Vísir


Vísir - 25.04.1960, Qupperneq 6

Vísir - 25.04.1960, Qupperneq 6
6 V í S I R Mánudaginn 25. apríl 1960 TÍ8IK D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Freysteinn Þorbergsson skák- meistarí ísiands 1960. * Ingvar Asmundsson vann hraðskákkeppnina. Nýskipan faatgeisismála. Sakadómarinn í Reykjavík, Valdimar Stefánsson, mun vera nýfarinn utan á vegum dómsmálaráðuneytisins í því skyni að kynna sér skipan og rekstur fangelsa á Norður- J löndum, en síðar mun hann J svo undirbúa tillögur og leggja fram áætlun um fram- tíðarskipan þessara mála á íslandi. Mun för sakadómara heitið til Danmerkur og Sví- þjóðar, en fróðir menn telja, að þar séu fangelsismál í hvað beztu horfi í nálægum löndum. Er ekki nema gott eitt um þessa fyrirætlan að segja, og má vænta þess, að hlutaðeigandi embættismað- ur, sem er hinn færasti í starfi, eins og alkunna er, leggi á sínum tíma fram merkar tillögur um þessi mál. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að brýn þörf er á því, að koma fangelsismálum okkar i sæmiletg horf. Að vísu er mjög ánægjulegt að geta skírskotað til þess, að alvarlegir glæpir, svo sem hrottalegar líkamsárásir og' morð, séu fátíðir á landi hér, og þess vegna sé ekki jafn- mikil þörf á fangelsisbákn- um hér eins og víða annars staðar. En þó er það svo, að aðstaða hins opinbera til geymslu á föngum er löngu orðin svo slæm, að til skamm- ar má teljast. Þó verður ekki sagt, að við neinn sérstakan aðila sé að sakast, þessi mál hafa miklu fremur verið lát- in sitja á hakanum. Fé úr ríkissjóði hefir fremur verið veitt til annarra og hugstæð- ari bygginga en fangelsa. Nú er hins vegar svo komið, að þessi mál þola enga bið, og hefir oftar en einu sinni ver- ið að því vikið hér í blaðinu. Á síðustu fjárlögum var tek- in upp fjárveiting til þess að undirbúa nýskipan fangels- ismála á landi hér, og má því ætla, að nokkur skriður sé kominn á þessi mál. \ð frátöldum „kjallara" lög- reg'lunnar í Reykjavík og nokkrum ölvunarbyrgjum úti á landi, eru ekki aðrar fangageymslur hérlendis en fangahúsið á Skólavörðu- stíg 9 í Reykjavík, og svo ríkisfangelsið Litla-Hraun. Fangahúsið við Skólavörðu- stíg er löngu orðið úrelt, enda um 90 ár síðan það var reist. Má raunar segja, að langt sé síðan það hætti að vera mannhelt, hafi það nokkurn tíma verið. það, en flestum mun virðast, að gera þá frumkröfu til fangelsis, að það sé mannhelt. Senni- lega má þó notast við það enn um hríð til þess að geyma menn dag og dag eða í stuttu varðhaldi, en til ann- arrar fangageymslu er það ónothæft. í gær var tefld síðasta bið- skákin á Skákþingi Islendinga, milli Freysteins Þorbergssonar og Jónasar Þorvaldssonar, sem lauk með sigri Freystcins, gaf honum 6V2 vinning og v'arð Annar í landsliði varð Guð- mundur Pálmason með 6 v., þá Gunnar Gunnarsson, Kári Sól- hann þar með skákmeistari Is- lands 1960. mundarson og Guðmundur Lár usson með 5 hver, Ólafur Magn ússon og Ingvar Ásmundsson með 41/2 hvor, Páll G. Jónsson 4, Jónas Þorvaldsson, Halldór |Jónsson og Bragi Þorbergsson með 3V2 hver, Haukur Sveins- j son iy2 og Jón Kristjánsson V2. I í meistaraflokki urðu efstir Magnús Sólmundarson og Eldur í Flschersundl. Refsivist á íslandi. Það er mál manna, að refsivist á Islandi sé miklum mun mildari og léttbærari en frelsisskerðing víða annars staðar, og er það í sjálfu sér ánægjulegt. Hugmyndir nú- tímamanna, að minsta kosti hér á landi, úm refsingar og ! fangelsi, hafa mjög mildast og breytzt hina