Tölvumál - 01.11.1977, Page 2
2
TÖLVUMAL
sem þannig misstu af fróðlegum félagsfundi, beðnir velvirð-
ingar á að ekki tókst betur til um fundarboðunina.
Á fundinum flutti dr. Oddur Benediktsson yfirlitserindi um
almenna þróun gagnasafnskerfa. Síðan ræddi Gunnar Ingimundar-
son, verkfræðingur um gagnasafnskerfi hjá IBM. Fjallaði
hann aðallega um svonefnt DL/I databasekerfi sem IBM hefur
þróað.
Nokkrar umræður urðu að loknum erindum þeirra Odds og Gunnars
þar sem sitt sýndist hyerjum um gildi gagnasafnskerfa og
erindi þeirra hingað til okkar.
I fundarlok bauð félagið fundargestum til kaffidrykkju í
kaffistofu Norræna Hússins.
SKRA UM NOKKRAR NÍLEGAR BÆKUR UM GAGNASAFNSFRÆÐI
í framhaldi af félagsfundinum 18. október síðastliðinn, þar
sem fjallað var um gagnasafnsfræði, þykir stjórn félagsins
rétt að birta hér í blaðinu skrá um nokkrar nýlegar bækur
um efnið.
Bækurnar eru gefnar í röð eftir því hversu tæknilega
örðugar þær eru aflestrar. Fyrsta bókin er mjög almenns
eðlis en sú síðasta með verulegri stærðfræði.
1. Martin J.
Principles of Data-Base Management.
Prentice-Hall Inc. 1976.
2. Martin J.
Computer Data-Base Organization.
Prentice-Hall Inc. 1975.
3. Tsichritzis D.C.
og Lochovsky F.H.
Data Base Management Systems.
Academic Press. 1977.
4. Date C.J.
5. Bratbergseugen K.
An Introduction to Database Systems.
Addison-Wesley Publishing Company.
2. útgáfa 1976.
Filsystemer og databaser.
Tapir. 1976.
6. Ghosh S.P.
Data Base Organization for Data
Management. Academic Press. 1977
VINNUHÖPAR UM ÍSLENZKT LETUR í TÖLVUM
Hinn 4. október 1977 boðaði stjórn Skýrslutæknifélagsins
áhugamenn um islenzkt letur í tölvum aftur saman til
fundar. Fyrsti fundurinn var haldinn í vor sem leið.
Ákveðið var að skipta starfinu niður á þrjá vinnuhópa:
1. EBCDIC-kódun. Forsvarsmaður Oddur Benediktsson.