Vísir - 01.04.1960, Page 7
Föstudaginn 1. apríl 1960 .
VÍSIR
Minningarorð: ...
*'
Karl O. Bjarnason,
f. varaslökkviiiðsstjóri.
Á björtum vordegi bar hann
að garði; þá sá ég hann í.fyrsta
sinn. Þau systir mín og hann,
sem þá voru trúlofuð, komu
í sveitina sunnan úr Reykjavík
í heimsókn til okkar að Hvítár-
bakka. Mér er í barnsminni
bjartur svipurinn, vingjarnlegt
viðmót. Auk þess fylgdi hon-
um eitthvað notalega framand-
legt, líkast ilmi annarlegra
skóga, fágun fjölbýlisins. Mér
var innanbrjósts sem hefði ég
allt í einu eignast eldri bróður,
sem ég var í senn bæði stoltur
af og þó feiminn við.
Seinna átti ég eftir að kynn-
ast honum betur_ Fyrsta vetur
minn í skóla var ég daglegur
gestur við borð þeirra hjóna,
systur minnar og hans. Glaður
í bragði, gamansamur í orði
gerði hann mér dulum sveita-
drengnum lundina létta. Á
Laugavegi 37 var gott að vera
gestur.
Og árin liðu. En á stúdents-
árum mínum var ekki nema
steinsnar milli Útgarðs og
Karlsskála og yfir gras að
ganga og gróinn völl. Og stund
um var litið inn á Slökkvistöð-
ina og voru þá jafnan orðræð-
ur uppi, skipzt á skoðunum,
slegið lir og í. Þótt eitt væri
ævistarfið, voru áhugamálin
mörg. Eg varð þess var, hversu
vel hann rækti starf sitt, hver
tiltrú honum var sýnd, hversu
fær hann var talinn til flestra
hluta, þeirra er hugkvæmni og
handlagni þarf til.
Tímar liðu fram, og tækifær-
um til samfunda fækkaði, er ég
fluttist á önnur landshorn. En
jafnan þá er ég þurfti, brást
hann sem bróðir við. Dreng-
skapur var honum í blóð bor-
inn. Mér er þökk í hug fyrir
stuðning hans allan, þótt stund-
um kæmi fyrir ekki. Það var
ekki hans sök. — Jafnan heyrði
ég af honum látið sem liðs-
manni hinum bezta á sínu sviði,
viðbragsfljótum og ótrauðum
til vasklegrar framgöngu í bar-
áttunni við bruna og eld, enda
löngum fyrírliði í sveit dáð-
rakkra drengja.
En fyrr en várir líður að lok-
um. Æska og .morgunroði lífs-
ins eru hverfui og hádegissól er
í skammdegi skjót að hníga til
viðar. Margt verður þeim að
meini, sem meta skvlduna mest,
þótt yfirvofandi hætta sé fyrir
hendi. Við skyldustarf sitt
komst hann í þá karlmennsku-
raun, sem rekja mátti mein
hans til. Viðnámsþrótturinn
þvarr unz yfir. lauk.
Yfir minningu Karls Bjarna-
sonar skín arbjarmi æsku-
kyima og um hana leikur aft-
anroði athafnadags, sem nú er
að kvöldi liðinn.
En upprís á eilífðarmorgni sú
hin bjarta sól, sem alla kveður
á ný til þjónust-u, þá er lífinu
unnu, starf sitt stunduðu og
féllu í valinn vaskir menn og
batnandi.
Þorgr. V. Sigurðsson
Staðastað.
Aðalfundur
F. í. S.
Aðalfundur Fél. ísl. sínia-
manna, var haldinn dagana 28.
jan. og 17. marz s.l.
Milli fundanna fó.r fram kosn
ing félagsstjórnar og annarra
trúnaðarmanna.
Framkvæmdastjórn félagsins
skipa nú: Andrés Þormar, for-
maður, Agnar Stefánsson, vara
form., Sæmundur Símonarson,
gjaldkeri og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, ritari.
| Fél. ísl. símamanna átti 45
ára afmæli 27. febr. s.l. Hefur
félagið gefið út blað, Símablað-
ið, frá byrjun. Félagsmenn eru
hátt á sjötta hundrað.
