Vísir - 19.08.1960, Blaðsíða 12
Kkkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. nHDHOH /Mi n OMHBk Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Látið hann færa yður fréttir og annað xí wW nr (fl S il w Vísis eftir 10. livers mánaðar, fá blaðið
leatrarefni heim — án fyrirhafnar af vfiyf li rSBRfc Jj S jlpsBL. ókeynis til mánaðamóta
yðar hálfu. Sími 1-16-60.
Sími 1-16-60.
Föstudaginn 19. ágúst 1960.
Gæzluliií S.þ. víggirbir
flugvoll Leopoldville.
Hefur fengið heimild til að beita
skotvopnum sér til vamar.
Lumumba forsætisráðherra
Kongólýðveldisins neitaði í
gœr að taka móti dr. Bunche,
aðstóðar-framkvœmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, sem
hafði boðað komu sína til hans,
til þess að mótmœla óheyrilegri
framkomu Kongó-liormanna,
við komu flugvélar þangað með
kanadiska hermenn.
Sendi dr. Bunche nákvæma
.skýrslu um allt, sem gerst
haíði, til Hammarskjölds, er
ræddi málið við fulltrúa stór-
Veldanna í Öryggisráðinu, er
•tekur þetta atriði sem önnur
fyrir á áukafundi þéss, sem
með kanadiska hermenn, sem
stendur fyrir dyrum.
Það var við kómu flugvélar
Kóngóhermenn ruddust inn í
. hana, í leit að belgiskum fall-
hlífahermönnum, en eins og
koimið hefur fram í fyrri fregn-
•fregnum, hefur Lumumba feng-
■ ið þá flugu í kollinn, að Belgar
/leynist í liði Sameinuðu þjóð-
anna, og er þetta mjög notað í
áróðri hans og hans manna.
Kongóhermennirnir börðu hina
Jcanadisku, sem ekki gátu
vörnum við komið, og liðsfor-
ingi í þeirra hópi var sleginn
í rot. Sumir voru látnir liggja
á jörðu og var ýtt að þeim
byssuskeftum, og hótað öllu
illu, ef þeír bærðu á sér. Lið
frá Ghana úr gæzluliðinu var
sent á vettvang, og bjargaði
hermönnunum, og þar
næst tók herstjórn Sam-
einuðu þjóðanna öll yfir- og
umráð flugvallarins í sínar
hendur og var þegar hafist
— handa um að setja upp
gaddavírsgirðingar og ,grafa
skotgrafir, ef til árása á
flugvöllinn skyldi koma.
Blezk blöð í morgun telja
þennan atburð alvarlegan.
Hingað til hafi gæzluliðið getað
unnið verk sitt friðSamlega og
svo hafi hórft, að þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika, myndi það
geta tekið við friðsamlega
hvarvetna í landinu, en þeim
horfum hafi' verið spillt með
árásinni á kanadisku hermenn-
ina, og hafi nú orðið að gefa
— í fyrsta sinn — heimild til
þess að gæzluliðið beiti skot-
vopnum sínum, verði á þá ráð-
ist. Þetta geti boðið hættum
heim, en sé óhjákvæmilegt,
eftir það, sem gerst hafi.
Aukafundur Sameinuðu þjóð-
anna kemur saman eftir helgi.
— Sendinefnd frá stjórninni í
Kongó er á leið til New York.
Hún ferðast svo sem að líkum
lætur í rússneskri farþegaþotu,
en hún tafðist í London, þar
sem þotur af þessari gerð þurfa
sérstaks leyfis til lendingar í
New York, en það leyfi lá ekki
fyrir við komuna til London.
Tekjur af
berjum.
Frá fréttaritara Vísis. —
ísafirði í gœr.
Bnrjaferðir eru nú að kom-
ast í algleyming, einkum um
helgar.
