Vísir


Vísir - 28.05.1960, Qupperneq 4

Vísir - 28.05.1960, Qupperneq 4
V 1 S I B Láugardaginn 28. maí 1960 WÍSXR. D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. LjdsiB, sem hvarf. batt miklar vonir við leiðtogafundinn í París. ) Öllum er ljóst, að yfir öllum l heimi vofir styrjöld, miklu f geigvænlegri en þær, sem } til þessa hafa dunið yfir f hrjáð mannkyn. Vitað er, að \ tvö stórveldi, að minnsta i kosti, ráða yfir vopnum, sem i með eyðingarmætti sínum f geta tortímt öllu, sem lifir á J hnettinum. Þess vegna var í það hvorttveggja í senn, lifs- f nauðsyn og heilbrigð skyn- ^ semi, sem krafðist þess, að £ gerð væri úrslitatilraun til p þess að komast að samkomu- ^ lagi og eyða óttanum við f þau Ragnarök, sem óumflýj- f anlega hljóta að koma, ef stríðsöflin fá að leika laus- um hala. Þessi von mannkynsins brást. •4 Ljósið hvarf. Enda þótt svo ínargt hafi gerzt síðan Krú- ^ feév, brosfeitur og ánægður, ^ lýsti yfir því, að ekker-t yrði f af fundinum, — landskjálft- ar og eldgos í Chile og bylt- f ing í Tyrklandi, þá er það þó ■ hin misheppnaða tilraun í ! París til þess að firra mann- F kynið tortímingu, sem undir ^ niðri er í allra hugum, og æ ofan í æ rís spruningin: Hvað 1 tekur nú við? Á sú fagra ver- öld, sem vér þekkjum, að r verða sviðin auðn, gersneydd öllu lífi? Á að afmá manninn, f kórónu sköpunarverksins? Enginn kann svör við slíkum P spurningum, en þær sækja r samt á. 'Allir vita, hverjar ástæður Krúsév færði fyrir því, að Parisarfundinum var aflýst. Það var flug bandarískrar flugvélar yfir sovézkt land. Og á þessu hefur verið hamrað í blöðum kommún- ista um allan heim. Hefði flugvélin U-2 ekki verið skot- in niður yfir Sovétríkjunum, hefðu hafizt hinar innileg- ustu viðræður í París, og hugsanlega verið hægt að binda enda á styrjaldir í eitt skipti fyrir öll. En trúir nokkur viti borinn maður slíkum staðhæfing- um? Áreiðanlega ekki, og áreiðanlega ekki á Vestur- löndum. Það má endalaust deila um það, hvort nauð- synlegt hafi verið, eða hyggi- legt, að senda þessa flugvél inn yfir Sovétríkin, og menn geta ugglaust komið sér sam- an um, að það hafi ekki verið „diplomatískt“. En það er ekki mergurinn málsins. Venjulegt fólk hugsar líklega eitthvað á þessa leið: Sé það rétt, að Krúsév og Rússar al- mennt hafi verið svo æva- reiðir og sárir yfir þessum atburði, sem þeir vilja vera láta, hvernig stóð þá á því, að Krúsév fór til Parísar með 20—30 manna fylgdarlið og flutti ræðu á flugvellinum þar um hinn mikla fund, sem fyrir dyrum stóð? Hefði ekki verið eðlilegra að senda frá sér boðskap heiman frá Moskvu um það, að njósna- flug hinnar bandarísku flug- vélar hefði eyðilagt allan umræðugrundvöll? Skoðunarspilið. Þannig hugsar líklega allur al- menningur á Vesturlöndum. Og hann hugsar fleira. Þó að '• njósnaflug yfir landi erlends f stórveldis sé ávallt hinn al- 3 varlegasti hlutur, er þá ekki enn mikilvægara, enn meiri lífsnauðsyn, að leiðtogar stórveldanna komi saman til • þess að freista þess að bægja styrjaldarhættunni frá F mannkyninu?Og hafi það ver ið nauðsynlegt, að slíkur fundur ætti sér stað, áður en flugferð þessi var farin, var F þörfin fyrir slíkan fund þá r enn brýnni eftir að sá at- V burður gerðist. Krúsév, Malinovsky og ráðu- ». nautar hans hugsa öðruvísi: f Hér verðum við að setja á svið eftirminnilegt skoðunar- 1 spil, sem gæti orðið komm- F únistum um heim allan til f framdráttai’. Þess vegna lýsir Krúsév því yfir, leikandi við hvern sinn fingur, að óger- legt sé að halda slíkan fund. En sú eina ályktun, sem af slíkum hráskinnaleik verður dregin, er sú, að Krúsév viidi ekki, að þessi fuiidur yrði haldinn, og hann hélt, að með því að nota njósnaflugið sem átyllu, væri auðvelt að reka fleyg í raðir hinna vestrænu bandamanna, helzt að kljúfa Atlantshafsbandalagið, með- al