Tölvumál - 01.02.1977, Page 1
Ötgefandi: Skýrslutæknifélag íslands, Reykjavík
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm.
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson
2.tbl. 2.árg. febrúar 1977
Öll réttindi áskilin
FfíLAGSFUNDUR
Félagsfundur verður í Norræna Husinu þriðjudaginn
15. febrúar 1977 og hefst kl. 14.30.
Á fundinum verður kynnt tölvuvinnsla, sem fram fer
á vegum Sambands ísl. samvinnufélaga.
SÍS hóf notkun eigin gagnavinnsluvéla (IBM gataspjalda-
véla) árið 1959. Síðan hefur SÍS staðið framarlega í
röð notenda gagnavinnslu- og tölvutækni hér á landi.
Skýrsluvéladeild SlS annast m.a. úrvinnslu fyrir flest
kaupfélög á landinu. í því sambandi hefur deildin tekið
upp fjarsendingar gagna milli landshluta. Þá hafa
Samvinnutryggingar nýlega tekið í notkun fyrirspurnakerfi,
í tengslum við skýrsluvéladeildina.
Um þessa hluti og fleiri verður fjallað á kynningunni,
en henni mun stjórna
Þórður Jónsson, deildarstjóri.
Félagið mun að venju bjóða fundargestum kaffiveitingar
í fundarhléi.
Stj órnin.
AÐALFUNDUR 15. MARZ 1977.
Samkvæmt félagssamþykkt, skal boða aðalfund með 14 daga
fyrirvara. Nú er heldur óhentugt, félaganna vegna, að senda
endanlegt"aðalfundarboð það snemma út, að þessu ákvæði félags-
samþykktar sé tryggilega mætt. Því verður nú sá kostur valinn,
að tilkynna um aðalfundinn hér. Endanlegt og nánara fundarboð
verður svo sent út í TÖLVUMÁLUM fáum dögum fyrir fundinn:
Aðalfundurinn verður 15. marz 1977 x Norræna HÚsinu og hefst
kl. 14.30. Dagskrá verður samkvæmt félagssamþykkt. tlr stjórn
eiga nú að ganga formaður, ritari og meðstjórnandi. Auk þeirra
verða kjörnir varamenn í stjórn og endurskoðendur. Tillögur
um stjórnarmenn þarf að senda stjórninni eigi síðar en þrem
dögum fyrir fundinn.
Stj órnin.