Vísir - 29.04.1960, Side 7
Föstudaginn 29. apríl 1960
7
V ÍS I R
Réðst á teípu — EagSur á Klepp —
brauzt út — náSist fíjétEega.
í fyrra vor náði Sveinn Einarsson frá Miðdal y rðlingi, er hann gaf líf. Yrðlingurinn gerðist
spakur og lék sér í túni. Þegar hann varð full /azta varð honum tíðförult frá bænum og varð
því að drepa hann. Myndin er af Valgerði Sveinsdóttur rneð yrðlinginn. —
VorherferS gegn refum
og iiiii
Bitwarsits* gerði usða á saaiðfé
i haust o-s vetur.
Tíðiadamaður frá Vísi hitti
»á í vikunni Svein Einarsson
veiðistjóra, sem nú mun vera
farinn Vestur á Snæfells-
nes í eitt ferðalagið til und-
irbúnings hinni árlegu vorher-
ferð gegn refum og minkum
•g spurði hann tíðinda frá
vetrinum og undirbúningi að
vorsókninni.
„Það er engin stórtíðindi að
segja eftir veturinn,“ sagði
Sveinn, „veðurfar var óhag-
stætt í vetur til að rekja refa-
slóðir, þar sem svo snjólétt var
i byggðum og allt til jökla, að
fá dæmi munu slíks.
• V. -“•’SBfi'
Alautt á
Arnarvatnsheiði.
„Eg fór til dæmis inn á
Arnarvatnsheiði og var alautt
á heiðinni. Þetta var í byrjun
marz. Fór eg með Kristleifi
Þorsteinssyni á Húsafelli og
fórum á draga, sem gekk á
beltum. Fórum við einkum um
vesturhluta heiðarinnar og
urðum varir bæði við refi og
minka, þar sem opið er í vötn,
þar sem ár renna úr þeim.1
Vötnin voru ísi lögð og var á
þeim 70 sm. þykkur ís. Unnum
við tvo minka, annan í boga-
gildru, hinn í net, sem við lögð-
um við ísskör, þar sem rennur
úr vatni, og var líka bleikja í
netinu. Minkarnir munu ann-!
ars fara niður með ánni, er,
kemur fram á haust, en stöku'
dýr eru á heiðinni allan vetur-
inn, einkum þegar vetur er |
mildur. Eg fór á heiíina vetur-
inn 1958 og varð útkoman
svipuð þá og við Arnarvatn
Refir skæðir
í haustbylnum.
I nóvemberbylnum í haust
gerði refur óvenjumikinn usla
í sauðfé t. d. á Reykjanesskaga,
uppsveitunum austanfjalls og
uppsveitum 'Borgarfjarðar og
víðar. Á Húsafelli og í Kalmans-
tungu voru þá margar kihdur
bitnar og við og við fundust
þar bitnar kindur fram eftir
vetri.
Vann á finim
refum.
Eg útvegaði skyttu til að fara
á þessa bæi til að vinna á bit-
vargi, ungan mann, Gísla Krist-
jánsson frá Reyðarfirði. Kom
hann þar fyrir rúmlega þrem
vikum og vann hann á fimm
refum, skaut fjóra með riffli
og einn með haglabysu.
Eitrað var í haust á þessum
slóðum og hafa fundizt fimm
dýr dauð.
Grímstungufeðgar.
Þá hefi eg frétt, að Gríms-
tungufeðgar (í Vatnsdal) í
vatnssýslu, hafi unnið á 10—20
dýrum í vetur, en hefi ekki enn
nákvæmar upplýsingar um það.
— Á Norðurlandi og Norðaust-
urlandi og víðar eru vetrarveið-
ar talsvert stundaðar.
Baráttan við
minkinn.
Menn eru að komast betur
og betur að þvi, hvernig mink-
urinn hagar sér, og kemur þaþ
að miklum notum í baráttunni
gegn honum. Og þar sem menn
eru farnir að venjast veiðun-
um verður betur og betur á-
gengt.