Hópur átthagafélaga í
Reykjavík sameina heimsókn og
berjaför. Berjaspretta er yfir-
leitt góð og margir vestfirzkir
bændur eiga víða mikil berja-
lönd og stunda berjatínslu með
fjölskyldum sínum. Hefur berja
sala bænda farið vaxandi und-
anfarin ár og verið sumum
drjúg aukaatvinna. Markaður í
Reykjavík og nágrenni hefur
verið svo mikil að naumlega
hefur orðið fullnægt eftirspurn.
Nokkuð af síldarstúlkum
héðan komu heim frá Siglu-
firði í byrjun vikunnar. Segjast
þær varla hafa haft fyrir kostn-
aði í sumar. Atvinna hefur ver-
ið miklu daufari nú en undan-
farin sumur, einkum hjá kven-
fólki og unglingum.
Dýpkunarskipið Grettir hef-
ur undanfarið unnið að dýkun
bátahafnarinnar hér. Gekk það
verk greiðlega. — Malbikun
gatna stendur yfir. — Arn.
Fyrsti alm.garður í úthverfi
Reykjavíkur opnaður í gær.
Var skírður Garðaflöt — er í
Bústaðahverfi.
Fyrsti almenningsskrúðgarð-
ur í úthverfi Reykjavíkur var
vígður í gær á afmælisdegi
Reykjavíkur, og gáf frú Auður
Auðuns borgarstjóri honum
nafnið Garðaflöt um leið og hún
opnaði hann íbúum hverfisins.
Þá tók til máls Hafliði Jóns-
son garðyrkjustjóri bæjarins og
lýsti garðinum og verkinu.
Garðflöturánn er 3240 fermetr-
ar. í honum hafa verið gróður-
settar 1500 trjáplöntur og 2000
sumarblóm, sem fengið hefur
uppeldi í ræktunarstöð Reykja-
víkur í Laugardal. Vegná þurk-
anna í sumar hefði verið horfið
frá því ráði að sá grasfræi í flöt
ina, heldur lögð túnþökum.
Gangstígar eru ýmist hellulagð-
ir eða íbornir rauðamöl, og
bekkjum komið fyrir á flötun-
um. Að staðaldri hefðu 5 menn
unnið við að koma upp garðin-
um í sumar, og kostaði hann um
250 þús. krónur. Einkum þakk-
Bretar bæta brennivíns-
löggjöf sína.
Þa5 er gert vegna breyttra íifnaðarhátta
þjóðarinnar.
> Meiri háttar breytingar verða
Sgerðar á brezku áfengislöggjöf-
inni, vegna þeirra breytinga á
Íífsvenjum, sem sjónvarpið og
c&ukin frítími hafa komið til
leiðar.
Butler, innanríkisráðherra
Breta, vinnur nú að nýrri lög-
fejöf um áfengismál, og munu
tillögurnar verða lagðar fyrir
þingið, er það kemur saman í
Jiaust.
Eyskens fékk
traust.
I gær lauk í belgiska þinginu
$veggja daga umræðu um at-
imrðina í Kongo og meðferð
Eyskens forsætisráðherra og
stjórnar hans á þeim málum.
Umræður voru heitar á köfl-
um .og lauk. þeim með atkvæða-
Æreiðslu, gem fór þannig, að
<ieilÖin vottaði Eys.kens traust
aneð lis.atkvæðum gegn 88.
j Við þessa breytingu á að fella
^ niður margt af gömlum og úr- j
eltum ákvæðum í brezku áfeng
islöggjöfinni. Meðal annars
, verða vínsölustaðir opnir 9 tíma
| á dag í staðinn fyrir 8 og einn-
ig verður staðaryfirvöldum, á
í baðströndum og öðrum ferða-
: mannastöðum, heimilt að lengja '
■ mjög þann tíma, sem heimilt'
verður að hafa vínsölustaði
opna.
Ef opið verður á venjulegum
stöðum til kl. 11 (núna yfirleitt
til kl. 10), þýðir það, að menn
geta komið við á veitingahúsi,
eftir að hafa farið á bíó eða
setið heima og horft á sjónvarp.
