Vísir - 03.08.1960, Page 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Qmnii jm n gm Munlð, aS þeir sem gerast áskrifendor
Bátíð hann færa yður fréttir og annað WfW ú Bg ipEW Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ÍMtrarefni heim — án fyrirhafnar af v 1 i Wl ÍSt, | 111 PPfSL, óke.vDÍs til mánaðamóta
yðar hálfu. Wm úsm ŒSPohBichHv Sími 1-16-60.
Sími 1-16-60.
Miðvikudaginn 3. ágúst 1960
Spjöll og skemmdarverk
unnin í innbrotum.
lAílu vnv stnliö9 en þeim tttnti
ttt eivu sti ettt ttt t.
Nokkur innbrot voru framin
hér í bænum um helgina, yfir-
leitt litlu stolið, en allmikil
spjöll unnin, mikið skemmt og
rótað.
. Mesta innbrotið var í húsi Al-
nienna byggingafélagsins í
Borgartúni 7. Komizt hafði ver-
ið inn í húsið með því að brjóta
rúðu fyrir ofan hurð á bakhlið
hússins, hurðin að því búnu opn
uð og farið inn.
Brotin var m. a. hurð að skrif
stofu skrifstofustjóra húsa-
medstara ríkisins, ráðist þar
inni með ýmsum tilburðum á
peningaskáp, en án árangurs.
Brotnar voru upp aðaldyr að
skrifstofu bifreiðadeildar Sjó-
vátryggingafélags -slands, sem
«r‘til húsa á sömu hæð og skrif-
stofa húsamestara. Þar var all-
miklu rótað oð skjöl lágu víðs-
vegar um gólf, en ekkl séð að
neínu hafi verið stolið.
Þá var brotið upp geymslu-
het'bergi Sjóvátryggingafélags-
inS, sem er í kjallara hússins.
■Ummerki sáust á ýmsum hurð-
um, sem reynt hafði vei'ið áð
brjóta upp í byggingunni, en
igefizt upp við.
í þessari sömu byggingu hafði-
•verið farið inn í bifreiðaverk-
Sendiherra af-
fiendir skilríki.
Hinn fyrstí sendiherra Arg-
fcntínu á íslandi, herra Carlos
Alberto Leguizamon, afhenti í
gær forseta íslands trúnaðar-
bréf sitt við hátiðlega athöfn á
BéSsastöðum.
Að athöfninni lokinni höfðu
íforséta hjónin hádegisverðar-
boð fyrir sendiherrann.
Sendiherrann hefur búsetu í
Osli. (Fréttatilk. frá skrifstofu
forseta íslánds.)
stæði, sem Öxull h.f. hefur þar,
en ekki var unnt að sjá að neinu
hafi verið stolið. |
Loks hafði þjófurinn komizt
inn í læst port, sem Almenna
byggingafélagið hefur austan
megin við götuna, gegnt húsi
sínu. Þar hafði verið snúið
sundur keðja, sem læsti benzín-
-tank, sýnilega í þeim tilgangi
að stela benzíni. En það tókst
|ekki vegna þess að rafstraum-
urinn hafði verið rofinn.
Brotizt var inn á tveim öðr-
um stöðum í Reykjavík um
helgina. Annað var innbrot í
Olíuhreinsunarstöðina að Sæ-
. túni 4. Þar voru sprengdár upp
,hurðir og allt á tjá og tundri
inni, rifið, brotið og skemmt
það.sem unnt var að skemma
og eyðilg^gja, en minnáátölið,
jafnvii éngu.
Inn í Golfskálann var brotizt,
en hann var þá mannlaus. Séð
varð að farið hafði verið um
allt og talsvert rótað og leitað,
en ekki öðru stol’ið en einni vín-
flösku, sem skilin hafði verið
eftir af vangá.
Mú vantar
blóð.
