Vísir - 28.07.1960, Síða 8
Kkkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Munið, ail þeir sem gerast áskrifendnr
! Látið hann færa yður fréttir og annað \mF\m vlS W k Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
lettrarefni heim — an fyrirhafnar af ókeypis til mánaðamóta
yðar hálfu. wm uam átm dWP Sími 1-16-60.
Sími 1-16-60.
Fimmtudaginn 28. júlí 1960
Alixon einróma kjörinn
forsetaefni renublikana
. ..
Nefndi Cabot Lodge fyrstan líklegra
varaforsetaefna.
Nixon , varaforseti Banda-
ríkjanna var kosinn forsetaefni
Jlokksins í nóvemberkosning-
iinum einróma með lófataki og
geisilegum fagnaðarlátum á
flokksþinginu í Ghicago í nótt.
Hefur sjaldan eða aldrei geng-
ið eins fljótt fyrir sig og að
þessu sinni á flokksþingi repu-
blikana að ná samkomulagi.
Ekki var Nixon viðstaddur,
€n það er ekki venja að þeir
sem gengið er til atkvæða um
séu viðstaddir meðan kjör fer
fram-, en -sá- sem fyrir valinu
verður ávarpar svo flokks-
þingið eftir á og tekur við út-
nefningunni.
Nixbn nefndi nokkra menn í
gærkvöldi, segja fréttamenn, er
helzt myndu til greina koma
sem varaforsetaefni, og nefndi
fyrstan Cabot Lodge aðalfull-
trúa Bandaríkjastjórnar á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna.
iNixon ræður áreiðanlega mestu
lim það hver verður fyrir val-
Ínu.
Nixon er 47 ára, fæddur í
Kaliforníu. Það hefur orðið
fionum til mikils álitsauka á
flokksþinginu, að hann fékk
örugglega og fljótt framgengt
kröfum sínum um breytingar á
stefnuskrá flokksins, einkan-
lega varðandi réttindi blökku-
inanna, og í þeim efnum er
Stefnuskráin nú hin frjálslynd-
Sjómannaverkfalíi lokið.
Sjómenn á áströlskum skip-
íun hafa hætt verkfalli, sem
þeir hófu fyrir nokkrum dög-
um.
Þátttakendur voru um 200 og
töfðust um 80 skip, sem eru í
Strandsiglingum við Ástraliu.
Nixon.
asta síðan á dögum Lincolns
fyrir einni öld, að því er frétta-
menn segja.
Nixon hefur áður sagt, að úr-
slitin í forsetakosningum verði
tvísýnni að þessu sinni en
nokkurn tíma fyrr í sögu
Bandaríkjanna.
Aðalkeppinautarnir eru báðir
tiltölulega ungir menn, mælsku-
menn og harðir af sér. Það verð-
ur í september, sem aðalslagur-
inn hefst og stendur svo óslitið
til kosningadags. Nú að afstöðu-
um báðum flokksþingunum,
hefst tími undirbúnings aðal-
sóknar af beggja hálfu — og í
bili logn á undan stormi.
Síðustu fregnir herma, að
Nixon hafi óskað þess, að
Cabot Lodge verði valinn
varaforsetaefni. Flokksþing-
ið á eftir að ganga til at-
kvæða um varaforsetaefni,
en það má heita óbrotin
hefð, að farið sé að óskum
forsetaefnis um val hans.
Þrír forsætisráóherr
anna komu í gær.
Þá voru komnir allir þátttakendur
í þingi Norðurlandaráðs.
' Þrír forsætisráðherrar komu
Mngað í gærkvöldi til þess að
sitja þing Norðurlandaráðs.
Voru það þeir Einar Ger-
hardsen forsætisráðherra Nor-
égs, Tage Erlander forsætisráð-
herra Svíþjóðar og Viggo Kamp
jnann forsætisráðherra Dana, en
áður var kominn Johannes Suk-
selainen forsætisráðherra Finn-
Jands.
