Vísir - 25.04.1960, Qupperneq 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
H’ÍSIK.
Mánudaginn 25. apríl 1960
Munið, að heir sem gerast áskrífendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
4. bóSusetning
ráöleg.
Landlæknir hefir látið eftir-
farandi bréf frá sér l'ara til
Jiéraðslækna og alls almenn-
ings:
Eg vil eigi láta hjá líða að
vekja athygli héraðslækna á
því, að enn er ekki fengin vissa
um, hve lengi ónæmi helzt eftir
mænusóttarbólusetningu, þó að
bólusett hafi verið þrisvar, eins
og gert hefur verið ráð fyrir.
Vegna þessa er víða talið ráð-
legt að bæta við fjórðu bólu-
setningunni, einu eða fáum ár-
um eftir hina þriðju.
Þar sem nú eru senn liðin 4
ár frá því að bólusetning þessi
var hafin hér á landi, þykir
rétt, að athugað sé um endur-
bólusetningu að minnsta kosti
á ölium þeim, sem fyrst voruj
bólusettir.
Rétt þykir og að benda á, að
nú er eingöngu bólusett undir
húð (subcutan), og er skammt-
urinn 1 millj., hvort sem bólu-
efnið er danskt eða amerískt.
Sem fyrr mun bóluefni fáan-
legt frá Lyfjaverzlun ríkisins,
þó ef til vill með nokkrum fyr-
irvara, ef um stórar pantanir
er að ræða Olafur Thors forsætisráðherra og frú Ingibjörg, kona lians,
Ríkissjóður mun ekki taka komu heim frá Bret,andi á laugardaginn. Höfðu þau farið utan
þátt í kostnaði vegna þessarar rétt fyrir Páskf verið fyrst} Barís en síðan London-
bólusetningar.
komu heim með Loftleiðaflugvél.
Horfur í sambúíl Frakka
og Túnis hraðversnandi.
ftouv'yibu hvew'fur heitn í
skyndi iíf ierðtwluyi.
íslenzkur píanóleikari
heiSraður.
Þorkell Sigurbjörnsson, Tóm-
asarhaga 15, Reykjavík, var
heiðraður ásamt 13 öðrum ung-
iun, efnilegum tónlistarmönn-
um hinn 10. þ. mán. á tónleik-
um, sem haldnir voru á vegum
tónlistarliáskólans í Illinois.
Þorkell nam píanóleik og út-
skrifaðist frá háskólanum í
Illinois. Þessi ungi, efnilegi
píanóleikari var fyrst nemandi
próf. M. W. Briggs en varð síð-
an nemandi próf. Dean Sanders.
" Þörkell lék allegro-kaflann
úr píanókonsert í B-dúr (K595)
eftir Mozart.
Þéss er rétt að geta, að Þor-
kell er sonur biskupsins, herra
Sigurbjarnar Einarssonar.
Rétt áður en ráðstefnu Efna-
hagsnefndar S. þ. fyrir Asíu
lauk í Bangkok 21. marz s.l.
samþykkti hún ályktun, sem
miðar að því að efla efnahags-
samstarf ríkjanna á þessu
svæði.
í ályktuninni eru umrædd
ríki hvött til að hafa beinna
samband sín á milli við fram-
ivæmd efnahagsþróunarinnar,
t. d. með því að koma á fót nýj-
um iðngreinum, nýjum stofn-
únum til rannsókna og mennt-
Bourbiga forseti Tunis, sem
var á ferðalagi um norðvestur-
héruð landsins, héít í gær í
skyndi til Tunisborgar, sökum
þess hve horfur liafa skyndi-
lega vernsað á landamærum
Tunis og Alsír.
Koina fregnir um þetta að
kalla í kjölfar fregna um, að
unar á vettvangi iðnaðarins og
með því að vélvæða smáiðnað-
inn.
Af öðrum ályktunum sem
gerðar voni á ráðstefnunni má
nefna áætlunina um „þjóðveg
þvert yfir Asíu, sem tengi alla
vegi, sem nú eru til milli Tyrk-
lands og Singapore.
Næsta þing Efnahagsnefnd-
arinnar (ECAFE) verður hald-
ið í Indlandi samkvæmt boði
indversku stjómarinnar.
afhent hafi verið í París ný-
mótmælaorðsending út af
landamæraárekstrum. Tunis og
Alsír.
Segir þar, að. hersveitir frá
Alsír geri tíðar árásir á þorp í
Tunis skammt innan landa-
mæranna. Ennfremur leggi þær
sprengjur í jörðu og hafi margt
manna særst af völdum þeirra
eða beðið bana, og yfirleitt ríki
hið mesta öryggisleysi þar og
fólk sé kvíðafullt. Frakkar hafa
svarað fyrri mótmælaorðsend-
ingum Tunisstjórnar á þá leið,
að viðurkenna beri að franskt
herlið hafi stundum farið yfir
landamærin, en aðeins þar sem
þau séu óglögg og ómerkt. —
Arásum á þorp var neitað, en
ekki að uppreistarmenn frá
Alsír hefðu verið eltir inn yfir
landamærin.
Boðað hefur verið að blöðin i
Tunis birti í dag í heild ræðu,
sem Bourgida flutti í gær. Þau.
koma ekki út vanalega á mánu-
dögum.
Verður lagður þjóðvegur
þvert yfir Asíu?
