Vísir - 02.07.1960, Page 2
2'
Laugardagínn 2. júlí 1960
V 1 S I s
SœjarýréWr 1
ÍJtvarpið í kwöld.
Kl. 14.00 Laugardagslögin. —
Fréttir kl. 15.00 og 16.00. —
j 16.30 Veðurfregnir. — 19.00
j Tómstundaþáttur barna og
unglinga. (Jón Pálsson). —
; 19.25 Veðurfregnir. — 19.30
Tilkynningar. — 20.00 Frétt-
] ir. — 20.30 Smásaga vikunn-
ar: „Undankoman“ eftir
] William Somerset Maugham,
i þýðingu Brynjólfs Sveins-
I sonar. (Jónas Jónasson). —
20.45 Tónleikar: Symfóníu-
hljómsveit íslands leikur for-
leik að „Rómeó og Júlíu eft-
! ir Tjaikovski; Olav Kielland1
j stjórnar. — 21.10 Leikrit:
„Það er komið haust“ eftir
Philip Johnson, í þýðingu
Bjarna Benediktssonar. —
Leikstjóri: Valur Gíslason.
; Leikendur: Valur Gíslason,
Regína Þóðardóttir, Anna
Guðmundsdóttir, Árni
Tryggvason, Hildur Kalman
og Áróra Halldórsdóttir.(Áð-
ur flutt 28. ágúst 1955). —
22.00 Fréttir og veðurfregn-
ir. — 22.10 Danslög til kl.
24.00.
Sunnudagsútvarp.
Kl. 8.30 Fjörleg músik fyrsta
hálftíma vikunnar. — 9.00
Fréttir. — 9.10 Vikan fram-
undan. — 9.25 Morguntón-
leikar. — 11.00 Messa í há-
; tíðasal Sjómannaskólans.
(Prestur: Síra Jón Þorvarðs-
son. Organleikari: Gunnar
Sigurgeirsson). — 12.15 Há-
degisútvarp. —_ 14.00 Mið-
degistónleikar: íslenzk tón-
list.— 15.30 Sunnudagslögin.
— 16.30 Veðurfregnir. —
Færeysk guðsþjónusta.
J (Hljóðr. í Þórsh.). — 17.00
J Framhald sunnudags’aganna
— 18.30 Barnatími. (Rann-
J veig Löve): a. Fra nhalds-
J saga yngri barnana: „Sagan
af Pella rófulau~"‘ eftir
Gösta Knutsson; VII. lestur
! — sögulok. (Einar M. Jóns-
] son rithöf. þýðir og les).
j b) „Jói skipstjóri og Eski-
] imóadrengurinn“; saga.
(Hildur Þórisdóttir 'es )• c)
Ferðalög dýra; frá* ’ nir. d)
„Sveinn gerist lögreglumað-
KROSSGATA NR. 1181.
Skýringar:
Lárétt: 2 kóf, 5 hljóð, 7
. -berg, 8 útskagi, 9 ósamstæðir,
10 útl. tala, 11 fugl, 13 hljóðar,
15 slóttug, 16 veldur breytingu.
Lóðrétt: 1 veiðitæki, 3 skáta,
4 ílátið, 6 eld.., 7 ílát, 11 nafn,
12 sólarhrings hluta, 13 sér-
jhljóðar, 14 einkennisstafir.
Lausn á krossgátu nr. 4180.
Lárétt: 2 ögn, 5 óe, 7 BÓ, 8
styrjum, 9 AA, 10 Ra, 11 haf,
13 kærir, 15 lof, 16 tóí.
Lóðrétt: 1 sósan, 3 Garðar,
4 Iömar, 6 eta, 7 bur, 11 hæf,
12 fit, 13 KO, 14 ró.
ur“, þættir úr dagbók eftir
Sigurd Togeby; I. (Pálína
Jónsdóttir þýðir og les). —
19.25 Veðurfregnir. — 19.30
Tónleikar: Rudy Wiedoeft
leikur á Saxófón. — 19.00
tilkynningar. — 20.00 Frétt-
ir. — 20.20 Dýraríkið: Einar
Ól. Sveinsson prófessor
spjallar um köttinn. — 20.45
Hljómsveit Ríkisútvarpsins
leikur. Stjórnandi Dr. Václav
Smetácek. Einleikari á óbó:
Karl Lang. — -.15 „Heima
og heiman.“ (Haraldur J.