Starfsemi félagsins hefur
verið margþætt undanfarið.
Það starfrækir þrjá sumarbú-
Jstaði, öflugan lánasjóð, styrkt-
arsjóð og pöntunarfélag, einnig
byggingarsamvinnufélag' sem
byggt hefur um 140 íbúðir, þá
rekur félagið mötuneyti í lands
símahúsinu í Reykjavík.
Á aðalfundinum, sem var
hinn fjölmennasti í sögu félags-
ins, var. samþykkt að stofna
sjóð til styrktar félagsmönnum
í vinnudeilum. En samtök opin-
berra starfsmanna, vinna nú
að því að fá úr gildi numin lög,
um bann við verkfalli opin-
berra starfsmanna.
Breytt fyrirkomulag á
innheimtu símans.
Di’eifist nieira en áður hefír verið.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá breyttist innheimtufyrir-
komulag símaafnotagjaldanna i
Reykjavík 1. apríl næstkom-
andi, þannig að notendur með
símanúmerin 10000 til 16499
greiða fullt ársfjórðungsgjald í
apríl, en þeir sem hafa númer-
in 16500 til 24999 greiða eins |
mánaðar afnotagjald í apríl, en
venjulegt ársfjórðungsgjald í
maí og síðan á ársfjórðungs:
fresti. Þeir, sem hafa símanúm-
erin 32000 til 36499 greiða
tveggja mánaða afnotagjald í
apríl, en venjulegt ársfjórð-
ungsgjald i júní, og síðan á árs-!
fjórðungs fresti. Frá 1. apríl
verða símanotendur í Reykja-
vík ekki krafðir mánaðarlega
um greiðslur fyrir símskeyti og
símtöl á meðan upphæðin er j
undir 100 krónum, heldur með
ársf j órðungsreikningi.
Athygli simanotenda við
sjálfvirkm stöðvarnar skal vak-.
in á eftirfarandi:
1. Aprílreikningi fylgir.
réikningur fyrir umframsímtöl,!
sem töluð voru á tímabilinu,
desember, janúar, febrúar og
reiknast á 55 aura hvert samtal,
en umframsímtöl, sem eru töl-
uð 1. marz og síðar, kosta 70
aura.
2. Lækkun símtalafjöldans,
sem er fólginn í fastagjaldinu,
niður í 600 símtöl á ársfjórð-
ungi, kemur fyrst til fram-
kvæmda á símtölum, sem eru
töluð eftir 30. júní.
3. Vegna hins sérstaka fyrir-
komulags á símasambandinu
mili Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur, verður símtalafjöldinn,
sem fólginn er í fastagjaldinu í
Hafnarfirði, reiknaður sem
svarar 850 símtölum á ársfjórð-
ungi fyrir þa.u símtöl, sem töluð
eru á tímabilinu 1. marz til 30.
júní á þessu ári, en lækkar 1.
júlí ofan í 600 símtöl á ársfjórð-
ungi, samtímis því að gjaldið
fyrir símtöiin milli Hafnar-
fjarðar og Reykjayíkur verður
reiknað eftir tíhialéngd niður í
eina mínútu.’Þar , sem helming-
ur símtala frá heimilissimum
i Hafnarfirði: til Reykjavikur
hefir reynst vara skemur en 1
AðaSf. félags ísl.
stórkaupmanna.
Félag íslenzkra stórkaup-
manna hélt nýlega aðalfund
sinn. Formaður félagsins, Krist
án G. Gíslason stórkaupmaður
skýrði frá starfsemi félagsins á
undanförnu ári, og sagði m. a.
frá áformum um húsbyggingu
við austurhluta hafnarinnar,
þar sem félagsmönnum mun
gcfast kostur að fá skrifstofu-
og vörugeymsluhúsnæði.
Formaður minntist og á að-
gerðir stjórnarinnar í efnahags-
málum, og sagði það álit sitt
að hlutur verzlunarstéttarinn-
ar væri þar langsamlega
þyngstur. Þá var því og fagn-
að, að nýlega hefur tekizt að
ná merkilegum áfanga í því að
gera Verzlunarsparisjóðinn,
óskabarn stéttarinnar að Verzl-
unarbanka með gjaldeyrisrétt-
indum.
