Vísir


Vísir - 12.07.1961, Qupperneq 8

Vísir - 12.07.1961, Qupperneq 8
s VlSIR Miðvikudagur 12. júlí 1961 ÚTGEFANDI: BLAÐAUTGÁFAN VÍSIR \ Ritstjórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram. ASstoSarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór- ar: Sverrir ÞórSarson/ Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar og afgreiSsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 30.00 ó mónuSi. — I lausasölu krónur 3.00 eintakið. Sími 11660 (5 línur). — Félags- prentsmiSjan h.f., Steindórsprent h.f., Edda h.f. Þátttaka. íslands. I ræðu viSskiptamálaráðherra í gær kom það skýrt í ljós aS ríkisstjórnin er því fylgjandi aS Island gangi í viSskiptaheild Evrópu, ef niSurstaSan verSur sú aS sjö- veldin ganga til samvinnu viS sameiginlega markaSinn. Eins og málin horfa nú má telja þaS líklegt aS viS verSum orSnir aSilar aS slíkri viSskiptaheild áSur en langt um líSur ef lausn fæst á þeim sérstöku vandamál- um sem ísland varSa. Bretland virSist nú komiS mjög nærri þátttöku og vitaS er aS nokkur sjöveldanna, svo sem Danmörk og Noregur munu þá fylgja þar fast á eftir. Þessi afstaSa ríkisstjórnarinnar er skynsamleg. Ef Evrópa verSur ein viSskiptaheild á næstu misserum væri þaS glapræSi fyrir okkur aS standa utan viS þá heild. ÁstæSurnar til þess eru tvær, hin efnahagslega og hin stjórnmálalega. Nú þegar hefir komiS í Ijós aS stofnun viSskipta- bandalaganna tveggja hefir haft óhagstæS áhrif á ut- anríkisverzlun okkar. Ef bandalögin sameinast munu þau óhagstæSu áhrif verSa enn meiri; viS verSum sviptir hinum mikilvægu fiskmörkuSum okkar í Evrópu löndum, en þangaS seljum viS nú um helming af sjávar- afurSum okkar. En þátttöku í viSskiptaheild Evrópu fylgja ekki ein- ungis vildarkjör hinna tollfrjálsu viSskipta í markaSi, sem mundi telja yfir 200 millj. manna, heldur yrSum viS þar á móti aS taka á okkur nokkrar-kvaSir. RáS- herrann benti á aS ekki kæmi til greina að við gætum afnumið verndartolla á þessum áratug, enda hefir Grikkland komist aS undanþágukjörum um það atriði í sameiginlega mfirkaðnum og Portúgal í EFTA. Þá munum við ekki leyfa öðrum þjóðum að fiska í land- helgi sökum ofveiðihættunnar, en yrðum að taka til at- hugunar að leyfa aðildarríkjunum að leggja hér upp fisk og reka fiskiSjuver. Hætt er við að sumt af tollverndaða iSnaðinum sem hér er nú rekinn, mundi hverfa, en við yrðum að ein- beita okkur að þeim iðngreinum þar sem við stöndum bezt að vígi sökum náttúrulegra aðstæðna. Er ánægju- legt aS bæði iðnrekendasamtökin og S. H. hafa lýst fylgi sínu við þátttöku í viðskiptabandalagi Evrópu. Fyrir utan hinn viðskiptalega hag, sem þátttaka í viðskiptaheild Evrópu mun færa okkur, þá er ekki síð- ur mikilvægt að við skipum okkur á bekk með þeim þjóðum, sem í stjórnmálalegum efnum standa okkur næstar og byggja þjóðfélag sitt á sömu meginstoðum sem við. í þeim samningum, sem framundan eru, verð- um við að vænta þess að þær þjójðir, sem standa við hlið okkar í Atlantshafsbandalaginu veiti okkur full- tmgi við að pá sem beztum frambúðarkjörum um við- skipti á sjávatafurSum. Framtíðarhagur íslenzku þjóðarinnar veltur að miklu á því hve hagstæð þau kjör verða. CASTRO RAIIF ÖLL SÍN HEIT. Eitt af öðru hefur Castro rofið öll þau heit, sem hann gaf kúbönsku þjóðinni. í árslok 1959 var líf margra Kúbubúa orðið hrein martröð Castro hafði svikið öll sín heit, eitt af öðru. Og heitrofin höfðu sínar afleiðingar. Vdð skul- um hlusta á mál dr. Teresu Casusco, fyrrum fulltrúa kúbanska sendiráðsins í Mexíkó og síðar fulltrúa i kúbönsku sendisveitinni hjá Sameinuðu þjóðunum, kon- unnar, sem faldi vopn Cast- ros og skotfæri í Mexíkó, þegar hann var að undir- búa byltinguna. Hún segir: „í september 1959 kom ég til New Yorkborgar, því að ég átti sæti í kúbönsku sendisveitinni hjá Samein- uðu þjóðunum og hafði am- bassadorstign. Öðru hverju yfir veturinn fór ég til Kúbu og sá, hvernig á- standið var að breytast úr illu í verra. Prentfrelsi var ekkert, fangelsin full af fólki, kunn ingjum okkar, jafnvel fé- lögum og þátttakendum í byltingunni-------meira að segja aðstoðarmaður hans (Castros) og bezti vinur, Humberto Matos, höfuðs- maður, hafði verið dæmdur í 30 ára betrunarhúsvist. Og svo eru auðvitað þrælk- unarvinnubúðir AJlt sem ég hafði barizt fyrir .... allt var niður rif- ið og orðið að ferlegum lygavef .... Þeir höfðu vitanlega gert eitt og annað gott til að hjálpa