Hamar og Heimir Hannes-
son sjá um þáttinn). — 22.00
Fréttir og veðurfregnir. ^ —
22.05 Danslög: Heiðar Ást-
valdsson danskennari kynn-
ir lögin fyrstu þrá stundar-
fjórðungana. — 23.30 Dag-
skrárlok.
Messur á morgun.
Dómkirkjan: Messa kl. 11
f. h. Síra Óskar J. Þorláks-
son.
Fríkirkjan: Messa kl. 2 e.
h.Síra Þorsteinn Björnsson.
Háteigsprestakall. Messa
í hátíðasal Sjómannaskólans
kl. 11 f. h. Síra Jón Þorvarðs-
son.
Kirkja Óháða safnaðarins:
Messa kl. 2 e. h. Sía Þorleif-
ur Kristmundsosn á Kol-
freyjustað prédikar. Gefin
verða saman í hjónaband í
kirkjunni ungfrú Ingibjörg
Árnadóttir og Jón Ólafsson,
Austurbrún 2.
Laugarneskirkja: Messa
kl. 11 f. h. Síra Garðar Svaf-
arsson.
Neskirkja: Messa kl. 11 f.
h. Síra Jón Thorarensen.
Kaþólska kirkjan: Lág-
messa kl. 8.30 árdegis. Há-
messa og prédikun kl. 10 ár-
degis.
Kvenfélag Háteigssóknar.
Munið skemmtiferðina
þriðjudaginn 5. júli. Þátttaka
tilkynnist fyrir klukkan 4 á
mánudag. Uppl. í síma 13767
og 19272.
Áheit.
Hallgrímskirkja: 100 kr. frá
„X“
Hjúskapur.
Á morgun, sunnudaginn 3.
júlí, verða gefin saman í
K.höfn, ungfrá Else Klausen
seminari adjunkt, Hjörring
og Benedikt S. Bjarklind
lögfræðingur, Rvk. Þann dag
munu brúðhjónin dvelja í
Östersögade 32. Khöfn. —
Eimskip.
Dettifoss kom frá Gdynia til
Reyðarfjarðar í morgun.
Væntanlegur til Rvk. síðdeg-
is á morgun. Fjallfoss fór
frá Hamborg 30. júní til
Rotterdam , Hull og Rvk.
Goðafoss ér í Hamborg. Gull-
foss fer til Leith og K.hafnar
á hádegi í dag. Lagarfoss fer
frá Akureyri í dag til Siglu-
fjarðar, Skagastrandar,
Hólmavíkur, ísafjarðar,
Bíldudals, Vestm.eyja, Kefla-
vvíkur, Akraness og Rvk.
Reykjafoss fór frá Seyðis-
fii'ði 30. júní til Raufarhafn-
ar og Siglufjarðar og þaðan
til Hull, Kalmar og Ábo.
Selfoss fer frá New York 1.
júlí til Rvk. Tröllafoss fór
frá Hamborg 27. júní til
Rvk. Tungufoss fór frá
Gautaborg 29. júní til Seyð-
isf jarðaí, oig- Rvk;
Skipadcild S.I.S.
Hvassafell og Hamrafell eru
í Arkangelsk. Jökulfell er í
Rostock. Dísarfell er við
Austurland. Helgafell er í
Ventspils. Hamrafell fór 30.
júní til Aruba til íslands.
Ríkisskip.
Hekla er í Kristiansand á
leið til Thorshavn og Rvk.
Esja er væntanleg til Akur-
eyrar í dag á vesturleið.
Herðubreið er á leið frá
Austfjörðum til Rvk.
Skjaldbreið er í Rvk. Herj-
ólfur fer frá Vestm.eyjum
kl. 13 í dag til Þorlákshafn-
og fer síðan frá Vestm.-eyj-
um kl. 22 í kvööld til Rvk.
Eimskipafél. Rvk.
Katla fer væntanlega í kvöld
frá K.höfn áleiðis til Rvk. —
Askja hefir væntanlega far-
ið í gær frá-Spáni áleiðis til
íslands.
Jöklar.
Langjökull er í Ventspils.
Vatnajökull er í Leningrad.
Loftlciðir.
Snorri Sturluson er væntan-
legur kl. 6.45 frá New York.
fer til Oslóar og Helsingfors
kl. 8.15. Hekla er væntanleg
kl. 19.00 frá Hamborg, Kbh.
og Gautaborg. Fer til New
York kl. 20.30. Snorri Sturlu-
son er væntanlegur kl. 01.45
frá Helsingfors og Osló. Fer
til New York kl. 03.45.
