Vísir - 12.07.1961, Qupperneq 7
VtSIR
7
Miðvikudagur 12. júlí 1961
Flugslys -
Framh. af 1. síðu.
hafa verið einkennilega óljós-
ar. Sjónarvottar á flugvellin-
um segja, að sprenging hafi
orðið í flugvélinni áður en hún
lenti.
Flugvélin var eign United
Airlines. í fyrstu tilkynnti
skrifstofa félagsins í New
York, að enginn maður hefði
farizt með flugvélinni. En
skömmu seinna var þeirri til-
kynningu breytt og er nú sagt
að minnsta kosti 17 manns
hafi farizt 20 sé saknað en
margir tugir manna hafi verið
fluttir slasaðir á sjúkrahús.
Auk þeirra sem innanborðs
voi’u lét lífið vörubílstjóri
einn, sem var að aka bifreið
sinni hjá flugvellinum. Féll
brak úr flugvélinni yfir hann.
Síldin
Frh. af 16. s.
þessum vágesti á veiðisvæðinu.
Flest síldveiðiskipin eru kom-
in til Raufarhafnar með afla
sinn.
Þessi skip tilkynntu síldar-
ieitinni á Raufarhöfn um afla
sinni milli kl. 7 í gærkvöldi til
kl. 7 í morgun:
Heiðrún 1000 mál, Guðfinn-
ur 600 mál, Guðmundur Þórð-
arson 700 mál, Höfrungur II
1800 mál, Áskell 800 mál,
Höfrungur 1200 tunnur —
landaði á Vopnafirði, Árni Geir
950 mál, Hallbjörn GK 600 mál.
Tálknafirðingur 800 mál —
fór inn til Þórshafnar, Akra-
borg 2200 mál og tunnur, Þor-
björn 1100 mál, Guðbjörg OF
800 mál, Leifur Eiríksson 1300
tunnur, Baldvin Þorvaldsson
700 mál — fór til Vopnafjarð-
ar, Unnur VE 900 tunnur, Giss-
ur hvíti 800 mál, Steinunn
gamla 850 mál, Ófeigur II 1000
t'mnur, Páll Pálsson 900 mál —
fór inn á Vopnafjörð og Pétur
°iCTu’'ðsson 1100 tunnur.
Sveinn Guðmundsson, sem
’-ekur söltunarstöðina Strönd á
” '-ð;=fi»'ð; sagði i símtali í
morgun. að ýmsir erfiðleikar
"æru á söltuninni. Það vantar
^’iiegá stúlkur til söltunar-
■+arfa. Hér hafa allir unnið, sem
•'"t.tlino'i valda, nótt með degi,
’;ðan veíði skinanna fór að
’rora svona almenn. Sveinn
'• vaðst telja. sennilegt, að söltun
siðustu 48 klst.. myndi vera
á fjórða þúsund tunnur alls.
Sveinn kvað óðum ganga á
t.unnubirgðir, og sjálfur kvaðst
hann eiga von á 400—500 tunn-
um með bíl í dag.
Á söltunarstöð Haföldunnar
eru enn tunnubigðir.
Svo miklu hefir verið landað
af síld til bræðslu. að þrær
‘-”’ksmiðjunnar eru nær fullar
r"’ðnar.
Afmæli
Sextugur er í dag Sigurjón
Sigurjónsson, birgðavörður
hjá Áburðarverksmiðjunni. til
heimilis á Langholtsvegi 194.
Þjóðar-
framleiðslan —
Framh. af 1. síðu.
árangri í fjárfestingu okkar
sem vænta mætti. Kvað hann
það réttilega stafa af verð-
Gagarin —
Framh. af bls. 16.
Gefið honum orðu.
Koma Gagarins til Bret-
lands er aðalfrétt allra brezku
blaðanna í morgun. Nota þau
stærstu fyrirsagnir til að fagna
komu hans og láta í ljosi sér-
staka ánægju yifir því að
drottningin hefur boðið hon-
um til miðdegisverðar.
