Vísir - 22.02.1960, Blaðsíða 6

Vísir - 22.02.1960, Blaðsíða 6
^tSIB Mánudaginn 22. febrúar 1969 T18IB D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. y Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00, Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 2,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Vlireisnaríögin í framkvæntd. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um viðreisn efnahagslífsins er nú orðið að lögum. Ríkis- stjórnin og sérfræðingar hennar höfðu undirbúið þetta frumvarp af mikiili kostgæfni. Hver liður þess var vandlega athugaður og áhrif hans metin, áður en endanleg ákvörðun var tek- in. Ríkisstjórnin lagði því til það eitt, sem hún, að mjög vandlega athuguðu máli, taldi óhjákvæmilegt, ef koma ætti í veg fyrir fjárhagslegt hrun. Stuðningsflokkar ríkisstjórnar- innar á Alþingi hafa einróma fallizt á þetta sjónarmið, og þingmenn þeirra eru allir á einu máli um það, að nú hafi verið síðustu forvöð að taka upp gerbreytta stefnu í efna- hagsmálum þjóðarinnar. — Ábyrgum stjórnmálamömr- um er það ljóst, eins og fjölda mörgum öðrum, að allar þær efnahagsráðstafan- ir, sem gripið hefir verið til undanfarin ár, hafa verið að meira eða minna leyti kák, sem engan varanlegan grund- völl gátu skapað fyrir þjóðar- búskapinn. Þingmenn stjórnarandstöðunn- ar vita þetta mæta vel líka. Framsóknarmönnum er vit- anlega Ijóst, að ekki var hægt að halda áfram á þeirri leið, sem farin hafði verið. Þeir fengu fyrir því ótvíræða sönnun í vinstri stjórninni og þeim afleiðingum, sem ráðstafanir hennar höfðu í för með sér. Flestif Framsóknarmenn viður- kenna að gagngerðrar breyt- ingar sé þörf, og þegar farið er að ræða við þá um leiðirn- ar, komast þeir ekki hjá að samþykkja sjónarmið stjórn- arflokkanna í öllum megin atriðum. En hvers vegna geta Framsókn- armenn þá ekki fallist á ráð- stafanir, sem þeir í raun og veru, telja nauðsynlegar? Astæðan er sú, að engar ráð- stafanir má gera, hversu lífs- nauðsynlegar sem þær kunna að vera þjóðinni, ef þær eru með einhverjum hætti óhagkvæmar fyrir Framsóknarflokkinn. Þá verður að gera einhverjar hliðarráðstafanir, sem tryggja það, að það sem ó- vinsælt reynist, lendi á öðr- um flokkum! Þetta sjónarmið Framsóknar- manna þekkja allir flokkar sem með þeim hafa starfað, enda eru allir andstæðingar • þeirra sammála um, að ó- heilli flokkur í samstarfi sé ekki til. Enginn flokkur ræg- ir samstarfsflokka sína eins og Framsóknarflokkurinn. Jafnvel kommúnistar veigra sé við að beita sumum þeim aðferðm við samstarfsmenn sína sem Framsókn notar kinnroðalaust. Bretar hyggja á ný átök í bifreiðaiðnaðinuei. Fimm stærstu framíieiðendurnir leggja 200 miiij. punda í fjárfestingu. Bílaiðnaðurinn í Bretlandi hefir blómgazt undanfarin ár, og nú um þessar mundir er verið að stíga enn eitt skrefið til þess að auka framleiðsluna, og hin árlega viðbót verður að þessu sinni 200.000 nýir bílar á ári. Það eru einkum ford-verk- smiðjurnar brezku, sem nú hyggja á mikla aukningu í starfsemi sinni, og ætlunin er að reisa nýjar verksmiðjur á Merseybökkum sunnan við Li- verpool. Kostnaðurinn við stofnsetninguna verður nærri 25 millj. stpd. Samt er þetta ekki nema einn liðurinn í hinu sameiginlegu átaki hinna „fimm stóru“ í brezkum bíla- iðnaði, þ. e. B. M. C., Vauxhall, Rootes og Standard-Triumph. Þessi fimm fyrirtæki hyggjast verja ekki minna en 200 millj. punda nú á næstunni til fram- leiðsluaukningar. f þetta verður ráðizt íi trausti þess að eftir- spurn eftir brezkum bílum haldi áfram að vaxa í sama mæli og undanfarið. Helztu keppinautar brezka bifreiðaiðnaðarins eru Þýzka- Þjó&Jt verSar sjátf sð dæma. • Kommúnistum er auðvitað