Vísir - 04.03.1961, Blaðsíða 5

Vísir - 04.03.1961, Blaðsíða 5
Laugardaginn4. marz 1961 r ' ___ VfSIB [' Vinningur okkar er auíisær, hvort sem litii) er til næstu þriggja ára e5a allrar framtíSarinnar. Ræ5a Bjarna Benediktssonar dómsmála- róóherra í útvarpsumræóunum í fyrrakvöld. Það er rétt, að íslenzka þjóð- in þarf og á að láta til sín heyra í þessu mikla máli. Hún hefur brugðið skjótt við. Hvaðanæva streyma nú, eins og stjórnarand- stæðingar hafa viðurkennt, yfir- lýsingar frá þeim, sem bezt hafa vit á og mest eiga í húfi til stuðnings þál.till., sem hér ligg- ur fyrir. Hv. þm. Karl Guð- jónsson hélt því raunar fram áð- an, að þetta væri vegna þess að rikisstjórnin hefði haft svo mikinn áróður í frammi máli sínu til stuðnings, og útvarpið hefði verið misnotað í því skyni. Það voru einmitt stjórnarand- stæðingar, sem fengu frestað út- varpsumræðum, en rikisstjórn- in vildi, að rödd þeirra fengi að heyrast fyrr til þjóðarinnar heldur en þeir sjálfir óskuðu eftir. Hv. þm. Karl Guðjóns- son var á fundi í gærkvöldi sem heiðursgestur flokkssamtaka Framsóknar á Suðurlandi, þar sem þeir félagar höfðu undir- búið tvær miklar tillögur til áfellis þessu samkomulagi og til vantrausts á rikisstjórn, en þegar þeir félagar sáu og heyrðu undirtektir fund- armanna, gáfust þeir upp við að bera upp sínar eigin tillög- ur og fóru þess á leit að mega slíta fundinum, áður en héraðsmenn fengju sjálfir að taka til máls. Þeir voru þá búnir að fá nóg. Allir eru sammála um, að ályktunin, sem Alþingi íslend- inga gerði samhlj. 5. maí 1959 sé sú umboðsskrá, sem ríkis- stjórnin hafi verið bundin við um meðferð þessa máls. Alykt- unin hljóðar svo: „Alþingi ályktar að mótmæla harðlega brotum þeim á ís- lenzkri fiskveiðilöggjöf, sem brezk stjórnarvöld hafa efnt til með stöðugum ofbeldisaðgerð- um brezkra herskipa innan ís- lenzkrar fiskveiðalandhelgi nú nýlega hvað eftir annað, jafn- vel innan 4 mílna landhelginn- ar frá 1952. an íslenzkrar fiskveiðiland- helgi, í öðru lagi lýsir Alþingi yfir, að það telur ísland eiga ótvíræðan rétt til 12 mílna fisk- veiðilandhelgi. í þriðja lagi, að ekki komi til mála minni fisk- veiðilandhelgi en 12 mílur frá grunnlínum umhverfis landið. í fjórða lagi, að afla beri viður- kenningar á rétti íslands til landgrunnsins alls svo sem stefnt var að með 1. um vís- indalega verndun fiskimiða landgrunnsins frá 1948. Bjarni Bencdiktsson. í fyrsta lið orðsendingar ut- anrrh. íslands til utanrrh. Bretlands, sem hér liggur fyr- ir, segir: „Ríkisstjórn Bretlands falli frá mótmælum sínum gegn 12 mílna fiskveiðilögsögu um- hverfis island'1 o. s. frv. Með staðfestingu brezku ríkis stjórnarinnar á þessu frumskil- yrði okkar er tryggt, að oíbeld- isaðferðir af hennar hálfu inn- an fiskveiðilandhelgi okkar hvei'fi úr sögunni. Mótmæli Al- þingis gegn þeim hafa þess vegna borið tilætlaðan árang- ur. En áður haíði ríkisstj. ís- lands með sakaruppgjöfinni s.l. vor og ákvörðuninni um við- Umboðsskráin. Þar sem þvílíkar aðgerðir eru augljóslega ætlaðár til að knýja Islendinga til undanhalds, lýsir Alþingi yfir, að það telur ísland eiga ótvíræðan rétt til 12 mílna fiskveiðilandhelgi, að afla beri viðui’kenningar -á rétti þess til landgrunnsins alls, svo sem . stefnt var að með lögum um visindalega verndun fiskimiða landgrunnsins frá 1948 og ekki komi til mála minni fiskveiði- landhelgi en 12 mílur frá grunn- línum umhverfis landið.