Vísir - 30.09.1960, Síða 6
VISIR
Föstudaginn 30. september 1960
VlSIR
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Ritstjórnarskrifstofur eru að Laugavegi 27, en aðrar
skrifstofur að Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofurnar eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 30.00 í áskrift á mánuði.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Viftræðurnar um Eandhelgina.
Á morgun liefjast hér í Reykjavík viðræðurnar við
Breta um fiskveiðilögsöguna hér við land. Hingað til lands
mun nú vera komin, eða í þann mund að lcoma, nefnd sú
sem keinur fram fyrir hönd brezku stjórnarinnar, og til-
kynnt hefir verið, hvaða menn íslenzka stjórnin hefir valið
til að verða fyrir svörum af okkur hálfu. Mun jiað allra
manna mál, að þar sé valinn maður í hverju rúmi. Að
minnsta kosti hefir svo brugðið við, að tvístirnið rauða,
Þjóðviljinn og Tíminn, hefir ekki treyst sér tl að hallmæia
stjórninni fyrir val þessarra manna. Það kann varla að vita
á gott fyrir þá rauðu!
Valið í nefndina sýnir, að íslendingar ætla fyrst
og fremst að ræða hvar fiskinn er að finna og' hvar
þarf þess vegna að vernda uppeldis- og- veiðistöðvai’.
Það má segja, að hvað íslendinga snertir, þá verður
hér um vísindalegar viðræður að ræða. Um það skal
ekki sagt á þessu stigi málsins, livort Bretar hafa
hugsað sér umræður á þessu eða einhverju öðru sviði.
Menn deila vart um það, að ríkisstjórnin hefir valið
þann eina grundvöll, sem til mála kemur.
En |iótl stjórnarandstaðan hafi ekki treyst sér til að
gagniýna nefndina, sem á að ræða við Breta, verður þó
ekki sagt, að hún hafi dregið af sér við svikaaðdróttanir
í garð ríkisstjórnarinnar. Þjóðviljinn og Timinn hafa
hamazt eins og þegar væri húið að falla frá 12 mílna land-
helginni að meira eða rninna leyti og Brétar mætlu vaða
með skip síu upp í landsteina, j>ar sem jieim byði svo við
að horfa.
Það kemur vissulega úr hörðustu átt, begar blöð
þeirra flokka, sem völdu sér annarleg sjónarmið til
að berjast fyrir í Genf í vor, fara að bera svik á aðra.
Það má benda á það í þessu sambandi, þótt almenn-
ingi ætti að vera ljóst, að það hafa einmitt verið
Sjálfstæðismenn, sem hafa jafnan haft forustu í þeim
málum, sem snert hafa friðun fiskimiðanna, enda
þótt beir hafi ekki verið í stjórninni, sem færði fisk-
veiðilögsöguna út í 12 mílur árið 1958.
Þá var hinsvegar fruntalega að farið og stefnt að j)ví
að skapa sem inestar deilur um jietta lífsnauðsynjamál ís-
lendinga. Von kommúnista var sú, að stækkun landhelg-
innar mundi um síðir verða til jiess, að Islendingar hrekt-
ust úrsamtökum frjálsra jjjóða. Með því hefði Sovétríkjun-
um sannarlega verið gerður mikill greiði.
Það má telja hrein happ, að ekki skvldi hafa orðið
manntjón hér við land á beim tíma, sem liðinn er frá
stækkun fiskveiðilögsögunnar. Hefir þó hurð oft
skollið nærri hælum, svo að sjálfsagt er að reyna að
búa svo um hnútana, að hættan vofi ekki lengur yfir
en óumflýjanlegt er. Þessar viðræður við Breta eru
einmitt við það miðaðar, að komizt verði hjá frekari
hættu á manndrápum.
Það getur varlá talizt lil lándráða að bægja frá hættu
á mannvígum, svo að viðræðurnar geta varla flokkazt undir
það. Menn skulu ]>ví híða úrslitanria með rósemi og forðast
að láta kommúnista æsa sig að óþörfu.
Síðasta uppátækið.
Hafi menn verið í einhverjum vafa um það, að
konimúnistar vildu nota landhelgismálið til æsinga,
hlýtur hann að vera úr sögunni, þegar þeir hafa nú
tilkynnt fyrir munn stjórnar Alþýðusambandsins, að
efnt skuli til útifundar um málið á mcrgun.
Landhelgismálið er einmitt mál af ]>ví tagi, sem ekki
má efna til æsinga um. Við höfum fengið miklu fram^engt
á því sviði, og við getum haldið áfram að vinna á, ef við
látum skynsemina ráða og hugsum hvert skref en rösum
ekki um ráð fram. Það er þetta sem kommúnistar vilja —
að menn geri sig seka um mistök í æsingi og liugsunarleysi.
Síðasta uppátæki jieiiTa, útifimdurinn á morgun er enn ein
sönnun fyrir því.