Nú er mikill skortur á
blóði í Blóðbankanum og er
fólk beðið um að koma þar
til hjálpar. Eins og öllum er
kunnugt liggur mikið við, að
alltaf sé nóg blóð fyrir hendi
og geta hlotizt af hinar' al-
varlegustu afeiðingar, ef svo
er ekki.
Blaðið vill skora á Reyk-
víkinga, að þeir láti ekki sitt
eftir liggja nú, því að enginn
veit, hver þarf næst á blóði
að halda.
Um borð í Maríu Júlíu. Þorskurinn kvarnaður og hent fyrir
múkkann.
I heii
nótabáta á Faxaflóa.
Þeir fá 7-8 körfur af rauösprettu
í hverju hali.
jGúmmíbáturinn er notaður til friðsamlegrar heimsóknar, en ekki
Jiegar farið er að Bretum. Þeir myndu kannske stinga gat á hann.
Handfærabátar hafa ekki
fengið bein úr sjó í Faxaflóa í
sumar og ekkert hefur fengizt
á línu. Eftir þeim aflabrögðum
hefði mátt ætla að ekki væri til
fiskur í flóanum, en það er nú
öðru nær. Landhelgisgæzlan
bauð nokkrum gestum í gær í
kynnisför til dragnótabáta, sém
nú eru að hefja veiðar í Faxa-
flóa.
Óðinn tók stóran sveig að
Guðrúnu frá Reykjavík, þar
sem báturinn lá fyrir dufli.
Skipverjar litu upp frá vinnu
sinni og það mátti lesa úr svip
þeirra, að þeir hugsuðu: Hvern
fjandann vill landhelgísgæzlan
okkur nú? Kallað var til þeirra
og spurt hvort gestir mættu
koma um borð. Kallaði formað-
urinn, Hjörleifur Jónsson, að
gestir væru velkomnir. Síðan
lagði ellefu manna hópur af
stað frá Óðn.i á gummíbát yfir
í Guðrúnu. Lét Hjörleifur vel
yfir aflanum enda hafði hann
fengið um það til tæpt tonn í
halinu og var um það bil þrið.i-
ungur af því feit og stór rauð-
spretta. Hitt var vænn þorsk-
ur. Vár staðið við góða stund
um borð í Guðrúnu meðan nót-
inn var kastað aftur.
Maria Júlía hefur verið að
fiskirannsóknum undanfarið og
er nú í Faxaflóa. Var hún þarna
skarnt undan að toga með botn-
vörpu. Þegar við komum að
henni. voru þeir að taka .inn
trollið. Gunnar Ólafsson, skip-
stjóri tók á móti okkur. Hann
var að þessu sinni líkari togara
skipstjóra, nema hvað hann var
einkennisbúinn. Það er meiri vit
leysan að henda öllum þessum
fiski út aftur, sagði hann. Við
höfum verið að fá tvo til þrjá
poká í hálftima holi og öllu er
hent í sjóinn aftur. Á þilfarinu
var unnið af kappi. Kolinn var
tíndur úr trollinu og settur ofan
í stóran kassa, þar sem hann
svamlaði þangað til ungur mað-
ur veiddi hann upp með háf og
lagði hann á borðið fyrir fram-
an Aðalstein fiskifræðing, sem
þræddi fimlega girni í hnakka
kolans. Lítið hylki með númeri
er fest við girnið. Kolinn er
mældur og að þvi loknu er hon-
um fleygt fyrár borð. Hánn er
að sjá örlítið dasaður eftir æv-
intýrið, en áttar sig brátt og
kafar með þetta skraut á.hnakk
anum aftur ofan á botninn.
Framh. á 6. síðu.
Júlíus Havsteen,
sýslnmaður látinn.
Júlíus Havsteen, fyrrverandi
sýslumaður, andaðist hér í
Reykjavík aðfaranótt 31. júlí
eftir stutta legu.
