Vísir - 28.04.1960, Page 4

Vísir - 28.04.1960, Page 4
4 V í S I R Fimmtudaginn 28. apríl 1960 wf sm D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. ,, Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 i áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Vaxandi skilningur almennings. Eins og alþjóð er kunnugt, hömuðust kommúnistar mjög gegn þeim ráðstöfunum, sem ríkisstjórnin lagði til að gerðar yrðu til viðreisnar efnahagslífinu. Raunar var á- róður kommúnista hafinn áður en tillögur stjórnar- innar voru komnar fram. Þeir hentu á lofti hverja sögu og hverja flugufregn, sem gekk um það, sem gera átti, og boðuðu illa tíma og erf- iða, sem mundu enda með skelfingu fyrir allan almenn- ing. Fóru kommúnistar svo geyst í öndverðu, að menn gerðu ráð fyrir, að þeir mundu ekki hika við að grípa til hvaða óyndisúrræðis sem væri til að láta illt af sér leiða. En það hefir orðið minna úr höggi kommúnista, en ýmsir munu hafa gert ráð fyrir. Það er ekki ólíklegt, að margir hafi búizt við verk- föllum. þegar í stað — óbil- gjörnum kröfum og síðan vinnustöðvunum á sem flest- um stöðum. Raunin hefir hinsvegar orðið sú, enn að minnsta kosti, að kommún- istar hafa ekki treyst sér út í slík átök. Það hefir sem sé komið á daginn, eins og svo oft áður, að það er mikill vindur í kommúnistum — en þá brestur oft kjarkinn nema sérstaklega standi á. Ástæðan fyrir því, að komm- únistar treýsta sér ekki enn til að efna til verkfalla, hvað svo sem þeir gera síðar, er sú, að þeir eru hræddir við skynsemi almennings og skilning alþýðu manna á því, að við urðum að gera eitt- hvað. Hver heilvita maður sá, að það var eitthvað bbgið við efnahagsmálin hjá okk- ur, þegar við urðum að gefa með hverjum ugga, sem við seldum úr landi. Það breytir engu, þótt kommúnistar berji hausnum við Kreml- múra og haldi því fram, að við hefðum ekkert átt að gera, því að allt mundi lag- ast af sjálfsdáðum, ef við biðum bara eftir breyting- unni. Það er þetta, sem heldur aftur af kommúnistum og veldur því einnig, að þeir eru eig- inlega alveg hættir að tala um „holskeflu dýrtíðarinn- ar“, sem verðlagsbreytingin mun einhvern tíma hafa ver- ið kallað í blaði þeirra eða nýjasta fylgiriti þess, Tím- anum. Almenningur er nefni- lega svo minnugur, að honum hefir ekki gleymt, hvernig kommúnistar héldu því fram hér um árið, að allt væri í bezta lagi, enda þótt skattar, er námu milljarði, væru lagðir á þjóðina. Almenningur metur það við nú- verandi stjórn, að hún sagði þjóðinni sannleikann. Hún sagði, að erfiðleikar væru framundan. Menn skyldu einmitt gera sér þess fulla grein að svo langt væri hún komin út í fenið, að ekki væri hægt að koma lagi á málin án sársauka og út- gjalda. Vinstri stjórnin bauð hinsvegar gull og græna skóga, enga erfiðleika, enga kjaraskerðingu, bara sælu- ríki. Þess vegna urðu menn fyrir vonbrigðum af henni, því að hún sveik allt, sem hún hafði lofað mönnum. Það er meðal annars þessi munur á núverandi stjórn og hinni hárauðu stjórn Her- manns Jónassonar, sem ger- ir að verkum, að áróðurinn sækist kommúnistum þung- lega. Þeir eru menn í vanda, og þeir gera sér fulla grein fyrir því. Þess vegna er eng- inn kraftur eða sannfæring í upphrópunum þeirra gegn stjórninni. * • i• J, V Áfengisveitingastöðum fjölgar ískyggilega. Landssambandið gegn áfengisbölinu heldur fund. ÞaB, sem mestu varðar. Það er ýmislegt, sem vert er að hafa í huga í sambandi við viðreisnaráætlun ríkisstjórn- arinnar. Fyrst og fremst eiga menn að hafa hugfast, að þær ráðstafanir, sem við höf- um gert að undanförnu, hafa aðeins að