eins og öðrum ljóst hvert óbreytt stefna í efnahagsmálum mundi bera þjóðina. Hún er vísasta leiðin að þvi marki, sem kommúnistar keppa að. Þess vegna þarf engan að undra þótt svokallað Alþýðu- bandalag berjist gegn við- reisnartillögum. Þetta ætti að vera orðið öllum hugsandi mönnum Ijóst, eftir þriggja áratuga baráttu íslenzkra kommúnista til þess að leggja efnahagskerfið í rúst- ir. Hvert sinn sem kommúnistum tekst að knýja fram kaup- hækkun, er Þjéðviljinn lát- inn hamra á því, að þessi „stórkostlega kjarabót“ hafi fengist fyrir ötula baráttu verklýðsforingjanna í komm- únistaflokknum. En- kaup- hækkun er því áðeins kjara- bót, að henni sé ekki áftur , velt yfir á launþegann í hækkuðu vefði þeirra nauð- synja, sem hann þarf að kaupa. Kommúnistar þóttust vinna mikinn sigur fyrir alþýðuna í verkföllunum miklu 1955. AHir aðrir sáu og vissu að þau verkföll voru ósigur hinna vinnandi stétta og allr- ar þjóðarinnar. Kommúnistar hafa þrátt fyrir þessa „sigra“ sína, látið mál- gagn sitt, Þjóðviljann, segja almenningi að kaupmáttur launanna sé lægri nú en 1947. Hvernig stendur á þessu? Meginástæðan er verkföllin 1955. Þetta er staðrey.nd sem verka- menn og aðrar launastéttir ættu að íhuga vel, áður en þær láta kommúnista æsa sig til verkfalla aftur. Það er skylda allra þjóðhollra manna að bíða og sjá hvern- ig viðreisnarlögin reynast, áð ur en farið er að dæma þau og stofna til æsinga gegn þeim. Aðalfundur í „ísland-Noregur“. Aðalfundur félags ísland— Noregur var haldinn í Háskól- anum 15. febr. 1960 og fóru þar fram venjuleg aðalfundar- störf. f stjórn félagsiris voru kjörn- ir Hákon Bjarnason skógrækt- ai'stjóri formaður. Kristmann Guðmundsson rithöfundur, Gunnar Dal skáld, Eggert Guð- mundsson listmálari og Hanrves Jónsson fyrrv. alþingismaður. Varamenn voru kjömir Guð- mundur Marteinsson verkfræð- ingur, Ásmundur Guðmunds- son fyrrv. biskup og Árni Böðv- arsson cand mag. Ritari félagsins er Guimar Dal og gjaldkeri Hannes Jóns- son. Tilgangur þessa félags er að stuðla að kynningu og sam- vinnu íslendinga og Norð- manna. Það eru vinsamleg tilmæli stjórnarinnar að þeir sem vilji styðja og styrka tilgang félags- ins gerist félagar og tilkynni þátttöku sína einhverjum úr stjórn félagsins. fand, Frakkland og Ítalía. Ekki |era Bretar of lítið úr því, sem ér að gerast í þessum málum á meginlandinu, því að á meðan forezki iðnaðurinn hefir vaxið úm 50% hefir sá þýzki vaxið um 157% og sá franski um f.43%. Úlafur Thors minnist H. C. Hansens. i Vegna fráfalls H. C. Hansen, forsætisráðherra, flutti Ólafur Thors, forsætisráðherra, eftir- farandi kveðjuorð í hádegisút- varpið á laugardaginn: ,Aðeins rúm fimm ár eru lið- jn frá því, að forsætisráðherra pana, Hans Hedtoft, féll frá á bezta aldursskeiði, rúmlega jfimmtugur. Sá mæti og mikil- •jhæfi maður var öllum harm- idauði, sem hann þekktu. : Enn hefur dauðinn kvatt dyra ^hjá Dönum og kallað brott for- sætisráðherra þeirra, H. C. Han- sen, sem andaðist í gærkvöldi á bezta aldurskeiði, tæplega fimmtiu og fjögurra ára gam- all. Eg hafði litil persónuleg kynni af hinum látna forsætis- ráðherra, en nóg til þess að vita, að hann hafði hlotið óvenju fjölhæfar og ágætar gáfur í vöggugjöf. Og af afspurn veit ég einnig', að hann var drengur góður og sérlega farsæll í starfi, enda naut hann trausts og virð- ingar þjóðar sinnar. Eg flyt okkar dönsku vina- þjóð dýpstu samúðarkveðjur, er hún á nú á bak að sjá einum sinna ágætustu sona. Veit ég, að ég mæli þar fyrir munn allra íslendinga, sem þakka einlæg- -an vinarhug hans til íslenzku þjóðarinnar. A þessari stundu hugsum við öll hlýtt til þjóðar hans og ætt- jarðar og ekki þó sízt til ekkju hans og ástvina allra og biðjum þeim öllum blessunar.