“ Þannig hljóðaði þessi álykt- un, umboðsskráin, sem ríkisstj. þarf að fara eftir. í ályktun þess ari eru fjögur efnisatriði. í fyrsta lagi mótmælir Alþingi brotum þeim á íslenzkri fisk- veiðilöggjöf, sem brezk stjórn- arvöld efndu til með ofbeldis- aðgerðum brezkra herskipa inn- ræður við Breta á s.l. sumri tekizt að hindra þær að mestu um sinn. Ákvörðun brezku ríkisstj. um að falla frá mótmælum gegn 12 mílna fiskveiðilögsögunni tryggir ekki einungis, að hún taki ekki upp ofbeldisaðgerð- ir að nýju, heldur felur á- kvörðunin einnig í sér, að héðan í frá rnuni- brezka stjórnin ekki bera brigður á hinn ótviræða rétt, sem Alþingi íslendinga hinn 5. maí 1959 lýsti yfir, að ísland hefði til 12 mílna fiskveiðilögsögu og þetta heitorð er helgað með skrásétn- ingu þinglýsingu hjá sjálfum Sameinuðu þjóðunum til trygg- ingar því, að við það verði stað- ið. Réttúr íslaxids. Héðan i frá-vérður ekki um það öeiít, að ísland einu ber þessi réttur og getur þar af leið- andi án samráðs við aðra ráð- stafað honum eins og það telur sér henta. Hv. þm. Lúðvík Jós- efsson og Hermann Jónasson héldu því að vísu fram, að með þessu væri ekkf fengin viður- kenning Breta á 12 mílna lög- sögunni. Þetta segja þeir í sömu andránni og Hermann Jónasson fjölyrðir um þá við- urkenningu í verki, er við höf- um hlotið frá ríkjum, sem ekki létu skip sín fiska hér undir herskipavernd, en mótmæltu þó stækkuninni 1948 berum orðum. Nú falla Bretar ekki einungis frá valdbeitingu held- ur berum orðum frá mótmæl- um sínum. Þetta er svo skýr viðurkenning, sem á verður kosið. Hitt er annað mál, að Alþingi hefur aldrei falið ríkis- stjórninni að afla viðurkenn- ingar Breta um 12 mílna fisk- veiðilögsöguna, þegar af því að það taldi rétt okkar til hennar ótvíræðan og þess vegna óþarfa aðra viðurkenningu Breta en þá, að þeir hættu ofbeldisað- gerðum, eins og fram kemur í ályktuninni frá 5. maí 1959. Um þriðja megineíni þeirrar ályktunar leiðir það af því, sem þegar hefur verið skýrt, að fisk veiðílögsagan verður hvergi minni en 12 mílur umhverfis landið. En vegna hinna nýju grunnlína, sem í öðrum lið orð- sendingar utanrrh. íslands er á- skilið, að Bretar viðurkenni, verður fiskveiðilandhelgin nú þegar 5065 ferkm. stærri en hún var þegar samþj'kktin 5. maí var gerð. Með hinum nýju grunnlínum fást færð inn fyrir íslenzka fiskveiðilögsögu sum hin allra þýðingarmestu fiski- mið við íslandsstrendur. Um úrslitaþýðingu þeirrar ákvörð- unar verður ekki deilt. Stjórnarandstæðingar halda því raunar fram, að þennan rétt hefðum við getað tekið okkur hvenær sem okkur þókn- aðist. — Lúðvík Jósefsson sagði, að við ættum þennan rétt. En af hverju gaf hann þá Bretum þessa ómetanlegu gjöf með reglugerð sinni 1958? Tal Lúðvíks og Hermanns um sína eigin vanrækslu