Bindindisfélag ökumanna:
- I ra in kvir m il astjjórin n —
• •
Okumennirnir
og stefnuljósin.
Bindindisfélag ökumanna hef-
ur í áróðri sínum fyrir bœttri
umferð á öllum sviðum sízt
gleymt að minnast á stefnuljós
bíla og notkun þeirra. Formað-
ur Reykjavíkurdeildarinnar,
Viggó Oddsson, hefur birt marg
ar greinar um notkun þeirra í
blöðum bœjarins. — Málgagn
BFÖ, TJmferð, hefur rœtt þessi
mál. Tillögur hafa verið gerðar
um þau á fundum félagsins og
sendar réttum aðilum o. s. frv.
En hver er svo árangvr^nn?
Jú, auðvitað notar meirihluti
ökumanna stefnuljós nú orðið
að einhverju leyti, og virðist þó
sízt framför á því sviði. Aðrir
gera það helzt aldrei, nema þá
ef þeir „gleyma að gera það
ekki“. Þeir aka með kærulejrs-
issvip ökugikksins, langt yfir
það hafnir að taka smávægilegt
tillit til umferðarreglna og með-
bræðra sinna í umferðinni. Og
eftirlit lögreglunnar á þessu
sviði? Verið getur, að það sé
eitthvað, en lítið hefi ég orðið
var við það. Að vísu er hér úr
vöndu að ráða. Það er ógerlegt
að elta uppi hvern einasta öku-
gikk, sem ekki notar stefnu-
ljós. En það ætti kannske að
vera hægt að elta suma — ör-
fáa — uppi hvern dag og sekta
þá miskunnarlaust og hér þyrfti
það að gerast á staðnum. Þetta
myndi hafa sín áhrif á stuttum
tíma, og nú er lögreglan betur
sett en áður, hvað þetta áhrær-
ir. Það virðist jafnvel svo, sem
það séu fleiri en ökumennirnir,
sem ekki gera sér fulla grein
fyrir því, hvers virði fyrir ör-
yggi og greiða umferð það er,
að stefnuljós séu ætíð notuð er
við á -— og rétt. Eg fullyrði, að
hér er um svo mikilvægan þátt
nútíma borgarumferðar að
ræða, að hún hlýtur að verða
öngþveitiskennd, þar til komið
er í rétt horf á þessu sviði. Það
er til skammar, að í höfuðborg
íslands skuli það fyrst og
fremst vera aðeins einn einasti
maður, sem með athugunum
sínum og skrifum þar um á op-
inberum vettvangi hefur bar-
izt fyrir því, að þessi þáttur
umferðarinnar þurfi ekki að
verða okkur um ófyrirsjáanlega
framtíð til þjóðarhneisu.
Hér er það þó ekki fyrst og
fremst hundraðshluti þeirra
ökumanna, sem yfirleitt notar
stefnuljós, sem ég ætla að ræða
um, heldur annað, sem mér
virðist jafnvel enn alvarlegra
en það, hve margir þeir eru,
sem ekki, eða helzt alls ekki,
nota stefnuljós. Þetta er hin
ranga beiting fjölda ökumanna
á stofnuljósunum. Ég, sem
þetta rita, er mikið á ferð hér
á g'öturn borgarinnar og sam-
kvæmt þeim athugunum, sem
ég hefi gert, fullyrði ég, að
mjög verulegur hluti þeirra öku
manna, sem nota stefnuljós að
staðaldri, beitir þeim þannig,
að til lítils eða einskis gagns er,
Jafnvel stundum á hinn bóginn.
Þetta virðist harður dómur, en
eitt er þó víst: Ég segi ekki
meira en það, sem ég persónu-
lega er sannfærður um.
Það sýnist svo sem margir
þeirra ökumanna, sem annars
oftast nota stefnuljós, virðist
’ ekki enn hafa áttað sig á því til
hvers þau í raun og veru eru
; ætluð, a. m. k. virðist erfitt að
álita annað. er maður sér,
j hvernig þeim er beitt. Stefnu-
j ljós eru til þess að draga úr
| slysahættu og greiða fyrir um-
ferð. Þau eiga. að sýna, hvað
ökumaðurinn œtlar sér að gera
en ekki hvað hann er að gera.
Það sér maður á öðru en stefnu-
ljósunum. Ökumaður, sem tek-
ur að gefa stefnuljós um leið
og hann beygir, hefur sýnilega
ekki hugmynd um, hvaða ör-
yggistæki hann er með á bíl
sínum. En þetta, eða þessu líkt
j gerir leiðinlega stór hluti þeirra
i ökumanna, sem stefnuljós nota
annars að staðaldri. Með þessu
er gagnsemi stefnuljósanna að
engu gerð. Umferðin verður hik
andi og ógreið sem áður. Menn
þora ekki einu sinni í öllu þessu
flmi að treysta stefnumerkjum
þeirra ökumanna, sem gefa þau
rétt, enda varla von meðan svo
fer fram.
