Vísir - 12.07.1961, Síða 16
VISIR
Miðvikudagur 12. júlí 1961.
./
Kwame Nkrumah, forseti í
Ghana, er í opinberri heim-
sókn í Sovétríkjunum um
þessar mundir.
Áframhaldandi síld-
veiöi í gúðu veðri.
H
IJ
X
E
R
*
I
S
í
L
D
I
N
X
I
GAGARIN MINNIR HELZT
Á KVIKMYNDALEIKARA.
Drottningu ráðlagt að sæma
hann heiðursmerki.
Brezka blaðið Daily
Telegraph Kefur enn einu
sinni látið í það skína, í
sambandi við heimsókn
geimfarans Gagarins að
ekki hafi verið allt ineð
felldu. með geimflug hans.
Blaðið segir á fremur kald-
hæðnislegan hátt: ,,Það
getur vel verið að Gagarin
sé hraustur maður, sem
hafi getað staðizt hina erf-
iðu raun geimferðarinnar,
um það veit maður ekkert
með vissu, — en hitt veit
maður nú, að hann er ákaf
lega aðlaðandi persónu-
leiki".
Eins og filmstjarna
Daily Telegraph hefur áður
haldið því fram, að annar mað-
ur en Gagarin hafi verið send-
ur í geimflug, en síðan hafi
Gagarin aðeins komið inn í
hlutverk hans, vegna þess að
hann var maður sem hafði
mjög góða framkomu, eins og
bezti kvikmyndaleikari.
Bretar hafa tekið for-
kunnar vel á móti Gagarin.
í dag var tilkynnt að hann
hefði ákveðið að framlengja
dvöl sína um einh dag
vcgna þess, að Elisabet
drottning hefur boð'ið hon-
um til einkaveizlu í Buck-
ingham-höllinni.
Það er mælt að Gagarin hafi
í gær og í dag tekið í höndina
á 2000 manns og hefur brosið
varla horfið af vörum hans.
Múgur og margmenni hefur
5afnazt saman hvarvetna þar
sem hann hefur verið á ferð.
f morgun flaug hann frá Lon-
don til Manchester og var ætl-
unin að hann dveldist um 5
klst. í • þeirri borg. Þar á að
sæma hann sérstakri gull-
medalíu brezka vísindafélags-
ins.
Framh. á bls. 7.
f nótt er Ieið og í morgun
var enn áframhaldandi síldveiði
út af Austfjörðunum. Þar voru
skipin á stóru svæði, allt frá
Bjarnarey til austurs og suðurs,
allt suður í Seyðisfjarðardjúp.
Síldin er dálítið misstór og því
smærri sem grynnra veiðist.
Fréttaritari Vísis á Baufarhöfn,
Einar Guðmundsson, sagði
Vísi í morgun, að frá því klukk-
an 7 í gærmorgun og þar til
jafnlengdar í morgun, væri
síldarleitinni þar kunnugt um
41 skip og væri samanlagður
afli þeirar nær 32.000 mál og
tunnur. f morgun var gott sjó-
veður, en skyggni ekki að sama
skapi.
Einar sagði að á Raufarhöfn
væri saltað á hverju plani eins
og hægt er. En allmikið fer í
bræðslu og þegar þetta er skrif-
að bíða þar löndunar í skipum
um 10.000 mál síldar. Fjögur
löndunartæki eru í gangi, og
gengur löndunin greiðlega. Á
sumum Austfjarðahafnanna er
rúmlega sólarhrings löndunar-
bið.
Tveir bátar urðu fyrir því ó-
happi 'að kasta á kolmunna,
Hafbjörg frá Vestm.eyjum og
Gunnar SU. Skipsmönnum
tókst að bjarga netunum. Stend
ur mönnum eðlilega stuggur af
Framh. á bls. 7.
Greinar fgár~
wnátnráöherm.
GBEINAR Gunnars Thor-
oddsen, fjármálaráðherra,
um efnahagsmál, sem hér
hafa birzt í blaðinu undan-
farnar vikur hafa komið
mjög illa við framsóknar-
menn. Tíminn í morgun ræð
ir um bað, sein hann kallar
æsingaskrif fjármálaráð-
herra“. Segir blaðið að í
ið. „Tölur falsaðar. Hrein-
greinunum sé öllu rangsnú-
lega skrökvað upp hinu og
þessu“.
Þeir, sem þessar greinar
fjármálaráðherra hafa lesið,
munu hinsvegar á einu
máli um það, að þar liafi ver-
ið tekið á þeim vandamálum,
sem rædd hafa verið af rök-
vísi og málefnalegri einurð.
Allar þær tölur, sem þar hef
ir verið vitnað í, eru teknar
úr opinberum skýrslum. og
mun Tímanum reynast æði
erfitt að véffcngja sanngildi
þeirra. Sannleikanum verð-
ur hver sárreiðastur og staf-
ar reiði Tímans eflaust af
því að blaðið hefir ekki get-
að hrakið eitt einasta atriði
úr greinum ráðherrans.
í viðtali við Eystein Jóns-
son í Tír^anum í dag, segir
Eysteinn að sér blöskri á-
byrgðarlaust skraf fjármála
ráðherra um nýja gengis-
lækkun. Það er uppspuni
frá rótum að fjármálaráð-
herra hafi mælt með nýrri
gengislækkun. Ráðherrann
hefir ekki í greinum sínum
tekið afstöðu með því að
framkvæma ^igi gengislækk
un, heldur aðeins bent á
nauðsyn þess að grípa til
gagnráðstafana eftir tilræði
framsóknar og kommúnista
við efnahag þjóðarinnar. Og
víst kemur hneykslunin á
gengislækkun úr hörðustu
átt frá Eysteini, manninum,
sem sjálfur hefir alls fjórum
sinnum staðið að gengislækk
un, árið 1939, árið 1950, árið
1956 og árið 1958, (í tvö síð-
ari skiptin var gengislækk-
unin dulbúin sem Iögfesting
yfirfærslugjalds. 16% í fyrra
skiptið en 55% í bað seinna).
Sendiráðsbíll í klandri.
Einn af bílum rússneska
sendiráðsins lenti í klandri
um síðustu hclgi, en slys
varð eklti á fólki.
Einkabíl! héðan úr bæn-
um var á Ieið til bæjarins
eftir Vesturlandsvegi og dró
hann uppi bíl með CD-skilti,
en þannig eru bílar erlcndra
sendiróðsmanna merktir. Er
Reykjavíkurbílinn ætlaði að
skjótast fram úr CD-bílnum,
sveigði hann inn á veginn
með þeim afleiðingum að
bilarnir skullu saman. Námu
bóðir staðar. Reykvíkingur-
inn ávarpaði á ensku einn
farþeganna úr CD-bíInum,
sem var frá rússneska sendi-
ráðinu og kvaðst vilja lóta
lögregluna fjalla um þennan
árekstur. En við það var
sýnilega ekki komandi. Sá
sem ekið liafði sendiráðs-
bílnum gerðist æstur mjög,
rák alla sína farþega, er
komnir voru út á veginn,
upp í bílinn aftur og ók á
brott.
Reykvíkingurinn beið hins
vegar komu laganna varða
og gaf þeim ýtarlega skýrslu
um málið.
Veðurhorfur:
A og NA gola
Úrkomulaust.
Hiti 8—11 st.
■I