“ , ★ Rúmlega tvítug frönsk stúlka réð sér bana í sl. viku með því að stökkva ofan af Sigurbcganum í París, en hann er tæpl. 50 m. á hæð. Ferró" opnar sýníngu í nýjum sýnsngarskála í París. Fyrsta daginn komu 1500 gestir. Þori'i liðinn — Góa byrjuð. S.l. laugardag \'ar Þorraþræll og í gær konudagur Góa er geng- in í garð. Vanalega er „frost á Fróni“ á Þorranum, oft snjóar mikið og hríðarveður geisa. Ekki verður sagt að vetrarhörkur hafi verið á Þorranum að þessu sinni miklu frekar veðursæld og snjó- létt lengst af, en þó norðanátt og allmikið frost seinustu vikuna. „Þurr skyldi Þorri“ stendur í vís- unni gömlu. Skyldi nú Góa verða þeysöm (þíðviðrasöm) eins og j segir í næsta visu orði? Og verði Einmánuður svo votur átti vel að vora, samkvæmt niðurlagi henn- ar. En sjaldan viðrar svo sem í vísunni gömlu segir, og viss- ara að búast við vorhreti eða vor- hretum. En með komu Góu dró úr frosti hér sunnanlands a. m. k. og fór að snjóa, en rétt fyrir komu hennar var alauð jörð, jafnvel um miðbik landsins, á há- lendinu inni á milli jöklanna, var að kalla snjólaust fyrir nokkru, og víst þarf engan að undra, þótt Góa sveipi allt landið hvítum feldi. En meðal annarra orða, i dag er Pétursmessa og tungl lægst á lofti og á morgiui tungl næst jörðu. Hlaupársdagur er á fimmtudag í þessari viku og nýtt tungl á föstudag (Góutungl- ið). I. Langafasta. | Næstkomandi .sunnudag, er vika er af Góu, hefst langafasta, sjö vikna fasta. — Næstkomandi mánudag 29., febrúar (það er hlaupár i ár sem fyrr var getið) er svonefndur Bollndagxir og munu þær venjur, sem löngu eru komnar á hér í bæjum og kaup- stöðum a. m. k. um ,,flengingar“, bollugjafir og bolluát, hingað komnar frá Danmörku, en þriðju dagur næstkomandi er þjóðlegri — hann er Hvíti Týsdagur og þann dag sprengikvöld, og mið- vikudag í næstu viku er Ösku- dagrir og frídagur i skólum. Fyrirspurn. I Það hefur verið óskað eftir að svarað væri fyrirspui'n um það í Bergmáli hvort ungverskir flótta- menn, sem hér haía fengið hæli og setzt hér að séu undanþegnir því að greiða útsvör og tekju- skatt Tilefnið er upplýsingar í viðtali í blaði, við ungversk mæðgin, sem gátu keypt sér íbúð fyrir 185 þúsund kr. og greitt í henni 145 þúsnnd krónur á 3 ár- um. Þótti fyrirspyrjanda slíkt furðulegt, þótt fólkið segist hafa lifað mjög spart -ema það væri undanþegið tci.juskatti og út- svari. ( Bergmál lofaði að geta fyrir- spurnarinnar, en benti fyrir- spyrjandanmn annars á, að rétt- ara hefði verið af honum,aðsnúa sér til blaðs þess, sem viðtalið I birti, og óska þar nánari upplýs- inga, en samkvæmt þeim uppl., sem Bergmál hefur, eru lagðir skattar og útsvör á Ungverjanna eins og aðra. Nýr myndlistarskáli var opn- aður í París, 12. þ. m., og fyrsti listamaðurinn, sem boðið var að halda þar sýningu, var ís- lenzki listmáíárinn Guðmund- ur Guðmundsson FERRÓ. Hann sýnir þar 28 málvwk, öll rnáluð á s.1, ári, og 35 teikningar. Sýningarsalúr þessi nefnist jGalerie Chirvan Albert Achdij- jan. Stofandinn, Albert Achdij- an, sem einnig hefir stofnað verðlaunasjóð, er við hann er kenndur, er upprunninn í Ar- meníu, en. borgari í Líbanon. Hann koxn fyrst . til Parísar j 1922. Áxið .1947 stofnaði hanu 1 Armensfca.'safnið í Paris til. að kynna list föðurlands síns þar, en einkum hefir hann látið sig skipta vefnaðarlist austurlenzka og annarra þjóða. ! Sýning Ferrós í þessum nýja sýningarsal í París hefir verið mjög vel sótt, og komu meira j en 1500 'manns daginn sem ppn- að var. Sýmingin stendur til 1. marz. Eerró hefir í hyggju a3 haida sýningu í Reykjavík í vor.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.