Ég skal nú leyfa mér að taka
aðeins eitt dæmi til skýringar
á því, hvað ég á við og nýskeð
er. Ég tek þetta dæmi aðeins
vegna þess, að svo margir bílar
komu við sögu.
Ég renndi upp Nóatúnið að
Laugavegi og ætlaði áfram upp
Nóatún, þ. e. þvert yfir Lauga-
veginn, sem var auður langt
austur að sjá. Þrír bílar komu
að vestan, þétt hver á eftir öðr-
um, og svo nærri, að ég beið
við. Er sá fyrsti kom alveg að
vegamótunum, gefur hann
stefnuljós til vinstri og rennir
niður Nóatún. Nákvæmlega
eins höguðu allir þrír bílarnir
sér, að því undanskildu, að nr.
2 gaf alls ekki stefnuljós og
nr. 3 ekki fyrr en hann var vel
á veg kominn með beygjuna.
Allir renndu þeir niður Nóatún-
ið. Er sá síðasti var kominn á
hliðvið mig, sem auðvitað þorði
ekki að hreyfa mig af staðn-
um á meðan ökusnillingar þess-
ir renndu hjá, var Laugavegur-
inn aftur að lokast vegna um-
ferðar að austan — og enn
mátti ég biða nokkra stund, allt
vegna tillitsleysis, eða öllu held-
ur skilningsleysis og ills öku-
vana hinna þriggja áðurnefndu
bílstjóra, sem ekki kunnu að
nota stefnuljós.
Ég hirði ekki um að tína til
fleiri dæmi, en Þau gætu verið
mýmörg. Margir hafa sömu
söguna að segja og ég og hafa
oft vakið máls á þessu við mig.
Að gefa stefnuljós til öfugrar
handar er stórhættulegt, svo og
að láta þau ralla á löngu eftir
að beygja er tekin. Þetta hvort-
tveggja tel ég þó frekar til und-
antekninga. En að beita þeim
eins og að framan er lýst er til
gagnslaust, og leysir engan
vanda. Það lýsir aðeins því, á-
sarnt ýmsu fleiru, að fjölmargir
ökumenn eru ekki enn þeim
vanda vaxnir að aka í iðandi
umferð svo vel fari. Sé ekki
Frh. á 11. s.
BERGMAL
Margir hafá þakkað blaðinu
fyrir' mynd þá, sem birt var á
miðvikudaginn af biðröðinni,
sem mynaðist við Laugardais-
völl á sunnudag, þegar menn'
voru að kaupa aðgöngumiða að
leiknum milli Akraness og KR.1
Einn af þeim, sem hitti einn af
fréttamönnum Vísis á förnum
vegi, sagðist ekki hafa sloppið
inn fyrri en langt var liðið á
fyrri hálfleik og kom þó
skömmu áður en leikurinn átti
að hefjast. í
Einfaldari siðir.
„Þrándur“ skrifar eftirfar- ’
andi pistil: „Mikill er sá mun-
ur, sem orðinn er á útfararsið-
um hér í Reykjavík á skömm-'
um tíma. Allt er orðið miklu
einfaldara og viðkunnanlegra
en áður var, og menn munu yf-
ir leitt kunna því háð bézta.
Þar við bætist. að það er ekki
eins dýrt að koma mönnum í
jörðina og er það mikilvægt at-
riði í margra augum.
Útfararskikkjur.
Méf er ekki kunnugt um það,
hvort fleiri menn eru kvaddir
v.irðulega og hljóðlega í hinni
fögru kirkju í Fossvogi eða úr
hinum kirkjunum, þar sem
siðir eru eðlilega aðrir og form-
ið enn líkt því, sem áður var
Talan skiptir ekki máli, en mér
finnst, að eitt atriði þurfi end-
urskoðunar við. -í kirkjunum í
bænum á að taka upp notkun á
útfararskikkjum, ef kista er
borin í kirkju eða úr.
Tímafrekar ferðir.
Kunningi minn kom að máli
við mig um daginn í sambandi
við þetta. Hann hafði verið við-
útför ættingja, fenginn til að
bera kistu úr kirkju. Hann
varð að fá lánaðan kjól — sem
mun nú vera í fárra manna eigu
nema kórfélaga — en þó var
það verra viðfangs, að hann
varð að skipta um föt tvívegis
og fara langar íeiðir til þess.
Ferðir til slíks eru tímafrekar.
Ef í Kópavogi .. .
Hann sagði við mig: Ef ég
hefði verið búsettur í Kópavogi
og ekki átt bíl eða haft efni á
að fara á milli í slíku farar-
tæki, hefði það kostað mig
hálfan daginn að skipta þannig
um föt. Þess vegna segi ég hilt-
laust: Hví ekki að nota sérstak-
ar skikkjur við slíkar útfarar-
athafnir eins og við fermingu?
athafnir eins og við fermingu?"
Bergmál. beinír uppástung-
unni til sóknaniefndar og-ann-