Forsætisráðherrarnir þrír
3-romu hingað í Viscount-flug-
vélum. Viðstaddir komu þeirra
rt'dru Gísli Jónsson alþm., for-
maður íslandsdeildar Norður-
landaráðs, Friðjón Sigurðsson
Jskrifstofustjóri Alþingis, Har-
aldur Kröyer forsetaritari og
'sendiherrar Norðurlanda.
I Allir hafa forsætisráðherrarn-
, ir látið d ljós mikla ánægju yfir
að vera komnir til íslands.
Hingað voru í gærkveldi einn
ig komnir allir þingmenn þeir,
sem sitja þingið, o. fl.
Þá er þess að geta, að hingað
eru kpmnir 14 fréttamenn frá
stærstu blöðum og fréttastofum
lá Norðurlöndum.
Nýr bátur
til Húsavíkur.
Húsavík í gær.
Nýt bátur m.b. Héðinn kom
til Húsavíkur síðdegis í gær.
Þetta er 150 lestá stálbátur með
400 ha. stórvél, smíðaður í
Sövik í Noregi.
Báturinn er búinn öllum
helztu siglingatækjum, kæli-
kerfi í lest, kraftblökk og vist-
arverur skipverja hinar vist-
legustu. Eigandi er Hreifi h.f.,
Húsivk. Skipstjóri Maríus Héð-
insson, stýrimaður Gunnar
Hvanndal og vélamaður Krist-
ján Óskarsson. Báturinn fer á
síldveiðar í nótt.
Mafta fær nýja stjórn-
arskrá.
Bretar hafa skipað þriggja
manna nefnd til þess að semja
uppkast að stjórnarskrá fyrir
Möltu.
Á hún að koma í stað þeifrar
sem var felld úr gildi fyrir
þremur misserum. Formaður
hennar verður Sir Richard
Blood, einn mesti stjórnlaga-
fræðingur Breta.
Þessi mynd á að minna ykkur — Reykvíkingar góðir — á skyldu
jkkar gagnvart þjóðinni, sem sé þá að taka þátt í norrænu
Sundkeppninni. — Aðeins rúmlega 20 þúsund íslendingar hafa
synt 200 metrana til þessa, og það er ekki nema brot þeirra
landa okkar, sem syndir eru. En það má betur, ef duga skal til
að vinna keppnina og hver einstaklingur sem syndir færir okkur
nær því marki. — Þessi mynd var tekin í gær af skemmugjugga
Haraldar í Austurstræti, en þar liefur verðlaunagripnum :—
Forsetabikarnum — verið stillt út. Þar er mynd af gefandan-
um, forseta íslands, Ásgeiri Ásgeirssyni, svo og ljósmyndir af
sund- og sólbaðsstöðum víðsvegar um land. — Og nú skulum
við taka höndum saman og keppa að því sameiginlega m'arki að
láta Forsetabikgpinn ekki fara úr landi (Ljósm. G. Tómasson).
Fullkomin vegaþjónusta F.I.B.
Samvinna við ýmsar stofnanir
um öryggi vegfarenda.
Félag íslenzkra bifreiðaeig-| varnafélagið þar mikilvæga að-
enda — F. f. B. — hefur liafið stoð.
mikinn undirbúning að þjón-
ustu við bifreiðaeigendur og
annað ferðafólk nú yfir Verzl-
unarmannahelgina.
Svo sem bifreiðaeigendum er
kunnugt, hefur slik vegaþjón-
usta verið veitt vegfarendum á
vegum félagsins undanfarin ár,
og hafa margir notið hennar á
ýmsan hátt á vegum úti. í ár
verður allt gert til þess að þessi
þjónusta verði sem fjölbreytt-
ust og víðtækust, og hefur hin
nýkjörna stjórn félagsins tekið
upp náið samband við ýmsar
stofnanir til þess að svo megi
verða.