Stórblaðið Daily Mirror
segir: — Drottningin ætti að
gera enn meira en bjóða
Gagarin til veizlu. Hún ætti að
sæma hann virðulegu heiðurs-
merki. Brezkir þjóðhöfðingjar
hafa ætíð metið hetjuskap
mikils.
H
SS
Lokaður
fundur.
Kl. 11.30 fyrir hádegi í dag
stóð fundur yfir í skrifstofu
síldarútvegsnefndar, þar sem
umræðuefnið var síldarsöltun-
arsamningarnir við Rússa. —
Hófst sá fundur um kl. 10 i
morgun. Sátu hann nefndar-
menn allir í síldarútveesnefnd.
framkvæmdastjóri hennar og
verzlunarfulltrúi rús^neska
sendiráðsins, við annan mann.
Var þessi fundur „lokaður1
því ekki var hægt að ná tali af
neinum síldarútvegsnefndar-
manna. Var talið, að nú væri
komið svar austan frá Moskvu
um síldarkaup Rússa á þessu
ári af Norðurlandssíld.
bólgunni. Hagsýnin hefir orð-
ið að þoka, þegar um það er
að ræða að menn þurfi að
breyta fé sínu í einhver þau
verðmæti, sem ekki falla eins
ört í verði sem krónan.
í öðru lagi var það niður-
staða Helga, að fjárfesting-
unni hefði ekki verið beint inn
á réttar brautir. Þessar niður-
stöður Helga Bergs eru mjög
athýglisverðar.
Sannleikurinn er sá, eins
og landsmenn allir vita, að
þær tvær tillögur hans til
aukningar á hagvexti okk-
ar hefir ríkisstjórnin ein-
rnitt i verið að framkvæma
með viðreisninni.
Megináherzlan hefir verið
lögð á það að berjast gegn
verðbólgunni, eða á fyrra at-
riðið sem Helgi bendir á í
Tímagreinum sínum. Ríkis-
stjórnin hefir einnig gert sér
Ijósa þýðingu þess að beina
fjárfestingunni inn á réttar
brautir og hefir einmitt í því
t.ilefni í undirbúningi fimm
ára framkvæmdaáætlan sem
þrír norskir sérfræðingar vinna
þessa mánuðina að.
Tillögur Helga Bergs um
það hvernig á að auka hag-
vöxtinn eru hinar merkileg-
ustu, en Tíminn ætti að gera
sér grein fyrir því, að þær eru
samhljóða viði’eisnaráfromum
ríkisstjórnarinnar á þessu
sviði, sem nú hafa verið í
framkvæmd. á annað ár
Þróttur -
f'i'Hmh ai I -iíðu
stöðvuðu notkun bifreiðarinn-
ar.
í morgun hugðist forstjóri
Alaska leita til lögfræðings með
málið og kann það að verða
kært. Þróttarmenn telja aðgerð-
ir sínar eiga ótvíræða stoð í
vinnumálalöggjöfinni og ætla
að standa fast á ákvörðun sinni.
Kalli frændi
Knötturinn liggur í net-
inu — hjá Skotunum.
(Sjá íþróttasíðu).
Stefán Jóns-
son er nú í
eins konar
vísitasíuferð
með hljóðnem
ann. Hann
heimsótti Sauð
árkrók og við
fengum að
heyra hann ræða við helztu
menn þorpsins um framkvæmd
ir og atvinnuástand. Mér finn-
ast þessir aukar hjá Stefáni
fróðlegir og gott að fá fréttir
utan af landsbyggðinni frá
fyrstu hendi.
Erindi séra Árelíusar Níels-
sonar, „Kirkjan og unga fólk-
ið“, fjallaði um vandamálin í
sambúð unga og eldra fólksins,
en kirkjan kom lítið við sögu
enn sem komið er, en þetta er
fyrra erindi af tveimur. Árelí-
us ræddi um vandamál æsku-
fólksins af skilningi og réttsýni
og mátti heyra, að honum svall
mjög móður í brjósti, þegar
hann talaði um skólamálin og
þá sér í lagi landsprófið. Var
hann ófeiminn að láta í ljós
skoðanir sínar á þeirn málum.
