Vísir


Vísir - 19.05.1961, Qupperneq 3

Vísir - 19.05.1961, Qupperneq 3
Föstudaginn 19. maí 1961 Ví SIR Kína veitir Albön- um efnahagsaðstoð v Þáttur í stríðinu við rússnesku kommúnistana. Kommúnista-Kína hefir á- kveðið að senda 12.5 milljóna dollara virði af korni og vélum til Albaníu. Albanía er traustasti banda- maður Rauða Kína meðal Austur-Evrópuríkjanna, og hef- ir stutt það með ráðum og dáð í hinni pólitísku togstreitu, sem staðið hefir milli kínverskra og rússneskra kommúistaleið- toga. Fréttastofan Nýja Kína hefir sagt, að Kína hafi ákveð- ið að senda tæki og efni til 25 mismunandi framkvæmda, sem Albanir hyggja á. Annars eru nánari fréttir af þessu frekar litlar. Samning- . urinn mun hafa verið undirrit- aður í febrúar sl. af vara-for- sætisráðherra frá báðum lönd- um. Um leið voru einnig undir- ritaðir samningar og reglur um tæknilega aðstoð Kína við Alb- ani svo og um albanska náms- menn í Kína. Sömuleiðis var nánar í reglunum kveðið á um notkun þess láns, sem Kína veitir Albönum. Talið er að Kína sé að reyna að gera Albaníu að stökkpalli til áhrifa í Afríku og Mið- Austurlöndum. Um leið mundi Kína hasla sér völl í stjórnmála- stríðinu við Rússa. í því sambandi er talið, að Rússar hafi ákveðið að lána kommúnistastjórn Ho Chi Min í Norður Viet Nam fjármagn, sem svarar til 145 milljóna dollara. Það sem styrkir þennan orðróm er, að kommúnista- stjórnin hefir tilkynnt nýja 5 ára áætlun, sem gerir ráð fyrir miklu meiri afköstum og fram- leiðslu en möguleg er við nú- verandi aðstæður. Samkvæmt fréttastofufregn- um frá Kína líkar stjórninni þar þessi samdráttur Rússa og Ho Chi Min afarilla. Samstarf þingmanna og vísindamanna. Fyrir nokkru var haldinn í London fundur til að fjalla um samvinnu þingmanna og vís- indamanna. í ályktun frá fund- inum er mælt með því, að gerð- ar séu ráðstafanir til, að þessir aðilar hafi reglubundið sam- band sín á milli. f ályktuninni er einnig lagt til, að haldið verði áfram að vinna að vísinda legum málefnum í Evrópuráð- inu og hinum alþjóðlegu efna- hagsstofnunum, sem aðsetur hafa í París. Þessir aðilar stóðu að fundinum í London auk brezkrar nefndar, sem vinnur að samstarfi þingmanna og vís- indamanna þar í landi. ' Fundarmenn sátu einn af Metin fuku. Metin fuku hvert af öðru í Sundhöllinni í fyrrad. Karl Grubb setti Norðurlandamet í 100 m. skriðsundi, synti á 1.03.6 Hin metin áttu Guðmundur Gíslason 2.08.6 í 200 m. skrið- sundi, Einar Kristjánsson 1.14.1 í 100 m. bringsundi karla, Ágústa Þorsteinsdóttir setti fs- landsmet í sama sundi og Grubb setti Norðurlandamet sitt í sem sé 100 m. skriðsundi og var met hennar 1.05.4. Þá setti Ágústa einnig met í 50 m. skrið- sundi og synti á 29.3 sek. fundum nefndar þessarar. Þar voru einnig hertoginn af Edin- borg og Hailsham lávarður, vís- indamálaráðherra Bret. Þá var nýreist tilraunastöð brezku vegagerðarinnar skoðuð. Fundurinn í London var boð- aður, þar sem það hefur komið fram bæði í Evrópuráðinu og Efnahagssamvinnustofnuninni í París, að nauðsyn ber til að auka vísindaiðkanir í aðildar- ríkjum þessara stofnana svo og samstarf ríkja um vísindamál. Einni er ljóst orðið að koma þarf á föstum og stöðugum tengslum milli þingmanna og vísindamanna. Nefnd hefur starfað í þessu skyni í Bretlandi frá 1939, og var tilgangur fund- arins í London ekki sízt sá að kynna starfsemi hennar Fram kom á fundinum, að ríkisstjórnir hafa yfirleitt' full- nægjandi aðstöðu til að fylgjast með vísindalegum málefnum. Hins vegar hafa ráðstafanir til að skapa þingmönnum aðstöðu að þessu tagi ekki verið gerðar nema í Bretlandi og í Svíþjóð, þar sem nefnd svipuð þeirri brezku var sett á laggirnar fyr- ir tveim árum. Unnið er að und- irbúningi á þessu sviði í ýmsum löndum. Á fundinum í London var einn fslendingur, Jóhann Haf- stein alþingismaður. Japanir eru fremstir á sviði kvikmyndagerðar. Sitt aff hverju lir Árbók $.