Vegna þess hve lítill tími hef-
ur gefist til undirbúnings að
þessu sinni (stjórn félagsins var
kjörin fyrir fáum dögum), er
ekki enn fyllilega ráðið, hve
víðtæk þessi þjónusta verður,
né hvaða aðrar stofnanir veita
þar aðstoð,
en líklegt er að þar leggi
hönd að verki Slysavarnafé-
lag íslands, Flugbjörgunar-
sveitin, Landssími íslands,
ríkisútvarpið, löggæzla og
bifreiðaeftirlit svo og fjöl-
margir einstaklingar, sem
vinna þar sjálfboðavinnu.
Flestar bifreiðarnar munu
geta veitt vegfarendum skyndi-
hjálp ef bifreið bilar,nema ef
um meiriháttar bilun er að
ræða. Þá munu einnig. margar
þeirra hafa ýmis hjúkrunar-
gögn til fyrstu hjálpar ef slys
ber að höndum, og veitir Slysa-
Eitthvert lágmarksgjald mun
verða tekið ef viðgerðarþjónusta
er veitt, en félagsmönnum end-
urgreitt gjaldið á skrifstofu fé-
lagsins eftir helgina.
Þá má og einnig geta þess, að
félagsmenn njóta þeirra forrétt-
inda, að geta fengið bifreið sína
dregna til bæjarins með krana-
bíl, ef um meiriháttar bilun er
að ræða., — sér að kostnaðar-
lausu, innan 50 km. frá Rvík.
Þeir þurfa að vísu að sjá um að
ná i slíka aðstoð sjálfir, og
Frá fréttaritara Vísis.
Raufarhöfn í morgun.
Allt frá Langanesi vestur að
Horni er ekki nokkurt skip við
veiðar þennan sólarhring. Þau
fáu skip sem þar eru liggja inni
á höfnum, en úti á miðunum er
norðan eða norðaustan bræla.
Á Raufarböfn er komin hin
leiðinlega brælustemning sem
þeir kannast við er verið hafa
í síld fyrir norðan, þegar stúlk-
urnar híma inni í bröggunum,
ekkert er að gera hvorki úti eða
inni. Fáeinir menn eru að dútla
á .plönunum, en það er einasta
hreyfingin sem sézt í þórpinu.
greiða hana í bili, en það verður
endurgreitt skuldlausum félags
mönnum. Þessara kjara nýtur
hver félagi, þó aðeins einu sinni
á ári hverju.
Tilkynningar um nánara fyr-
irkomulag vegaþjónustu F. í. B.
verða birtar í öllum dagblöðum
og útvarpi.
□ Talið er, að 'þingkosningar
á Kýpur verði ekki eins
friðsamlegar og búist hafði
verið, vegna stofnunar sér-
staks flokks EOKA-manna.
í Bandaríkjunum eru nú
starfandi um 68.579.000
manna eða fleiri en nokkurn
tíma áður. Var þessi tala
1.371.000 hærri í júní en í
maí.
En það komu fréttir í morgun
að þeir hefðu verið að fá hana
fyrir sunnan, út af Norðfjarðar-
horni. Hún kom upp þar á litlu
svæði og náðu allir einu kasti.
Svo fór hún. Hinir heppnu í
þetta skipti eru: Hólmanes 950
mál, Gullfaxi 600, Sigrún AK
650, Fram Ak. 250, Blíðfari
600, Pétur Jónsson 550, Sindri
550, Áftanes 550, Páll Pálsson
600, Guðbjörg OF 500, Þorbjörn
500, Auður 550, Ólafur Magn-
ússon KF 650, Jón Kjartansson
450, Akurey .200, Hagbarður
450, Von VE 200, Magnúi
Martéinsson 4Ö0, Keilir 300.
Noróaustan bræla
rak síldarbátana í var.
Sama og engin veiði.