annars með því að benda á Bandaríkjamenn sem eins konar sökudólga. Parísarf.undurinn mistókst, og þar með brustu vonir mann- kynsins um friðsamlegri sambúð og hugsanlegan, var- anlegan frið, sem öll martn- anna börn þrá. Og sökin er hjá Krúsév og Sovétstjórn- inni, og skoðunarspilið, sem hann setti á svið, mun ekki KIRKJA OG TRÚMÁL: Síi öp u n u vstifju n. Öll þekkjum vér frásögnina á fyrsta blaði Biblíunnar um sköpun heimsins, — hvernig Guð skapaði heiminn, alla hluti, allar lifandi verur með orði máttar síns, skapaði þetta allt á sex dögum og hvíldist á hinum sjöunda. Lengst af gat þessi sköpunar- saga í sínu einfalda formi og sinni einföldu framsetningu samrímst þeirri heimsmynd sem hinar ýmsu þjóðir höfðu. þar urðu ekki mjög miklar breytingar á öldum og árþús- undum saman. En þegar vegur nútímavís- inda hefst, bæði með gleggri þekkingu á stjörnugeiminum — og siðar við tilkomu þróunar- kenningarinnar, þá gjörbreyt- ist heimsmynd vestrænna þjóða svo skyndilega, að segja má að glundroða valdi í hugsanaheim- inum. Það dylst ekki lengi, að raunvísindin gefa manninum þá heimsmynd, sem mjög er frá- brugðin hinni fornu, sem sköp-. unarsagan er miðuð við. Af þessu vakna harðar deilur og mikil átök eiga sér stað milli þeirra, sem voru í uppnámi af hrifningu yfir hinu glæsilega ævintýri vísindanna — og hinna, sem voru hörundssárir fyrir hönd trúarbragðanna og þótti vera höggvið nærri Krist- indómi. — Báðir deiluaðilar gerðu örlagaríkar villur í af- stöðu sinni og málflutningi. Það er mjög auðvelt að sjá nú, þegar frá líður. Margir tals- menn þróunarkenningarinnar litu svo á, að nú væri fengið svarið við spurningunni miklu, sköpunarsagan væri sannan- lega ekkert annað en gömul þjóðsaga, og þar með væri fótum kippt undan trúnni. Hinir töldu margir hverjir að kenningin um þróun, þar sem talið er að tekið hafi milljónir ára breytingar á jörð og þróun lífvera væri bein guðlaus árás á sannleikann og á trúna, þar eð slíkt gengi í berhögg við Guðs opinberaða, heilaga orð. Vér, sem nú lifum, þetta löngu seinna, höfum aðstöðu til að sjá mistökin í þessum málaflutningi og taka málin öðrum tökum. Hin nýja heims- mynd hefur ekki komið yfir oss, eins og þruma úr heiðskíru lofti, ekki skollið á oss eins og flóðbylgja, í stórum dráttum höfum vér tileinkað oss hana svo rækilega að hún er oss hið eðlilegasta og sjálfsagðasta við- horf. — Hefur það þá ekki orð- ið á kostnað sköpunar-sögunn- ar og trúarinnar? Nei, þannig er því engan veg- inn farið. Ég býst við að vér nútímamenn lesum sköpunar- söguna með engu minni trúar- hita en gengnar kynslóðir hafa gert. En vér gerum oss það Ijóst, að tilgangur sköpunarsögunn- ar hefur aldrei verið sá að gefa mannkyninu í eitt skipti fyrir öll hina sígildu, nákvæmlega réttu heimsmynd. Tilgangur verða kommúnistum til framdráttar. Fólk sér gegn- um blekkinguna. hennar er í raún og veru alls ekki sá, að gefa mannkyninu neina heimsmynd. — Sköpun- arsagan er öllu heldur trúar- játning mannanna og lofgjörð til hins eilífa skapara. En þessi lofgjörð er vitanlega sögð fram á máli þeirra manna, sem fluttu hana upphaflega, og heimsyndin, sem þar kemur fram er auðvitað heimsmynd þeirrar aldar en ekki 19. eða 20 aldar eftir Kristsburð. Og vér skulum minnast þess, að .aldrei hefur heimsmyndin fyrr tekið svo örum og stór- stígum breytingum, sem á vor- um dögum. Svo að segja má að heimsmynd einnar kynslóðar sé úrelt hjá hinni næstu. Sköpunarsagan er skráð af manni, að vísu guðinnblásnum manni; en ætluð einnig mönn- um. Hún er skráð til þess að ná éyrum mannanna og hjört- um, allra, almennt, en ekki að- eins fárra, útvaldra, sem lengst hafa náð í speki og þekkingu, því talar hún með þeim orðum og með þeim myndum, sem all- Á fundi L. f. Ú. s.l. þriðju- dag sátu 40 fulltrúar víðvegar af að landinu. Til fundárins hafði verið boðað vegna samn- inga um fiskverð þann 6. maí s.l. Á fundinum kom fram óá- nægja að ekki_skyldi takast að ná samningum um hið auglýsta fiskverð og það, hve seint samn- ingar tókust. Samþykkti fund- urinn þessa ályktun: „Að gefnu tilefni telur full trúfundurinn að í framtíð- inni skuli ekki hefja vertið, fyrr en tryggður hefur-verið viðunan.di starfsgrundvöllur fvrir fiskibátaflotann og samningar undirritaðir við fiskaupendur“. Þar, sem samn.ingar þeir, sem gerðir voru milli L.