Það er almenn skoðun í Bret-
landi, að þetta aukna frelsi,
muni ekki þýða aukna drykkju.
Ennfremur verður linað á þeim
reglum, sem fjalla um missi vín
veitingaleyfa, vegna brota. Þar
er helzt, að ekki verður tálið
saknæmt að taka með sér áfengi
eða bjór frá vinveitingastöðum
eftdr lokun, né staðnum refsað.
aði Hafliði Birni Kristóferssyni
garðyrkjumanni vel unnið
verk. Þá kvaðst hann ekki geta
orða bundizt um vilja hverfis-
búa gagnvart þessu verki. Sí-
fellt hefðu húsfreyjur verið
boðnar og búnar að hlynna að
gróðrinum og iðulega fært
starfsmönnum garðsins ýmsar
góðgerðir svo sem kaffi og
pönnukökur.
Loks þakkaði formaður Garðs,
félags Bústaðahverfisbúa, bæj-
arstjórn fyrir skrúðgarðinn og
taldi víst, að íbúar hverfisdns
gengju.um hann svo sem vert
væri.
Hitabylgja
í Noregi.
Frá fréttaritará Vísis.
Osló.
Nú um mánaðar skeið hefur
Noregur vcrið baðaður sól. —
Óvenjulegur hiti hefur verið í
Vorður-Noregi, þvi hann hefir
komist upp í 31 gráðu á celsius
á Breinard, 25 gráður í Bodo og
32 gráður í Alta. Aldrei fyrr
hefur mælzt svo mikill hiti á
þessum slóðum.
Gestastraumur til norður
Noregs hefur aldrei verið meiri
og einmitt í mestu hitunum
komu 10 þúsund svissneskir
ferðalangar til Noregs. í sum-
ar hefur mátt sjá fólk busla i
vatninu alveg upp undir Svart-
isnum, þar sem jökullinn fellur
í hafið. í innfjörðum hefur
vatnið orðið 20 gráða heitt.
1
Þessi mynd minnir vafalaust marga á höggmyndina frægu í
Kaupmannahöfn, liafmeyjuna Iitlu á Löngulínu, en liún getur
líka minnt á Ijóðið „Ein sit eg úti á steini ... “ Hvað um það,
myndin var tekin í Nautliólsvík í fyrradag og við höldum nafni
og heimiiisfangi hafmeyjarinnar stranglega leyndu.
Æ lexantlrov
Egyptar og Rússar hafa gert
samning um smiði mikillar
skipasmíðastöðvar.
Stöðin á að verða í Alexandr-
íu og á að þékja um 5 ferkíló-
metra lands, og Rússar taka að
Verkfalli aflýst
Verkfallinu í Aden hefur
verið aflétt.
Leiðtogar verkamanna segj-
ast berjast áfram gegn nýju
sér að koma henni upp. Verður J vinnulöggjöfinni, en með hverj-
þetta stærsta skipasmíðastöð um hætti þeir hyggjast gera
við austanvert- Miðjarðarhaf. 1 það, tilkynntu þeir ekki.
Heimsmet
„útvarpi“.
Bretar settu nýlega nýtt
heimsmet. Ekki var þó um að
rœða heimsmet í grein, sem
keppt er í á Ólympíuleikunum.
Þeir hentu nefnilega meiri
þunga úr flugvél en áður hefur
verið gert. Flugvélin, sem not-
uð var, var af tegundinni
Beverley Transport og þung-
inn var 18 smálestir, en það er
5000 enskum pundum betra en
gamla metið, sem Bandaríkja-
menn áttu. Það skal tekiS
fram, að „útvarpið“ fór fram
með aðstoð fallhlífar.
Nýtt forsætisráöherraeíni
í Suður-Kóreu.
Forseti Suður-Kóreu hefur
tilnefnt nýjan mann sem for-
sœtisráðherraefni.
Er sá dr. Chang, sem fyrir
valinu varð, en hann er fyrr-
verandi varaforseti. Er nú eftir
að vita hvort þjóðþingið nýja
sættir sig við hann.