Júlíus Havsteen var þjóð-
kunnur athafnamaður, og lét
jafnan til sín taka í umbóta-
málum og framfaramálum þjóð-
arinnar. Hann hóf starfsferil
sinn sem bæjarfógeti á Akur-
eyri og Siglufirði, en var sýslu-
maður Þingeyjarsýslu í 36 ár,
eða til ársins 1956, er hann varð
sjötugur. Þótt hann léti af em-
bætti, var fjarri því að hann
hætti störfum, því að hann var
allt til andláts hinn áhugasam-
asti um ýmis þjóðfélagsmál.
Hann sótti t. d. landhelgisráð-
stefnuna í Genf í vor, og skrif-
aði margar greinar um þau mál.
.Hann var alla tíð mjög virkur
í slysavörnum íslendinga og
lét þau mál ávallt til sín taka.
Júlíus Havsteen fæddist árið
1886 á Akureyri, sonur J. V.
Havsteen kaupmanns og Þóru
Havsteen konu hans. Hann var
kvæntur Þórunni Jónsdóttur, er
lézt 1939. Þau áttu saman átta
börn, sem öll eru á lífi.
Biskup á yfirreiö.
Biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, vísiterar
Barðastrandaprófastsdæmi í
þessum mánuði.
| Vísitazían hefst að Garpsdal
miðvikudaginn 3. ágúst með
guðsþjónustu kl. 14 og henni
lýkur á Bíldudal sunnudaginn.
14. þ. m.
Mun biskup heimsækja allar
kirkjur og söfnuði prófasts-
dæmisins, prédika í hverri
kirkju og ræða við söfnuðina
um kirkjuleg málefni.
Næstkomandi sunnudag, 7. þ.
m. mun biskup vígja nýja
kirkju að Skálmarnessmúla.
Óvíst, hvort Eyjólfur
leggur í Ermasund.
Varð að hætta við sund í nótt vegna meiðsla.
Eyjólfur Jónsson, sundkappi,
lagði af stað í nótt frá Kefla-
vík, og hugðist synda til
Reykjavíkur, en varð að hætta
eftir um 14 km. sund vegna
meiðsli í öxl, er tóku sig upp á
sundinu.
Fréttamaður Vísis átti i
morgun tal af Eyjólfi, er hann
var að jafna sig eftir sundið, og
sagðist honum þá svo frá, að
hann hefði um nokkurn tíma
átt við að stríða smá-tognun í
hægri axlarlið, og hefði verið
að vona að það hefði lagast að
mestu. Læknir Eyjólfs,. Úlfar
Þórðarson hafði ekki viljað láta
Eyjólf reyna á öxlina að ráði
fyrr en nú, en sagt honum að
hvíla sig. Áhugi Eyjólfs fyrir
þjálfuninni hefir samt sém áð-
ur ekki leyft honum að hvíla
sig nægilega, svo að þegar að
því kom í nótt að hann. reyndi
jverulega á öxlina, tók tognun-
! in sig upp aftur. Eyjólfur synti
í sundbol, sem var borinn feiti,
J og er hann var kominn nokkuð
áleiðis, harðnaði feitin í boln-
um, og var þá eins og hnifi
j væri stungið í öxl hans í hvert
sinn er hann hreyfði hendina.
I Hann var kominn um 8 km.
j áleiðis til Rvík. — en hafði
synt um 14 km. — því að
straumur hafði borið hann mjög
I úr leið, þegar þjálfarar hans,
iPétur Eiríksson og Jónas Árna-
son skipuðu honum að hætta.
því að þeir sáu að hægri hendi
Eyjólfs var að mestu gagnslaus.
„Þarna hefur komið í Ijós
annmarki, sem ég hafði ekki
reiknað með,“ sagði Eyjólfur,
„og ég þori því ekkert að segýa
um fyrirætlanir. mínar með
Ermasúndið. Það er allt.í óvissú
með það eins og stendur."