afsakar sízt atferli þeirra. Með skrafi sínu nú kveða stjórnarandstæð- ingar upp harðan og harðasta áfellisdóm yfir gerðum vinstri stjórnarinnar, sem nokkur hef- ur uppkveðið fyrr og síðar, að þeir hafi gefið Bretum ómetan- lega eign íslendinga. — Hv. þm. L. Jós. og félagi hans, Herm. J. létu óbreyttar standa grunnlín- urnar, sem settar voru með reglugerðinni 19. marz 1952. Ef þeir töldu Islendinga eiga rétt til annars og. meira, af hverju beittu þeir þeim rétti þá ekki 1958, þegar þeim bar réttur og skylda til að gæta hagsmuna Islands? Trúi hver annar en sá, sem þessa menn þekkir því, að þeir hafi gert þetta af und- anlátssemi og tillitssemi við okkur Sjálfstæðismenn.- Um þetta hljóta þeir að -verða krafðir svara nú og síðar og þá einnig um hitt af hverju þeir í október 1960 lögðu fram á Alþ. frv. um að lögfesta þessar gömlu grunnlínur frá 1952. Ó- umbreytanleiki þeirra var svo ríkur í þeirra huga allt til hinna síðustu daga, að jafnvel hinn 13. febrúar s.l. lögðu þeir til í nál. um lögfestingar frv. síns, að samþykkja frv. ó- breytt og þar með hagga í engu hinum sömu grunnlínum og þeir treystust ekki til að breyta 1958 heldur vildu þeir enn lögfesta þær um óákveðna framtíð fyrirvaralaust. Töldu breytingu vafasama, Á þessu athæíi er engin skýr- ing önnur en sú, að þeir hafi talið breytingu grunnlinanna svo vafasama, að ekki væri á hana hættandi. — Því aug- Ijósara er, hversu mikla þýð- ingu það hefur, að Bret- land, sem ætíð hefur stað- ið fastast gegn stækkun fisk- veiðilandhelgi okkar, skuli nú fallast á þessar þýðingarmiklu breytingar. Bretar gerðu það að vísu gegn því, að við af full- veldi íslands yfir fiskveiðilög- sögunni allri veitum þeim tímabundinn takmarkaðan rétt til veiða á nokkrum hluta fisk- veiðilandhelgi okkar milli 6 og 12 mílna. Þeirri timabundnu, takmörkuðu veiðiheimild lýkur með öllu að þrem árum liðnum, þar sem grunnlínubrevtingin og stækkunin, sem af henni leiðir, stendur um alla eilífð. Ekki þarf að eyða orðum að því, hvort hagkvæmara er fyr- ir ísland. Vinningur okkar er' auðsær, jafnvel þótt miðað væri einungis við næstu þrjú ár, hvað þá ef litið er til allrar framtíðar. Má t. d. um það vitna til ummæla hins gerkunnuga manns í landhelgismálunum, Eiríks skipherra Kristófersson- ar, sem hann við hefur í Morg- unblaðinu í morgun. — Fjórða meginatriði samþykktar Al- þingis frá 5. maí 1959 var, aðl afla beri viðurkenningar á rétti íslands til landgrunnsins alls svo sem stefnt var að með 1. um vísindalega verndun fiski- miða landgrunnsins frá .1948. Á orðalagi þessarar yfirlýsing- ar og hinnar fyrri um hinn ó- tvíræða rétt til 12 mílna fisk- veiðilandhelgi er þýðingarmik- ill munur. Alþingi mælir fyrir um, að afla beri viðurkenning- ar á rétti til landgrunnsins, þar sem það aftur á móti segir rétfinn til 12 mílna fiskveiði- lögsögu ótvíræðan. Hvernig er hægt að afla þessarar viður- kenningar nema með því að fá hana með málaleitun til ein- stakra ríkja eða með samning- um þeirra í milli eða með al- þjóðasamningum eða loks stað- festingu alþjóðadómstólsins á þvi, að þessi réttur sé fyrir