þ. — Skanunbyssur tiltækar er rakari konungs brá hnífnum. Zog I., jyrrv. konungur, sem hét Aschmed, Bey Zogu áöur en hann varð konungur 1928, bjó mikinn hluta œvinnar viö þann ótta, að hann yrði myrt• ur, en endalok hans urðu þau, sem getið hefur verið í frétt- um, að deyja á sjúkrabeði. Hann gat aldrei gleymt því, að föður hans, tyrkneskum stigamannaforingja, var byrlað eitur. Þá var Zog 12 ára, og hafði ekkert lært, nema að handleika sverð, og varð hann (P'J nú foringi flokksins. Tíu sinn- um særðist hann í bardögum áðru en hann varð 19 ára. í fyrri heimsstyrjöld varð hann að flýja land og er hann kom aftur 1924, var reynt að ráða hann af dögum. Fjórum ár- um síðar varð hann Zog I. kon- ungur í Albaníu. „Vinur“ hans, Mussolini, lánaði honum upp- hæð sem svaraði til 2 millj. og til einka-rakara, en jafnan er Zog setist í stólinn, stóðu hjá honum tveir verðir með hlagnar skammbyssur. Vinátta Zogs og Mussolinis átti sér ekki langan aldur. Henni lauk með innrás hers Mussolinis 1939, — og Zog varð aftur að flýja land, með Geraldine drottningu og son þeirra, þriggja daga gaml-'' an, — og nú er sögu „hins gleyma konungs“ lokið. Hans verður ekki framar minnzt á forsíðum heimsblaðanna. Norðmenn bjóða námsstyrk. Vinnu við Asvan-stífluna miklu í Níl verður seinkað um 14 mánuði að beiðni Menning- ar- og vísindastofnunar Sþj. Stofnunin vill forða fornum höggmyndum og öðrum lista- verkum frá glötun, en þau mundu fara á kaf í uppistöðu- lónið, ef ekki væri gerður varn- argarður umhverfis þau. Hefir egypzka stjórnin nú fallizt á að fresta verkinu um skeið, svo að fornmenjum þessum verði bjargað. tt* VÍÐRI VERÖLD ísland borgar minnst. Árgjöld aðildarríkja Sam- einuðu þjóðanna fyrir árið 1961 hafa verið ákveðin. Fastayieðlimir Öryggisráðsins greiða eftirfarandi upphæðir: % dollarar Frakkland 6,40 3.881.463 Kín 5,01 3.072.961 Sovétríkin 13,62 9.411.395 Bretland 7,78 4.698.097 Bandaríkin 32,51 22.332.810 Þessi fimm aðildarríki greiða þannig alls 65,32 af hundraði heildarupphæðarinnar, en af- gangurinn er greiddur af hin- um 94 aðildarríkjunum. Árgjöld Norðurlanda eru sem hér segir: % dollarar Danmörk ........ 0,60 358.996 Finnland ....... 0,36 222.721 fsland ......... 0,04 24.746 Noregur......... 0,04 293.746 Svíþjóð ........ 1,39 936.616 Fyrsta kjarnorkuver (til raf- skautssvæðinu verður tekið orkuframleiðslu) á Suður- í notkun í marz 1962. Það verður flutt frá Banda- ríkjunum til McMurdo- sunds til samsetningar í nóvember næstkomandi. — Byggingin verðtir hin fyrsta, á Suðurskautsmeginlandinu, ÁRBÓK Sameinuðu þjóðanna, hagfræðilegs efnis, er komin út og vekur að sögn mesta furðu á hve mörgum sviðum Vestur- Þjóðverjar og Japanir eru orðn ir á undan. Ekki nær það þó til meta á sviði framleiðslu matvaela, og segir einn fréttaritari Breta, að engu sé líkara en að Japanir hafi náð sínum mikla árangri á fastandi maga. Hér eru nokkrar glefsur af handahófi úr Árbókinni: ★ íbúatala heims verður 3000 milljónir á þessu ári. ★ Bílaeign, miðað við íbúatölu er meiri í Frakklandi en Bret landi. ★ Engin þjóð framleiðir eins mikið af löngum kvikmynd- um og Japanir, næstir eru Indverjar, þriðju Banda- ríkjamenn, en Bretar átt- undu. ★ Af 90 milljónum bifreiða í notkun í heiminum eiga Bandaríkjamenn helming- inn. ★ Bretar og Bandaríkjamenn eiga stærstu kaupskipa- flota, en þriðji stærsti sigl- ingafloti heims siglir undir fána Liberiu. Myndin er af Urho Kekkonen Finnlandsforseta (með svartan hatt, er hann kom á ferju til Lundunaturns (Tower of London) 9. maí, en þann dag skoðaði hann ýmsa merka staði í borginni. í baksýn er Turnbrúin fræga (Tower Bridge) á Thames.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.