nafninu til verið til að „lækna“ ástandið. Þær hafa aðeins verið gerðar til að skjóta óþægilegri lækn- ingu á frest. Þess vegna hafa þær heldur ekki verið nein lausn á vandanum — hann ’■ hefur alltaf yerið fyrir hendi ^ og farið jafnan versnandi. Þetta er ekki nein sérstök ís- lenzk reynsla. Þetta er það, sem allar þjóðir hafa fengið að kynnast, þegar þær hafa haft stjórnir, sem hafa að eins viljað velta vanda líð- andi stundar yfir á framtíð- ina. En það er líka reynsla annarra þjóða, að þegar menn hafa tekið rögg á sig og reynt að grafa fyrir rætur meinsins — eins og nú er gert hér —- hefir þjóðunum tekizt að koma-lagi á búskap sinn og Þau 26 félög og félagasam- bönd, sem eru í þessu lands- sambandi, þar á meðal sum fjölmennustu landssambönd þjóðarinnar, kjósa öll tvo menn hvert í fulltrúaráð sambands- ins. Annar maðurinn er vara- fulltrúi. Þetta fulltrúaráð hélt fund á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík 2. apríl 1960 kl. 3—6. Formáður landssambandsins, Pétur Sigurðsson ritstjóri, setti fundinn og bauð fulltrúa vel- komna, og tilnefndi Björn Magnússon prófessor sem fund- arstjóra og Kristin Gíslason kennara ritara fundarins. Formaður gerði grein fyrir helztu störfum sambandsins frá því er núverandi stjórn þess var kosin, sem er að mestu leyti sú sem áður var. Ástæða þykir þó ekki til að tilgreina þessi störf frekar fyrr en að loknu kjörtímabili í sambandi við þing landssambandsins. Milli 30 og 40 fulltrúar komu til fundar. Mjög góður einhug- ur og áhugi ríkti á fundinum, og var þátttaka fulltrúanna öll í bezta lagi. Eftirfarandi tillög- ur voru einróma samþykktar á fundinum: 1. Fundur fulltrúaráðs lands- sambandsins gegn áfengisböl- inu, haldinn í Reykjavík laug- ardaginn 2. apríl 1960, heitir á aðildarfélög sín að ljá lið sitt ! til þess að vaxandi fari áhugi manna á bindindi og góðum siðum í landinu, og að sterkt almenningsálit geti skapast gegn drykkjusiðunum. 2. Fundurinn telur ískyggi- legt hversu áfengisveitinga- stöðunum fjölgar, og sér þar hina gömlu áfengisknæpu ryðja sér til rúms á ný, aðeins nokkuð dulbúna. Fundurinn skorar því jr IsE. verkaiýðs- Eeiðtogar vestra. Magnús Ástmarsson, Jón Sigurðsson og Magnús Jóhann- esson eru á ferðalagi í Banda- ríkjunum. Hafa þeir fengið tækifæri til að ræða við ýmsa forystumenn verkalýðsfélaga í • Bandaríkj- unum. Þá munu þeir hitta stjórnmálamenn úr fulltrúa- og öldungadeild Bandaríkjaþings og heimsækja þinghúsið í Washington. Síðar ferðast þeir um Bandaríkin og heimsækja stærstu borgir Bandaríkjanna. Loks munu þeir heimsækja að- albækistöðvar bandaríska flug- hersins svo og eldflaugastöðina á Cape Canaveral. bæta um leið hag alþýðu manna. Þetta varðar mestu, og þetta verða menn að leggja sér á minni. Þeir erfiðleikar, sem stafa af sjálfum efnahags- ráðstöfununum, eru aðeins tímabundnir — en komi þæi ekki að haldi eða verði þær eyðilagðar með einhverjum hætti, munu yfir okkur koma varanlegir erfiðleikar.:'i á ríkisstjórnina að láa fram fara endurskoðun á þeim ákvæðum áfengislaganna, sem opna ein- staklingum leið til þess að gera áfengissölu að gróðavegi. Gegn slíku verði einhvei-jar takmark- anir að fást ákveðnar í áfengis- löggjöfinni. 3. Fundurinn vítir þá aðgerð ríkisstj. að leyfa framleng- ingu á áfengisveitingatím- anum að kvöldi dags, án þess að áfengislögin eða reglugerð um sölu og veitingar áfengis heimili slíkt, og krefst þess, að slíkt leyfi verði afturkallað. 