Í.Ú. og sölu- samtakanna, féllu úr gildi þann 20. maí s.l., fól fundurinn Verð- lagsráði L.Í.Ú. að sem.ja um verð á humar og flatfiski við S.H; og SI.S.. Næðist ekki sam- komulag fvrir 3. júní, fól fund- urinn Verðlagsráði L.Í.Ú. að auglýsa lágmarksverð. Á fundinum urðu ýtarlegar umræður um verðskiptingu þá sem nú er á fiski samkvæmt samkomulaginu, og taldi fund- urinn, að ástæða væri til að flokka fiskinn meira eftir gæð- um en gert er samkv. síðustu fiskverðssamningum. Af þessu tilefni samþykkti fundurinn svohljóðandi álykt- un: „Fulltrúaráðsfundur L.Í.Ú. haldinn 24. maí 1960, lýsir því yfir sem skoðun sinni, að úr- valslínufisk, sem daglega kem- ur að landi beri að greiða hæsta verði. Á eftir komi úrvals tog- arafiskur og netafiskur. ir geta skilið og tileinkað sér. Og hún flytur oss eilífan sann- leiksboðskap. Hún talar um stórmerki Guðs, segir oss hver hann er, sá Guð, sem Biblían boðar. Hann er ekki handaverk mannanna eða hugarfóstur, ekki haglega gert skurðgoð eða andavera íbúandi í sérkennileg- um stokkum og steinum um- hverfisins. Hann er sá, sem jörðin öll getur ekki rúmað, hinn eilífi, hinn almáttugi, sem alla hluti hefur skapað og alla heimana og geimana. Sköpunarsagan segir oss frá orði Guðs hvernig allir hlutir eru til fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orðið. Hann talaði, og það varð. — Hann bauð, þá stóð það þar. Hið almáttuga, lifandi og eilífa Guðs orð er upphaf alls, stjórn- ar og viðheldur. — Guð sagði: Verði Ijós, og það varð ljós. Þannig er sköpunarsagan. Og undarlega væri farið því bók- mennta-mati og því skynbragði á listir, sem ekki sæi hér hina stóru hluti í þeim heimi, og með ólíkindum slakur sá trúar- strengur í brjósti, sem ósnort- inn með öllu gæti látið hljóma þessa stórkostlega lofsöngs fram hjá sér fara. Með tilliti til þess hversu verðmismunur eftir gæðum er mikið vandamál, og hefur mikla þýðingu fyrir íslenzka fiskfarm- leiðslu og útgerð í heild, þá felur fundurinn stjórn L.Í.Ú. og Verðlagsráði að undirbúa fyrir næsta aðalfund L.Í.Ú. tillögur um mismun á verði eftir gæðum, veiðiaðferðum tegundum og stærð fisksins. Verði tilögur þessar við það miðaðar að verulegur verðmis- munur verði á línufiski, togara- fiski, netafiski einnar nætur, netafiski tveggja nátta, neta- fiski þriggja nátta. Þar. sem aðalfundir L.Í.Ú. hafa eltki til þessa markað nógu vel stefnu sína í þessum málum, lítur fundurinn svo á, að eigi hafi veríð unnt að á- kveða me:-i ^'"vumismun en fram kemur f samningi L.I.Ú. við fiskkaup^ndur“. Þá var á fundinum lögð fram svohljóðandi tillaga: ,, Fulltrúaráðsfundur L.Í.Ú. haldinn í Reykjavík 24. maí 1960, mótmælir eindregið vanefndum ríkisstjörnarinn- ar á þeim loforðum, er ríkis- stjórnin gaf aðalfundi L.Í.Ú. í desember 1959 og krefst þess að staðið verði að fullu við þau fyrirheit, sem aðal- fundinum voru þá gefin“. Urðu nokkrar umræður um tillöguna áður en hún var felld með 13 atkvæðum gegn 9. í tilefni af skrifum Þjóðv.i)j- ans í gær um fundinn, vill L.Í.Ú. benda á, að það var aðal- fundur L.Í.Ú., sem haldinn var ,í desember sl. sem samþykkti ,að hefja útgerð eftir áramót- Framb. á 2. siðu. j Frá fundi L. í. Ú.: Útvegsmenn óánægðir með fiskverðið. Ætla ekki aö brenna sig á sama sæöinu tvisvar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.