tii
ráðherra í þetta skipti.
Krabbe minnist oft á Knud
Berlín og ritsmíðar hans um
ísland og íslenzka réttarstöðu.
Kemur þar greinilega í 1 jós, hve
Krabbe er íslenzkur að hugsun
allri og fylgdi eindregið mál-
stað íslands, þótt hann æli
aldur sinn allan á danskri
grund. Einnig minnist hann á
afmælisrit Ríkisdagsins danska
og leiðinlegar missagnir, sem
þar eru. Væri full þörf að ein-
hver fræðimaður tæki þá bók
til meðferðar og leiðrétti þær
rangfærslur, sem þar eru
bornar á borð.
Bókinni er skipt í nokkra
meginkafla eftir tímabilum.
Þeir eru 1899—1903, Inngang-
ur. íslenzka stjórnardeildin í
Höfn, 1903—1918, Heimastjórn,
1918—1939, Sambandslögin,
1939—1944, Siðari heimsstyrj-
öldin, 1940—1944, Skilnaður-
inn við Dani, 1944—1953, Sögu-
lok. Auk þess eru prentuð
mörg fylgiskjöl og nafnaskrá.
Eins og framangreind upptaln-
ing sýnir er efni vel skipað
niður og bókin spennir yfir
rúma öld. Sagari er slungin sögu
og sigrum íslands á mesta
framfaratímabili í sögu þess.
Pétur Benediktsson þýddi
bókina úr dönsku. Virðist mér
þýðingin mjög góð. Málið er
I létt cg frásögn öll ljós' og skýr.
Bókin er vel skipulögð og lýs-
ingar hennar ljósar, en sérstak-
jólaföstunnar, en þegar vikunni
næstu sleppir, er óhægra að
segja ákveðið um veðrið. Mætti
búast við breytilegri veðráttu
og vænta snjókomu að ein-
hverju leyti. Er ekki óliklegt
að jólin verði hvít.
Það mun þó ekki standa
lengi, því frostlítið verður allt
til áramóta, og líklega einnig
fyrstu daga nýja ársins, 1960.
j Stórstraumurinn á gamlárs-
dag gæti valdið skaða og
skemmdum. Er líklegt að
stormasamt verði um áramótin.
Síldveiðarnar. Öll sólarmerki
eru um ágæta síldveiði fram að
áramótum og máske lengur.
Mun það koma í ljós, að reikna
má með annari síldarvertíð
sunnanlands ekki ógjöfulli en
norðanlands. í framtíðinni
verða Grindavík, Þorlákshöfn
og Vestmannaeyjar aðal sildar-
bæirnir sunnanlands. Gætu
orðið einskonar Siglufirðir á
Suðurlandi. Nauðsynlegt er að
geta flutt út sem mest af Suð-
urlands-'1^ ísvarinni og hrað-
1:j. tii. — þann hátt rúlla pen-
ir.rr—nir. örast og Suðurlands-
síldin ummyndast í harðan
gjaldeyri á nokkrum dögum;
segjum hálfum mánuði eftir að
skriður er kominn á.
Með þeirri reynslu og tækni,
sem við nú höfum fengið við
síldveiðar sunnanlands ættu
síldveiðarnar þar að verða
ein öruggasta auðsuppspretta
og styrkasta stoð sjávarútvegs-
ins.
Arn.
lega þegar hann lýsir stjórn-
málamönnum. — Lesandinn
kynnist hér fáguðum lýsingum
á mönnum og málefnum, mönn-
um, sem allir hafa áhuga á að
kynnast. Þessi bók er því bók
sem allir ættu að lesa. Eg tel
hana hiklaust með merkari
bókum, sem komið hefur út á
síðustu árum, bæði sem ævi-
sögu og þátt úr sögu íslands.
Jón Gíslason.
TÖKUM AÐ OKKUR
að hreinsa og bóna bíla fyrir jói.
Opið frá kl. 8—22.
BÍLSKÚRINN, HRINGBRAUT 107
keyrt upp í sundið.
WSLT0N GÓLFTEPPI
gegnum ofið, vandað og sterkt teppi, stærð 3X4 m. til sölu,
i W verð kr. 3800,00. Hringbraut 445, 3. h.
Almannatryggingarnar
í Reykjavík
Bætur verða ekki greiddar milli jóla og nýárs og er þvi
óskað eftir, að bótaþegar vitji bóta hið allra fyrsta og eigi
síðar en 24. þ.m.
• TRYGGINGARSTOFNUN RÍKISINS.
ÍBIÍÐ ÓSKAST
Mig vantar 2ja til 3ja herbergja íbúð,
fyrst í janúar fyrir barnlaus hjón.
Ingvar Vilkjálmsson
Sími 1-5709.
K 0 NI Höggdeyfar
Þessir viðurkenndu stillanlegu höggdeyfar fást venjulega
hjá okkur í margar .gerðir bifreiða.
Útvegum KONI liöggdeyfa í allar gerðir bifreiða.
SMYRILL, Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60.
Jóla-telpnakjólar
seldir ódýrt fyrir jólin.
Einnig telpnakápur.
KÁPUSALAN, Laugaveg 11,
efstu hæð. — Sími 1-59-82.
PÍANÓ - PÍANETTA
Albert Finger píanóverksmiðjan er stofnuð 1887, enda
hljóðfærin vísindalega byggð, falleg og vönduð.
Hljóðfæri frá vei'ksmiðjunni eru fyrirliggjandi.
Einnig notuð píanetta.
Helgi Hallgrímsson, Ránargötu 8, sími 11671.
TILKYNNINC j
frá Hitaveitu Reykjavíkur
Ef alvarlegar bilanir koma fyrir um hátíðarnar, verður
kvörtunum veitt viðtaka í \ f
síma 153 59 ki. 10-14
HITAVEITA REYKJAVÍKUR.