Pan American
flugvél kom í morgun frá
New York og hélt áleiðis til
Norðuríandanna. Flugvélin
er væntanleg aftur annað
kvöld og fer þá til New
York.
Frá íslenzka—pólska
menningarfélaginu.
Hinn 17. júní sl. barst félag-
inu símskeyti frá Pólsk-
íslenzka menningarfélaginu í
Varsjá með beztu árnaðar-
óskum til íslenzku þjóðar-
innar í tilefni af þjóðhátíðar-
deginum.
Félagar Hjúkrunarfél.
Islands.
Guðsþjónusta fyrir norrænu
hjúkrunarkonurnar verður I
Dómkirkjunni þann 7. júlí kl.
9.30 árdegis. Ferð í Þjórsár-
dal verður 10. júlí. Þátttaka
tilkynnist Geirþrúði Kúld
fyrir 8. júlí. Fundahöld og
ananð er auglýst í dagblöð-
um bæjarins.
Fjörður brúaÖur —
Framh. af 1. síðu.
inni um miðjan júlímánuð, en
þá verður tekið til við vegfyll-
inguna. Brúin yfir Mjósund
verður til þess að stytta leiðina
til muna vestur í Grundarfjörð
og tekur um leið af örðugan og
snjóþungan vegarkafla. Vegur
hefur þegar verið ruddur yfir
Berserkjahraun að brúnni, en
verður endurbættur síðar.
Á hinum nýja Vestfjarðar-
vegi milli Barðastrandar og
Arnarfjarðar er unnið að smíði
18 metra langrar brúar yfir
Norðdalsá, en það er stærsta —
enn óbrúaða — vatnsfallið á
þeirri leið. Seinna í sumar
verða þrjár minni brýr byggðar
á þessum sama vegi, og verða
þó enn nokkrar smærri spræn-
ur óbrúaðar. En þær verða
naumast faratálmi nema í sér-
staklega miklum vatnavöxtum.
j Á Norðurlandi hefur verið
irnnið að þrgm brúarbyggingum
j vor. Það er í fyrsta lagi yfir
Tungnaá á Vatnsnesi, 15 metra
löng brú á hinni kunnu Vatns-
nesleið. í öðru lagi er brú, sem
nýlega hefur verið lokið við
að koma upp á Svartá í Svart-
árdal í Húnavatnssýslu. Þetta
er 27 metra löng brú, sem áður
var á Húseyjarkvísl í Skagafirði
en brúin þar var endui’byggð í
fyrra og gamla brúin flutt á
Svartá. Brúin var byggð hjá
Barkarstöðum, sem eru í miðj-
um dalnum, og er að henni mik
il samgöngubót fyrir bæina, sem
eru að vestanverðu í dalnum.
í þriðja lagi er svo: Vinna
er að hefjast við brúarsmíði
yfir Hjaltadalsá í Skagafirði.
Þar er um 42 metra stálbitabrú
að ræða með steyptu gólfi.
Brúarstöplarnir voru steyptir í
fyrra, en nú verður unnið að
því að koma bitunum á og
steypa gólfið. Þessi brú er fyrst
og fremst gerð vegna innan-
héraðssamgangna og þá eink-
um vegna bæjanna, sem liggja
sunnan árinnar í dalnum.
Mesta brúarmannvirkið, sem
unnið er að í sumar er yfir
Hornafjarðarfljót í Austur-
Skaftafellssýslu, en það verður
önnur lengsta brú fslands,
255 metra löng. Aðems Lagar-
fljótsbrúin er lengri, 300 metr-
ar. Þetta verður bitabrú með
samtals 17 stöplum og er fyrir-
hugað að ljúka stöplunum á
þessu ári. Á næsta ári verður
bitunum komið á og gólfið
steypt. Við brúna yfir Horna-
fjarðarfljót, eru geysimiklar fyr
irhleðslur, sem verða álíka
mannvirki og brúin sjálf. Var
byrjað á þeim í fyrra og þá lok-
ið þeim hlutanum, sem er að
jaustanverðu við ána. Á næsta
ári verður fyrirhleðslunum á-
fram haldið vestan megin fljóls
ins og þá væntanlega lokið að
svo miklu leyti að innferð um
brúna geti hafizt. Að þessari
brú verður geysimikil sam-
göngubót fyrir þær sveitir í
Skaftafellssýslu, sem takmark-
ast af Breiðamerkursandi ann-
arsvegar og Hornafirði hinsveg
ar, því að með brúnni komast
þær í akvegasamband við aðra
landshluta. Úr því verður ak-
fært hring um landið að Ör-
æfasveit einni undanskilinni.