fólkinu. Nokkur ný hús voru reist og nýir skól- ar, en hvergi nærri eins mikið og þeir vilja vera láta. En þeir komu líka ein- hverju góðu í framkvæmd, og ég reyndi að einblína á það, því að þessi bylting var trú og von allrar þjóð- arinnar. Það var ægilegt að þurfa að viðurkenna, að hún hafði mistekizt, vegna þess að Fddel Castro var ekki mað- ur til að koma draumum þjóðarinnar í framkvæmd. Hann olli hörmungum meðal þjóðarinnar um ger- vallt landið. Atvinnuleysi fór í vöxt, og rúrræði til úr- lausnar, sem hann gerði 1 heppnuð. Af þrjósku barðist hann við að verja ágæti þeirra ráðstafana, s^m hann gerði, oft algjörlega undir- búningslaust, og hann varði jafnvel mistök sín. Þegar ég hafði séð allt þetta var ekkert fyrir mig að gera annað en það, sem ég gerði.“ Dr. Casuso var hvorki fyrst né siðust háttsettra kúbanskra embættismanna til að yfirgefa Castro. Á undan henni fór Sergio Rojas Santamarina, am- bassador í Stóra-Bretlandi — fyrsti embættismaður- inn, sem dr. Castro skipaði í þjónustu Kúbu erlendis, eftir að byltingin var til lykta leidd. Hann gegndi því starfi í hálft annað ár, áður en hann rauf sam- bandið við kúbönsku stjórn ina. Um ákvörðun sína seg- ir hann m. a.: „Eg var skipaður am- bassador í Santiago de Cuba, sem var gerð bráða- birgðahöfuðborg landsins, jafnskjótta og Batista hafði verið velt úr sessi, og í fe- brúar (1959) fór ég til Eng- lands. Ég var aldrei þeirrar skoðunar, að Castro væri kommúnisti! .... Ég hélt því fram, að hann væri full- trúi nýrrar hreyfingar, nýrrar þjóðernishreyfingar í landinu, sem krefðist hreinskilni af stjórnmála- mönnum landsins, heiðaj-- leika stjórnarinnar og úr- lausnar fjölda vandamála, sem þjóðin átti við að stríða. En þegar frá leið .... fór Castro að fela kommúmst- um áhrifastöður.... Þar var það, sem okkur bar í milli. Það var vegna þessa, að ég ákvað loks að segja skilið við stjórnina. Hingað kom ég í apríl 1959 og eftir stutta dvöl fór ég aftur til Havana og rak Gassprenging í kolanámu. 108 námumenn létu lífið f fréttum frá Prag í lok sl. viku er sagt frá einhverju stór- kostlegasta námusysi, sem orðið hefur á síðari árum. Varð sprenging í koanámunum í Dukla, sem eru tæplega 300 km. austur af Prag. Biðu 108 námumenn bana. Öll námugöngu urðu alelda á svipstundu. Feikna reykjar- mökk lagði upp úr námunum og hitinn var óþolandi, og lagði björgunarlið námanna og -hjálparsveitir úr næstu bæjum ég þá augun í ýmislegt, sem mér féll miður. í maí 1959 þurfti ég að fara til Havana í persónu- legum erindum. Ég hafði mjög stutta vdðdvöl, en ræddi þá af einlægni um á- standið við nokkra vini mína, sem voru mjög hátt- settir innan ríkisstjórnar- innar Og við vorum farnir að sjá votta fyrir ýmsum annmörkum. Byltingarherinn hlaut t. d. reglulega fræðslu vel þekktra kommúnista. Nunez Jimenez, félagi í kommún- istaflokknum, var skipaður í háa stöðu. Jarðabótalögin voru sett, án þess að leitað væri ráða þeirra, sem þau náðu til. Við ákváðum þá og oft síðar, að þeir af okkur, sem gegndu valda- og áhrifa- stöðum, skyldum sitja í þeim eins lengi og mögulegt væri, því að það var jú meira gagn af okkur þar á þessu stigi málsins. Þegar hér var komið^ voru áhrif Castros geysi- mikil og sömuleiðis vald hans yfir alþýðu manna í landinu, svo að hverjum þeim, sem gengdð hefði úr þjónustu hans, hefði verið. rutt úr vegi af áróðursvél hans eða af honum sjálf- um. Því var það, að við sátum kyrrir í embætti okkar. Við fylgdúmst með honum og biðum átekta.“ Þá er það lögfræðdngur- inn dr. Andres Valdespino, sem hvarf frá starfi sínu sem prófessor í afbrotalög- um við Havanaháskóla ^il þess að gerast aðstoðarfjar- málaráðherra í stjórn Castr- os. Hann segir svo frá sín- um förum: ,,Eg gegndi ráðherraem- bætti þar til í marz 1960. Þá var ég þess fullvdss, að Castros hefði gengið á hönd hugsjónafræði kommúnista. Frh. á 10. s. sig í niikla hættu við björgunar- starfið, en því var haldið áfram að kalla þegar eftir að spreng- ingin varð aðfaranátt laugar- dags og fram undir morgun, en vr þá hætt, og hafði í rauninni verið augljóst frá byrjun, að vonlítið eða jafnvel' vonlaust væri, að nokkrum yrði bjargað. 24 farast í Tkailandi. A. m. k. 24 menn biðu bana, en 60 meiddust nýlega, er lest hljóp af sporinu í Thai- landi. Þetta gerðist um 650 km. norður af Bangkok. Þ^ið var „norður-hraðlestin“ sem barna var á ferð

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.