Hann taldi, að uppeldi tilfinn-
ingalífsins væri mjög óbótavant,
hjartað gleymdist í ákafanum
að troða sem mestu í hausa
unglinganna. Þetta erindi var
séii’lega athyglisvert, enda er
séra Árelíus einn áf þeim kenni
mönnum, sem áherzlu hefur
lagt á að umgangast og leitast
við að skilja hugsanagang ungu
kynslóðai’innar. Auk þess er
hann reyndur kennari.
Ævar R. Kvaran, leikari, hélt
áfram, þar sem frá var horfið
í fyrri viku, að lesa úr ritum
Vilhjálms Stefánssonar, land-
könnuðs, um lifnaðarhætti
Eskimóa, er lifðu á' steinaldar-
stigi. Lýsti hann því, hvernig
eskimóunum tók að hnigna,
bæði andlega og líkamlega, við
snertingu við menningu vest-
rænna manna. í stað sameignar
og eindrægni kom eigingirnis-
sjónarmið og sundurlyndi, sam-
keppni í stað stamstarfs. Sann-
arlega var sorglegt að heyra um
ill afdrif þessara smávöxnu
bræðra okkar, er boðbera menn
ingarinnar rak, illu heilli, að
ströndum þeirra. Margir hlust-
enda hafa hlakkað með sjálfum
sér yfir hugsuninni um það, að
íslendingar hafi nú aldeilis ekki
látið menninguna leika sig
svona grátt. En það má náttúr-
lega ekki gleyma hvað við erum
með fádæmum gáfaðir, ha. ha!
Hlustendur fengu að heyra
lýsingu á síðari hluta knatt-
spyrnukappleiks skozka liðsins
Dundee við úrval af S-Vestur-
landi. Þetta va all brösóttur
leikur, að því ei manni skildist,
handalögmál með meiru. Ein-
hvers konar nashyrningaveiki
breiddist út meðal áhorfenda,
því þeir gáfu frá sér eins kon-
ar baul, er þeim líkaði ekki
gangur leiksins. Sigurgeir Guð-
mundsson lýsti þessum leik, og
er talhraði hans meiri en Sig-
urðar. Sigurðssoriar. Sigurgeiri
hætti nokkuð við að nota skökk
föll, en það hefur ef til vill að-
eins stafað af taugaæsingi.
Stúlkunum, sem léku lögin
fyrir unga fólkið, varð það á, að
láta tvær plötur spinnast á
röngum hraða. Var hreinn un-
aður að heyra Elvis Presley
gagga eins og hænu á 78 snún-
ingum, þgar honum var ætlað
að snúast ekki nema 33% snún-
ing á mínútu.
Þórir S. Gröndal.
látttaka
kostar 3 ár.
Lögreglan í Nairobi í Kenya
hefir dæmt hóteleiganda einn
í 3ja óra fangelsi fyrir aðild
að Mau Mau-félögum.
Var hann handsamaður, ei
hann sótti leynifund hjá Mau
Mau úti í skógi einum, og fund-
ust þá á honum skjol, sem
sönnuðu, að hann var í tveim
leynifélögum, sem hafa á stefnu
skrá sinni að breyta stjórn
Kenya með ofbeldi.
Stuttur
fundur.
Sáttafundur var boðaður i
gær með verzlunarmönnum
annars vegar og félögum kaup-
sýslumanna hins vegar.
Fundurinn hófst kl. 1 eftir
Ijiádegi, en varð ekki langur. —
gerðist ekkert markvert á fund-
inum og var annar boðaður i
dag. Eins og Vísir hefir skýrt
frá ber ekki mikið á milli.
Copyrighf P. I. B. Box 6 Copenhogen
%
1