Vísir - 12.07.1961, Side 1
VISIR
Miðvikudagur 12. iúlí 1961. — 156. tbl.
Aðstoðarritstjóri og
fréttastjórar.
Nýlega hefir Axel Thorsteinsson,
blaðamaður við Vísi, verið ráðinn
aðstoðarritstjóri. Hann er lesendum
Vísis að góðu kunnur, þar sem hann
hefir starfað við blaðið hátt á fjórða
áratug, aðallega við ritun erlendra
írétta.
. . Nýlega voru ráðnir til starfa á Vísi
tveir nýir fréttastjórar. Eru það þeir
Sverrir Þórðarson og Þorsteinn Ó.
Thorarensen. — Mun Sverrir verða
fréttastjóri innlendra frétta, en Þor-
steinn erlendra.
Báðir eru hinir nýju fréttastjórar
landskunnir blaðamenn og hafa um
árabil starfað yið Morgunblaðið.
Fagnar blaðstiórn Vísis því að þeir
tveir bætast nú í hóp Vísismanna. .
í fögru veðri reika margir
suður að tjörn, annað hvort
til að skoða fugíálífið þar
eða bara njóta sumarblíð-
unnar. Og þá vita börnin,
hvar selja á Vísi.
Aukning þjóftarfram-
leiðslunnar 2% á íbúa
Viðreisnin miðar að aukningti
hagvaxfarins.
Nýjustu rannsóknir Framkvæmdabankans á aukn-
ingu þjóðarframleiðslunnar sýna, að á árinu 1946—
1958 jókst hún aS meðaltali um 4.1 % á ári. Meðal ár-
legur vöxtur þjóðarframleiðslunnar á mann, miðað við
fast verðlag var á þessu sama tímabili 2.0%. Þessar
nákvæmu tölur Framkvæmdabankans'fékk Vísir upp-
lýsingar um í gær og hafa þær ekki áður verið birtar.
Sýna þær að upplýsingar Tímans fyrir skömmu um að
vöxtur þjóðarframleiðslunnar hafi verið allmiklu meiri,
yfir 6%, og því geti atvinnuvegirnir borið hærra kaup-
gjald, fá ekki staðist.
Tímnn hefir í skrifum sín-
um stuðst við greinar um efna-
hagsmál sem Helgi Bergs
verkfræðingur ritaði í það
í vetur. Komst Helgi þar að
þeirri niðurstöðu, að á árun-
um 1954—1959 hefði meðal
aukning þjóðarframleiðslunn-
ar verið rúm 6% og um 4%
miðað við íbúa. Kvað hann
unnt að auka þjóðarfram-
leiðslu íslendinga úr 5% í 7%.
Helgi mun hafa fengið tölu-
legar upplýsirjgar í vetur frá
Framkvæmdabankanum, en
þess ber að gæta að upplýsing-
ar um þjóðarframleiðsluna eru
hér á landi enn ófullkomnar
og hefir bankinn síðar endur-
skoðað rannsóknir sínar og.
komist að þeim tölulegu niður-
stöðum, sem getið var hér í
upphafi.
í greinum sínum gat Helgi
Bergs eðlilega ekki gefið neina
fbrskrift um það hvernig við
ættum að auka þjóðarfram-
leiðsluna upp í 7%. Hann benti
hinsvegar réttilega á tvö þýð-
ingarmikil . atriði, sem stuðla
að aukningu á þjóðarfram-
leiðslunni. í fyrsta lagi benti
Helgi á að við höfum ekki náð
Frh. á 7, s.
vörubíls
í gær stöðvuðu verkfallsverð-
ir Vbs. Þróttar vinnu með vöru-
bíl hjá gróðrastöðinni Alaska.
Ástæðan var sú, að Alaska hafði
keypt þennan bíl í gær, ætlaði
að nota hann til flutninga, sem
Þróttar-bílstjórar höfð'u ann-
ast.
Þetta gerðist eftir hádegi. Frá
því í fyrra höfðu bílar frá Þrótti
unnið fyrir gróðrarstöðina, og
olli verkfall þeirra nokkrum
erfiðleikum hjá Alaska, svo
fyrirtækið sá sig knúið til að
kaupa bifreið. i
En Þróttar-menn töldu gróðr-
arstöðina ætla að komast í
kringum vinnustöðvunina og
Framhald a. 7. síðu.
YFIR HUNDRAÐ FARAST
TVEIM FLUGSLYSUM
Tvö hræðileg flugslys
hafa nú orðið á einum sól-
arhring. Fyrri flugvélin sem
fórst var bandarísk, hin
rússnesk. Yfir hundraS
manns hafa farizt í báðum
flugslysunum samanlagt.
Rússnesk flugvél.
Rússneska flúgvélin, sem var
af gerðinni 11-18 fórst í lend-
ingu við Casablanca í Mar-
okko. Talið er að 82 menn hafi
farizt. Flugvél þessi var í á-
ætlunarflugi milli Prag og
Cenakry í Gíneu. Hún ætlaði
að hafa viðkomu á hinum stóra
alþjóðlega flugvelli í Rabat,
en þar var svo mikil þoka, að
henni var vísað að lenda á
Casablanca flugvellinum.
í Casablanca voru löndun-
arskilyrði einnig slæm og -leiddi
það til þess að flugvélin lenti
á háspennuleiðslu er hún
lækkaði flugið of mikið í að-
fluginu. Allir sem voru í flug-
vélinni fórust nema einn, sem
komst af og var fluttur hel-
særður á sjúkrahús.
Farþegaþota.
Bandaríska flugvélin sem
fórst fyrr um daginn var risa-
farþegaþota af gerðinni DC-8.
Voru í henni hvorki meira né
minna en 109 farþegar. Hpn
var á leiðinni frá Philadephia
til Denver í Cororado. Var hún
að lenda í Denver og voru
lendingarskilyrði slæm líkt og
hjá hinni rússnesku flugvél,
þoka yfir. Fréttir af þessu slysi
Frh. á 7. s.
I
/