Efnahagsnefnd Sþ. kefir rætt málið.
hrii'alcgir
Stálu nærri 200 þús.
Röðuðu ávísunum snyrtilega á
skrifborð fyrirtækisins.
Rannsóknarlögreglan hefur,
eftir margra mánaða þrotlausa
rannsókn, bundið endi á þjófn-
aðarferil þriggja ungra manna í
Reykjavík.
Þótt nægar sannanir séu þeg-
ar fyrir hendi að því er Ingólf-
arlögreglunni tjáði blaðinu í
ur Þorsteinsson hjá Rannsókn-
morgun, þá er yfirheyrslum og
rannsókn ekki lokið að fullu.
Á ferli sínum komu mennirn-
ri víða við, en höfðu misjafna
veiði, eins og gengur og gerist.
Bendir ekkert til að þeir hafi
haft nokkra vitneskju um vænt-
anlegar eftirtekjur af ferðum
sínum.
Menn þessir voru á aldrinum
21—22 ára, aðstoðarmenn á bii
reiðum Mjólkursamsölunnar.
Voru þeir búnir að vinna þar
í nokkra mánuði. Höfðu þeir
fengið áminningu fyrir að mæta
seint og stundum óreglulega, en
það stafaði auðvitað af nætur-
göltri þeirra ogtímafreku starfi.
Alls munu þeir hafa stolið
milli 100—200 þúsund krónum
og eytt mestu þegar þeir voru
teknir. Ekki verður hægt að
kalla þá óreglumenn, og ó-
kvæntir voru þeir allir, en einn
þeirra mun hafa búið með kven-
manni. Tveir eiga aldraða móð-
ur á lífi.
Þótt þeir væru þrír við undir-
búning innbrotanna, munú yfir-
leitt aðeins tveir hafa farið sam-
an í leiðangur. Er því ekki vitað
enn, hver hlutur hvers og eins
er í þeim 30—40 innbrotum sem
bera merki þeirra.
Eftir því sem komizt er næst,
var það skammbyssa, er varð
þjófunum að falli. Við innbrot
sitt í skrifstofur og peningaskáp
Kristjáns Skagfjörð h/f fundu
þeir skammbyssu í skápnum,
sem var eign Jóns Guðbjarts-
sonar hjá fyrirtækinu. Það var
8 skota Colt-byssa, sem lögregl-
an hafði númer og lýsingu á.
Lá hún í peningaskápnum. Jón
kveður þjófana hafa fundið
lyklana að skápnum, svo að þeir
þurftu ekki að sprengja hann
upp. Náðu þeir um 9000 krón-
um, en skildu eftir meira en 100
þúsund í ávísunum, snyrtilega
raðaðar og stokkaðar. Peninga-
skápurinn er um 40 þúsund
króna virði, svo að það var lán
í óláni, að þeir skyldu finna
lyklana, sem reyndar gleymdust
þarna.
---•-----
Konur voru
slyngari.
Siglufirði á miðvikud.
Bæjarkeppni í bridge fór
fram milli Akureyrar og Siglu-
fjarðar um páskana.
Var keppt á Hótel Hvanneyri
hér á Siglufirði, en frá Akur-
eyri komu þrjár meistarasveit-
ir, sem háðu keppni við jafn-
margar sveitir héðan. Úrslit
urðu þau, að Siglfirðingar
hlutu 5V2 vinning gegn 3V2,
sem féllu í hlut Akureyringa.
Jafnframt kom ein fyrsta fl.
sveit frá Akureyri, skipuð kon-
um einum, spilaði við þrjár 1.
flokks sveitir hér og bar sigur
af þe,im öllum. Heimasveitirnar
voru allar karlasveitir. — ÞRJ.
Trllíubátur frá ölafs-
firði talinn af.
*
A honum var einn maður á leið til
Grímseyjar.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Síðan á laugardag s.l. hefur
verið leitað að trillubát frá Ól-
afsfirði, er fór þaðan á föstu-
dagskvöld áleiðis til Grímseyj-
ar, en hefur ekki komið fram.
Báturinn er talinn af.
Á bátnum, sem ekki var nema
2 tonn, var einn maður, Axel
Pétursson, maður um fimmtugt,
búsettur á Ólafsfirði, kvæntur
og á 6 börn. Fór hann einn á
bát sínum seint á föstudags-
kvöld. Félagi hans, sem róið
hefur með honum, var veikur
og gat hann ekki fengið mann
í staðinn fyrir hann. Um það
bil hálfri stundu eftir að Axel
lagði af staðð, fóru einn eða
fleiri bátar frá Ólafsfirði áleið-
is til Grímseyjar. Urðu þeir
ekki varir við bátinn, og munu
ekki hafa getað hugað að hon-
um, þar sem trillan var ljóslaus.
Logn var og dimmt yfir, en
þung undiralda og braut mikið
við land. Þegar trillan var ó-
komin til Grímseyja á laugar-
dagsmorgun, var farið að leita
hennar. Leitað hefur verið síð-
an bæði af sjó og úr lofti. Einn-
ig hefur verið leitað á fjörum.
í gær fór leitarflokkur út í Foss-
dal, þar sem sennilegast þótti
að trillan hefði lent í grunnbroti
út af Hvanndalabergi, en þar
brýtur langt út.
Leitarmenn sáu brak úr báti
undir berginu, en komust ekki
að til að rannsaka það nánar.