Þess má líka geta að ýmsir,
t. d. hér í Reykjavík, stunda
minkaveiðar í tómstundum,
bæði sem sport og í hagnaðar-
von, og skipulagt veiðiferðir í
samráði við mig. Hefir árang-
urinn orðið góður. Lögreglu-
maður hér í Reykjavík hefir
t. d, verið með í að drepa 38
minka í vetur. Er orðið lítið
um mink í nærsveitum Reykja-
víkur miðað við það sem var er
mest var.
Vorherferðin.
5000 greni.
Skipulagning árlegrar vor-
herferðar til að eyða refum og
minkum er nú í undirbúningi,
en hún hefst um mánaðamótin
maí—júní.
Um allt land taka hundruð
manna þátt í henni að meira
eða minna leyti.
Eg^hefi talið saman öll göm-
ul greni, sem vitað er um, frá
sjó til jökla og telst mér, að þau
séu upp undir 5000, og verður
leitað í öllum — og leitað að
nýjum. Nokkrum erfiðleikum
er bundið að fá næga menn.
Mikil stoð í
veiðihundum.
Eg tel mikla stoð i að hafa
góða veiðihunda til þess að leita
uppi greni. Bæði flýtir það fyr-
ir og mundi draga til muna úr
kostnaði. Carlsen minkabani
sér um uppeldi veiðihunda nú
sem fyrr. af sínum alkunna á-
huga og dugnaði og hefir að
jafnaoi 20—30 hunda í upp-
eldi og þjálfun.“
Brjálaður maður réðist fyrir
nokkrum dögum á litla telpu
inni við Sundlaugar, sparkaði í
hana, hótaði að drepa hana, brá
;hníf og skar stóran lokk úr
hári hennar. Er ekki Ijóst
hvort hann ætlaði sér að fram-
kvæma hina alvarlegu hótun
sína.
Nánari atvik eru þessi: Hann
mun hafa komið í Sundlaug-
arnar fyrir hádegi þennan dag.
Hagaði hann sér þá meira en
lítið undarlega. Gripu laugar-
verðir manninn þar sem hann
ætlaði án sundskýlu út í laug-
ina. Síðar um daginn er hann
á gangi nálægt laugunum. Var
lítill drengur að leika sér með
hvellbyssu og lét hátt í henni.
Maðurinn ærðist þá og hrópaði:
Ef þið ætlið að drepa mig þá
drep eg ykkur. Drengurinn
lagði á flótta, en maðurinn elti.
Lítil telpa sá þetta og sagði
eitthvað á þá leið, að hann væri
svo þungur á sér að hann mundi
;ekki ná drengnum. Vatt þá mað-
urinn sér að telpunni greip
hana og hótaði að drepa hana.
Mundaði hann íboginn dúk-
skurðarhníf og gerði sig líkleg-
an til að beita honum. Hánn
varpaði telpunni til jarðar,
sparkaði í hana og barði og
sneið lokk úr hári hennar.
Nærstaddir heyrðu hróp
barnanna og skelfingaróp og
hlupu tli. Viggo Maack skipa-
verkfræðingur mun fyrstur hafa
komið að árásarmanninum.
Lagði hann á flótta þegar hánn
sá Viggo koma og hófst elting-
arleikur, sem barst inn í húsa-
kynni Sundlauganna. Þar var
maðurinn tekinn en lögreglan
kom stuttu síðar og flutti í
Kleppsspítalann.
Þar var hann settur undir
læknishendur. í fyrradag braust
jhann svo út úr sjúkrahúsinu
jum glugga á herbergi sínu, en
jnáðist svo til strax aftur. Ekki
jmun hafa þurft að leita til lög-
reglunnar.
Árásarmaðurinn hefur áður
|Verið undir læknishendi á
Kleppi, en var þá útskrifaður
j fyrir alllöngu þegar ofangreind-
ir atburðdr gerðust.