Að lokum má geta mikillar
og stórrar brúar, sem verið er
að smíða á Suðurlandsundir-
lendinu. Það er ný brú, sem
kemur í stað þeirrar gömlu yf-
ir Ytri-Rangá hjá Hellu. Vinna
er þar hafin á 84 metra langri
bitabrú með tvöfaldri akbraut,
og gangstéttum beggja megin.
Var orðin brýn nauðsyn að
byggja þarna nýja brú, því sú
gamla var orðin alltof mjó og
mjög til trafala í hinni miklu
umferð sem oft er um brúna.
Nýja brúin verður væntanlega
tekin í notkun í sumar eða
haust.
Kafbátur hæf-
ir sjálfan sig,
Við æfingar á Miðjarðarhafi
kom fyrir einkennilegt atvik
í fyrradag. Brezki kafbátur-
inn Sea Devil hæfði sjálfan
sig með tundurskeyti.
Þetta gerðist við flotaæf-
ingar skammt frá eynni
Möltu, en þar hafa Bretar
flotastöð. Skotið var æfinga-
undiurskeyti frá togaranum,
en þau eru eftirlíkingar a£
tundurskeytum, og að sjálf-
sögðu óvirk, og fór tundur-
skeytið í hring og — svo
beint á turn kafbátsins og
festist í turninum, og varð
kafbáturinn að halda til
hafnar í Valetta til þess að
fá skeytið losað.
Ekkert slys varð á mönn-
um við þetta.
Talsvert af fölsitðum punds
seðliun hefur fundizt í Torq
uay, Bretlandi. — í Torquay
er kunnur baðstaður.
KMTTSPYRNA:
SV.-land: Red Boys — 5:1.
Eftir markatölunni væri hægt
að álíta að leikurinn hefði ver-
ið mjög ójafn, en svo var þó
ekki, leikurinn var jafn út báða
hálfleikina, en. það sem gerði
gæfumuninn var heppni S.V.-
lands með markskot,á móti getu
leysi Red Boys framlínunnar
við mark S.V.-lands.
Leikurinn. Þórólfur Beck
skorar fyrsta mark S.V.-lands
úr Vítaspyrnu. Sveinn Jó annað
markið með góðu skoti, eftir að
varnarleikmenn R. B. höfðu
hætt vegna meintrar rangstöðu.
Ekki voru fleiri mörk skoruð
í háHleiknum og lauk honum
þannig 2—0. Guðjón skorar 3.
markið með skalla strax í upp-
hafi seinni hálfleiks, eftir mis-
tök hjá vörn R. B. Hægri inn-
herji Red Boys skorar skömmu
seinna eina mark Red Boys í
leiknum, fallegt mark með
hörkuskoti. Guðjón skorar 4.
mark S. V. með bogaskoti, er
markvörður Red Boys misreikn
aði. Og Sveinn J. skorar fimmta
mark S. V. með glæsilegu skoti
eftir fyrirgjöf frá Erni af hægri
kanti, fallegasta mark leiksins.
Liðin. Besti maður Red Boys
var sem í hinum fyrri miðfram-
herjinn, markmaðurinn átti
einnig, góðan leik.
S. V. landsúrvalið kemst illa
frá leiknum þrátt fyrir stóran
sigur. Vörnin var traust með
Rúnar Guðmundsson bestan,
Hörður slapp vel frá bakvarðar
stöðunni, en hann yfirgaf völl-
inn vegna meiðsla um miðjart
seinni hálfleik og kom Hreiðar
Ársælsson inn fyrir hann.
Framverðirnir áttu góðan,
leik, sérstaklega Sveinn Teits-
son, sem var besti maður vall-
arins ásamt Þórólfi Beck. Berg
steinn og Guðjón áttu ekki góð-
an leik, féllu illa inn í spilið
með KRingunum. Eftir þennan
leik og fleiri er auðséð að frarn
h'na KR öll er heilsteyptust og
óþarfi að stinga inn í hana
mönnum, sem eru sterkari með
sínu félagi, en falla ekki inn I
spil hinna, sem eru þaulvaniri
saman.
Áhorfendf /oru margir enda
veður mjög ragurt, besta knatt-
spyrnuveður í heimi, varð ein-
um áhorfenda að orði. Dómari
var Hannes Sigurðsson og
dæmdi ákveðið. J. B.