hendi? Hér koma vissulega ekki fleiri möguleikar til greina. í umr. um landhelgism. fyrr í vetur lögðu stjórnarandstæð- ingar megináherziu- á, að ef við semdum nú við Breta myndum við þar með svipta okkur réttit eða möguleikum til að gera frekari stækkanir síðar nema með samningum við Breta og þar með binda okkur við þá leið til öflunar viðurkenningar á landgrunninu, sem óliklegust er, að leiði til árangurs. Hv.. þm. Hermann Jónasson sagðí t. d. í lok útvarpsræðu sinnar hinn 25. nóvember s.l.: „Landhelgi, sem þjóðirnar viðurkenna, stækkar svo aö segja með hverju árinu. Þjóðir. sem nú fá frelsi og koma í Sam- einuðu þjóðirnar, heimta stækk aða landhelgi. Það getur svo> farið, að eftir nokkurn tíma verði landgrunnið viðurkennt; sem iandhelgi íslands. Ef Bret- ar geta tælt okkur nú til samn- inga segja þeir næst, þegar við’ ætlum að færa út þótt þá væri: í samræmi við alþjóðalög og okkur lífsnauðsyn: Þegar þið» fenguð 12 mílur, urðuð þið af> viðurkenna það, að þið gátuðí ekki tekið ykkur þær nema með samþykki okkar. Þar meö játuðuð þið ykkur undir það að þið gætuð ekki gert frekari út- færslu nema með samning við okkur.“ Engin skulclbinding. Þetta voru ummæli Her- marms Jónassonar 25. nóv. i vetur. í orðsendingu utanríkis- ráðherra íslands til utanríkis- ráðherra Bretlands er tekið af skarið um þetta, þegar segir: „Ríkisstjórn íslands mun. halda áfram að vinna að fram- kvæmd ályktunar Alþingis frá. 8. maí 1959, varðandi útfærslu. fiskveiðilögsögunnar við ís- land, en mun tilkynna ríkisstj. Bretlands slíka útfærslu meft> sex mánaða fyrirvara, og rísf. ágreiningur um slíka útfærslu. skal honum, ef annar hvor að- ili óskar, skotið til Alþjóða- dómstólsins." Þetta segir í orðsendingunni. Með þessu bindur ísland sig: hvorki við viðurkenningu, sem. fást kvnni með málaleitun eða samningum við einstök ríki., Bretland eða önnur, né við al- þjóðasamninga, heldur við þaði eitt að við áskiijum okkur rétt: til að gera einhliða ákvarðanir um stækkun jafnskjótt og viff teljum að einhver sú réttar- heimild sé fyrir hendi, semi Alþjóðadómstóllinn viður- kenni. Á þennan veg höfum við- íslendingar tryggt okkur að^ njóta góðs af allri þeirri þróun. alþjóðaréttar, sem kann að>' verða okkur til hags í þessum. efnum. Á hvern hátt er betur hægt að tryggja sér þá viður- kenningu, sem Alþingi hinn 5. maí 1959 lagði fyrir ríkisstj.. að afla? Þvi er skemmst til a& svara, að engin okkur hag- kvæmari leið er hugsanleg. — Þeir, sem nú telja réttindaaf- sal fólgið í till. ríkisstj., gefa þar með til kynna að þeir hafi hvorki gert sér grein fyrir efni fyrirmæli Alþ. 5. maí. 1959 til ríkisstj. .né þeir ' skilji frum- atriði þessa máls. En auðvita5 eru hv.' þm. ekki eins skyni. skroppnir og þeir láta. Til góðs: eða ills töldu íslenzk stjórnar- völd á sínum tíma réttinn til 12 mílna fiskveiðilögsögu svcu ótvix’.æðan, að óþarft væri aði bera hann undir Alþjóðadóm- stólinn. Alþingi hefur hins veg- ar lýst því berum orðum að unx réttinn til landgrunnsins allsí beri að leita viðurkenningav

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.