Bráðabirgðastjórn að taka
við í Suður-Kóreu.
Þiiggkusnin^ar efiir !5 BiiiiiiHflli.
Syngmán Rliee fyrrverandi Rhee og Chung bráðabirgða-
forseti Suður-Kóreu er nú forseti ræddu við ambassador
seztur að á heimili sínu í út- Bandaiúkjanna í gær.
jaðri borgarinnar.
Hann ætlaði að ganga þang-
að „í auðmýkt“, en það þótti
óráðlegt og var honum og fjöl-
skyldu hans ekið þangað í skot-
Fyrrverandi innanríkisráð-
herra Suður-Kóreu hefur verið
handtekinn og mun verða sak-
aður um ýms embættisafglöp.
Leitað er ýmissa manna, sem
heldri bifreið. Við gatnahlið nú fara huldu höfðu.
húss hans hylti hann hópur
manna.
977 Eestsr þrátt
íyrir töf.
Frá fréttaritara Vísis. —
Isafirði í gær.
Slysavarnarsveitin Unnur a
Patreksfirði liefir ’-.aft for-
göngu um leiksýningar bar og
sýnir nú Syndlausa svallarann
í þýðingu Júlíusar Daníelsson-
ar.
I
Leiksýningum þessum hefir
verið vel tekið og ágætlega
sóttar. Formaður Unnar er
Þórunn Sigurðardóttir, sím-
stöðvarstjóri.
Vélbátarnir frá Patreksfirði
, hafa aflað. ágætlega undánfar-
. ið. Sæborg hefir aflað frá ára-
mótum 977 lestir og tafðist þó
viku vegna grunnsiglingar við
Látrabjarg.
I
Þetta er vandræðabarnið í
í Auslur-Asíu, Syngman karlinn j
Rhee, sem allt er að verða vit- |
laust út af í Kóreu.
Chou féES frá
Everest- kröfu.
Chou En-lai forsætisráðherra
Kina hefir fallið frá kröfunni
um Mt. Evrest- tind og telur
aðeins þörf lagfæringa á landa-
niærum Nepals og Kína.
Verði þessar lagfæringar
gerðar eftir höfði Chou verður
nokkur hluti fjallsins kínverskt
land, en ekki tindurinn sjálfur.
Chou sagði í gær, að sér hefði
orðið miður um þau ummæli
Nehrus á þingi, eftir að hann
(Chou) fór frá Dehli, þar sem
hann sakaði Kína um ofbeldi
í garð Indlands.
Búið er að skipa í en:br:tti
flesti a þeirra tólf ráðherra, sem
eiga að verða Chung bráða-
birgðaforséta til aðstoðar. Gert
er ráð fyrir kosningum eftir 3
mánuði.
Þeir hefndu
ófaranna.
Kjartan varðstjóri á slökkvi-
stöðinni sagði blaðinu, þegar
hann var spurður frétta í
morgun, að tveir íslenzku svan-
anna liefðu komið á tjörnina í
morgun.
Sjónarvottur sá að þýzki
svanurinn rýðist þegar móti
gestunum, en í þetta sinn varð
hann að láta í minni pokann
eftir einmana baráttu við tvo
hatursfulla grimmdarseggi.
Að fram kominn flúði hann
upp úr tjörninni á bakkann,
mæddur og særður, en óvinirn-
ir eignuðu sér tjörnina.
Ulanova, balletdansmæriu
fræga, er komin á 4000
rúblna eftirlaun á mánuði,
enda fimmtug orðin, en dans
ar samt enn „cins og engill“.
Og hún er ekki hætt. Tals-
maður Bólshoi-ballettsins
segir, að liún eigi að fá 2000
—2500 rúblur í hvert skipti,
sem hún dansar eftirleiðis.
Áður var hún á föstum 6000
rúblna mánaðarlaunum.