Vísir - 31.03.1960, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 31. marz 1960
Vf SIR
TILKYNNING
um soluskatt af innlendum viðskiptum
samkvæmt lögum nr. 10, 22. marz 1960
I. Frá 1. apríl 1960 skal greiða 2% sölu-
skatt af andvirði seldrar vöru og verðmæta
og endurgjaldi fyrir hverskonar starfsemi
og þjónustu. Til skattskyldra viðskipta
telst öll sala eða afhending vöru, þar með
talin sala pöntunarfélaga, umboðssala,
sala við frjáls uppboð, svo og öil vinna og
þjónusta, sem látin er í té af iðnaðar- og
þjónustufyrirtækjum, einstaklingum eða
stofnunum, er stunda hverskonar sjálf-
stæða starfsemi. Einnig er skattskyld út-
tekt eiganda úr eigin fyrirtæki, jafnt vara,
vinna og þjónusta.
II. Söluskattskyldir eru allir þeir, sem ann-
ast söluskattskyld:yiðskipti og skiptir ekki
máli í því sambandi hvort hlutaðeigandi
er einstaklingur, firma eða félag, opinber
stofnun, fyrirtæki ríkis eða sveitarfélags,
eða aðrir aðilar, þótt undanþegnir séu
skattskyldu samkv. lögum nr. 46/1954 um
tekjuskatt og eignarskatt eða öðrum lög-
um. Einnig eru umboðsmenn og fyrirsvars-
menn erlendra aðila, sem hafa söluskatt-
skylda starfsemi hér á landi, skattskyldir
af slíkri starfsemi.
III. Skattskylda er almennt bundin við síðasta
stig- viðskipta. Það er því aðalregla að sala
til neytanda er skattskyld, sala til endur-
seljanda skattfrjáls. Neytandi telst sá,
sem kaupir vöru, vinnu eða þjónustu til
eigin nota eða neyzlu, endurseljandi sá.
sem kaupir vöru eða vinnu til að selja
aftur eða notar vöruna sem efni í vöru,
sem framleidd er í atvinnuskyni. Þetta
gildir þó ekki um óvaranlegar rekstrar-
vörur og hjálparefni til framleiðslustarf-
semi, sem ekki mynda efnisþátt fram-
leiðslunnar, og skal endurseljandi greiðr
söluskatt af kaupverði slíkra vara.
IV. Því aðeins er heimilt að selja endurselj-
anda vöru, vinnu eða þjónustu án sölu-
skatts að hann hafi tilkynnt skattyfir-
völdum um starfsemi sína og sýni skírteini
er sanni að hann hafi heimiid til að kaupa
viðkomandi vöru án söluskatts sem endur-
seljandi.
Eyðublöð þessi ásamt leiðbeiningum fást
hjá skattstofum og skattanefndum. Skulu
allir söluskattskyldir aðilar, í síðasta lagi
1. maí n.k., hafa tilkynnt skattyfirvöldum
um atvinnurekstur sinn eða starfsemi eftir
því sem fyrir er mælt og fengið viður-
kenningu fyrir móttöku tilkynningar. —
Gildir sú viðurkenning sem bráðabirgða
heimild til kaupa á vöru án söluskatts. Þeir
sem hefja starfsemi eftir að lögin öðlast
gildi skulu tilkynna það áður en starfsemi
hefst. Ef söluskattskyldur aðili hættir starf-
semi þeirri, sem tilkynnt hefur verið, fell-
ur umrædd heimild úr gildi, og skal til-
kynnt um það til skattyfirvalda.
V. Eftirfarandi sérákvæði gilda um innheimtu
söluskatts af neðantalinni starfsemi og við-
skiptum:
a. Seljendur skulu taka söluskatt af verði
allrar vöru og þjónustu, sem seld er í
smásölu og skiptir þá ekki máli, hvort
um er að ræða sölu til neytenda eða
endurseljanda, þó skal ekki innheimta
söluskatt af sölu á timbri, trjávörum,
steypustyrktarjárni og sementi til end-
urseljenda.
b. Söluskattur af aðgangseyri að skemmt-
unum skal innheimta með skemmtana-
skatti.
c. Af vörum þeim, sem Tóbakseinkasala
ríkisins selur, greiða þeir aðilar, sem
hafa með höndum smásölu slíkra vara,
einkasölunni söluskatt af þeim vörum
um leið og þeir greiða kaupverð var-
anna og er skatturinn miðaður við smá-
söluverð.
d. Innflytjendur olíu og benzíns skulu taka
söluskatt við sölu eða afhendingu þess-
ara vara til umboðsmanna sinna eða
annarra aðila. Skatturinn miðast við
smásöluverð.