síðustu ára- tugi. Er það í samræmi við almenna þróun í mannúðar- átt. Hitt er svo aftur annað mál, að á Litla-Hrauni hafa oft gerzt þeir hlutir, sem óverjandi eru. Þar hafa fangar hvað eftir annað sýnt slíkan yfir- gang og rosfa, að engu lagi er líkt, og á stundum hafa fangaverðir verið komnir í hálfgerða úlfakreppu vegna manna þeirra, sem þeir eiga að gæta. Má og vel vera, að erfitt sé eða jafnvel ógerlegt að halda uppi þeim aga og þeirri reglu á Litla-Hrauni, sem nauðsynleg verður að teljast i fangelsi. Hvað sem hugmyndum manna um mannúðlega meðferð líður, getur fangelsi aldrei orðið sumarhótel, hversu umburð- arlyndir, sem menn vilja annars vera. Litla-Hraun var upphaflega ekki byggt sem fangelsi, og því er þar margt ögruvísi en vera ætti. Fangelsisbygging- ar lúta að sjálfsögðu allt öðr- um lögmálum en önnur íveruhús, þar hlýtur örygg- issjónarmiðið að skipta miklu, og fyrirkomulag yfir- leitt. Vafasamt er, hvort tekst að breyta Litla-Hrauni svo, að þar sé unnt að geyma langvistarfanga. Líklegra er, að reisa þurfi nýtt fangelsi hins íslenzka ríkis, þar sem tekið væri tillit til þess nýj- asta og hagkvæmasta, sem nú þekkist í fangelsismálum erlendis, sniðið eftir íslenzk- um staðháttum. Þá er enginn vafi á þvi, að fangárými hérlendis er allt of lítið, enda er haft fyrir gæða sér á. satt, að fyrir komi, að dæmd- ir refsivistarfangar verði að bíða vikum eða mánuðum saman eftir að fá að „komast að“ til að afplána refsingu. Á þessu verður að ráða bót, og því er þess að vænta, að utanför sakadómara, sem vikið var að í upphafi þessa máls, beri þann árangur, sem landsstjórnarmenn og allur almenningur ætlast til. Sveinn Kristinsson voru með 51/2 vinning hvor, og flytjast þeir nú í landsiið. Þriðji varð Guðni Þórðarson með 5 v., Sverrir Norðfjörð 4. með 4V2 og Þorsteinn Skúlason 5. með 41/2 vinning. Hraðskákkeppnina vann Ingvar Ásmundsson með 14 vinninga, Magnús Sólmundar- son annar með 13 V2, Haukur Sveinsson 13, Björn Þorsteinss. 12V2 og Sveinn Kristinsson 11 vinninga. >* Isiand vann Svíss í brldge. Nú hafa verið spilaðar tvær umferðir á Olympíubridgemót- inu í Torino á Ítalíu. Eiríkur Baldvinsson, farar- stjóri íslenzku sveitarinnar, sendi Vísi skeyti að sunnan og segir þar, að Bretar hafi sigrað íslendinga í fyrstu umferð með 49 stigum gegn 34, en önnur úrslit í riðlinum voru: Banda- ríkin sigruðu Filippseyjar, Finn land Austurríki, Sviss Brazilíu og Arabiska sambandslýðveld- ið sigraði Kanada. í annarri umferð sigraði ís- land Sviss með 63 st. gegn 25, en önnur úrslit voru þessi: Bandaríkin unnu Austurríki, Kanada Filippseyjar og Bret- land sigraði Arabiska sam- bandslýðveldið, en jafntefli varð hjá Brazilíu og Finnlandi. Um það bil sem fréttamaður- inn ætlaði að spyrja varðstjór- ann á slökkvistöðinni, kom kall og varðstjóri var rokinn með það sama. Hann hringdi svo litlu seinna og sagði hvað valdið hefði. Eld- ur í baksætinu. Það var ekki mikið, smáreykur. Leigubif- reið, Orsökin virtist liggja í aug'- um uppi. Sígaretta úr ösku- bakka hafði fallið logandi í sæt- ið og .. . Annars bar lítið til tíðinda hjá slökkviliðinu þessa helgina. Eitt útkall í gær. Kviknað hafði í gömlu timburhúsi í Fischer- I sundi 3. Það var einlyft hús á kjallara og hafði kviknað í hæðinni og eldurinn færst upp í risið. Fljótlega tókst að slökkva, en skemmdir urðu , talsverðar. Til allrar hamingju var hæð- , in auð, en í kjailara geymdar Silla og Valda vörur, sem eld- ' inum tókst ekki að ná til og Vísitalan er 104 st. Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslu- kostnaðar í byrjun apríl 1980 og reyndist hún vera 104 stig eða 3 stigum hærri en hún var í marzbyrjun 1960. Verðhækkanir síðan 1. marz 1960 af völdum gengis- breytingar og vegna hins nýja söluskatts námu 6.6 vísitölum, en þar á móti kom 2.8 stiga vísitölulækkun vegna hækkunar fjölskyldu- bóta frá 1. apríl 1960. Lækk- un vísitölunnar af þessum sökum verður alls 8,5 stig, og hefur bví nú vcrið tekinn inn í vísitöluna þriðjungur þeirrar lækkunar. Hagstofa íslands 22. apríl 1960. „Það var mjög auðvelt“, sagði Ronald Colman Male verkstjóri í London, í gjald- þrotarétti. Hann fékk 6 lán til kaupa á bíl — í þremur útibúum Westminster-bank- ans og þremur útibúum Mid land-bankans. Peningarnir fóru ekki allir í bílakaupin, — mest fór „í bjór og kven- fólk.“ Úgerningur... Frh. af 1. síSu. ríkið var andvígt bræðingnum í nefnd, en hitt sat hjá. Jafn- framt leiðir af auknu fylgi við bræðningum minnkandi fylgi við tillögu íslands, þ. e. að allir sem studdu tillögu ís- lands í nefnd geri það ekki nú. Horfir því dapurlega um sam- , þykkt hennar, en vel er hugs- anlegt að tillaga Suður-Ame- ríkuríkjanna fáist samþykkt, en hún er breytingartillaga við bræðinginn. Munurinn á henni j og íslandstillögunni er í höfuð- ! atriðum aðeins sá, að í tillögu íslands er krafist forréttincla I strandríkis þegar, sem síðan |komi til dómsgjörðar seinna, en samkv. Suður-Ameríkutill. gangi dómsgjörð áður en for- réttindi ná fram að ganga svo að um töf yrði að ræða. I öðru lagi er hún á breiðara grundvelli, tekur til fleiri ríkja en íslandstiilagan. Nauðsyn á sérréttindum, sem um ræðir í tillögunni, verður að vera við- urkennd af sérstakri nefnd, stofnaðri með fiskverndarsamn ingnum í Genf 1958. Fiskveiðar verða að vera höfuðnauðsyn og grundvallar- skilyrði til efnahagslegrar þró- unar strandríkis og til að brauð fæða þjóð þess. Sérréttind.in verði aðeins leyfð þegar tak- marka verður heildarafla. Ef tillagan verður samþykkt verð- ur hún til hagsbóta fyrir ísland, en hætt er v.ið að þjóðir, sem krefjist sérréttinda bægi öðrum burt af víðlendum fiskimiðum. Einnig er talið, að tillaga Eþíópíu um tæknilega aðstoð hafi möguleika til samþykktar, en Ghana mun hafa tekið sina tillögu aftur, og því koma að^ eins sjö tillögur til atkvæða- greiðslu. Ólíklegt er talið, að aðrar tillögur nái samþykkt. Ekki er kunnusrt um hversu víðtækt er fylsri ís- lenzku bre.ytingartillögunn- ar. sem fram var borin á föstudaginn. cn ef samþykkt yrði myncli hún verða til þess. að margar Vestur-Evr- ópuþjóðir myndu afturkalla fylgi sitt við bræðinginn, sem myndi þá falla. Endurframlagning bræðings- tillögimnar nær óbreyttrar veldur, að hún kemur til at- kvæðagreiðslu á eftir 10-velda tillögunni, en vitað er að mikið þras verðu'- ir ' ídarsköp og í hvaða röð skuii bera upp til- lögur. Úrslitavaldið í bví efri hefur ráðstefnan sjálf. fslenzka breytingartillagan verður vænt. anlega borin undir atkv. fyrst. Blóðsegavarnirnar. Til þess að fyrirbyggja mis- skilning vil eg taka fram að segavörnum er að sjálfsögðu beitt við sjúklinga á Bæjarspít- ala Reykjavíkur og á ýmsum sjúkrahúsum úti á landsbyggð- inni, en í viðtali okkar Theo- dórs Skúlasonar læknis við fréttamenn blaða og útvarps þ. 12. þ. m. var eingöngu rætt um framhaldsmeðferð fólks með kransæðasjúkdóma eða blóðsega í útlimaæðum. Sig. Samúelsson, læknir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.