Lagðir voru fram reikningar
félagsins, svo og hinna ýmsu
sjóða þess. Hina nýkjörnu
stjórn félagsins skipa þeir
Kristján G. Gíslason, marmað-
ur Sveinn Björnsson, Vilhjáhn-
ur H. Vilhjálmsson, Friðrik Sig
urbjörnsson og Hilmar Fenger.
í stjórn Verzlunarráðsins
voru kjörnir Kristján G. Gísla-
son, Egill Guttormsson, Eggert
Kristjánsson og Hilmar Fenger.
mínútu, en meðaltimi símtal-
anan um 2 minútur, felur hið
nýja fyrirkomulag í sér tals-
verða gjaldalækkun. Samskon-
ar fyrirkomulag verður þá einn-
ig tekið upp á sjálfvirku síma-
sambandi milli Hafnarfjarðar
^og Keflavíkur.
| Reykjávík 29. márz 1960.
,,í Iistflugi“, segir majór Liardon, frá Sviss ,,er hárnákvæm
tímátaka bráðnauðsynleg“.
Höggþétt og hristingsþétt 100% þrýstingsprófað. Hugvits-
samlegur kassi verndaður með fjórum einkaleyfum,
17 steinar. f
Til sölu
hjá fremstu ')
úraverzlunum í
um heim allan.
Rætt um fiskeftirlit.
Futidur í báðum deilduim
Alþingis í gær.
f efri deild var í gær á dág-Veðurfarsathuganir sýna, að
skrá frv. um fiskeflirlit, samið hér fer hlýnandi. Verður því að
að tilhlutan sjávarútvegsmála- álykta, að kornrækt fari vax-
ráðuneytisins. jandi, ef fjárhagsaðstoð fæst fra
Sjávarútvegsmálaráðh. Emil hinu opinbei’a.
Jónsson gerði grein fyrir mál-1 Nýtízku vélar kosta 200—
inu í stuttri ræðu. Hann kvað 500 þús. kr. og naujfeynlegt að
meðferð og vinnslu íslenzka
fiskjarins vera í mjög mörgu
ábótavant og tjón íslendingá
af þeim sökum gífurlegt. Væri
óhjákvæmilegt að herða á eftir-
liti og taka upp strangara mat
á íslenzkum fiski.
T. d. yrði að taka upp flokk-
um og gæðamat, og greiða fyrir
i fiskinn eftir því. Fram til þessa
jhefir verið greitt fyrir fiskinn
án tillits til gæða, sama verð
fyrir allan fisk, og væru sjó-
menn og útgerðarmenn ekki
nægjlega vandvirkir og sam-
vizkusamir fyrir bragðið. Nú
á að gera tilraun til að bæta úr
þessu ófremdarástandi.
Frv. var samþykkt til 2. umr.
og sjávarútvegsmáalnefndar.
Þá var á dagskrá Efri deildar
frv. um framlag og aðstoð vegna
kornræktar.
Bjartmar Guðmundsson (S.)
hafði framsögu fyrir hönd land-
búnaðarnefndar. Hann kvað m.
a. svo að orði:
Alitið er að kornrækt hafi
verið mikil hérlendis fyrr á
tímum. En smám saman leggst
hún niður vegna kólnandi lofts-
lags. Tilraunir Sveins á Egils-
stöðum og Klemenzar á Sáms-
stöðum sýna, að mögulegt er að
fá uppskeru, sem er hlutfallsl.
engu lakari en t. d. í Noregi.
ríkið styðji að kaupum.
Landbúnaðarnefnd leggur til
að frv. verði samþykkt.
Neðri deild.
Fundur var stuttur í Neðri
deild.
Til umræðu voru breytingar
á ábúðarlögum. Ekki er um að
ræða breytingar í grundvallar-
atriðum, en vegna breyttra bú*
skaparhátta.
Jt
skipaVtgcrð
RIKISINS
Skjaldbreið
vestur um land til Akur-
eyrar hinn 7. þ.m.
Tekið á móti flutningi í
dag og árdegis á morgun tii
Tálknafjarðar,
áætlunarhafna við
Húnaflóa og
Skagafjörð — og til
Ólafsfjarðar.
Farseðlar seldir á mið-
vikudag. ,