Smásalar og umboðssalar sem að
kveldi hins 31. marz 1960 eiga óseldar
slíkar vörur skulu innheimta söluskatt
af söluverði þeirra og standa skil á
honum í ríkissjóð.
VI. Skatturinn miðast við heildarandvirði eða
heildárendurgjald vöru, vinnu eða þjón-
ustu, án frádráttar nokkurs kostnaðar.
Verð vöru, vinnu og þjónustu má hækka
sem söluskatti nemur,
Vanræki einhver að taka söluskatt af
skattskyldum viðskiptum, ber honum eigi
að síður að standa skil á skattinum.
VII. Undanþegin söluskatti er sala eftirtalinna
vara og verðmæta:
Vörur seldar úr land, nýmjólk, nema í
veitingasölu, fiskumbúðir og kjötpokar,
fiskinet, fiskilínur, önglar og öngultaumar,
(þó ekki sporttæki), salt, annað en í smá-
söluumbúðum, beitusíld, tilbúinn áburður,
annar en í smásöluumbúðum, grasfræ,
fóðurvörur, flugvélaeldsneyti, innlend
dagblöð og hliðstæð blöð, svo og tímarit,
sem ekki eru gefin út í ágóðaskyni. Enn-
fremur fasteignir, skip, flugvélar og flug-
vélavarahlutar, einnig lausafé, sem seljandi
hefur notað í eigin þágu eða við starfsemi
sína, enda geti salan ekki talist til atvinnu-
rekstrar. Ekki skal skattlögð heimilis-
notkun framleiðenda landbúnaðar og
sjávarafurða á eigin framleiðsluvörum.
VIII. Undanþegin söluskatti er eftirtalin starf-
semi og þjónusta:
a. Vinna við húsbyggingar og aðra mann-
virkjagerð eða við endurbætur og við-
hald slíkra eigna. Undanþágan tekur þó
einvörðungu til þeirra vinnu, sem unnin
er á byggingarstað, en ekki til vinnu
við framleiðslu eða aðvinnslu bygginga-
vara í verksmiðju, verkstæði eða starfs-
stöð.
b. Vinna við skipa- og flugvélaviðgerðir,
vöruflutningar, ennfremur fólksflutn-
ingar almennra leigubifreiða á stöð.
c. Húsaleiga, þó ekki leiga gistihúsa og
samkomuhúsa, útfararþjónusta, rekstur
sjúkrahúsa, fæðingarstofnana, heilsu-
hæla og annarra þvílíkra stofnana, sala
fasteigna, skipa, flugvéla, verðbréfa og
annarra þvilíkra verðmæta. Ennfremur
lækningar, lögfræðistörf og önnur hlið-
stæð þjónusta, sala listamanna á eigin
verkum, sala neyzluvatns, póst- og síma-
þjónusta, svo og þjónusta banka og
sparisjóða.
IX. Allir söluskattskyldir aðilar skulu senda
hlutaðeigandi skattyfirvaldi skýrslu um
heildarveltu sína hvern ársfjórðung á þar
til gerðum eyðublöðum, ásamt upplýsing-
um einkaúttekt, skattfrjálsa sölu og annað
er máli skiptir við ákvörðun skattsins.
Söluskattskýrsla skal hafa borizt skatt-
yfirvöldum í síðasta lagi innan 15 daga frá
lokum h\{ers ársfjórðungs.
X. Söluskatt skal greiða til innheimtumanns
ríkissjóðs í siðasta lagi fyrir lok framtals-
fiæsts hvers ársfjórðungs.
Hafi einhver, sem greiða skal söluskatt,
eigi skilað honum til innheimtumanns rík-
issjóðs innan mánaðar frá gjalddaga, skal
hann greiða 1V2 % í dráttarvexti fyrir
hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga.
Verði vanskil á greiðslu skattsins, má
innheimtumaður láta lögreglustjóra stöðva
atvinnurekstur þess, sem eigi hefur staðið
i skilum, þar til full skil eru gerð, með því
m.a. að setja verkstofur, skrifstofur, út-
sölur, tæki og vörur undir innsigli.
Hér eru aðeins rakin höfuðatriði hinna
nýju söluskattslaga og því nauðsynlegt að
allir söluskattskyldir aðilar kynni sér sem
bezt lögin í heild, og söluskattsreglugerð
sem birt verður.
Reykjavík, 30. marz 1960.
Skattstjórinn í Mietjkjjavík