4. Fundurinn heitir á alla landsmenn að loka ekki augum fyrir þeim voða, sem. vaxandi áfengisveitingar og hinir nýju drykkjusiðir eru að búa þjóð- inni, ekki sízt hinni uppvax- andi kynslóð í landinu. Menn geri sér það ljóst, að þjóðin hefir nú annars fremur þörf, en að æskulýð landsins séu opnaðar sem flestar gáttir til áfengisneyzlu og allskonar ó- reglu sem henni fylgir. 5. Fundurinn felur stjórn sambandsins að vinna að því, að borin verði á ný fram á Al- þingi þingsályktunartillaga um bann við vínveitingum á kostn- að ríkis og ríkisstofnana. Jafnframt heitir fundurinn stuðningi sínum við slíka til- lögu með því að leitast við að fá sambandsfélögin til þess að gangast fyrir undirskriftasöfn- un meðal alþingiskjósenda. „Borgari" skrifar: Vorsvipurinn. Það er að koma vorsvipur á bæinn og yfir því fagnar vonandi hver maður í hjarta sínu. Það er farið að lifna í blóma- og trjá- görðunum, og það enda . fyrir nokkru, að minnsta kosti fóru ^ græn blöð laukanna víða snemma !að gægjast upp úr moldinni, og skrautleg blóm getur nú þegar sumsstaðar að líta. Vonandi kem- ur nú ekkert kuldakast til þess að kyrkja þennan unga gróður. Túnin eru líka sem óðast að I klæðast sínum græna vorfeldi og | sauðburður byrjaður. Ég sá I fyrstu tvílembingana snemma í [vikunni á túni hér inn með Suð- urlandsbraut og það var ánægju- leg sjón, alveg nýkomnir í þenn- * an heim, enn titrandi á litlu löpp- unum, skimandi í allar áttir og með undrun í augum. Daginn eft- ir voru þeir orðnir sprækir. Ég sá þá nefnilega fyrst út um glugga í strætisvagni og gat ekki stillt mig um að labba heim úr vinnunni daginn eftir, ef ske kynni að ég kæmi auga á þá aftur. Og vitanlega voru þeir á ' sínum stað, litlu svörtu lamb- ketlingarnir, og meira að segja búnir að fá tvo eða þrjá hvíta | félaga. — Ef samkomulagið I milli hvítra og svartra væri nú allstaðar jafngott og hjá lömb- unum okkar á vorin! Því er verr að svo er ekki hjá mannskeppn- unum. En það er önnur saga. ► G.- E. Ljungberg, verkfræð- ingur, sem kominn er hingað til lands á vegum IMSÍ til að rannsaka og gera tillögur um rannsóknarstarfsemi á íslandi, hélt fyrirlestur í gær í Fram- sóknarhúsinu og lýsti skipu- lagi á rannsóknarstofnunum í Svíþjóð og öðrum Norðurlönd- um. Þá ræddi hann nokkuð um athuganir sínar hérlendis og niðurstöður þeirra. -— Annars raun þann síðar semja skýrslu um þær fyrir IMSÍ. i I>að, sem vantar — En það, sem vantar er, að við, sem bæinn byggjum, gerum meira að því, að setja bjartari blæ á bæinn með snyrtilegri um- gengni umhverfis húsin og umfram allt með því að mála húsin, veltur á því, oft og tíðum, að menn hafi efni á að ráðast í slíkt, en stundum er því ekki til að dreifa, og það ætti að minnsta kosti að vera hægt að ætlast til þess, að hið opinbera, bær og ‘(ríki, gefi hér gott fordæmi. Hinn grái litur ómálaðra steinhúsa setur drungalegan og leiðan svip á bæinn, en smekklega máluð hús gleðja augað og hressa hug- ann. Ég vona, að það verði ekki tekið illa upp, þótt ég bendi á, að í miðbænum er veglegt hús, sem mikil þörf er á að hressa upp á hið ytra, en það er Ing- ólfshvoll, — og er ekki tími kominn til fyrir löngu að mála húsin í Höðahverfi? Eg nefni þessi tvö dæmi — af því að í hvorugu tilfellinu er um hús að ræða í eigu einstaklinga. „Borgari“ Fiskihátíð í Bergen. Norsk fiskveiðasýning verður hahlin í Bergen dagana 25. ág- úst til 11. september. | Sýnd verða nýtízku veiði- ,tæki, vélar, skip og siglinga- tæki auk fjölbreyttrar fiskfram- , leiðslu. Búist er við gestum víðsvegar að. Norðmenn veiða árlega 2 millj. lesta af fiski, sem gefa þeim kringum 700 millj. norskar krónur. Bezt að augiýsa í VÍSI

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.